Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Side 31
Menning Sjónvarp 31Vikublað 25.–27. mars 2014
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Þriðjudagur 25. mars
16.30 Ástareldur
(Sturm der Liebe)
17.20 Músahús Mikka (7:26)
17.45 Ævar vísindamaður (6:8)
888 e
18.11 Sveppir (4:26) (Fungi)
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Viðtalið
(Siv Friðleifsdóttir) 888 e
19.00 Fréttir
19.25 Veðurfréttir
19.30 Íþróttir
19.40 Kastljós
20.10 Leiðin á HM í Brasilíu
(5:16) Í þættinum er farið
yfir lið allra þátttökuþjóð-
anna á HM, styrkleika þeirra
og veikleika og helstu
stjörnur kynntar til leiks.
Einnig kynnumst við gest-
gjöfunum betur og skoðum
borgirnar og leikvangana
sem keppt er á.
20.40 Castle 8,6 (12:23) (Castle)
Bandarísk þáttaröð.
Höfundur sakamálasagna
er fenginn til að hjálpa
lögreglunni þegar morðingi
hermir eftir atburðum
í bókum hans. Meðal
leikenda eru Nathan Fillion,
Stana Katic, Molly C. Quinn
og Seamus Dever.
21.25 Djöflaeyjan Þáttur um
leiklist, kvikmyndir, mynd-
list og hönnun. Ritstjóri
er Brynja Þorgeirsdóttir
og aðrir umsjónarmenn
Vera Sölvadóttir, Goddur,
Sigríður Pétursdóttir og
Kolbrún Vaka Helgadóttir.
Dagskrárgerð: Sigurður
Jakobsson. Textað á síðu
888 í Textavarpi.
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.20 Thorne: Svefnpurka 6,9
(3:3) (Thorne: Sleepyhead)
Lokaþáttur þriggja þáttta
um rannsóknarlögreglu-
manninn Tom Thorne sem
leitar raðmorðingja sem
virðist hafa gert sín fyrstu
mistök þegar hann skilur
eitt fórnarlamba sinna eftir
á lífi. Aðalhlutverk: Lorraine
Ashbourne og Brana Bajic.
Atriði í þáttunum eru ekki
við hæfi barna.
23.05 Spilaborg (6:13) (House of
Cards II) Bandarísk þátta-
röð um klækjastjórnmál og
pólitískan refskap þar sem
einskis er svifist í baráttunni
um völdin. Meðal leikenda
eru Kevin Spacey, Michael
Gill, Robin Wright og Sakina
Jaffrey. Atriði í þáttunum er
ekki við hæfi ungra barna. e.
23.55 Kastljós
00.15 Fréttir Endursýndar
Tíufréttir.
00.25 Dagskrárlok
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
ÍNN
14:40 Dominos deildin
(Stjarnan - Keflavík)
16:10 Spænski boltinn 2013-14
(Real Madrid - Barcelona)
17:50 Spænsku mörkin 2013/14
18:20 Þýsku mörkin
18:50 Evrópudeildin
(Napoli - Porto)
20:30 Evrópudeildarmörkin
21:25 Meistaradeild Evrópu
(Man. Utd. - Olympiakos)
23:05 Þýski handboltinn
(Fuchse Berlin - Hannover)
00:25 UFC Live Events
Útsending Las Vegas Ronda
Rousey og Sara McMann
11:50 Messan
13:10 Everton - Swansea
14:50 Man. City - Fulham
16:30 Cardiff - Liverpool
18:10 Ensku mörkin - neðri
deild
18:40 Ensku mörkin - úrvals-
deildin (31:40)
19:35 Man. Utd. - Man. City B
21:45 Keane and Vieira: The
Best of Enemies
22:45 Arsenal - Swansea City
00:25 Newcastle - Everton
02:05 Man. Utd. - Man. City
20:00 Hrafnaþing Norður-
landsleiðangur 27:30
Hljóðaklettar
21:00 Stjórnarráðið Ella Hrist og
Willum við stjórnvölinn
21:30 Skuggaráðuneytið Katrín
Jak,Katrín Júl,Heiða Kristín
og Birgitta.
17:40 Strákarnir
18:10 Friends (13:24)
18:35 Seinfeld (5:5)
19:00 Modern Family
19:25 Two and a Half Men
19:50 Kalli Berndsen - Í nýju
ljósi (4:10)
20:15 Veggfóður (18:20)
21:00 Game of Thrones (3:10)
21:55 Nikolaj og Julie (22:22)
22:40 Anna Pihl (2:10)
23:25 Hustle (5:6)
00:20 The Fixer (1:6)
01:05 Kalli Berndsen - Í nýju
ljósi (4:10)
01:30 Veggfóður (18:20)
02:10 Game of Thrones (3:10)
03:05 Nikolaj og Julie (22:22)
03:50 Anna Pihl (2:10)
04:35 Tónlistarmyndb.Popptíví
11:00 Everything Must Go
12:35 Stepmom (Stjúpmóðirin)
14:40 Night at the Museum
16:30 Everything Must Go
18:05 Stepmom (Stjúpmóðirin)
20:10 Night at the Museum
22:00 The Green Mile
01:05 Carriers
02:30 It's Alive
03:55 The Green Mile
13:10 Simpson-fjölskyldan
13:35 Friends
14:00 Mindy Project (7:24)
14:25 Suburgatory (7:22)
14:50 Glee (7:22)
15:35 Hart of Dixie (7:22)
16:20 Gossip Girl (7:24)
17:05 The Carrie Diaries
17:50 Pretty Little Liars (7:22)
18:35 Baby Daddy (1:16)
19:00 Extreme Makeover:
Home Edition (22:26
20:25 Hart Of Dixie (6:22)
21:10 Þriðjudagskvöld með
Frikka Dór
21:45 Pretty Little Liars (5:25)
22:30 Nikita (6:22)
23:15 Southland (1:10)
00:00 Revolution (4:22)
00:45 Tomorrow People (5:22)
01:25 Extreme Makeover:
Home Edition (22:26)
02:50 Þriðjudagskvöld með
Frikka Dór
03:25 Hart Of Dixie (6:22)
04:10 Pretty Little Liars (5:25)
04:55 Nikita (6:22)
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Cheers (5:26)
08:25 Dr. Phil
09:05 Pepsi MAX tónlist
16:55 Got to Dance (11:20)
17:45 Dr. Phil
18:25 Top Chef (1:15)
19:10 Cheers (6:26)
19:35 Sean Saves the World
(11:18) Gamanþættir með
Sean Heyes úr Will & Grace
í aðalhlutverki. Sean er
venjulegur maður sem þarf
að glímaa við stjórnsama
móður, erfiðan táning á
heimilinu og yfirmann sem
ætti að vera læstur inni.
20:00 The Millers (11:22)
Bandarísk gamanþáttaröð
um Nathan, nýfráskilinn
sjónvarpsfréttamann sem
lendir í því að móðir hans
flytur inn til hans, honum til
mikillar óhamingju.
20:25 Parenthood (12:15)
Bandarískir þættir um
Braverman fjölskylduna í
frábærum þáttum um lífið,
tilveruna og fjölskylduna.
21:10 The Good Wife 8,2 (7:22)
Þessir margverðlaunuðu
þættir njóta mikilla
vinsælda meðal áhorfenda
SkjásEins. Það er þokkadís-
in Julianna Marguilies sem
fer með aðalhlutverk í þátt-
unum sem hin geðþekka
eiginkona Alicia sem nú
hefur ákveðið að yfirgefa
sína gömlu lögfræðistofu
og stofna nýja ásamt fyrr-
um samstarfsmanni sínum.
Þetta er fimmta serían af
þessum vönduðu þáttum
þar sem valdatafl, rétt-
lætisbarátta og forboðinni
ást eru í aðalhlutverkum.
22:00 Elementary (12:24) Sher-
lock Holmes og Dr. Watson
leysa flókin sakamál í
New York borg nútímans.
Síðustu þáttaröð lauk með
því að unnusta Sherlocks,
Irine Adler var engin önnur
en Moriarty prófessor.
Moriarty prófessor kemur
við sögu í þessum þætti
þar sem hann aðstoðar
lögregluna við dularfullt
mannrán.
22:50 The Tonight Show
Spjallþáttasnillingurinn
Jimmy Fallon hefur tekið
við keflinu af Jay Leno.
23:35 The Bridge (12:13)
Spennandi þættir byggðir
á dönsku þáttunum Brúin
sem naut mikilla vinsælda.
00:15 Scandal (10:22)
01:00 Elementary (12:24)
01:50 Mad Dogs (2:2)
02:40 The Tonight Show
03:30 Pepsi MAX tónlist
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:05 Malcolm In the Middle
08:30 Ellen (167:170)
09:10 Bold and the Beautiful
09:30 Doctors (135:175)
10:15 The Wonder Years (1:24)
10:40 The Middle (18:24)
11:05 White Collar (14:16)
11:50 Flipping Out (10:10)
12:35 Nágrannar
13:00 The X-Factor US (3:26)
14:25 In Treatment (17:28)
14:55 Sjáðu
15:25 Scooby-Doo! Leynifélagið
15:45 Ozzy & Drix
16:10 Waybuloo
16:30 Ellen (168:170)
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:11 Veður
19:20 Um land allt
19:45 New Girl (18:23) Þriðja
þáttaröðin um Jess og
sambýlinga hennar.
20:10 Geggjaðar græjur
20:30 The Big Bang Theory
(18:24) Sjöunda þáttaröðin
um félagana Leonard og
Sheldon sem eru afburða-
snjallir eðlisfræðingar sem
vita nákvæmlega hvernig
alheimurinn virkar.
20:55 The Mentalist (14:22)
Sjötta þáttaröðin um
Patrick Jane sem er sjálf-
stætt starfandi ráðgjafa
rannsóknarlögreglunnar í
Kaliforníu.
21:40 Rake (9:13) 6,9 Frábærir
þættir með Greg Kinnear
í aðalhlutverki og fjalla
um lögfræðinginn Keegan
Deane sem er bráðsnjall
í réttarsalnum og tekur
að sér mál sem aðrir lög-
fræðingar reyna að forðast.
Keegan er mikill syndaselur.
22:25 Bones (21:24) Áttunda
þáttaröðin af þessum stór-
skemmtilegu þáttum þar
sem fylgst er með störfum
Dr. Temperance Brennan,
réttarmeinafræðings, sem
kölluð er til ráðgjafar í allra
flóknustu morðmálum.
23:10 Girls (12:12) Þriðja gaman-
þáttaröðin um vinkvenna-
hóp á þrítugsaldri sem
búa í draumaborginni New
York og fjalla um aðstæður
þeirra, samskiptin við
hitt kynið, baráttunni við
starfsframann og margt
fleira.
23:40 Grey's Anatomy (15:24)
00:25 Rita (2:8) Önnur þáttaröð-
in um Ritu, kennslukonu
á miðjum aldri sem fer
ótroðnar slóðir og er
óhrædd við að segja það
sem henni finnst. Hún á
þrjú börn á unglingsaldri
en hefur aldrei þótt góð
fyrirmynd.
01:10 Believe (1:13)
01:55 Breaking Bad (7:8)
02:45 Breaking Bad (8:8)
03:30 Burn Notice (8:18)
04:15 Final Destination 4
05:35 Fréttir og Ísland í dag
C
hristina Ricci hefur
ekki verið áberandi á
hvíta tjaldinu í langa
hríð. Hún sást síð-
ast í sjónvarpsþáttaröðinni
Pan am. Hún hefur unnið
á bak við tjöldin við talsetn-
ingu teiknimynda og talaði
síðast inn á Strumpana 2
og nýja teiknimynd, The
Hero of Color City. Nú mun
hún heldur betur láta að
sér kveða í hlutverki kven-
morðingjans ógurlega
Lizzie Borden í sjónvarps-
mynd um ævi hennar.
Lizzie Borden var
sýknuð af því að myrða
föður sinn og stjúpmóður
í réttarhöldum árið 1893.
Morðin þóttu óhugnanleg
en höfuðkúpa þeirra var
mölvuð með mörgum ax-
arhöggum.
Lizzi í meðförum
Christinu er að sögn að-
standenda myndarinnar
ansi óhugnanleg, hún á í
kynlífssambandi við föð-
ur sinn og fremur morðin
allsnakin.
Ricci rannsakaði sögu
Lizzie og kenningar um
líf fjölskyldunnar áður en
tökur hófust. „Ein af helstu
kenningum er að fjöl-
skyldufaðirinn hafi búið
um langa hríð með dætur
sínar tvær sem eiginkon-
ur. Þetta mynstur hafi ver-
ið rofið þegar stjúpmóðirin
flutti inn. Kenningin er sum
sé sú að Lizzie hafi hatað
hana, annaðhvort fyrir að
taka hennar hlutverk með
föður sínum, eða að hún
hafi ekki reynst vera sá
bjargvættur sem stúlkurn-
ar þurftu á að halda,“ segir
Christina Ricci. n
Kvenmorðinginn ógurlegi á skjáinn
Christina Ricci leikur Lizzie Borden
Rannsakaði sögu Lizzie
„Ein af helstu kenningum er
að fjölskyldufaðirinn hafi búið
um langa hríð með dætur sínar
tvær sem eiginkonur.“
Í
samfélagi okkar skortir mjög
upp á að við fögnum marg-
breytilegum líkamsvexti af
öllum stærðum og gerðum.
Við lifum í samfélagi þar sem
ríkir þráhyggjukennd árátta um
mat megrun og líkamsvöxt. Þessi
þráhyggja birtist í umfjöllun-
um fjölmiðla, bókaútgáfu, sjón-
varpsefni, auglýsingum, tón-
listarmyndböndum. Áreitið er
gífurlegt og alls staðar hljóm-
ar krafan um grannan vöxt sem
virðist algerlega óháð heilbrigði,
hamingju og velferð.
Bókin, Kroppurinn er krafta-
verk, er kærkomin til handa for-
eldrum sem vilja efla sjálfs-
virðingu barna sinna, styðja þau
til heilbrigðis og velferðar óháð
likamsvexti.
Hugvitssamlegar aðferðir
Höfundurinn Sigrún Daníels-
dóttir hefur í nokkur ár unnið
ötult starf til þess að opna augu
samfélagsins fyrir þeirri virðingu
sem við ættum að sýna líkama
okkar. Nú stígur hún skrefinu
lengra og beinir augum okkar að
börnunum með það að markmiði
að efla jákvæða líkamsímynd
þeirra og væntumþykju gagnvart
eigin líkama og þess sem er jafn
mikilvægt, auka virðingu þeirra
fyrir líkama annarra.
Aðferðirnar sem Sigrún beitir
eru hugvitssamlegar og skemmti-
legar og felast í því að fá þau til
að líta inn á við og skynja betur
eigin líkama af væntumþykju og
í því að fá þau til að horfa í kring-
um sig og skynja margbreytileik-
ann í fólki og náttúru og sjá
hversu ólíkt lífið er fjöldafram-
leiddum hlutum. Þannig fær Sig-
rún börnin til þess að draga línu
á milli þess sem er eðlilegt og
náttúrulegt og þess sem telst vera
gerviþarfir og framleiðsla. Einfalt
en áhrifaríkt og stuðlar að heil-
brigðri, gagnrýnni og ástúðlegri
hugsun.
Lúserar á skjánum og grann-
ar hetjur glansblaðanna
Bókin er fallega myndskreytt af
Björk Bjarkadóttur og hentar vel
börnum frá þriggja ára aldri. Hún
er sögð henta til sjö ára aldurs en
eldri börn og jafnvel fullorðnir
hafa gott af því að lesa bókina. Í
henni felst nefnilega áminning
sem auðvelt er að gleyma.
Ekki síst er bókin sterkt tæki
foreldra til að ræða um flókna og
hraða samfélagsgerð við börnin
til þess að styrkja þau í slagnum.
Munum að börnin eru vitni að
kröfuhörðu afþreyingarsamfélagi
hinna fullorðnu. Þau horfa á sjón-
varpsþætti þar sem fólk í ofþyngd
er kynnt til sögunnar sem lúser-
ar og endalaust tal um megrun
og lágkolvetniskúra. Hetjur glans-
blaðanna eru grannvaxnar. Hvað
hugsar stórgert barn um sjálft sig í
slíku umhverfi? Er það lúser? Þau
þurfa líka að horfa á glansmynd-
ir fjölmiðlanna og koma öllum
þessum skilaboðum samfélags-
ins í einhvers konar heimsmynd.
Foreldrar verða að gegna skyld-
um sínum við börn sín og hlú
að vitsmunum þeirra svo þau fái
skilið hinn raunverulega heim frá
afþreyingarheimi. Börn sem eru
sátt við líkama sinn og virða fjöl-
breytileika eru líklegri til að öðl-
ast farsæld, lifa í sátt við sig og
aðra.
Foreldrar hlúi
að börnum sínum
Bók Sigrúnar er þannig í raun
pólitísk og vonandi að sem flest-
ir foreldrar nái að slíta þráhyggju-
þráðinn og muna að þeir þurfa að
hlú að börnum sínum andlega
og stuðla að víðsýni þeirra. Ég
veit ekki um neina íslenska bók
sem gerir þessu þarfa efni skil og
finnst hún bæði nauðsynleg og
kærkomin viðbót. Það er ástæða
til að bæði þakka og óska höfundi
til hamingju með þessa bók. n
Þakkir til höfundar Ég veit ekki um neina íslenska bók sem gerir þessu þarfa efni skil
og finnst hún bæði nauðsynleg og kærkomin viðbót. Það er ástæða til að bæði þakka og
óska höfundi til hamingju með þessa bók. MYND SIGTRYGGUR ARI
Er barnið lúser?
Bókin er nauðsynleg og kærkomin viðbót
Kroppurinn er
kraftaverk
Höfundur: Sigrún
Daníelsdóttir
Teikningar: Björk Bjarkadóttir
Útgefandi: Forlagið
Útgáfuár: 2014
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bækur