Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 34
Vikublað 25.–27. mars 201434 Fólk
Álitsgjafar
Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður
Bjarni Eiríksson ljósmyndari
Einar Lövdahl,
ritstjóri Stúdentablaðsins
Elmar Garðarsson
stjórnmálafræðingur
Guðríður Haraldsdóttir,
ritstjóri Vikunnar
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir,
formaður meistaranema
við stjórnmálafræðideild HÍ
Guðfinnur Sigurvinsson
sjónvarpsmaður
Halldór Högurður þjóðfélagsrýnir
Helga Dís Björgúlfsdóttir blaðakona
Hilda Jana sjónvarpskona
Jóhann Einarsson,
formaður Vélarinnar
Malín Brand blaðamaður
Margrét H. Þóroddsdóttir,
stud.jur., formaður Lögréttu
Una Björg Einarsdóttir,
MA í mannauðsstjórnun
DV leitaði til málsmetandi álitsgjafa í leit að gáfaðasta núlifandi
Íslendingnum. Fjölmargir komust á blað en álitsgjafar blaðsins eru
samróma um að frú Vigdís Finnbogadóttir sé gáfuðust okkar
allra. Aðrir þekktir Íslendingar sem komust á listann eru Davíð Oddsson,
Katrín Jakobsdóttir og Andri Snær Magnason.
Vigdís gáfuðust
2.–5. Katrín Jakobsdóttir
formaður VG
n „Tekst svo oft það sem reynist flestum stjórnmálamönnum erfitt, að tala
um það sem máli skiptir á einfaldan og skýran hátt. Til þess þarf greind.
Maður heldur eiginlega alltaf með henni þegar hún talar, hvort sem maður
er sammála henni eða ekki.“
n „Hefur einstaka hæfileika í að tala um stjórnmál á skiljanlegu máli.
Ég er ekki sammála henni í pólitík en þegar hún hefur lokið máli sínu
trúi ég og treysti því sem hún hefur að segja. Ég
hef meira að segja séð og heyrt hana svara
spurningum fjölmiðlafólks með já/nei.“
1 Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi forseti Íslands
n „Hún var stærri en embættið, ólíkt
þeim sem nú situr. Sameiningartákn sem
nær samt á köflum að toga í eyrnasnepla
og vanda um fyrir fólki án þess að því
finnist á sig ráðist.“
n „Vigdís er gáfaðasti Íslendingurinn.
Djúpvitur og með mikla tilfinninga-
greind sem skiptir ekki síður máli þegar
maður metur gáfur. Með gott og heilbrigt
gildismat.“
n „Grípur mig í hvert skipti þegar ég les
um hana eða hlusta – ætíð málefna-
leg. Vel lesin og það er ekki erfitt að
greina greind hennar. Hefur að geyma
mikla þekkingu á sviði sögu,
menningar og
tungu-
mála hvort sem á við um Ísland eða
útlönd.“
n „Fyrsta konan í heiminum til að verða
kjörin forseti í lýðræðislegum kosningum,
það þarf ekki að fara fleiri orðum um
hversu glæsilegt afrek það er. Sló í gegn
sem forseti og sýndi mikla hæfileika sem
þjóðarleiðtogi. Ómetanleg fyrirmynd
fyrir íslenskar konur.“
n „Bauð sig fram á hárréttum tíma
og varð fyrsti lýðræðislega kjörinn
kvenforseti heims. Það eru bara eldklárir
einstaklingar sem sjá svona tækifæri og
nýta þau rétt.“
n „Er þeim hæfileika gædd að ég hlusta
alltaf á það sem hún hefur að segja, því
oftar en ekki skilur það eitthvað eftir sig
sem skiptir máli.“
2.–5. Davíð
Oddsson
ritstjóri
n „Bráðskemmtilegur og er inni í öllum
hlutum, hvort sem það er fótbolti, fræga
fólkið eða pólitík. Davíð er með puttann á
púlsinum og það verður bara að viðurkennast.
Þegar hann talar þá þegir maður.“
n „Þrátt fyrir að oft sé erfitt að vera
sammála honum er morgunljóst að enginn
kemst með tærnar þar sem hann hefur
hælana í pólitískri refskák. Hefur nýtt sér það
til þess að hafa þau áhrif sem hann vill hafa
hverju sinni. Auk þess sem hann hefur
hæfileika á mörgum svið-
um og er bráð-
fyndinn.“
„Hún var
stærri
en embættið,
ólíkt þeim
sem nú situr