Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 24
Vikublað 25.–27. mars 201424 Neytendur Leikmenn mega ekki gelda „Ný lög um velferð dýra taka af öll tvímæli um það að dýralækn- um einum er heimilt að gelda dýr, gildir einu um hvaða dýrategund er að ræða. Nýju lögin taka einnig af öll tvímæli um að við sársauka- fullar aðgerðir skuli ávallt deyfa eða svæfa dýr, aðeins er gefin ein undantekning frá þeirri reglu en það er að eyrnamarka má lömb og kiðlinga innan við viku gamla án deyfingar. Ekki svo að skilja að lömb og kiðlingar finni minna til heldur er þessi undanþága sett af praktískum ástæðum.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Mat- vælastofnun. „Þetta sprettur ekki af neinu einu atriði, við erum bara að vinna í að hamra þetta inn,“ segir Hjalti Andrason, fræðslu- stjóri stofnunarinnar. Vefjast um háls ungbarna IKEA innkallar himnasængur Barnahimnasængur sem seldar hafa verið í IKEA hafa flækst um háls ungbarna og þess vegna hef- ur verslunin ákveðið að innkalla þær. Engin alvarleg slys hafa ver- ið tilkynnt en vegna fyrrnefndrar hættu eru viðskiptavinir sem eiga IKEA-himnasængur sem ætlaðar eru til notkunar með barnarúm- um eða vöggum beðnir um að hætta notkun þeirra yfir rúm- um hvítvoðunga og ungra barna. Himnasænginni má skila í IKEA- versluninni og fá endurgreitt. Himnasængurnar sem um ræðir eru: LEGENDARISK, MINNEN, BARNSLIG BOLL, MINNEN Brodyr, HIMMEL, FABLER, TISSLA og KLÄMMIG. Himnasængurnar sem um ræðir hafa verið seldar á öllum IKEA-mörkuðum frá árinu 1996. Í tilkynningunni biðst IKEA velvirðingar á óþægindum sem innköllunin kann að valda. Ostaslagur í uppsiglingu Aðeins ostur sem framleiddur er í Parma á Ítalíu má nota nafnið Parmesan nái hugmyndir Evrópu- sambandsins fram að ganga en þar á bæ hafa menn gert athugasemdir við notkun bandarískra ostfram- leiðenda á nafninu. Eins vilja Evrópusambandsmenn meina að fetaostur verði að vera framleidd- ur í Grikklandi. Á sama hátt má einungis það freyðivín sem fram- leitt er í Champagne-héraðinu í Frakklandi kallast kampavín. Segja talsmenn Evrópusam- bandsins í þessum málum að framleiðsla á þessum ostum í Bandaríkjunum og markaðssetn- ing undir röngu nafni hafi af þeim viðskiptavini en Bandaríkjamenn segja á móti að það sé markaðs- setning bandarísku framleiðend- anna sem hafi skapað eftirspurn- ina til að byrja með. Íslenskur kjúklingur síður smitaður Reglur um eftirlit harðari hér en í Evrópu M un minna er um að ís- lenskir neytendur sýkist af kampýlóbakter en gerist og gengur í Evrópu en hún er algengasta orsök iðrasýkinga í álf- unni. Algengast er að smit berist í fólk úr kjúklingum en kampýlóbakt- er í íslenskum kjúklingum hefur verið vel undir 5 prósentum undan- farin ár en er yfirleitt 30–50 prósent og allt upp í 80 prósent í kjúkling- um á markaði í Evrópu. Þetta kem- ur fram í fréttatilkynningu frá Mat- vælastofnun þar sem áréttað er mikilvægi strangrar matvælalög- gjafar. Hjá ESB gilda engar reglur um kampýlóbakter í kjúklingum. Almenn regla við innleiðingar ESB-reglugerða er að landið get- ur nýtt sér að setja eða viðhalda strangari reglum en ESB-reglurn- ar kveða á um og það gerði Ísland þegar matvælalöggjöfin var inn- leidd að fullu 1. nóvember 2011. Varðandi framleiðslu alifuglaafurða gilda hér á landi strangari reglur um salmonellu og kampýlóbakter og stuðla þær að öruggari alifugla- afurðum á markaði en tíðkast hjá ESB. Þessar séríslensku reglur færa vöktun og varnir þess vegna framar í framleiðslukeðjuna, betur er fylgst með uppeldi kjúklinganna á bú- unum og harðari viðbrögð eru við uppkomu smits en reglur ESB gera ráð fyrir. Samkvæmt íslenskum reglum eru allir kjúklingar rannsakaðir fyr- ir slátrun og ef hópur reynist smit- aður af kampýlóbakter þá verður að frysta allar afurðir þess hóps. Það minnkar bakteríurnar um 90 prósent. Varðandi salmonellu eru strangari reglur hvað varðar kjúklinga en bæði í Skandinavíu og ESB. Yfir 2.000 tegundir eru þekkt- ar af salmonellu, sumar hættulegri en aðrar. Reglur ESB fyrirskipa að- eins viðbrögð við tveimur tegund- um í kjúklingum en þær eru taldar valda um 70 prósent sýkinga. Hér á landi er hins vegar brugðist við öllum tegundum salmonellu á öll- um stigum framleiðslunnar. Finnist salmonella í eldishópi hér á landi er óheimilt að senda hann til slátrunar og öllum fuglum í hópnum er farg- að og allt urðað. n fifa@dv.is Kjúklingabú Strangar reglur gilda um smitvarnir í kjúklingabúum. Þyrftir að eiga sjö reiðhjól n Mismunandi hjól fyrir ólíkar aðstæður n Geta kostað frá 30 þúsund krónum til 2,5 milljón n Mikilvægt að huga að viðhaldi þeirra M argir eru sjálfsagt farn- ir að huga að vorinu og ákveða þá að leggja fjöl- skyldubílnum og nota eigið vélarafl til að kom- ast á milli staða. DV kannaði hvað er í boði fyrir þá sem vilja fjárfesta í nýju reiðhjóli en óhætt er að segja að verðbilið sé mjög breitt, allt frá tæp- lega 30.000 krónum í Byko og upp í um 2.500.000 krónur hjá Kria Cycles. Algengt verð á góðu reiðhjóli er á bilinu 80.000 til 130.000 krónur. Götuhjól „Allir þeir sem DV talaði við, í Byko, G.Á.P. og Kria Cycles töluðu um mik- ilvægi þess að huga að því til hvers ætti að nota hjólið. Fyrir 10–20 árum keyptu allir Íslendingar fjallahjól en það væri á miklu undanhaldi núna. Þeir einir þurfa fjallahjól sem ætla að hjóla erfiðari leiðir. Fyrir ferðalög til og frá vinnu er miklu nær að kaupa götuhjól sem eru með fínni og mjórri dekkjum og án dempara. Koma tilbúin Kosturinn við götuhjólin, fyrir utan að henta til hjólreiða innanbæj- ar, er að þau koma fullbúin. Þannig þarf ekki að kaupa sérstaklega bretti, keðjuhlíf og bögglabera eins og þurfti að gera við fjallahjólin. Ekki í keppni „Við erum ekki að eltast við dýru hjól- in,“ segir Agnar Kárason, verslunar- stjóri í Byko á Granda, um úrvalið í versluninni. Þar eru seld hjól frá 30.000 og upp fyrir 100.000 krónur. Hann vekur athygli blaðamanns á þríhjóli fyrir fullorðna sem þar er til sölu og hvetur hann til að fara rúnt. Því er fagnað af blaðamanni en ekki jafn ákaflega af öðrum starfsmönnum sem horfa upp á blaðamann hjóla inn í vöruhillu fulla af vörum. Agnar seg- ir þau vera nýjung í ár og mælast vel fyrir. „Ég er búin að selja tvö svona á tveimur vikum,“ segir hann. Götuhjól og racerar Mogens Löve Markússon, verslunar- stjóri í G.Á.P., segir götuhjólin hafa tekið nær alveg yfir markaðinn. „Svo eru þessi að verða vinsæl líka,“ segir hann og bendir á deild í versluninni sem selur hjól sem eru mitt á milli þess að vera það sem á ensku kallast racer og hefðbundin götuhjól. Þau kosta um 185.000 krónur en á þeim er hægt að fara mjög hratt, án þess að vera alveg jafn boginn og á keppnis- hjólum. „Svo er ég búinn að vera að reyna að selja fólki efni til að viðhalda hjólunum,“ segir Mogens og bendir á úðabrúsa sem kosta um 2.000 krón- ur. „Fólk er oft að koma með hjól og segja að gírarnir virki ekki og svona en það þarf bara að hreinsa þetta og smyrja. Ég get kennt þér það á smá- stund,“ segir hann. Kria Cycles „Ef fólk ætlar að eiga hjól fyrir öll til- efni þá þyrfti það að eiga svona sjö,“ segir Emil Þór Guðmundsson, eig- andi Kria Cycles og hjólanörd, að eig- in sögn. Í versluninni eru bæði seld fjalla- og götuhjól af ýmsum gerð- um og þar af leiðandi verðflokkum. „Dýrasta hjólið í búðinni kostar um tvær og hálfa milljón. Það er hann- að í samstarfi við McLaren og þeir setja nafnið sitt við það,“ segir hann. Verslunin selur hjól frá framleiðand- anum Specialized sem leggur mik- inn metnað í þróun á öllu sem við kemur reiðhjólum. Í versluninni eru seld fjallahjól fyrir þá sem sannarlega hjóla á fjöllum en þó er hægt að fá fín hjól fyrir þá sem hugsa sér að hjóla til dæmis til og frá vinnu, á verði frá 70.000 krónum. n Vorstillingar Flestir láta yfirfara hjólin sín reglulega og þau sem ekki hjóla yfir vetrartímann gera það á vorin. Í G.Á.P. kostar slík yfirferð á bilinu 2.500 til 3.500 krónur en í Erninum kostar yfirferðin 3.990 krónur. Þá er hjólið smurt, keðjur, bremsur, vírar og barkar auk þess sem keðjan er ástandsmæld. Ef hjólið er mjög illa farið og þarf að skipta um til dæmis barka eða bremsupúða getur kostnaðurinn farið upp í um það bil 15.000 krónur. Notuð hjól Virkur markaður er með notuð reiðhjól á Ís- landi, bæði á vefnum bland.is og í grúppum á Facebook eins og „Hjóladót til sölu". Það er mjög sniðugt fyrir þau sem eru ekki viss um hvort þau komi til með að nota hjólið mikið að prófa að kaupa þau fyrst notuð og geta þá keypt nýtt og dýrara hjól seinna. Eins er þetta góð leið til að eignast dýrari hjól en fólk hefði ella efni á. Oft eru hjólin þar í mjög góðu ástandi og kosta aðeins brot af því sem þau kostuðu ný. Eins og alltaf þegar vörur eru keyptar notaðar er lykilatriði að gæta þess að þær séu ekki illa fengnar. Hjálmur Hjálmar koma í ýmsum stærðum og gerðum. Líftími reiðhjólahjálma er 4–5 ár en þeir eiga allir að vera merktir með dagsetningu. Dæmi um verð á hjálmum: n Byko: 2.450 kr.–7.990 kr. n G.Á.P: 8.900 kr.–14.000 kr. n Kria: 7.490 kr.–43.000 kr. Auður Alfífa Ketilsdóttir fifa@dv.is Ódýrt hjól Þetta hjól kostar 34.000 kr. í Byko. MynD SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.