Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Side 23
Vikublað 25.–27. mars 2014 Umræða Stjórnmál 23
Naglalakkaður
Gunnar Axel Axelsson, bæjar-
fulltrúi og oddviti Samfylkingar-
innar í Hafnarfirði, mætti heldur
skrautlegur á bæjarstjórnarfund
fyrir helgi. Það var enginn venju-
legur dagur í bæjarstjórninni en á
föstudag var samþykkt tilboð Ís-
landsbanka um endurfjármögn-
un á erlendum langtímaskuldum,
sem hefur verið að sliga bæinn.
„Þetta var góður dagur, langur og
viðburðaríkur bæjarstjórnarfund-
ur þar sem við samþykktum með-
al annars endurfjármögnun lang-
tímaskulda, tímamótaverkefnið
Áfram fékk brautargengi og ég
mætti í fyrsta skipti naglalakkað-
ur til vinnu. Það er góð þrenna,“
skrifaði bæjarfulltrúinn sáttur við
daginn – og naglalakkið.
xxx
xxx xxx xxx
R
eySigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra
segist sáttur við þann fjölda
sem segist treysta honum. Í
nýlegri traustsmælingu MMR mæld-
ist hann með aðeins 23,2 prósent
traust á meðal kjósenda. Það er al-
gjört hrun frá síðustu mælingu, sem
var í júní árið 2013, þegar 48,8 pró-
sent bera mikið traust til hans.
„Við getum bara borið þetta
saman við hvernig þetta hefur ver-
ið á undanförnum árum og svona
hlutfallslega, miðað við fylgi flokks-
ins, þá finnst mér þetta bara nokkuð
ásættanlegt. Þó að súlan hafi verið,
eins og ég segi, verið óvenju há í síð-
ustu mælingu á undan þá er þetta í
samræmi við það sem verið hefur,“
sagði Sigmundur í viðtali í útvarps-
þættinum Sprengisandi á Bylgjunni
um helgina.
Erfitt er að vita nákvæmlega hvað
Sigmundur Davíð á við þegar hann
talar um traustsmælinguna hlutfalls-
lega miðað við fylgi Framsóknar-
flokksins en samanburður á trausti
til hans og fylgi flokksins er athyglis-
verður.
Á sama tíma og traustsmælingin
var gerð mældi MMR líka stuðning
við stjórnmálaflokkana. Þar mæld-
ist Framsóknarflokkurinn með 14,6
prósenta fylgi. Sé fylgi flokksins frá
því í byrjun júní á síðasta ári skoðað
var það hins vegar 21,2 prósent. Þetta
er á sama tíma og traustskönnunin
sem sýndi 48,8 prósent stuðning við
Sigmund var gerð.
Stuðningur við Framsóknarflokk-
inn, flokk Sigmundar, hefur því dreg-
ist saman um 47,5 prósent á milli
þessara tveggja kannana. Á sama
tíma hefur fylgi flokksins hins vegar
dregist saman um 68,9 prósent, sem
er talsvert meira en traustið. Það
er því rétt sem Sigmundur segir að
hlutfallslega, miðað við fylgi flokks-
ins, er traust til hans í jafnvægi. n
adalsteinn@dv.is
Hlutfallslegt traust Sigmundar í jafnvægi
Forsætisráðherrann sáttur við traust innan við fjórðungs kjósenda
Sáttur „Við getum bara
borið þetta saman við
hvernig þetta hefur verið á
undanförnum árum og svona
hlutfallslega, miðað við fylgi
flokksins, þá finnst mér þetta
bara nokkuð ásættanlegt,“
sagði Sigmundur um traustið
um helgina. Mynd Sigtryggur Ari
Valdamesti
maðurinn í einn dag
Sigurður ingi í mörgum stólum í síðustu viku
N
ý stefna stjórnvalda í Evróp-
umSigurður Ingi Jóhanns-
son var um tíma í síðustu
viku einn valdamesti mað-
ur landsins. Þá leysti hann
Sigmund Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra, Ólaf Ragnar Gríms-
son, forseta Íslands, og Bjarna
Benediktsson, viðskipta- og efna-
hagsráðherra, af á meðan þeir fóru
til útlanda. Sigurður Ingi er alla
jafna ráðherra í tveimur ráðuneyt-
um en hann er sjávarútvegs-, land-
búnaðar-, umhverfis- og auðlinda-
málaráðherra dags daglega. Við
þetta bættust svo embætti forsætis-
ráðherra og handhafi forsetavalds.
Þá gegnir hann líka mikilvægu hlut-
verki í eigin stjórnmálaflokki en þar
hefur hann verið varaformaður síð-
an í febrúar á síðasta ári.
Það var þó ekki lengi sem Sig-
urður hélt um stjórnartaumana á
Íslandi. Svo vildi til að þremenn-
ingarnir Sigmundur Davíð, Ólafur
Ragnar og Bjarni voru allir staddir
erlendis á sama tíma á miðvikudag.
Venjulega er það forsætisráðherra
sem tekur við forsetavaldinu ásamt
forseta Hæstaréttar og forseta Al-
þingis í fjarveru forsetans en þegar
hann er einnig fjarverandi færist
það til næsta í fyrir fram skilgreindri
röð. Í dag er Bjarni næstur í röðinni
en Sigurður Ingi þar á eftir.
Stökk Sigurðar Inga til æðstu
metorða í íslenskum stjórnmálum
var ansi stórt. Hann kom fyrst inn
á þing í alþingiskosningunum árið
2009 eftir að hafa starfað í sveit-
arstjórnarmálum og fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Eftir að komið var á
þing lá leiðin hratt upp á við. Á þeim
tíma var Sigmundur Davíð orðinn
formaður í flokknum en Birkir Jón
Jónsson varaformaður. Það gerð-
ist síðan árið 2013, á flokksþingi
framsóknarmanna, að Sigurður Ingi
var valinn varaformaður. Við ríkis-
stjórnarmyndun var ekki hægt að
horfa fram hjá honum en það kom
þó mörgum á óvart að hann skyldi
fá tvo ráðherrastóla.
Ólíklegt er að þessi staða muni
koma upp aftur á næstunni en
heimildir DV herma að byrjað sé að
leggja grunn að ráðherrabreyting-
um. Fjölga á ráðherrum um að
minnsta kosti einn en Framsóknar-
flokkurinn er með einum færri
ráðherra í ríkisstjórninni en sam-
starfsflokkurinn. Það mun að öll-
um líkindum leiða til stólamissis hjá
Sigurði Inga. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Handhafi forsetavalds
Landbúnaðarráðherra
Sjávarútvegsráðherra
umhverfisráðherra
Auðlindaráðherra
Forsætisráðherra Búa sig
undir flóð
Starfsmenn Alþingis búa sig
núna undir flóð af umsögnum
um þrjár mismunandi þingsá-
lyktunartillögur sem allar snúa
að aðildarviðræðum Íslands að
Evrópusambandinu. Tillögurn-
ar þrjár liggja allar fyrir í utan-
ríkismálanefnd þingsins og bíða
umsagnar hagsmunaaðila. Í
þessu tilfelli eru þó hagsmuna-
aðilar óvenju margir en mál-
ið snertir þjóðina alla. Ljóst er
að tvenn mismunandi samtök
hvetja fólk til að skila inn um-
sögnum um ályktanirnar, ým-
ist til að mæla með slitum eða
gegn. Líklega munu flestar um-
sagnirnar snúast um afar um-
deilda tillögu Gunnars Braga
Sveinssonar utanríkisráðherra.
Á botninum
Enginn stjórnmálaleiðtogi nýt-
ur jafn lítils trausts og Árni Páll
Árnason, formaður Samfylk-
ingarinnar. Í traustsmælingu
MMR sem birt var fyrr í
mánuðinum kom fram að aðeins
19,6 prósent treysta formannin-
um. Athygli vekur að þegar rýnt
er í tölurnar kemur í ljós að Sam-
fylkingarfólk treystir öðrum betur
en eigin formanni. Katrín Jakobs-
dóttir, formaður Vinstri grænna,
nýtur nefnilega 80,7 prósent
trausts á meðal kjósenda Sam-
fylkingarinnar á meðan Árni Páll
nýtur aðeins 62,7 prósent trausts.