Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 25.–27. mars 2014
Það er margt á huldu
í þessari fjölskyldu
Hildur Yeoman ræðir um nýjustu sýninguna sína – DV
Þýðir ekki að við þurfum
endilega að vera sammála því
Hallgrímur Indriðason, segir starfsmenn vilja Óðin Jónsson áfram sem fréttastjóra – DV
Það hafði lengi
verið draumur
Hjálmar Örn Jóhannsson var að byrja með þátt á Bravó – DV
Myndin Vel mætt Það er jafnan vel mætt í verkfallsmiðstöð framhaldsskólakennara í Fram-heimilinu við Safamýri. Þegar ljósmyndara bar að garði í gær voru þar hátt í fimm hundruð kennarar sem ræddu þar málin við fulltrúa samninganefndar kennara í kjaradeilu við ríkið. MYnd SIgtrYggur ArI
ESB, sjávarútvegur og sérlausnir
N
ú þegar tillaga ríkisstjórnar-
innar um slit á viðræðum við
Evrópusambandið er kom-
in inn til utanríkisnefndar
gefst okkur kannski tóm til
að fara yfir umræðuna á yfirvegaðan
hátt. Ýmislegt hefur verið sagt sem ég
tel að verði að fara betur yfir. Eitt af því
er til dæmis að það hafi ekkert upp á
sig að klára viðræðurnar og „kíkja svo
í pakkann“ því að það sé ekkert að
fá sem ekki sé vitað fyrir fram. Þessu
halda stjórnarþingmenn blákalt fram.
Þetta er bara alls ekki rétt og ætla ég að
fara yfir nokkur atriði því til stuðnings
hér á eftir.
Sérlausnir í öllum samningum
Í fyrsta lagi er það svo að í öllum samn-
ingum sem aðildarríki hafa gert vegna
inngöngu í sambandið er að finna sér-
lausnir. Yfirleitt mjög margar. Þannig
má sem dæmi nefna að Malta fékk
sérlausnir vegna fasteignaviðskipta
og sjávarútvegs, Danir eru með sér-
lausn varðandi fjárfestingar erlendra
aðila í húsnæði, í samningum við
Svía og Finna er skilgreindur svokall-
aður heimskautalandbúnaður fyrir
ofan 62 breiddargráðu sem nýtur rík-
ari styrkja og svona mætti lengi áfram
telja. Þá má ekki gleyma því að Ísland
hefur fengið þónokkuð af sérlausnum
í aðildarviðræðunum hingað til. Þess
vegna er það beinlínis rangt að ekki sé
hægt að fá sérlausnir vegna sérstöðu
aðildarþjóða. Dæmin eru of mörg til
að menn geti haldið því fram blygð-
unarlaust.
Samanburður við noreg
Í öðru lagi verð ég að nefna saman-
burðinn við Noreg í sjávarútvegsmál-
um. Norðmenn gerðu samning á síð-
asta áratug síðustu aldar sem felldur
var 1994 í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þennan samning hafa þingmenn
stjórnarflokkanna notað grimmt í
umræðum á Alþingi máli sínu til
stuðnings um það að við munum
ekki fá viðunandi samning um sjáv-
arútvegsmálin. Hér verða menn að
gera skýran greinarmun á samnings-
stöðu og hagsmunum Norðmanna
og Íslendinga. Norðmenn eru vissu-
lega fiskveiðiþjóð en hjá þeim er um
að ræða svæðisbundna hagsmuni
strandbyggða og á þeim grundvelli
var samið m.a. um sérstakt fiskveiði-
stjórnunarsvæði norður með Noregs-
ströndum. Hér á landi er hins vegar
um grundarvallarhagsmuni þjóðar-
innar að ræða.
Á þessu er töluverður munur. Sem
dæmi um muninn á mikilvægi sjáv-
arútvegs hjá okkur annars vegar og
Norðmönnum hins vegar þá skilaði
sjávarútvegur Norðmönnum tæpum
6 prósent af gjaldeyristekjum þeirra
þegar þeir voru að semja og í dag er
hlutfallið rétt rúm 5 prósent. Á Íslandi
var sjávarútvegur í kringum 70 pró-
sent af útflutningstekjum þegar Norð-
menn felldu sinn samning og er í dag
tæplega 40 prósent. Annar munur á
okkur og Norðmönnum er sú að okkar
fiskveiðilögsaga liggur ekki að lögsögu
ESB eins og Norðmanna gerir.
Samningsaðilinn er ESB, ekki
stjórnarþingmenn
Byggt á þessu tvennu þá er mín af-
staða afar einföld. Það eru góðar líkur
á því að við getum fengið viðunandi
sérlausnir á sviði t.d. sjávarútvegs-
mála og við eigum að láta á það reyna.
Í umræðum í þinginu fóru stjórnar-
þingmenn mikinn í því að segja okk-
ur hvað við gætum ekki fengið. En þeir
eru ekki samningsaðilar. Ríki Evrópu-
sambandsins eru samningsaðilinn.
Því leiðum við málið til lykta í aðildar-
viðræðum en ekki í andsvörum á Al-
þingi. Þess vegna er það eðlilegt fram-
hald málsins að ljúka viðræðunum og
leggja samning fyrir þjóðina sem get-
ur þá tekið ákvörðun um sína fram-
tíð. n
Katrín Júlíusdóttir
þingkona og varaformaður
Samfylkingarinnar.
Kjallari „Því leiðum við
málið til lykta í
aðildarviðræðum en ekki
í andsvörum á Alþingi.
R
ússland stækkaði um rúm-
lega 26.000 ferkílómetra
í vikunni, þegar Vladimír
Pútín innlimaði Krím-
skaga, í kjölfar atkvæða-
greiðslu meðal íbúa skagans, sem
eru flestir Rússar.
Gunnar Bragi fór til Úkraínu til
að skoða ástandið með eigin aug-
um og ræða við menn.
„Þótt við séum lítil þjóð þá
erum við með rödd sem skiptir
máli í þessu stóra samhengi og það
er meðal annars hluti af því að fara
þessa leið,“ sagði Gunnar Bragi í
samtali við RÚV.
Það sem er að mínu mati svo
áhugavert við þessi ummæli er
það álit Gunnars Braga að Ísland
sé með rödd sem skiptir máli. Sem
ég er reyndar sammála honum um.
Öll lönd sem setja mannréttindi og
lýðræði á oddinn eru með rödd
sem skiptir máli.
En einmitt hið gagnstæða hef-
ur verið mjög áberandi í málflutningi
andstæðinga Evrópusambandsins,
þar á meðal frá Gunnari Braga sjálf-
um, í sambandi við hugsanlega að-
ild Íslands að sambandinu. Það er að
segja að innan ESB muni Ísland ekki
hafa neina „rödd“.
Fróðlegt væri að heyra álit ráðherr-
ans á því fyrst að rödd Íslands heyrist
allt í einu í sambandi við Úkraínu og
skiptir máli, hvort hún geti þá ekki líka
heyrst á vettvangi Evrópusambandsins?
Og skipt þar máli líka?
Ps. Nú hafa rúmlega 52.000 manns
skrifað undir áskorun til stjórnvalda
að draga ekki til baka umsókn Íslands
að ESB. Það er líka rödd sem hlýtur að
skipta máli. n
Rödd Íslands og á Íslandi
gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
Af blogginu „Þótt við séum lítil
þjóð þá erum við
með rödd sem skiptir
máli.
1 „Skiptir ekki máli hvort þú ert kona eða karl,
Pólverjar mega ekki fara inn“
Pólskri konu var um helgina meinað-
ur aðgangur að skemmtistaðnum
Hressingarskálanum á grundvelli
þjóðernis.
37.948 hafa lesið
2 Trén í Tsjernobyl rotna ekki Ný rannsókn á trjám sem
drápust í kjölfar kjarnorkuslyssins í
Tsjernobyl bendir til þessa.
16.022 hafa lesið
3 Verður tekin af lífi fyrir glæp sem sonur hennar
hefur játað
Michelle Byrom verður á fimmtudag
fyrsta konan sem tekin verður af lífi í 70
ár í Mississippi.
15.414 hafa lesið
4 „Þetta er náttúrlega bara glæpamennska“
Slóð Jörgens Más Guðnasonar nær til
ferðaþjónustu.ofbeldi um margra ára
skeið.
15.132 hafa lesið
5 Ráðherra og aðstoðar-menn heimiluðu ekki
athugun á tölvupósti
Höfundur minnisblaðsins, lögfræðingur-
inn Guðmundur Örvar Bergþórsson,
neitar að tjá sig við fjölmiðla.
10.131 hafa lesið
6 Vaninn sem skapaði söguna
Einn ástsælasti bíll bifreiðasögunnar,
Ford Econoline, víkur fyrir Evrópuútgáfu
af bílnum.
7.525 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is