Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 35
Vikublað 25.–27. mars 2014 Fólk 35 2.–5. Andri Snær Magnason rithöfundur n „Hefur með einstökum hætti komið einhverju inn í vitund sjálfrar þjóðarinnar. Þetta er maðurinn sem hugsar hlutina vandlega og að vel ígrunduðu máli kemur hann með nýja sýn á þá. Kemur með einfaldar og rökréttar lausnir.“ n „Duglegur að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni, einkum á samfélagsmiðlum. Stendur fast á sínu og tekst iðulega að rökstyðja mál sitt með mjög aðgengilegum hætti, sem er til marks um gáfur fyrir mér.“ 2.–5. Erlingur Sigurðarson fyrrv. menntaskólakennari n „Manni finnst eins og maðurinn viti allt. Keppti Bæði í Útsvarinu og Meistaranum. Snillingur sem lætur Parkinson-sjúkdóminn ekki hafa áhrif á að sýna opinberlega hvað hann getur.“ n „Með afburðum vel gefinn einstak- lingur og hefur einstaka hæfileika til að muna ótrúlegustu hluti.“ Halldór Högurður þjóðfélagsrýnir n „Einhver skarpasti þjóðfélagsrýnir sem Ísland á og kemur því til skila með mjög svo hvössum en þó fáguðum húmor.“ Jón Gnarr borgarstjóri n „Greind er ekki einvörðungu hæfileiki manna til að leggja hluti á minnið. Greind er einnig hæfni til að láta gott af sér leiða, fá fólk til að vinna saman, gleðja samferðamenn sína og breyta samfélaginu til hins betra.“ Þorsteinn Pálsson fyrrverandi forsætisráðherra n „Bráðgreindur og eldklár maður. Rökfastur og vandaður. Fer aldrei fram úr sér í málflutningi eða missir sig í tilfinningasemi og slíku. Við þyrftum að fá Þorstein aftur í stjórnmálin.“ Björk tónlistarkona n „Líklegast þekktasti Íslendingur fyrr og síðar. Ég er nokkuð viss um að fleiri útlendingar geti kennt hana við Ísland en sem vita að Leif- ur Eiríksson hafi fundið Am- eríku. Frami hennar er merki um þær gáfur og hæfileika sem hún hefur að bera.“ Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja n „Byggði upp eitt af öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum í Evrópu frá grunni og það á erfiðum tímum. Hefur viðað að sér gríðarlega hæfileikaríku starfsfólki sem hann vinnur náið með í að umbreyta hefðbundnu sjávarútvegsfyrirtæki í alþjóðlega markaðsdrifna samsteypu. Fyrir utan það allt, þá held ég að hann þekki alla starfsmenn sína með nafni. Geri aðrir betur.“ Reynir Pétur göngugarpur n „Snillingur. Kannski ekki á hefðbundinn hátt en í stærðfræði og fánum slá honum fáir við.“ Þau voru líka nefnd Páll Skúlason fyrrverandi háskólarektor n „Í landi þar sem rökræða er varla til eru menn eins og Páll ómissandi.“ Margrét Guðnadóttir prófessor og heiðursdoktor við HÍ n „Hún á sannarlega heima í hópi gáfuðustu Íslending- anna.“ Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor HR n „Lauk doktorsprófi frá Stanford-háskóla. Starfaði hjá NASA í áratug sem leiðandi vísindamaður og stjórnandi. Hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar á ferli sínum, bæði erlendis og hér á landi.“ Vilhelm Sigmundsson stjarneðlisfræðingur n „Fúsi hefur rosalega þekkingu á eðlisfræði og vísindum. Hefur ótrúlegan metnað til að deila út viskunni. Fer mjög vel með að útskýra flóknustu hluti á mjög einfaldan og skýran hátt. Fyrir utan það hefur hann mjög góðan mann að geyma!“ Kári Stefánsson forstjóri n „Það getur ekki verið ann- að en snilligáfa að hafa áttað sig á því að það var stofn einangraðrar dýrategundar (Íslendinga) sem hafði vel þekkta lífssögu langt aftur í tímann. Það er einstakt á heimsvísu að geta tekið heila þjóð og erfðagreint hana.“ Salvör Nordal heimspekingur n „Það er snilld í því að hafa greint sjálfsvitund Íslendinga sem þjóðar og hafa náð að koma því í farveg. Takk, Salvör!“ Anna Ó. Björnsson tölvunarfræðingur og fyrrv. þingkona n „Bráðgreind, snjöll, skemmtileg og fjölhæf. Með gáfuðustu manneskjum sem ég hef kynnst.“ Lísa Pálsdóttir útvarpskona n „Eftir áratugavinnu í leik- list, tónlist og útvarpi veit hún meira en flestir um íslenska menningu og er virkileg fróðleikskona um hana.“ Gunnar Bjarnason forstjóri Miracle n „Maður sem hefur komist langt á hyggjuvitinu og ekki látið græðgina ráða för.“ Sigurbjörn Hreiðarsson knattspyrnuþjálfari n „Einn allra skemmtileg- asti maður landsins með ofboðslegt fótboltalegt vit sem aðrir hlusta á. Hefur þannig rödd að þegar hann talar þá er hlustað.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.