Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 11
Fréttir 11
Vikublað 1.–3. apríl 2014
„Þeir borga sem njóta“
Dettifoss
n 800 krónur
Landeigendur Reykjahlíðar hafa áform
um að rukka þá sem vilja skoða þrjá staði
í þeirra landi. Þar er um að ræða hver
austan við Námaskarð, Leirhnjúkasvæðið og svæði við Dettifoss.
Áætlað er að um 15 manns fái vinnu vegna gjaldtökunnar í sumar,
sem á að hefjast hinn 1. júní. Mannvirki við fossinn eru í eigu ríkis-
ins, en vegur sem þangað var lagður nýlega endar á bílastæðum
þar sem salerni eru. Landið sem fór undir bílastæðin tók ríkið
eignarnámi og stendur í landi Reykjahlíðar. Þaðan liggur göngu-
stígur að fossinum, sem lagður var í samráði við landeigendur.
Þeir hyggjast nú rukka gjald fyrir aðgengi að fossinum eftir þeirri
leið. Þjóðgarðsvörður Vatnajökulsþjóðgarðs hefur sagt að auð-
velt sé að gera göngustíg sem er í landi þjóðgarðsins, þannig að
öllum verði tryggður aðgangur að fossinum án endurgjalds, eða
þá gegn því að hafa náttúrupassa verði hann að veruleika.Geysir
n 600 krónur
Umdeild gjaldtaka hófst við Geysi um miðjan mars, en málið hefur nú þegar ratað á
borð sýslumanns vegna lögbannskröfu frá íslenska ríkinu. Úrskurður hans féll hins vegar
Landeigendafélagi Geysis í vil, sem hóf í kjölfarið að rukka 600 krónur fyrir aðgang að
svæðinu. Allir landeigendur á svæðinu tóku ákvörðun um gjaldtökuna að íslenska ríkinu
undanskildu, sem á svæðið sem dregur að sér hundruð þúsunda ferðafólks á hverju
ári. Málið mun líklega fara fyrir dómstóla, en á meðan heldur gjaldtakan áfram. Eftir
fyrsta dag gjaldtöku upplýsti Landeigendafélagið að alls hefði gjaldið skilað hálfri
milljón í tekjur þann daginn. Gagnrýni hefur einnig snúið að framkvæmd gjaldtökunnar,
en fjöldi starfsmanna þykir of mikill og þá hefur það verið gagnrýnt að ferðamenn fái
upplýsingabæklinga við hliðið, sem sjást svo á víð og dreif um svæðið. Einn ferðamað-
ur sagðist ekki skilja til hvers þeir væru, þeir menguðu svæðið og að hann hefði séð
bæklinga á botni hvera.
Hveragarður
n 200 krónur
Bæjaryfirvöld í Hveragerði ákváðu vorið 2013 að rukka 200 krónur fyrir aðgang að Hvera-
garðinum. Tólf ára og yngri greiða þó ekki neitt. Gjaldtakan er alfarið á ábyrgð sveitarfé-
lagsins en umferð um garðinn hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Sigurdís Guðjóns-
dóttir, forstöðukona Upplýsingamiðstöðvar Suðurlands, segir að ekkert samstarf hafi átt
sér stað á milli sveitarfélagsins og atvinnuvegaráðuneytisins vegna fyrirhugaðs frumvarps um náttúrupassa. „Vegna
aukinnar ásóknar opnum við fyrr nú í vor en áður, og þjónusta við ferðafólk í garðinum hefur verið aukin á undanförnum árum. Þetta gjald á
að fjármagna ýmsar framkvæmdir á svæðinu, bætta klósettaðstöðu svo eitthvað sé nefnt. Svo erum við með starfsmenn sem fylgjast með
svæðinu og sjá um að halda svæðinu fínu, taka á móti fólki og veita upplýsingar um svæðið. Auk þess er hægt að kaupa leiðsögn aukalega,“
segir Sigurdís.
Rauði listinn
Svæði sem merkt eru með rauðu á
kortinu eru þau sem eru á sérstökum
rauðum lista Umhverfisstofnunar.
Svæðunum þarf að veita sérstaka
athygli og hlúa þarf sérstaklega að
þeim, en þau sem eru á listanum eru
undir sérstaklega miklu álagi sem
bregðast þarf strax við.
n Reykjanesfólkvangur
n Mývatn
n Laugarás
n Helgustaðanáma
n Friðland að fjallabaki
n Geysir
Friðland að fjallabaki
Mývatn
Helgustaðanáma
Laugarás
Þríhnúkagígur
n 37.000 krónur
Árni B. Stefánsson setti fyrstur fram
þá hugmynd árið 2004 að almenningi
yrði gert kleift að skoða Þríhnúkagíg.
Í kjölfarið var Þríhnúkagígur ehf.
stofnað og hlaut fyrirtækið stuðning
frá opinberum og einkaaðilum til að
gera gíginn aðgengilegan, meðal
annars með því að koma þar fyrir
lyftu. Ferð ofan í gíginn er rándýr og
kostar 37 þúsund krónur. Forráða-
menn fyrirtækisins hafa sagt að ferðir ofan í gíginn séu aðallega hugsaðar
fyrir erlenda ferðamenn.