Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 22
Vikublað 25.–27. mars 201422 Umræða Umsjón: Henry Þór BaldurssonÞvermóðsku viðskiptafræði Í sland er þúfa og á henni mikið lausafé. Og hingað til hafa lands- menn, eins og féð, arkað nokk- uð frjálslega um grundir og not- ið landsins gæða. En nú er farið að þrengjast að almannarétti tvífættra Íslendinga. Vaxandi ferðamanna- straumur eykur eftirspurn að nátt- úruperlum landsins og breytir þeim í féþúfu á féþúfu ofan. Peningar verða til, spurningin hins vegar sú; hverj- ir eiga að njóta? Í sjávarútvegi rukka kvótahafar aðra landsmenn um að- göngugjald og stinga í eigin vasa. Vilj- um við sama háttinn á þegar kemur að aðgengi náttúruperla? Möguleiki Íslands liggur í auð- lindunum, í gegnum þær geta lands- menn haldið uppi almennri velsæld og velferð. En það verður varla gert nema með skýrri auðlindalöggjöf. Við þurfum að spyrja okkur hversu djúpt einkaeignaréttur á að ná, 20 metra, 200 metra eða alla leið til andfætling- anna? Og hversu hátt, 20 metra eða til tunglsins? Hvað teljast náttúruperl- ur? Er Geysir eign Íslendinga eða landeigenda? Finnst okkur sem þjóð eðlilegt að óveiddur fiskur í sjó sé eign einhvers? Rjúpnaveiði er takmörk- uð, væri eðlilegt að einskorða veiði- leyfin við rjúpnaskyttur síðastliðinna þriggja ára, þær áframselji síðan leyf- in og stingi kaupverðinu í eigin vasa? Við höfum tvo kosti, annars vegar að drífa í skýrri auðlindalöggjöf sem tryggir rétt þjóðarinnar til lands- og sjávargæða, hins vegar að reka sam- félagið með skattpíningu og einstaka framlagi velviljaðra auðmanna sem einir sitja á féþúfunni. n Féþúfan Ísland Lög og mannréttindi brotin A ldraðir og öryrkjar hafa mikið knúið á stjórnvöld að leiðrétta kjaraskerðinguna (og kjaragliðnunina), sem þessir hópar urðu fyrir á krepputímanum. Meðaltekjur ör- yrkja (allar tekjur þeirra, þar á með- al fjármagnstekjur) hækkuðu aðeins um 4,7 prósent á tímabilinu janúar 2009 til janúar 2013. Á sama tímabili hækkaði launavísitalan um 23,5 pró- sent. Og vísitala neysluverðs hækk- aði um 20,5 prósent á sama tímabili. Af þessum tölum er ljóst, að kjaragliðnun sú, sem öryrkjar urðu fyrir á tímabilinu 2009–2013 er mikil. Aðalástæðan er sú, að í janúar 2009 var 69. grein almannatryggingalag- anna tekin úr sambandi og lífeyrir öryrkja og aldraðra var frystur. Sam- kvæmt þessari grein á lífeyrir aldr- aðra og öryrkja að hækka í sam- ræmi við hækkanir launa og aldrei að hækka minna en vísitala neyslu- verðs hækkar. Það var Talnakönnun, sem kann- aði kaupmáttarskerðinguna fyr- ir Öryrkjabandalagið. Talnakönnun athugaði einnig breytingu bóta, verðlags og launa á tímabilinu 2008– 2013. Þá kom eftirfarandi í ljós: Lágmarkslaun hækkuðu á þessu tímabili um 54,3 prósent en lífeyrir einhleypra öryrkja hækkaði á sama tímabili aðeins um 29 prósent. Líf- eyrir sambúðarfólks hækkaði um 29,7 prósent. Kjaraskerðingin 2009 var óheimil Kjör öryrkja og aldraðra voru einnig skert með ráðstöfunum í ríkisfjár- málum 1. júlí 2009. En þá voru kjör- in ekki aðeins fryst heldur voru kjörin færð niður, færð til baka. En samkvæmt alþjóðasamningum, sem Ísland er aðili að, þá er óheim- ilt að færa kjör aldraðra og öryrkja til baka. Ef ætlunin er að gera slíkt vegna efnahagsáfalla, verða stjórn- völd fyrst að leita annarra leiða. Það var ekki gert 2009. Þess vegna var kjaraskerðingin þá heimil. Ef litið er á kjaraskerðingu aldr- aðra á krepputímanum, kemur hið sama í ljós og hjá öryrkjum. Lífeyr- ir einhleypra eldri borgara hækk- aði miklu minna en kaup láglauna- fólks. Umræddur lífeyrir hækkaði aðeins um 17 prósent á tímabilinu 2009–2013 ( miðað við þá, sem ein- göngu hafa tekjur frá TR) en á sama tímabili hækkaði kaup láglaunafólks um 40 prósent. Kjaragliðnunin er því eins mikil hjá öldruðum eins og hjá öryrkjum, jafnvel aðeins meiri. Þrátt fyrir skýr og ákveðin kosninga- loforð bendir enn ekkert til þess, að ríkisstjórnin ætli að leiðrétta kjaragliðnun aldraðra og öryrkja Brotin mannréttindi á öldruð- um og öryrkjum Það eru margir mannréttindasátt- málar, sem Ísland hefur undirritað. Þessir sáttmálar kveða á um það að veita skuli öldruðum og öryrkjum félagslegt öryggi og þeir kveða á um ýmis önnur réttindi, sem tryggja á öryrkjum og öldruðum. Einna mikilvægastur þessara sáttmála er mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna. Þá skiptir samningur Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra miklu máli fyrir öryrkja. Ísland hefur undirritað þann sátt- mála en hann hefur enn ekki tek- ið gildi hér á landi. Er nú unnið að gildistöku sáttmálans. En það er ekki nóg að undirrita samninga og setja þá í gildi. Það þarf að fara eftir þeim. Ég hefi áður skýrt frá því, að það er óheimilt samkvæmt alþjóð- legum mannréttindasamningum, sem Ísland hefur samþykkt, að færa réttindi aldraðra og öyrkja til baka, þ.e. skerða þau eins og gert var 1. júlí 2009. Ég kvartaði yfir því við þáverandi mannréttindaráðherra, Rögnu Árnadóttur, en hún gerði ekkert með erindið. Hún stakk því undir stól. Mannréttindayfirlýsing SÞ kveð- ur á um það, að allir eigi rétt á lífskjörum, sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan; þar á meðal rétt til fæðis, klæða og félags- legrar þjónustu. Enn fremur segir þar, að allir eigi rétt á öryggi vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlun- ar, fyrirvinnumissis, elli og annars, sem skorti veldur. – Það er engin spurning, að mannréttindi hafa verið brotin á öldruðum og öryrkj- um hér á landi. Lög hafa einnig ver- ið brotin á öldruðum, þar eð í lög- um um málefni aldraðra segir, að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra þegna þjóðfélagsins. Svo hefur ekki verið. n „Samkvæmt alþjóðasamning- um, sem Ísland er aðili að, þá er óheimilt að færa kjör aldraðra og öryrkja til baka. Björgvin Guðmundsson form. kjaranefndar Félags eldri borgara Aðsent Er Geysir eign Íslendinga eða landeigenda? „Er Geysir eign Íslendinga eða landeigenda? Lýður Árnason læknir og vaktstjóri Lýðræðisvaktarinnar Kjallari Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni „Er þröngt um þig í þessum kassa þínum sem þú virðist búa í?!?“ Sigríður Ragna Árnadóttir skaut fast á mann sem sagði Pólverja vera „vandræðagemsa“. 60 „Gyða, það er augljóst að þú og þinn fyrrverandi eruð að glíma við skilnað. Hann selur svo hundinn og aumingja stúlkan situr nú á milli í ykkar deilum. Hundurinn var lasinn, hún hjúkraði hann/hana til heilsu aftur og það er greinilegt að þau hafa tengst mikið. Hvernig væri að setjast niður og hugsa málið til enda?“ Magnus Samuel Gunnarsson reyndi að vera rödd skynsemi í máli stúlku sem keypti Papillon-tík af manni á bland.is. Fyrr- verandi eiginkona mannsins segist eiga hundinn. 43 „Skyndihjálp á að vera skyldufag í skóla finnst mér.“ Bjarni Thor Arnason tjáði sig um frétt af fjölmiðlamannin- um Jóhannesi Kr. Kristjánssyni sem veitti ungri stúlku fyrstu hjálp. 30 „Meira svona :D Ánægður með þennan framtakssama og óspéhrædda sjómann :D En sé ég rétt, er búið að móða út sprellann á herramanninum?“ Svavar Knútur var ánægður með berrassaðan sjómann sem tók Wrecking Ball úti á sjó. 22 „Og áfram heldur sérhagsmuna- gæslan. Hvaða hagsmuni skyldi þjóðin hafa af hvalveiðum? Ekki nokkra.“ Snorri Snorrason var hugsi yfir ummælum þingmannsins Jóns Gunnarssonar. Hann sagði náttúruverndarsamtök stunda „hryðju- verkastarfsemi“. 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.