Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Side 13
Vikublað 1.–3. apríl 2014 Fréttir 13
Engin svör um heimsókn Davíðs
S
igurður Már Jónsson, upp
lýsingafulltrúi ríkisstjórnar
innar, svarar því ekki hvort
Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og núver
andi ritstjóri Morgunblaðsins, hafi
heimsótt Sigmund Davíð Gunn
laugsson forsætisráðherra í for
sætisráðherrabústaðinn á Þingvöll
um á yfirstandandi kjörtímabili.
DV sendi fyrirspurn í tíu liðum á
forsætisráðuneytið hinn 13. mars
síðastliðinn. Þar var meðal annars
spurt hversu oft Sigmundur Davíð
hefði dvalið í forsætisráðherrabú
staðnum það sem af er kjörtímabili,
hverjir hefðu heimsótt hann þangað
og hvort Davíð Oddsson hefði ver
ið einn af þeim. Þá var einnig spurt
hver kostnaðurinn við rekstur bú
staðarins hefði verið.
Í svari Sigurðar Más sem DV
barst tólf dögum síðar, eða hinn
25. mars, kemur fram að kostnaði
vegna reksturs ráðherrabústaðarins
sé ekki haldið aðgreindum frá öðr
um kostnaði ráðuneytisins. Þá seg
ir að ekki sé haldin skipulögð skrá
yfir viðveru forsætisráðherra í bú
staðnum. Það vakti nokkra athygli
á dögunum þegar Sveinn Andri
Sveinsson hæstaréttarlögmaður
fullyrti að Sigmundur og Davíð
hefðu nýlega dvalið næturlangt í bú
staðnum á Þingvöllum þar sem þeir
hefðu meðal annars gætt sér á viskíi
sem Ólafur Thors hélt mikið upp á.
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar
maður Sigmundar, sagðist ekki vita
hvað væri hæft í þessu en ítrekaði þó
að Sigmundur drykki ekki viskí.
Þrátt fyrir að lítið sé um svör sér
upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar
innar þó ástæðu til þess að fara yfir
sögu ráðherrabústaðarins: „Fyrir
lýðveldishátíðina 1974 voru byggð
ar tvær burstir til viðbótar við þær
þrjár sem fyrir voru við Þingvalla
bæinn en hann hafði verið reistur
1930 eftir teikningu Guðjóns Samú
elssonar. Í viðbótarbyggingunni hef
ur forsætisráðherra síðan haft opin
beran sumardvalarstað, sem kom í
stað þeirrar aðstöðu sem forsætis
ráðherra hafði áður í gamla Kon
ungshúsinu sem brann, og getur
hann notað þá aðstöðu hvort sem
er til einkaafnota eða við embættis
störf, svo sem fundahalda og mót
töku gesta.“ n
Upplýsingafulltrúi fer yfir sögu ráðherrabústaðarins í svari við fyrirspurn DV
Lítið um svör
Sigurður Már Jónsson,
upplýsingafulltrúi rík-
isstjórnarinnar, svarar
því ekki hvort Davíð
Oddsson hafi heimsótt
Sigmund Davíð í
ráðherrabústaðinn.
Hann fer þó yfir sögu
ráðherrabústaðarins.
Mynd Sigtryggur Ari„Ég er nú bara dýra-
vinur, væni minn“
n Anna ber sig vel eftir árás n Elskar dýrin í hverfinu n Ekki hrædd í árásinni n Vill ekki að Guðlaugur komi aftur
Langur
sakaferill
Guðlaugs
Flutti á Njálsgötuna fyrir stuttu
n Maðurinn sem réðst á Önnu Guðjóns-
dóttur heitir Guðlaugur Helgi Valsson
og er 33 ára. Hann var nágranni hennar
á Njálsgötu, leigði húsnæði einu húsi frá
Önnu og hafði gert í nokkra mánuði.
Guðlaugur hefur ítrekað komið við sögu
hjá lögreglu og á að baki sér marga
dóma.
n Guðlaugur Helgi ræddi við DV í sept-
ember síðastliðnum í tengslum við um-
fjöllun um fanga sem afplána á Vernd,
en hann var þá að afplána síðustu daga
fangelsisdóms sem hann hafði hlotið
nokkru áður. Þá var hann á leið af Vernd
og átti að fá rafband sem sett er um
ökkla hans. Þangað hafði hann komið
frá Litla-Hrauni og Hlaðgerðarkoti. Í
viðtalinu sagðist Guðlaugur vilja ná
bata frá vímuefnamisnotkun og þráði
að snúa við blaðinu. Þar greindi hann
frá því að hann hefði síðast brotið af
sér í desember 2012 og sagði þau afbrot
sem hann hafði tengst í gegnum tíðina
yfirleitt tengjast fíkniefnum og neyslu.
n Árið 2010 var Guðlaugur dæmdur,
fyrir Héraðsdómi Austurlands, fyrir
margvísleg brot. Þar kom fram að hann
hefði hlotið fjórtán dóma og fimm sinn-
um gengist undir viðurlög fyrir dómi og
hjá lögreglu fyrir brot gegn almennum
hegningarlögum, umferðarlögum og
lögum um ávana- og fíkniefni.
n Árið 2008 var hann dæmdur fyrir
líkamsárás og missti bílprófið. Þá hafði
hann nokkru áður verið dæmdur fyrir
ýmis auðgunarbrot og önnur umferð-
arlagabrot. Með dómnum árið 2010 var
hann sakfelldur fyrir níu þjófnaðarbrot,
þar af fjögur í félagi við annan mann.
Þá var hann sakfelldur fyrir hótanir í
garð afgreiðslufólks í verslun Nettó á
Austurlandi, en Guðlaugur Helgi hótaði
því bæði lífláti og barsmíðum.
hurðina og segir henni hver var að
hringja, þar á meðal vinkona dóttur
Önnu sem hringir alla leið frá Nor
egi til að heyra í henni. „Þetta er
búið að vera svona alla helgina.
Fjölskyldan og vinir að hringja og
svo auðvitað fjölmiðlar,“ segir Anna
og hlær. n
Stórt mar Eins og sést á
meðfylgjandi mynd stórsér
á Önnu. Hún kveinkar sér þó
ekki en segist hafa fengið
svolítinn höfuðverk á föstu-
daginn. Mynd Sigtryggur Ari
Veit ekki hvers vegna
þeir gerðu þetta
Arnór Dan Arnarson tónlistarmaður greindi
á dögunum frá líkamsárás sem hann varð
fyrir að nóttu föstudagsins langa árið 2012
í miðborg Reykjavíkur. Arnór greindi frá því í
viðtali við Fréttablaðið að hann hefði verið
fyrir utan skemmtistaðinn Factory umrætt
kvöld að ræða við systur sínar þegar gripið
var í hann aftan frá. Arnór fékk spark í
andlitið og við það fékk hann heilahristing.
Arnór komst við illan leik á sjúkrahús.
Það tók langan tíma að útkljá málið fyrir
dómstólum en að auki var Arnór ítrekað
að rekast á árásarmenn sína þar sem hann
var í vinnu sem tónlistarmaður og þeir
störfuðu hjá öryggisfyrirtæki sem sinnti
dyravörslu. „Ég veit samt ekki hvort þetta
var persónuleg árás eða algjör tilviljun.
Þetta mál er búið að bíða í tvö ár og ég veit
enn ekki af hverju þeir gerðu þetta,“ sagði
Arnór við Fréttablaðið í mars 2014.
Íslenskt tal leiðbeinir
notanda um allar aðgerðir
Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu
fjöri sem startað hefur verið í gang
með hjartastuðtækjum frá Donnu.
Samaritan PAD
hjartastuðtæki
kosta aðeins frá
kr. 199.600 m/vsk.