Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 1.–3. apríl 201438 Fólk Fékk búktalara- dúkku frá eigin- manninum Rithöfundurinn Auður Jónsdótt- ir fagnaði afmæli sínu í Berlín á dögunum. Maður hennar, rithöf- undurinn Þórarinn Leifsson, gaf henni ansi óvanalega afmælis- gjöf sem þó sló rækilega í gegn. „Í gegnum tíðina hef ég próf- að að gefa konunni minni bók, hálsfesti, stereógræjur, gullhring, flugmiða, drasl, kjól og svo fram- vegis. Núna fékk hún nokkurs konar búktalaradúkku – sem hún pantaði reyndar sjálf í KaDeWe og gleymdi því aftur – og viti menn: Ég hef aldrei séð Auði jafn hamingjusama með neina gjöf. Það er bara kreisí að vera giftur jafn skemmtilegu fólki.“ Fékk afmælis- myndband frá Vigdísi Steinþór Helgi Arnsteinsson, dómari í Gettu betur, varð þrítug- ur á mánudag. Steinþór átti þó ekkert sérlega góðan dag þar sem hann vaknaði með gubbupest. Það hefur þó líklega verið bót í máli að hann fékk sérlega af- mæliskveðju frá sjálfri Vigdísi Finnbogadóttur. Móðir hans setti vídeókveðjuna á Facebook- vegginn hans en þar sendir Vig- dís honum sínar bestu kveðjur og segir í lokin: „Gangi þér allt að sólu eins og sagt var í gamla daga.“ Fegurðar- drottning verður flugfreyja Fanney Ingvarsdóttir fegurðar- drottning er ný flugfreyja hjá Wow flugfélaginu. Fanney var kjörin Ungfrú Ísland árið 2010 og hefur tekið þátt í nokkrum feg- urðarsamkeppnum úti í heimi fyrir Íslands hönd. Fanney hef- ur undanfarið unnið í GS skóm í Kringlunni og haldið úti nokkuð vinsælli bloggsíðu: fanneyingv- ars.blogspot.com. Fanney birti mynd af sér á Facebook-síðu sinni og skrifaði undir: „Nýút- skrifuð flugfreyja og fagna því í kvöld með frábæru fólki!“ „Ótrúlega skemmtilegt að geta glatt alla“ Safnar fyrir aðgerð handa systur sinni É g er búinn að vera að hjálpa henni síðan í janúar og hef náð að safna 200.000 krónum,“ seg- ir töframaðurinn Hermann Helenuson spurður að því hvern- ig gangi að safna pening fyrir systur hans. Karen, systir hans, þarf að fara í gríðarlega kostnaðarsama aðgerð vegna hryggskekkju og Hermann leggur sitt af mörkum til að hjálpa systur sinni. „Ég er búinn að vera að sýna í sýningum og hef fengið borgað fyr- ir en svo fór ég um daginn að sýna á bekkjarkvöldi í Hörðuvallaskóla og þar söfnuðust 33.000. Þau vildu hjálpa til við að styrkja mig og systur mína. Ég er ótrúlega sáttur og líð- ur bara hreinlega ótrúlega vel eftir þetta,“ segir Hermann sem hefur lagt hart að sér síðustu mánuði og hef- ur komið fram á fjölda sýninga. „Ég er búinn að halda sýningar í skól- um, barnaafmælum og bara við öll tilefni,“ segir Hermann, sem hefur meðal annars fengið hjálp frá kollega sínum, Einari Mikael töframanni, og er þakklátur fyrir. „Hann er kennar- inn minn, hann er búinn að gera rosa mikið fyrir mig og hjálpa mér svo mikið. Ég er bara ótrúlega þakk- látur fyrir hans hjálp.“ Aðgerðin sem Karen þarf að gang- ast undir er mjög kostnaðarsöm. „Það eru sirka átta milljónir sem þarf fyrir þessa aðgerð. Við vonum að einhver læknir geti komið til Íslands, annars þarf hún að fara til útlanda og það kostar mikið meiri pening,“ segir Hermann. Systir hans er eins og við mætti búast þakklát bróður sínum. „Henni líður bara ótrúlega vel með þetta og er þakklát fyrir allt og henni finnst bara gaman af þessu.“ Í maí ætlar Hermann að halda stóra sýningu og mun ágóðinn renna í styrktarsjóðinn. „Hinn 16. maí verð- ur sýning haldin í Salnum í Kópa- vogi.“ Miðasalan hefst 2. apríl og hægt er að kaupa miða á midi.is. n Hermann og Karen Hermann safnar fyrir aðgerð sem systir hans þarf að fara í. Þriðji sonurinn kominn í heiminn Þ að er bara verið að plana sumarið og spila af sér hendurnar eins og vana- lega,“ segir Magni Ásgeirs- son tónlistarmað- ur þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans og spyr hvað sé á döfinni. Magni er með mörg járn í eldinum og nóg af verkefnum fram undan. „Það er Skon- rokkið, svo eru Á móti sól að spila. Svo er ég að klára að skipu- leggja Bræðsluna í sumar og allt að verða „reddí“ fyrir allt saman,“ segir Magni. En Magni hef- ur í fleiru að snúast en að spila því nýverið eignaðist hann sitt þriðja barn með eiginkonu sinni, Eyrúnu Huld Haraldsdóttur. „Það gengur alveg stórkostlega. Það eru komnir þrír fullkomnir drengir. Öllum heilsast vel og mað- ur biður ekki um meira. Ég valdi greinilega góða konu,“ segir Magni hlæjandi. Brjáluð dagskrá Spurður um hvernig tónlistarhátíðin Bræðslan muni líta út í sumar er fátt um svör. „Það er allt leyndó enn þá en við lofum brjálaðri dagskrá. Ætli það verði ekki sett einhvers konar met í sumar í tónleikahaldi á Borg- arfirði. Það verða tónleikar held ég bara hverja einustu helgi þarna í júní og júlí, allt saman landsfrægir tónlistar- menn,“ segir Magni og bætir við að það sé mikill hugur í Borgfirðingum. Magni er eins og margir vita með hörku rödd og hefur hann heldur betur nýtt hana í verkefn- um sínum, til að mynda í Freddie Mercury tribu- te-bandinu sem og ábreiðu- bandinu Killer Queen. Að- spurður hvort það sé ekki erfitt að feta í fótspor Freddie Mercury segir Magni það ómögulegt. „Það er ekki hægt. Eftir því sem maður hlustar meira og meira á þetta því minna skilur maður í þeirri snilligáfu sem þessi hljómsveit hafði.“ Hópur af snillingum Talið berst að Skonrokk-hópnum sem Magni er hluti af ásamt hópi ís- lenskra stórsöngvara, þeim Eyþóri Inga, Birgi Haralds, Pétri Jesúm ásamt fleirum. „Það er eitthvað ógeðslega gaman við það að setja saman svona hóp af snillingum og þurfa ekkert að halda því uppi heldur vera bara einn af nokkrum söngvurum,“ segir Magni að lok- um en Skonrokk mun halda tónleika á nokkrum stöð- um á landinu á næst- unni. n jonsteinar@dv.is n Fjölskyldan stækkar hjá Magna og Eyrúnu n Mörg járn í eldinum„Öllum heilsast vel og maður biður ekki um meira Á sviði Magni er með nokkur verkefni í gangi og eignaðist þriðja barn sitt nýlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.