Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 23
Vikublað 1.–3. apríl 2014 Umræða Stjórnmál 23
S
amfylkingin og Björt fram-
tíð yrðu stærstu flokkarnir í
Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur ef gengið yrði til kosn-
inga í dag. Sjálfstæðisflokkurinn yrði
þriðji stærsti flokkurinn en Framsókn
næði ekki manni inn í kjördæmun-
um. Þetta má lesa úr niðurstöðum
könnunar sem Félagsvísindastofn-
un gerði fyrir Morgunblaðið og birt
var síðastliðinn þriðjudag. Niður-
stöðurnar sýndu hvaða flokk borgar-
búar myndu velja sér í sveitarstjórn-
arkosningum raðað eftir stuðningi
þeirra í alþingiskosningum. Með því
að reikna niðurstöðurnar upp á nýtt
má sjá hvaða stuðning flokkarnir
fengju í Reykjavík í þingkosningum ef
kosið væri nú.
Framsóknarflokkurinn fengi um
fjögurra prósenta fylgi ef kosið yrði til
Alþingis samkvæmt niðurstöðunum
en fengi ekki nema um tvö prósent
í borgarstjórnarkosningum. Sam-
fylkingin yrði stærst í Reykjavík með
24 prósent atkvæða í þingkosning-
um á meðan flokkurinn mælist með
átta prósentustigum meiri stuðning
fyrir sveitarstjórnarkosningar. Björt
framtíð, arftaki Besta flokksins, fengi
23 prósent í þingkosningum en 24,8
prósent í borgarstjórnarkosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn, annar ríkis-
stjórnarflokkanna, fengi um 22 pró-
sent í þingkosningum en mælist með
24,4 prósent í borgarstjórn.
Óvíst er um skekkjumörk þar sem
allar forsendur liggja ekki fyrir við
endurútreikning niðurstaðnanna.
Þetta er talsverð breyting frá því
sem var í síðustu þingkosningum
þegar Framsóknarflokkurinn fékk
17 prósent atkvæða í kjördæmunum
tveimur. Þá var Sjálfstæðisflokkurinn
stærstur með 25 prósent. Samfylking
og Vinstri græn fengu 14 prósent hvor
og Björt framtíð aðeins tíu prósent. n
adalsteinn@dv.is
Samfylking og Björt framtíð nálægt meirihluta
Framsókn næði ekki manni inn í Reykjavíkurkjördæmunum
S
amkvæmt gögnum frá fjár-
málaráðuneytinu í tengslum
við skuldaniðurfellingar-
tillögur ríkisstjórnarinn-
ar eru 148.754 fjölskyldur í
landinu. Af þeim eiga 68.427 rétt á
niðurfellingu vegna húsnæðislána.
Þar sem beinu niðurfellingarnar
eru fjármagnaðar úr ríkissjóði leggst
kostnaðurinn á allar fjölskyldurnar.
Kostnaðurinn við réttlætisaðgerð
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks er því gríðarlegur fyrir hverja
og eina fjölskyldu í landinu.
Allir borga en sumir fá
Kostnaðurinn er metinn á 72 millj-
arða króna að viðbættum verðbót-
um og vöxtum. Ekki liggur ljóst fyrir
hverjar verðbætur og vextir verða svo
hér er aðeins miðað við 72 milljarða
töluna. Sé henni deilt á allar fjöl-
skyldurnar, 149 þúsund, ber hver og
ein 484.021 krónu kostnað af niður-
fellingunni.
Af þessu leiðir að 80.327 fjölskyld-
ur í landinu þurfa að standa straum
af 484 þúsund krónum að jafnaði
skipt á næstu fjögur ár til að fella nið-
ur skuldir um 46 prósent fjölskyldna.
Þessu til viðbótar eru 14.253 heim-
ili sem fá undir 500 þúsund krón-
um niðurfelldar og þurfa því í mörg-
um tilfellum að standa undir meiri
kostnaði en þau fá vegna aðgerð-
anna.
Ekki eyrnamerktar tekjur
Samhliða útgjöldum vegna niður-
fellingarinnar hefur ríkisstjórnin
ákveðið að stórauka skatt á fjármála-
fyrirtæki og láta hann ná til fjármála-
stofnana í slitameðferð. Til stendur
að nýta þær tekjur í niðurfellinguna.
Þær eru hins vegar ekki bundnar við
skuldaaðgerðirnar og gætu nýst í
önnur verkefni, til dæmis að greiða
niður skuldir ríkissjóðs eða lækka
aðra skatta.
Kostnaðurinn við aðgerðirnar
lendir því óumdeilanlega á ríkissjóði
og þar með fjölskyldunum og heim-
ilunum í landinu. Árlegur kostnað-
ur af aðgerðunum, um 20 milljarðar
króna, nemur rúmum fimmtán pró-
sentum af öllum sköttum á tekjur
einstaklinga miðað við fjárlög ársins
2014. Hægt væri að greiða erlendar
skuldir ríkissjóðs niður um 18,8 pró-
sent en samkvæmt Lánamálum rík-
isins nema þær í dag 381 milljarði
króna. n
484 þúsund krónur
á hverja fjölskyldu
Allir borga en innan við helmingur fær
Réttlæti Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráð-
herra segir niðurfellingarnar
vera réttlætisaðgerð til að
bæta forsendubrest vegna
verðtryggingar. Mynd SigtRygguR ARi
68.427 heimili fá niðurfellt eitthvað af
verðtryggðum fasteignaskuldum.
80.327 heimili fá ekki neitt niðurfellt.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
68.427
80.327
tæpur helmingur fær
Allir borga
Úti Frosti Sigurjónsson leiddi Framsókn í Reykjavík norður fyrir síðustu þingkosningar.
Flokkurinn fengi ekki mann kjörinn eins og staðan er í dag. Mynd SigtRygguR ARi
Missti af
lokaleiknum
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra hefur fundið
sér nýjan vettvang sem lukkutröll
landsliðs Íslands í íshokkí kvenna.
Hann mætti eins og frægt er orðið
á leik hjá þeim og fylgdist með
klæddur í landsliðstreyju merkta
„Gunnlaugsdóttir“. Því miður náði
hann ekki lokaleiknum í annarri
deild heimsmeistaramóts kvenna
í íþróttinni. Nóg er um að vera hjá
ráðherranum en hann kynnti í síð-
ustu viku einhverja stærstu aðgerð
ríkisstjórnarinnar, skuldaniðurfell-
inguna. Hann sendi þó stúlkunum
góða strauma. „Lukkutröllið var
með í anda, komst ekki frá öðrum
skyldustörfum því miður,“ skrifaði
aðstoðarmaður Sigmundar Dav-
íðs á Facebook-síðu sína en hann
var staddur á leiknum. „En lukkan
hélt, 3-1 sigur.“
Vilja
nýjan flokk
Áhugahópur um stofnun nýs Sjálf-
stæðisflokks hefur verið mynd-
aður á Facebook. Forsvarsmaður
hópsins er lögmaðurinn og fyrr-
verandi borgarfulltrúinn Sveinn
Andri Sveinsson. Miklar vanga-
veltur hafa verið uppi um klofning
úr Sjálfstæðisflokknum undan-
farnar vikur og verður hópurinn
notaður sem umræðuvettvang-
ur til undirbúnings slíks flokks.
Á sama tíma er könnun í gangi
þar sem spurt er um stuðning við
Þorstein Pálsson, fyrrverandi for-
mann Sjálfstæðisflokksins, og nýj-
an Evrópusinnaðan hægriflokk.
Enginn hefur viljað taka ábyrgð á
að láta gera könnunina en fullyrt
er að MMR framkvæmi hana.
Hefði viljað
meira
Þingkona Framsóknarflokksins,
Elsa Lára Arnardóttir, fór á þing
fyrst og fremst til að berjast fyrir
skuldaleiðréttingu. Greint hef-
ur verið frá því að hún hafi verið
svekkt með þá leið sem ríkis-
stjórnin kynnti fyrr í vetur. Nú hef-
ur hún hins vegar stigið fram og
hampað leiðréttingunni. Hún bíð-
ur samt eftir frekari aðgerðum og
bendir á að þetta sé einn liður af
tíu í aðgerðaráætlun ríkisstjórnar-
innar í skuldamálum heimilanna.
„Hins vegar fer ég ekki í felur með
að ég hefði gjarnan viljað sjá þak-
ið hærra til að koma betur til móts
við þá sem eru í erfiðri stöðu,“ seg-
ir hún á bloggsíðu sinni.