Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 25
Vikublað 25.–27. mars 2014 Neytendur 25
Matadorpeningar ótrygg mynt
Neytendur ættu ekki að kaupa sýndarfé fyrir peninga
E
f einhver gefur þér svona pen-
inga eða ef einhver vill afhenda
þér verðmæti gegn því þá skul-
um við vona að það sé þá gert á
þann veginn að það sé kannski fyrir-
tæki sem telur sig hafa hag af því að
taka við Matadorpeningum en neyt-
endur verða að passa sig á þessu en
að greiða einhverjum öðrum pen-
inga til að eignast svona pening er
varhugavert því það er engin trygging
á bak við þetta.“ Þetta segir Tryggvi
Axelsson, forstjóri Neytendastofu,
varðandi viðskipti með rafmynt.
Nokkuð hefur verið fjallað um raf-
myntina bitcoin undanfarið og fyrir
skemmstu var sagt frá því að til stæði
að úthluta Auroracoin til Íslendinga.
Rafmyntir af þessu tagi hafa einnig
verið kallaðar sýndarfé enda enginn
seðlabanki eða opinber hagstjórn að
baki þeim.
Gildandi lög á Íslandi vernda
neytendur ekki gegn tapi á sýndar-
fé, t.d. ef „markaðstorg“ sem skiptir
eða varðveitir sýndarfé bregst skyld-
um sínum eða ef greiðsla misferst
eða kemst í hendur óviðkomandi að-
ila. Handhafi sýndarfjár á ekki kröfu
á útgefanda sambærilega því sem
við á um peningaseðla og mynt, raf-
eyri, innlán og annars konar inn-
eign á greiðslureikningi. Verðgildi og
óhindrað aðgengi að sýndarfé er alls
ótryggt frá einum tíma til annars.
„Tæknilega séð eru krónurnar
okkar orðnar rafrænar, launin koma
rafrænt inn, við greiðum rafrænt og
þetta eru allt bara færslur en munur-
inn er sá að það eru færslur í raun-
verulegri mynt sem lýtur reglum
og gengi og viðmiðum en sýndar-
peningar eru í raun bara eins og
Matadorpeningar, verðgildi þeirra er
ekki tengt við neitt raunverulegt.“ n
fifa@dv.is
Bitcoin
Myntin er rafræn.
Ólífuolía í
stað raksápu
Mörg sparnaðarráð benda á leiðir
til að nýta það sem til er, til dæm-
is í eldhúsinu. Eldhúsið er fullt
af vörum sem er hægt að nota í
staðinn fyrir snyrtivörur. Ólífuolía
er ein þeirra.
Ólífuolía er frábær baðolía en
aðeins þarf eina til tvær teskeið-
ar í baðvatnið til að koma upp
úr silkimjúkur og þá þarf ekkert
rakakrem. Eins er sniðugt að nota
olíuna við rakstur en með því
fæst oft bæði betri rakstur og eins
verður húðin ekki jafn þurr og
hún vill verða þegar hefðbundin
raksápa er notuð. Kókosolíu má
nota á sama hátt.
Samferða á
Facebook
Flestir eru farnir að kannast við
heimasíðuna samferda.is sem
tengir saman fólk sem ætlar eitt-
hvert akandi með laust pláss í
bílnum og þá sem vantar far á
sama stað en hafa ekki bíl.
Á Facebook eru starfandi fjöl-
margir hópar sem gegna sama
hlutverki og má þar nefna síðurn-
ar Samferða Ísafjörður, Samferða
Akureyri, Samferða Borgarnes,
Samferða Fjarðabyggð, Samferða
Egilsstaðir, Samferða Borgarnes,
Samferða Dalvíkurbyggð og Sam-
ferða á Suðurlandi. Auk þessara
hópa er starfandi hópur sem
heitir einfaldlega Samferða.
Í þessa hópa geta þeir skráð
sig sem eiga oft leið um þau
svæði sem við á hverju sinni og
þannig fengið annaðhvort far-
þega eða far milli staða. Í flestum
tilfellum deila samferðamenn
bensínkostnaði.
Eldvarnir
allt árið
Í rannsóknum kemur fram að
mikill munur er á eldvörnum hjá
leigjendum í samanburði við þá
sem búa í eigin húsnæði. Þetta
kemur fram í dreifiriti Eldvarnar-
átaks Miðborgar og Hlíða 2014
sem dreift var í öll hús í hverfun-
um fyrir skemmstu.
Mælt er með því að á hverju
heimili séu reykskynjarar,
tveir eða fleiri, slökkvitæki og
eldvarnarteppi. Aðeins 43 pró-
sent heimila uppfylla þessi skil-
yrði.
Skoða þarf eldvarnir á heim-
ilunum í það minnsta einu sinni
á ári, prófa reykskynjara og skipta
um rafhlöður ef þess þarf. Þá þarf
að gæta þess að nægur þrýstingur
sé á slökkvitækjum en eldri tæki
eru í sumum tilfellum gagnslaus í
eldsvoða vegna þess að þau hafa
ekki verið yfirfarin reglulega.
Þyrftir að eiga sjö reiðhjól
n Mismunandi hjól fyrir ólíkar aðstæður n Geta kostað frá 30 þúsund krónum til 2,5 milljón n Mikilvægt að huga að viðhaldi þeirra
Korterskortið
Rannsókn sem gerð var á haustdögum árið 2006
þar sem hjólað var í 15 mínútur eftir stofnstígum út
frá þungamiðju Reykjavíkur. Tilgangurinn með gerð
kortsins var að vekja borgarbúa til umhugsunar um val
á ferðamáta og benda á möguleikann á að nýta sam-
göngurnar til að uppfylla hreyfiþörf dagsins sem mælt
er með að séu um 30 mínútur. Hvor lína á kortinu sýnir
hversu langt hjólreiðamaður kemst á 15 mínútum.
Töskur
Hefðbundnar körfur til að hengja á stýri eru
sívinsælar og fást í flestum hjólreiðaverslunum.
Æ algengara er líka að fólk hengi hjólatöskur á
bögglaberann. Hér eru nokkur verðdæmi:
n Byko: 1890 kr. n G.Á.P: 4.990 kr.–17.990 kr.
n Kria: Frá 15.900 kr.
Fullbúið Mongoose-hjólið kostar 79.900 kr. í G.Á.P. Mynd Sigtryggur Ari
Barnakerra
Kerran dugir upp í 43 kíló og getur rúmað
eitt eða tvö börn. Jafn framt er pláss fyrir
aftan sætið fyrir svolítinn farangur.
Fæst í G.Á.P. og kostar 45.900 kr.
Tengihjól
Hægt er að fá tengihjól fyrir börn sem eru
farin að hjóla sjálf en komast síður lengri
vegalengdir. Þessi kostar 37.995 kr. í Byko.
Í G.Á.P. fæst stöng, Tail gator, sem
tengir saman fullorðinshjól og barnahjól
þannig að barnahjólið virkar eins og tengi-
hjólið. Stöngin lyftir framdekki barnahjóls-
ins. Hún kostar 19.900 kr.
Vandað Globe Daily 3-hjólið kostar 135.000
kr. hjá Kria Cycles. Hjól af þessari gerð kosta frá
99.000 kr. og upp í 160.000 kr. Mynd Sigtryggur Ari