Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 25.–27. mars 2014 Skilin eftir heima n Karoline Arntsen er með Downs-heilkenni n Bekkurinn fór til Kanarí M ál átján ára stúlku, Karoline Arntsen, hefur vakið tals- verða athygli í Noregi eft- ir að greint var frá því að skólafélagar hennar hefðu farið í skólaferðalag til Kanaríeyja án þess að láta hana vita. Karoline, sem er með Downs-heilkenni, stundar kokkanám við Ole Vig-menntaskól- ann í nágrenni Þrándheims. Það var ekki fyrr en daginn áður en bekkjarfélagar Karoline héldu í skólaferðina að móðir hennar komst að því að ferðin væri fyrir- huguð. „Ég fékk símtal frá aðstoðar- manni Karoline sem sagði mér að engin kennsla yrði í vikunni á eftir og Karoline þyrfti að læra í matsal skólans þar sem eldhúsið yrði lok- að,“ segir móðir hennar, Cathrine, í samtali við Verdens Gang. Þegar hún fór að grennslast fyrir um málið kom í ljós að bekkurinn væri á leið til Kanaríeyja, en enginn hafði haft fyr- ir því að láta Karoline vita af ferðinni og því var þátttaka hennar útilokuð strax frá byrjun. Bekkurinn hélt utan og var útlit fyrir að Karoline þyrfti að gera sér að góðu að sitja heima. Eftir að VG greindi frá málinu í síðustu viku fóru hjólin þó að snú- ast. Margir sýndu Karoline stuðning á samskiptavefjum á borð við Face- book og Twitter. Að lokum fór svo að skólameistari Ole Vig-skólans fann farsæla lausn á málinu; var Karoline boðið að fljúga til Kanaríeyja og vera með bekkjarfélögum sínum. „Mér finnst þetta bara frábært. Ég ætla að njóta mín og slaka á,“ sagði Karoline í viðtali við VG áður en hún hélt utan. n U ngar breskar stúlkur leiðast nú oft og tíðum inn í gengja- félagsskap og eiga þar undir högg að sækja. Oftar en ekki eru það stúlkur sem standa illa félagslega og andlega sem leita í slíkan félagsskap en þar þurfa þær að sanna sig með glæpum og þeim er oft misþyrmt til þess að bjóða þær „velkomnar“ í hópinn. Oftar en ekki er stúlkunum nauðgað og það kallað „manndómsvígsla“. Þetta kemur fram í nýrri skýr- slu sérfræðingahóps sem Iain Duncan Smith skipaði er hann var formaður breska íhaldsflokksins á árunum 2001–2003. BBC greinir frá, en hópurinn er kallaður miðstöð fé- lagslegs réttlætis (e. Centre for social Justice eða CSJ) og þykir hægrisinn- aður pólitískt. Skýrslan var unnin í samstarfi við sérfræðinga sem starfa með ungmennum, félagsráðgjöfum og góðgerðafélögum. Þau ræddu við ungmenni sem hafa tengst þessari gengjamenningu, bæði núverandi og fyrrverandi gengjameðlimi af báðum kynjum. Þá var farið yfir mál- in með bresku félagsþjónustunni og öðrum sem koma að starfi með ungmennum. Niðurstaðan er sú að stúlkurnar telja eðlilegt og eftir- sóknarvert að vera meðlimur í gengi enda telja þær sig vera verndaðar af genginu. Þrátt fyrir þessa trú þeirra bendir allt til þess að ungar stúlkur verði fyrir skelfilegu ofbeldi í slíkum félagsskap. Ógnvænleg niðurstaða Niðurstaða rannsóknarinnar er ógn- vænleg. Þar má lesa að þrýst er á ungar stúlkur að vera burðardýr fyr- ir fíkniefni og fíkniefnasalar. Þá eru nefnd dæmi um telpur sem ekki eru eldri en átta ára gamlar sem tengjast fíkniefnasölu. Stúlkurnar eru beðn- ar um að flytja vopn og fíkniefni á milli staða, jafnvel í barnavögnum þar sem minni líkur eru á að þær verði stöðvaðar af lögreglu og leitað á þeim. Mörg dæmi eru um að ungar stúlkur verði fyrir þrýstingi um að stunda kynlíf og jafnvel stunda vændi. Oft er þeim nauðgað, jafnvel af hópi pilta. Í skýrslunni eru gróf at- vik dregin upp og því haldið fram að dæmi séu um að tíu piltar misþyrmi einni stúlku. Misþyrmt til hlýðni Ef stúlkurnar hlýða ekki, eða gagn- rýna félaga sína, er nauðgunum beitt sem refsingum og er til dæmi þess að ungri stúlku var rænt og henni haldið nauðugri meðan henni var refsað grimmilega fyrir gagn- rýni. Stúlkurnar eru einnig skotmörk annarra gengja. „Óvinurinn“ reyn- ir að ræna þeim til þess að klekkja á hinum félagsskapnum. Þar kemur kynferðisleg misnotkun einnig við sögu og grimmilegar refsingar sem tengjast oftar en ekki misþyrming- um og nauðgunum. Erfitt líf Þessi harði heimur kemur niður á stúlkunum, og drengjum, á mörgum sviðum. Ekki aðeins missa þau tök- in á lífi sínu og leiðast út í glæpi held- ur flosna þau upp úr skóla og missa tengsl við samfélagið og traust fjöl- skyldu sinnar. Miklar líkur eru á að þau smitist af kynsjúkdómum, verði eiturlyfjaneytendur eða deyi enda leggja þau líf sitt í hættu í félagsskapn- um. Edward Boyd, sérfræðingur hjá breska velferðarráðuneytinu, segir að ljóst sé að skýrslan hafi afhjúpað grimma undirheima sem fólk hafði hundsað. „Þau lifa í hliðarheimi þar sem nauðganir eru vopn og burðar- dýr eru normið,“ segir hann. Sérfræði- hópurinn segir að þrátt fyrir þessa grimmu skýrslu sé ljóst að vandamál- ið sé stærra og meira en hægt væri að gera sér grein fyrir. Líklegt sé að um 2.500 börn, sem tengd eru gengjum, hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Því eru líkur á því að skýrslan sé að- eins toppurinn á ísjakanum. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Þau lifa í hliðar- heimi þar sem nauðganir eru vopn og burðardýr eru normið. Stúlkum nauðgað í „manndóms- vígslum“ n Svört skýrsla afhjúpar hræðilegt ofbeldi n Kynferðislegt ofbeldi í gengjum Harður heimur Stúlkurnar mega þola misþyrmingar og ofbeldi. SviðSEtt MynD Sigtryggur Ari JÓHAnnSSon Í mál vegna lottóvinnings Ítölsk kona, Caterina Gentile, hefur höfðað mál gegn ítalska ríkissjónvarpinu, RAI. Caterina keypti sér lottómiða í SuperEna- lotto, í nóvember 2008. Eftir út- dráttinn voru vinningstölurnar lesnar upp í sjónvarpi og trúði Caterina vart sínum eigin eyr- um. Hún vann ígildi 5,3 milljarða króna. Draumurinn breyttist í martröð skömmu síðar þegar þulurinn baðst afsökunar á að hafa lesið upp rangar tölur. Ítalska ríkissjónvarpið viður- kenndi að mistök hefðu átt sér stað og bauð Caterinu tæpar þrjár milljónir í bætur. Hún féllst ekki á það og hefur höfðað mál. Hún krefst 80 milljóna vegna þess áfalls sem hún varð fyrir. Enn leitað að Kony Bandaríkjamenn ætla að senda herflugvélar og -þyrlur til Afríku til að leita að uppreisnarforingj- anum Joseph Kony. Kony er eft- irlýstur af Alþjóðastríðsglæpa- dómstólnum fyrir stríðsglæpi. Umfangsmikil leit, frá árinu 2011, hefur ekki borið árangur. Hreyf- ing Konys, Frelsisher drottins, hefur það orð á sér að nema börn á brott og þjálfa barnunga drengi til hermennsku. Dæmi eru um að mjög ungar stúlkur hafi ver- ið notaðar sem kynlífsþrælar. Í frétt á vef BBC kemur fram að drengir hafi verið neyddir til að myrða foreldra sína, til þess að tryggja að þeir flýðu ekki aftur heim. Frelsis herinn hefur ver- ið til frá níunda áratug liðinn- ar aldar. Bandaríkjamenn hafa boðið hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar sem leiða til handtöku Konys fimm milljónir Bandaríkjadala, eða 570 milljón- ir króna. Farsæl lausn Karoline fékk að lokum að fara til Kanaríeyja með bekknum. Er það ekki síst viðbrögðum norsks almennings að þakka. Löður er með á allan bílinn Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540 Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.