Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Síða 18
Vikublað 25.–27. mars 201418 Fréttir Erlent
Mögulega næsta
n Íbúar Transnistríu vilja heyra undir stjórn Rússa n Gæti haft slæm áhrif
E
ftir að Rússar innlimuðu
Krímskaga á dögunum hef
ur því verið velt upp hvort
sömu örlög bíði annarra fyrr
verandi ríkja Sovétríkjanna.
Lýðveldið Transnistría, sem er inn
an landamæra Moldóvu þar sem
það hefur stöðu sjálfstjórnarhéraðs,
er eitt þeirra en ráðamenn þar hafa
þegar biðlað til Rússa um að lýð
veldið verði innlimað líkt og gert var
í Krímhéraði. Hafa Rússar lofað að
taka beiðnina til skoðunar.
Athafnasöm leynilögregla
„Ástandið hér hefur versnað til muna
undanfarna mánuði,“ segir Anna,
tveggja barna móðir sem búsett er
í höfuðborg Transnistríu, Tiraspol,
í samtali við breska ríkisútvarpið,
BBC. Anna bendir á að lögreglan
í Transnistríu hafi lokað fjölmörg
um bloggsíðum að undanförnu.
„Leynilögreglan er mjög athafnasöm
þessa dagana,“ bætir hún við. Blaða
maður BBC, Humphrey Hawksley,
heimsótti höfuð borgina Tiraspol á
dögunum og ræddi við íbúa, þar á
meðal Önnu. Hann segir að það sé
eins og að fara aftur í tímann þegar
komið er til Transnistríu. Í mið
borginni stendur stytta af Vladimir
Lenin, fyrsta leiðtoga Sovétríkjanna
og leiðtoga bolsévisku hreyfingar
innar í Rússlandi. Rauður og grænn
þjóðfáni stendur reisulegur á toppi
þinghússins – Æðsta sovétinu eins
og það er kallað.
Ódýrara gas og fleiri tækifæri
Anna er ein þeirra sem myndi helst
kjósa að vera undir stjórn Rússa. „Það
eru miklu fleiri tækifæri í Rússlandi.
Launin eru svipuð og hér, en eftir
launin í Rússlandi eru mikið hærri,“
segir hún og bendir á að þau séu rúm
ar tuttugu þúsund krónur á mánuði í
Rússlandi samanborið við 8.500 krón
ur í Moldóvu. „Og gasið er miklu,
miklu ódýrara í Rússlandi,“ segir hún.
Transnistría á ekki aðild að Sam
einuðu þjóðunum, en Rússar hafa
verið með herlið í lýðveldinu um langt
skeið. Lítur Evrópusambandið sem
dæmi á að landið lúti í raun stjórn
Rússlands, í það minnsta að lýðveldið
sé undir miklum áhrifum þaðan. Alls
30 prósent íbúa eru Rússar.
Lýstu yfir sjálfstæði 1992
Í síðustu viku sendi þing Transni
stríu opinbera beiðni til Moskvu
þess efnis að lýðveldið verði hluti af
Rússlandi. Íbúar virðast ekki endi
lega hugfangnir af beiðninni, eins
og blaðamaður BBC komst að raun
um. Hjón sem hann hitti á gangi um
götur Tiraspol ypptu öxlum þegar
þau voru spurð um beiðnina og álit
þeirra á henni. Var það eins og þeim
væri alveg sama eða vissu ekki af
þessum tíðindum.
Í borginni má meðal annars finna
minningarreit um 800 fallna her
menn Transnistríu sem létust árið
1992. Átök brutust út þegar Transni
stría lýsti yfir sjálfstæði. Það leiddi
til stríðs við yfirvöld í Moldóvu sem
hófst í mars 1992, en lauk í júlí sama
ár þegar samkomulag náðist um
vopnahlé. Síðan þá hefur lagaleg
staða Transnistríu verið óútkljáð,
en yfirvöld í Transnistríu vilja ljúka
þeirri óvissu með því að verða hluti
af Rússlandi.
Um 300 þúsund manns búa
í Transnistríu, eða litlu færri en
búa á Íslandi. Helsta atvinnugrein
íbúa er landbúnaður þótt nýtilegt
svæði undir slík störf sé af skornum
skammti.
Eldfimt ástand
Sem fyrr segir er Transnistría innan
landamæra Moldóvu, en yfirvöld þar
eru höll undir Evrópusambandið. Í
ljósi atburða undanfarinna vikna ótt
ast íbúar þar að Rússar muni innlima
Transnistríu og það gæti haft slæm
ar afleiðingar í för með sér. „Ef Pútín
heldur áfram í Úkraínu og fikrar
sig að Transnistríu gæti það haft
sorglegar afleiðingar í för með sér,“
segir Oazu Nantoi, stjórnmálamað
ur í Moldóvu. „Ef það verður hægt að
stöðva hann á Krímskaga, eigum við
smá möguleika,“ segir hann, en ljóst
er að yfirvöld í Moldóvu munu ekki
taka því þegjandi ef Rússar innlima
Transnistríu.
Þó svo að Moldóvumenn séu
hallir undir Evrópusambandið og
hafi sett sér það sem markmið að
komast inn í sambandið árið 2019
er staðreyndin sú að margir íbúar
Moldóvu eru hallir undir Rússland.
Forsætisráðherrann, Iurie Leanca,
vill skrifa undir samstarfssáttmála
við Evrópusambandið, en sambæri
legur sáttmáli var einmitt kveikjan
að mótmælunum í Úkraínu fyrr á ár
inu. Þrátt fyrir þessa stefnu forsætis
ráðherrans er Vladimír Pútín Rúss
landsforseti vinsæll meðal margra
íbúa Moldóvu. Líklega verður tíminn
að leiða í ljós hvað gerist í Transni
stríu en það mun væntanlega allt
velta á ákvörðun Rússa við beiðni yf
irvalda í Transnistríu. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Fékk beiðni Rússar
hafa fengið beiðni frá
yfirvöldum í Transni-
stríu um að innlima
lýðveldið. Mynd REutERS
Guantanamo-
fangar til
Úrúgvæ
Jose Mujica, forseti Úrúgvæ, seg
ir að fimm fangar úr Guantana
mofangabúðunum á Kúbu verði
boðnir velkomnir til landsins á
næstu mánuðum. Hefur BBC eft
ir Mujica að hann hafi samþykkt
beiðni frá Barack Obama Banda
ríkjaforseta þess efnis. Obama
hefur gefið það út að öllum föng
um sem í haldi eru í Guantana
mo verði sleppt og fangabúðun
um verði lokað. Segir Mujica að
fimmmenningunum væri vel
komið að búa í Úrúgvæ með fjöl
skyldum sínum. Alls 154 fangar
eru nú í Guantanamo, flestir frá
Jemen.
Harmleikur á
Flórída
Talið er að bresk stúlka og banda
rískur kærasti hennar hafi skot
ið 31 árs lögregluþjón til bana
í Flórída í Bandaríkjunum að
fararnótt laugardags áður en þau
sviptu sig sjálf lífi.
Lögregluþjónninn, Robert
German, stöðvaði bifreið parsins
við reglubundið eftirlit og kallaði
strax í kjölfarið eftir liðsauka þar
sem hann grunaði að ekki væri
allt með felldu. Þegar félagar lög
regluþjónsins komu á vettvang lá
hann í blóði sínu á götunni. Ekki
leið á löngu áður en lögreglu
þjónarnir heyrðu tvo skothvelli
til viðbótar úr nærliggjandi húsi.
Í húsinu fannst parið látið; hin
sautján ára Alexandria Holling
hurst og hinn átján ára Brandon
Goode.
Flugvélin
brotlenti
Forsætisráðherra Malasíu, Najib
Razak, segir að vél Malaysia Air
lines, sem hvarf sporlaust hinn 8.
mars síðastliðinn, hafi brotlent í
SuðurIndlandshafi. Þetta sagði
Razak á fundi á mánudag með
ættingjum þeirra sem um borð
voru í vélinni. Vísaði hann í ný
gögn sem sýna að vélinni hafi
verið flogið í suður og síðasta
þekkta staðsetning hennar hafi
verið í Indlandshafi, vestur af
borginni Perth í Ástralíu. „Þetta
er mjög afskekktur staður, fjarri
öllum flugvöllum eða lendingar
stöðum,“ sagði Razak. Eina rök
rétta ályktunin sem hægt væri að
draga væri að vélin hefði brotlent
í sjónum og enginn komist lífs af.
Þrátt fyrir þetta er ráðgátan
um hvað kom fyrir, hvers vegna
vélinni var flogið af leið, óleyst.
Þinghúsið Hér sést styttan af Vladimir Lenin við þinghúsið í Tiraspol, Æðsta sovétið eins
og það er kallað.
„
Ástandið
hér hefur
versnað
til muna
undanfarna
mánuði
skotMark Pútíns