Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Síða 13
Fréttir 13Vikublað 25.–27. mars 2014
„Ég væri dáin ef ég hefði
ekki Draumasetrið“
n Þurfa að loka Draumasetrinu vegna fjárskorts n Íbúar mjög áhyggjufullir
H
ér er heimilislegt og okkur
líður vel hérna,“ segir Dag-
mar Pálsdóttir sem býr á
áfangaheimilinu Drauma-
setrinu við Héðinsgötu í
Reykjavík. Þar hafa hjónin Ólaf-
ur Ólafsson og Elín Arna Hannam
byggt upp áfangaheimili. „Hér er
fólk sem kannski fengi ekki inni
annars staðar og er jafnvel búið að
brenna allar brýr að baki sér,“ segir
Dagmar. Hún hefur búið á Drauma-
setrinu frá því í desember og segir
heimilið og fólkið sem þar býr hafa
bjargað lífi hennar.
En nú er rekstrargrundvöllur
heimilisins ekki öruggur og hefur
þeim sem lengst hafa búið í Drauma-
setrinu verið sent uppsagnarbréf.
Ástæðan er sú að Draumasetrið
hefur ekki fengið fjárveitingar frá
Reykjavíkurborg eða velferðarráðu-
neytinu. Það þýðir að ef fer fram sem
horfir verður áfangaheimilinu lokað
á næstu mánuðum.
Borga leigu
Draumasetrið var sett á laggirnar
fyrir rúmu ári og var húsið að miklu
leyti endurbyggt til þess að gera það
íbúðarhæft. Íbúar greiða leigu, mis-
háa eftir því í hvaða herbergjum
þeir eru, en algengt verð er um 50
þúsund til sjötíu þúsund krónur á
mánuði. Allir mæta á morgunfundi
á heimilinu og sinna húsverkum og
taka þátt. Bannað er að neyta áfeng-
is eða annarra vímugjafa og er fólki
samstundis vísað af heimilinu verði
þeir vísir að neyslu. „Ég væri dáin ef
ég hefði ekki Draumasetrið,“ segir
Dagmar hreint út en íbúar þess hafa
miklar áhyggjur af fjárskortinum og
segja að forstöðumenn heimilisins
borgi nú með rekstrinum. Það gangi
ekki til lengdar. „Hér er unnið virki-
lega gott starf og við búum við gott
öryggi og skipulag. Þetta er góður
staður,“ segir Dagmar. „Þetta er þess
vegna svo sárt, ég veit ekki hvað við
gerum ef það þarf að loka.“
Engar reglur
„Þetta er í þriðja sinn sem við fáum
ekki fjárveitingu,“ segir hún sem hef-
ur ásamt öðrum íbúum leitað svara
til velferðarráðuneytisins og Reykja-
víkurborgar. „Mér finnst allir benda
á hinn,“ segir hún. Þegar DV leitaði
eftir svörum kom í ljós að vandinn
liggur kannski ekki síst í því að í raun
eru engar reglur um áfangaheimili
og hvergi í lögum er fjallað sérstak-
lega um áfangaheimili eða rekstur
þeirra. Áfangaheimili annast stoð-
þjónustu sem getur falist í ýmsu
svo sem að veita húsaskjól og ráð-
gjöf, þjónustu sem er einnig á ver-
kefnasviði félagsþjónustu sveitar-
félaganna. Rekstur áfangaheimila
fellur því ekki undir velferðarráðu-
neytið og því er ráðuneytum ekki
skylt að veita fjárveitingar til þeirra.
Heimilin geta sótt um styrki vegna
verkefna, en ekki rekstur samkvæmt
upplýsingum frá ráðuneytinu.
Draumasetrið, eða Spörvar
líknarfélag, sótti um 45 milljóna
króna styrk, en fékk ekki en í um-
sókninni var óskað eftir styrk til
reksturs. Þar með féll styrkveitingin
ekki innan þess ramma sem velferð-
arráðuneytið úthlutaði eftir, en sam-
kvæmt honum þurfti að sækja um
styrk til verkefnis sem stæði í eitt ár.
Uppfylltu ekki skilyrði
Draumasetrið uppfyllti ekki þau
skilyrði og fékk því ekki styrkinn.
Alls voru veittar 286 milljónir í vel-
ferðarstyrki á sviði félagsmála. Þar á
meðal fékk áfangaheimilið Dyngj-
an tvær milljónir, en það er áfanga-
heimili fyrir konur sem hafa lok-
ið áfengismeðferð. Í fyrra fékk svo
áfangaheimilið Krossgötur 23 millj-
ónir, sem dreifðust á tvö ár, frá
ráðuneytinu í styrk en Krossgötur
eru áfangaheimili fyrir vímuefna-
neytendur. „Við erum bara mjög
áhyggjufull. Okkur finnst þetta erfitt
og ósanngjarnt,“ segir Dagmar. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is „Þetta er í
þriðja sinn sem
við fáum ekki fjár-
veitingu
Áhyggjufull Okkur finnst þetta erfitt
og ósanngjarnt, segir Dagmar og segist
óttast hvað gerist ef áfangaheimilinu
verður lokað. Mynd SigtryggUr Ari
draumasetrið Drauma-
setrið hefur verið mikið
endurbyggt, nánast alveg.
Mynd SigtryggUr Ari
Sameinuð Nú eru Susana og dætur
hennar sameinaðar á Íslandi og verða áfram
Myndin er skjáskot úr fréttum RÚV.
Mynd Úr kvöldfréttUM rÚv
Amma fær dvalarleyfi
Susana Ortiz fær að vera á Íslandi
K
ólumbísk kona á sjötugs-
aldri, dóttir hennar og sjö ára
barnabarn hafa fengið dval-
arleyfi hér á landi af mann-
úðarástæðum. Þetta var kynnt
síðdegis á fimmtudag af fulltrúa rík-
islögreglustjóra og er það innanrík-
isráðuneytið sem veitir leyfið. Áður
hafði Útlendingastofnun synjað fjöl-
skyldunni um hæli. Um er að ræða
þær Susönu Ortiz de Suarez, dóttur
hennar og sjö ára gamla dótturdóttur
hennar. Önnur dóttir Susönu hafði
þegar fengið hæli og íslenskan rík-
isborgararétt fyrir nokkrum árum og
er fjölskyldan því nú sameinuð hér
á landi. Ástæða þess að Útlendinga-
stofnun synjaði Susönu um hæli
var sú að stofnunin taldi að henni
og dóttur hennar stafaði ekki ógn af
skæruliðasveitum í Kólumbíu, en
þegar Susana var ung kona myrtu
sveitirnar eiginmann hennar. Sus-
ana telur hins vegar að sér stafi mik-
il hætta á að vera í Kólumbíu og var
mjög ósátt við þessa niðurstöðu sem
nú hefur verið hnekkt. n
astasigrun@dv.is
Hafðu samband!
Hjörtur Sveinsson hjortur@dv.is
Ólafur H. Hákonarson olafurh@dv.is
Þórdís Leifsdóttir thordis@dv.is
Tryggðu þér auglýsingapláss!
Sérblað um
heimili
og hönnun
kemur út með helgarblaðinu
28.mars og verður
aðgengilegt frítt
inn á dv.is.