Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Qupperneq 9
Vikublað 25.–27. mars 2014 Fréttir 9
www.fi.is
Lýðheilsu- og for
varnarverkefni F
erðafélags Ísland
sThe Biggest Winn
er!
Upplifðu náttúru
Íslands
Aðal samstarfsaðilar FÍ
Lýðheilsu- og forvarnarverkefni
Ferðafélags Íslands
· Fyrir feita, flotta, frábæra
· Fyrir þá sem þora, geta, vilja
· Taktu fyrsta skrefið
· Taktu eitt skref í einu
· Virkjaðu styrkleika þína með jákvæðum og
uppbyggilegum hætti
· Rólegar gönguferðir með stöðuæfingum
· Náttúruupplifun – útivera
· Mataræði – matseðill – mælingar
Kynningarfundur á Bolludaginn 3. mars kl. 19.00 í
sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6
Umsjón verkefnis: Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ,
ásamt læknateymi, sjúkraþjáfurum og íþróttakennurum.
Bakskóli FÍ hefst 1. maí. Kynningarfundur haldinn eftir páska.
Nánari upplýsingar á www.fi.is og skráning er
í síma 568 2533 eða í netpóst fi@fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
Óvissan háir samningagerðinni
n Vel mætt í verkfallsmiðstöðina n Framgangur samningaviðræðna kynntur kennurum
V
ið minnum á það að
minnsta kosti einu sinni á
dag, ef ekki oftar, að þessi
samningagerð er á kostn-
að félags fólksins okkar,
sem er kauplaust í verkfalli,“ sagði
Elna Katrín Jónsdóttir á fundi fram-
haldsskólakennara og fulltrúa samn-
inganefndarinnar í verkfallsmiðstöð
framhaldsskólakennara í Safamýri í
gær. Elna Katrín kom fram fyrir hönd
samninganefndar og hélt ræðu fyr-
ir kennara þar sem hún kynnti fyrir
þeim framgangi samningaviðræðna,
en um 500 manns voru á fundinum.
Stytting menntapólitísk aðgerð
Elna Katrín tók við spurningum úr sal
að ræðunni lokinni og var þar spurð
hvernig þau orð Illuga Gunnarsson-
ar menntamálaráðherra um að gera
þyrfti kerfisbreytingu og nútímavæða
framhaldsskóla hefðu birst í samn-
ingaviðræðunum. Sú kerfisbreyting
sem átt er við er stytting á námi til
stúdentsprófs. „Stytting námstím-
ans er menntapólitísk aðgerð og
við höfum haldið mjög stíft í það að
við teljum okkar hlutverk, í tengsl-
um við fyrirkomulag á nýju vinnu-
mati, að gera ráð fyrir því að í því
felist möguleiki fyrir þá skóla sem
fá heimild til, eða velja, eða sækjast
eftir því að stytta námstíma til stúd-
entsprófs að geta framkvæmt sér-
stakt vinnumat í kringum það,“ sagði
Elna Katrín.
„Þetta teljum við vera hlutverk
okkar sem samningsaðila en því fer
fjarri að við höldum þarna í Borgar-
túni 21, klefa þrjú, að það sé á okk-
ar valdi hvort nám til stúdentsprófs
verði stytt í fleiri eða færri skólum á
næstu árum. Það er mjög mikilvægt
að við greinum þarna á milli,“ sagði
Elna Katrín þegar hún svaraði spurn-
ingunni og bætti því við að samn-
inganefndin vildi tryggja að hægt
yrði að semja sérstaklega um kjör
og störf í þeim skólum þar sem nám
yrði stytt.
Vandamál í samningagerðinni
„Það er vandamál í samninga-
gerðinni, og spurning sem við höfum
ekki fengið svar við, hvort mennta-
málaráðherra hyggur á að keyra
þessa breytingu yfir allt kerfið innan
samningstímans. Þessi óvissa háir
samningagerðinni nokkuð,“ sagði
Elna Katrín. Hún sagði jafnframt
að hún hefði áhyggjur af þessum
ósvöruðu spurningum og einnig því
hversu illa samningaviðræður hefðu
gengið um helgina. Af þeim sökum
treysti hún sér ekki til þess að spá
fyrir um framhald viðræðna og sagði
einnig að aðilarnir væru ekki enn
farnir að ræða um prósentur.
Snýr ekki að Illuga
Kennarar eru margir hverjir reiðir
og ósáttir við útspil Illuga Gunnars-
sonar, sem hefur lagt til talsverða
launahækkun verði breytingar gerð-
ar á stúdentsprófinu, það stytt og
kennsluháttum breytt. „Okkur finnst
þetta ekki eiga við í kjarasamninga-
viðræðunum. Þær snúa að Bjarna
Benediktssyni (fjármálaráðherra),
ekki Illuga,“ segir framhaldsskóla-
kennari sem DV ræddi við sem segir
þögn Bjarna um samningaviðræð-
urnar hins vegar einkennilega.
„Þetta er fyrsta verkfallið mitt. Mér
finnst þetta mjög erfitt, maður er auð-
vitað þannig séð tekjulaus þrátt fyrir
greiðslur úr verkfallssjóðnum. Ég er
samt alveg bjartsýn á að þetta leysist
fljótlega. Þetta verður bara að leysast,“
segir ungur framhaldsskólakennari
sem hóf störf í fyrra. „Mér finnst þetta
erfiðast gagnvart nemendum mín-
um. Ég hef áhyggjur af þeim, sérstak-
lega þeim sem standa höllum fæti og
þeim sem eiga að útskrifast. Það fer
enginn í verkfall að gamni sínu og ég
held að nemendur og foreldrar þeirra
skilji það,“ segir annar kennari sem er
í sínu þriðja verkfalli. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Rögnvaldur Már Helgason
astasigrun@dv.is / rognvaldur@dv.is „Maður er auðvitað
þannig séð tekju-
laus þrátt fyrir greiðslur úr
verkfallssjóðnum.
Kynnti framgang samningaviðræðna Um 500 manns voru á fundi framhaldsskólakennara og fulltrúa samninganefndarinnar í
Safamýri á mánudag. Elna Katrín Jónsdóttir fór þar yfir stöðu viðræðnanna. Mynd SIgtRygguR ARI
Dæmir í Garðinum
Jamie Oliver mætir á BBQ-daginn mikla
H
inn heimsfrægi matreiðslu-
maður Jamie Oliver mun
dæma matreiðslukeppni á
grillhátíð í Garðinum í sum-
ar. „BBQ-dagurinn mikli í Garði“ fer
fram dagana 6. til 8. júní en það er
veitingastaðurinn Tveir vitar ásamt
Umaðvera.is sem sér um þessa há-
tíð grillara á Íslandi. Þetta mun vera
í fyrsta skipti sem BBQ-dagurinn er
haldinn í Garði en samkvæmt upp-
lýsingum DV þá mun hún verða
haldin ár hvert.
„Já, hann er á leiðinni til lands-
ins og mun dæma keppnina hjá
okkur,“ segir Grímur Vilhelmsson,
eigandi veitingastaðarins við Garð-
skagavita.
„Þá mun hann líka grilla fyrir
gesti og gangandi þannig að þetta
verður mikið fjör.“
Jamie Oliver er einn frægasti
sjónvarpskokkur í heimi og gengur
oft undir gælunafninu „Nakti kokk-
urinn“. Hann hefur selt matreiðslu-
bækur í bílförmum og þá á hann að
baki fjölmarga vinsæla sjónvarps-
þætti sem hafa meðal annars verið
sýndir í íslensku sjónvarpi. n
atli@dv.is
„ Já, hann er á
leiðinni til landsins
og mun dæma keppnina
hjá okkur
Jamie Oliver
Mætir í Garð í sumar.