Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 1.–3. apríl 2014 Sport 31 Hefur lært af mistökunum n Suarez hefur farið á kostum í vetur n Bjóst ekki við því að verða fyrirliði É g vil njóta augnabliksins,“ út- skýrir Luis Suarez, framherji Liverpool, í einlægu viðtali við FourFourTwo-tímaritið. Þar fer Úrúgvæinn um víðan völl og segir meðal annars frá auknum þroska sínum á undanförnum árum og hvernig Steven Gerrard, fyrirliði liðsins, sannfærði hann um að halda tryggð við Liverpool. „Hver og einn leikmaður ætti að lifa í núinu og njóta þess sem hann fæst við hverju sinni. Að hugsa sífellt til framtíðar, eins og ég gerði á mín- um yngri árum, hjálpar manni ekki að bæta sig sem leikmaður.“ Hefur þroskast með árunum Luis Suarez hefur svo sannarlega upplifað tímana tvenna hjá Liver- pool. Hann var keyptur til félagsins frá hollenska stórliðinu Ajax í janú- ar 2011 og hóf feril sinn í rauðu treyj- unni með marki. Framherjinn hef- ur frá þeim tíma ekki aðeins verið í umræðunni á Bretlandseyjum fyrir góðan leik sinn. Suarez var dæmd- ur í átta leikja bann fyrir kynþátta- níð í garð Patrice Evra á sínu fyrsta heila tímabili. Í lok tímabilsins í fyrra beit hann Branislav Ivanovic í handlegginn og var dæmdur í tíu leikja bann. Frá því hann sneri aft- ur á völlinn í haust hefur hann leik- ið við hvern sinn fingur, og það sem meira er, hagað sér eins og sannur liðsmaður. „Eftir því sem árin hafa liðið hef ég þroskast mikið,“ segir Suarez. „Ég er meira hugsandi og hef lært af þeim mistökum sem ég hef gert,“ en Suarez bar fyrirliðaband Liverpool í fyrsta skipti í vetur vegna meiðsla Gerrards. Hann viðurkennir að eft- ir allt sem á undan hafði gengið hafi ákvörðun Rodgers komið á óvart. „Það var mjög skrítið. Ég bjóst alls ekki við því að vera valinn fyrirliði Liverpool, einkum og sér í lagi eftir allt sem hefur gerst.“ Samtöl við Gerrard til góðs Síðastliðið sumar var Suarez þrálát- lega orðaður við brottför frá Liver- pool. Sögusagnir voru uppi um að hann ætti ekki afturkvæmt í leik- mannahópinn eftir bitið og ekki dró úr þeim þegar hann lýsti yfir vilja sínum til að leika með Arsenal. Fé- lagið tók þó ekki í mál að selja Su- arez til nokkurs liðs. Úrúgvæinn seg- ir Steven Gerrard hafa leikið stórt hlutverk í að sannfæra sig um að vera áfram í herbúðum Liverpool. „Gerrard talaði ekki við fjölmiðla um mín mál,“ segir Suarez. „Hann gerði það við mig, augliti til auglit- is. Á þeim stundum varð mér ljóst að hann er ekki aðeins heimsklassa leikmaður og lifandi goðsögn hjá fé- laginu heldur einnig hógvær mað- ur. Hann talaði frá hjartanu í margar klukkustundir við mig. Hann sagði að ég væri besti framherji sem hann hefur spilað með á ferlinum. Ég mun aldrei gleyma þeim orðum.“ n „Gerrard sagði að ég væri besti fram- herji sem hann hefur spilað með Ingólfur Sigurðsson ingolfur@dv.is Óstöðvandi Enginn virðist ráða við Suarez í þeim ham sem hann hefur verið í á undanförn- um mánuðum. Mynd ReuteRS Valdez frá í sjö mánuði Victor Valdes, markvörð- ur Spánarmeistara Barcelona, verður frá keppni næstu sjö mánuðina eftir að hafa geng- ist undir aðgerð vegna kross- bandaslits. Valdes meiddist í sigurleiknum gegn Celta Vigo síðastliðinn miðvikudag eft- ir að hafa lent illa. Þetta þýðir væntanlega að Valdes sé búinn að leika sinn síðasta leik fyrir Barcelona, en hann hafði gefið það út að hann myndi yfirgefa liðið eftir tímabilið. Southampton stendur illa Þó að allt hafi gengið í haginn hjá Southampton á leiktíðinni er félagið illa statt fjárhags- lega. Þetta segir Hans Hofstett- er, nýr framkvæmdastjóri fé- lagsins. Félagið tapaði rúmum sjö milljónum punda á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni og skuldar það 27 milljónir punda vegna leikmannakaupa. Þá skuldar félagið 30 milljón- ir punda vegna nýs æfinga- svæðis. Hofstetter segir þó að bjartir tímar séu fram und- an hjá félaginu og mest um vert sé að engin þörf sé á að selja þá leikmenn sem stjórinn Mauricio Pochettino vill halda hjá félaginu. Nokkrir lykilmenn Southampton, Luke Shaw og Adam Lallana þar á meðal, hafa verið orðaðir við önnur fé- lög að undanförnu. F yrri leikirnir í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fara fram í kvöld og annað kvöld. Manchester United tekur á móti Evrópumeisturum Ba- yern Munchen í kvöld og Barcelona tekur á móti Atletico Madrid á sama tíma. Flestir búast við því að Bayern Munchen fari nokkuð auðveldlega í gegnum leikina við United enda hefur gengi þessara liða á tímabil- inu verið ólíkt. Bayern Munchen er búið að tryggja sér sigur í þýsku deildinni á meðan United er í basli í ensku úrvalsdeildinni. Viðureign Atletico Madrid og Barcelona hefur alla burði til að verða frábær. Bæði lið hafa spil- að vel á tímabilinu en ekkert lið hefur komið jafn mikið á óvart og Atletico sem situr í toppsætinu á Spáni, á undan bæði Real Madrid og Barcelona. Annað kvöld tekur toppliðið í Frakklandi, Paris St. Germain, á móti Chelsea og Real Madrid fær Borussia Dortmund í heimsókn. Paris St. Germain á franska titilinn vísan á meðan Chelsea háir harða baráttu við Liverpool og Manche- ster City um titilinn heima fyr- ir. Real Madrid og Borussia Dort- mund mættust í undanúrslitum keppninnar í fyrra og þá hafði Dortmund betur, 4-3 samanlagt. Dortmund verður án margra lykil- manna gegn Real annað kvöld, má þar nefna Robert Lewandowski, Marcel Schmelzer, Sven Bender, Ilkay Gundogan og Neven Subotic. Bendir flest til þess að aðeins fjór- ir leikmenn úr liði Dortmund, sem byrjuðu fyrri leikinn gegn Real Ma- drid í fyrra, verði með gegn Real annað kvöld; markvörðurinn Rom- an Weidenfeller, Lukasz Piszczek, Mats Hummels og Marco Reus. n einar@dv.is Veislan að hefjast n 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar n Margir meiddir hjá dortmund Margir meiddir Aðeins fjórir leikmenn Dortmund sem byrjuðu fyrri leikinn gegn Real Madrid í fyrra hafa möguleika á að spila annað kvöld. Löður er með á allan bílinn Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540 Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.