Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Page 38
Vikublað 25.–27. mars 201438 Fólk Ásdís mætti með mömmu Fagnað nýjum húsakynnum verslunarinnar Vogue - allt fyrir heimilið Þ að var mikið stuð í Síðumúl- anum á föstudaginn þegar verslunin Vogue – allt fyrir heimilið, fagnaði nýjum heim- kynnum. Eigandi verslunarinnar er handboltakappinn fyrrverandi, Valdimar Grímsson, og mátti sjá fjöl- mörg þekkt andlit meðal gesta. Með- al annars Ásdís Rán með móður sinni, Sigurður Sveinsson, Þorgrímur Þráinsson,Siggi Hlö og Guðni Bergs- son svo einhverjir séu nefndir. Bjarni í stuði Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra vakti athygli gesta á Ölstofunni á laugardag. Þar var ráðherrann staddur ásamt eig- inkonu sinni og spjallaði glað- ur og skálaði við gesti staðar- ins. Bjarni var í miklu stuði og voru fjölmargir sem gáfu sig á tal við hann og tóku myndir af sér með honum en mynda- tökurnar féllu í grýttan jarðveg hjá starfsmönnum staðarins enda bannað að taka myndir þar inni. Skemmti í gegnum Skype Lísa Kristjánsdóttir, aðstoðar- maður Katrínar Jakobsdóttur, fagnaði fertugsafmæli sínu um helgina. Veislan var haldin í Tin Can factory í Borgartúni og var margt um manninn og mik- ið fjör. Mátti meðal annars sjá Katrínu Jakobsdóttur, Svandísi Svavarsdóttur, Sóleyju Tóm- asdóttur, Margréti Vilhjálms- dóttur og Ólafíu Hrönn. Mörg skemmtiatriði voru í afmæl- inu, meðal annars frá systur af- mælisbarnsins, Ilmi Kristjáns- dóttur leikkonu, sem átti ekki heimangengt í veisluna en lét ekki sitt eftir liggja og var með skemmtiatriði í gegnum Skype. Tveir þaulvanir Þessir tveir vita svo sannarlega hvaða tónlist fær fólk til þess að fara út á dans- gólfið, Siggi Hlö og Kiddi Bigfoot. Ljóshærðar mæðgur í stuði Ásdís Rán og móðir hennar, Eygló Gunnarsdóttir. Flott Þorgrímur Þráinsson, Arnór Guðjohnsen og Anna Borg. Fyrrverandi landsliðsmenn Guðni Bergsson og Sigurður Sveinsson voru í stuði. Eigendurnir Valdimar Grímsson og eiginkona hans, Kristín Gísladóttir, eiga búðina Vogue. Mætti með Apple-tölvu Hjónin Eva Dögg og Bjarni Ákason, eigandi epli.is, sem fer ekkert án Apple-tölvunnar sinnar. Hengdi upp þorskhausa Hin umdeilda alþingiskona Vigdís Hauksdóttir fagnaði 49 ára afmælisdeginum á held- ur óhefðbundinn hátt. Hún varði deginum með systur sinni við þá iðju að hengja upp þorskhausa. „Ég ætla að nota afmælisdaginn til að hengja upp þorskhausa með Margréti systur minni á ættarsetrinu Stóru-Reykjum í Hraungerð- ishreppi,“ sagði hún í samtali við Eirík Jónsson sem held- ur úti síðunni eirikurjonsson. is. Margrét, systir Vigdísar, er eiginkona Guðna Ágústssonar, fyrrverandi formanns Fram- sóknarflokksins. Þ að er heilmikil barátta sem þarf að ávinnast,“ seg- ir Hilmar Magnússon, en hann var kjörinn formaður Samtakanna 78 á aðalfundi þeirra síðastliðinn laugardag. Hilm- ar segist taka við góðu búi af Önnu Pálu Sverrisdóttur, fráfarandi for- manni, en vill leggja meiri áherslu á réttindi annarra en samkyn- hneigðra innan hinsegin samfélags- ins. Hilmar á son sem hann eignað- ist með tveimur vinkonum sínum í fyrra og segir margt þurfa að breyt- ast í íslenskum lagaramma í tilfell- um þegar foreldrar eru fleiri en tveir. Leggur áherslu á sýnileika „Ég tek við mjög góðu búi frá Önnu Pálu, bæði þegar kemur að innri málefnum félagsins, svo sem fjár- málum, og svo hefur hún tekið nýjan pól í baráttunni því við höf- um verið mjög sýnileg undanfar- in ár og að því leytinu verða engar breytingar á stefnunni. Ég hyggst halda svipaðri stefnu og Anna Pála hefur markað; ég legg áherslu á sýnileika og að samtökin séu virkur þátttakandi í samfélagsumræðunni. Einnig mun ég leggja áherslu á að það sé allt hinsegin fólk velkomið á vettvang félagsins og að við skoð- um betur hópa og málefni sem falla stundum í skuggann,“ segir Hilmar, spurður um áherslur sínar sem for- maður. „Í umræðunni er til dæmis mjög oft bara talað um réttindabaráttu samkynhneigðra en við þurfum að átta okkur á því að það eru fleiri hópar í hinsegin samfélaginu en bara samkynhneigðir; það er trans- fólk og það eru tvíkynhneigðir og svo framvegis og það eru oft málefni þeirra sem vilja gleymast í opinberri umræðu og hafa einnig gleymst innan félagsins í gegnum árin.“ Sá fréttabréf frá samtökunum Hilmar hefur verið viðloðinn Sam- tökin 78 í um fimmtán ár og sat í stjórn þeirra árin 2007 til 2010. Hann segir samtökin hafa hjálp- að sér mikið þegar hann kom út úr skápnum fyrir tæpum tuttugu árum. „Ég get alveg fullyrt það að sam- tökin hjálpuðu mér mikið. Þegar ég var að basla og hélt ég væri eini homminn á Íslandi þegar ég var unglingur, í Menntaskólanum á Ísa- firði, þá rak ég einn daginn augun í fréttabréf frá Samtökunum 78. Það lá bara inni á bókasafni og ég tók því fegins hendi. Ætli ég hafi ekki verið svona um tvítugt.“ „Yndislegt að eignast barn“ Hilmar er nýbakaður faðir og segist njóta sín í föðurhlutverkinu. „Ég á lítinn dreng sem er tæplega eins árs. Hann eignaðist ég í fyrra með tveimur vinkonum mínum og við ölum upp saman. Þær eru par og við erum að gera þetta þrjú í sam- einingu. Það gengur bara glimrandi vel,“ segir hann. „Okkur hafði lengi langað í barn og við erum búin að vera vinir lengi svo við ákváðum að gera þetta svona. Eftir því sem það eru fleiri í spilinu þá verða hlutirnir samt auðvitað flóknari, en þetta hefur gengið mjög vel hjá okkur. Þetta er mjög dásam- legt og náttúrlega alveg yndislegt að eignast barn. En maður áttar sig á því núna að íslenski lagaramminn gerir til dæmis ekki ráð fyrir að lögforeldr- ar geti verið fleiri en tveir. Þar erum við á eftir nokkrum Evrópulöndum, mig minnir til dæmis að í Belgíu og Noregi geti lögforeldrar verið fleiri en tveir. Þannig að það eru ýms- ir þættir í sambandi við þetta sem samtökin myndu vilja skoða,“ segir hann og bætir við að það sé talsvert algengara en fólk heldur að fleiri en tveir aðilar eignist saman barn. „Ég þekki alla vega slatta af fólki í kringum mig sem hefur gert þetta.“ n „Hélt ég væri eini homminn á Íslandi“ Hilmar Magnússon, nýr formaður Samtakanna 78, eignaðist barn með lesbísku pari Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is Svipaðar áherslur Hilmar segist ætla að hafa svipaðar áherslur og fráfarandi formaður. „Við erum búin að vera vinir lengi svo við ákváðum að gera þetta svona.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.