Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Side 15
Fréttir Viðskipti 15Vikublað 1.–3. apríl 2014
www.kebabgrill.is • Lækjargötu 10 Reykjavík • Sími 571-8800
Opnunartími: Mán-Fim 11-23, fös og lau 11-06, sun 13-23
Brauðið
bakað á
staðnum
Smakkaðu besta
Kebab í heimi!
Grafa eftir
auroracoin
n flókið kerfi býr til nýja aura n Gengið hefur hríðfallið
a
uroracoin hefur nú verið í
almennri umferð í viku, en
svokallað „Airdrop“ byrjaði
aðfaranótt þriðjudagsins 25.
mars. Allir Íslendingar geta
sótt sína aura, eins og rafmyntin er
kölluð, og nú hafa rúmlega 24 þús-
und manns aurana á heimasíðu Aur-
oracoin. Myntina er hægt að geyma
í svokölluðu rafrænu veski eða í út-
prentuðu pappírsveski, en slíkt er í
raun ekkert annað en löng runa stafa
og talna. Við fyrstu sýn virðist notk-
un á þessari rafmynt fremur flókin og
hinn almenni borgari á í vandræð-
um með að skilja hvernig hún virkar.
Skapari myntarinnar, sem tjáir sig
undir dulnefninu Baldur Friggjar Óð-
insson, hefur sagt að myntin sé tæki-
færi til að segja skilið við verðbólgu,
gjaldeyrishöft og gengisfellingu hins
hefðbundna fjármagnskerfis.
Vörn gegn svikum
Peningarnir verða til á hátt sem
erfitt er að útskýra með einföldum
hætti. Í raun eru það aðeins þeir sem
eru vel að sér í tölvufræðum og for-
ritun sem eiga auðvelt með að búa
til aura, en þeir verða til með fyrir-
fram ákveðnum hætti sem á tækni-
málinu er kallað „mine“. Jóhann Ei-
ríksson, talsmaður Auroracoin, segir
að kerfið varni gegn svikum. „Það má
líkja þessu við gullgröft, en ólíkt gull-
greftri þá verður erfiðara að finna aur
eftir því sem fleiri eru að grafa hverju
sinni. Þetta spornar gegn svindli, það
að vinna í gegnum eina blokk er erfitt
og þessi vinna gerir það að verkum að
ekki er hægt að svindla. Í raun mætti
líkja þessu við lottómiða, tölvurnar
vinna sig í gegnum heilmikið af upp-
lýsingum og geta mögulega fundið
aura í blokkunum.“
Jóhann viðurkennir að þetta sé
eitthvað sem erfitt sé að útskýra án
þess að nota hugtök tengd tölvunar-
fræði. Getur hinn almenni borgari
skilið Auroracoin eða rafmynt yfir-
höfuð? „Það er áhugaverð spurning,
þetta hljómar mjög flókið en það má
ekki gleyma því að kerfið virkar fyrir
hinn almenna notanda. Rétt eins og
kerfið á bak við kreditkort til dæmis er
gríðarlega flókið og ég geri mér ekki
grein fyrir því hvernig þeir halda utan
um tíu þúsund færslur á sekúndu.“
Hann segir það jafnframt mjög flók-
ið að kynna sér nákvæmlega hvern-
ig „mine“ virkar, en að hægt sé að
treysta tölvunarfræðingum eins og
honum sjálfum og að þeirra vinna sé
sú sem haldi kerfinu gangandi.
Vilja græða krónur
Sem fyrr segir virðist notkun mynt-
arinnar flókin, auk þess sem fáir taka
við henni og því erfitt að nota hana
til raunverulegra kaupa. Á þessum
fyrstu dögum sem hinn almenni
borgari hefur haft tækifæri til að ná
í sinn hlut ókeypis hefur mikið bor-
ið á því að fólk sé að selja hlutinn
sinn eða skipta honum yfir í stöðugri
rafmynt eins og bitcoin. Einnig eru
margir sem sjá tækifæri til að græða
krónur á auðveldan hátt, með því að
bjóða aurana sína til sölu. Slíkt hefur
verið mjög algengt í sérstökum hóp-
um á Facebook og á markaðssíðunni
bland.is.
Gengi rafmyntarinnar hefur
hríðfallið, meðal annars vegna
þess hversu margir sjá tækifæri til
að græða nokkur þúsund krón-
ur með aurum sem fengust gefins.
Vonir þeirra sem eru á bak við raf-
myntina standa til þess að áhrifanna
af gjöf Baldurs til íslensku þjóðarinn-
ar muni breytast og að þeir sem sjái
tækifæri til að græða krónur hafi að
mestu leyti gert slíkt. Eftir standi þeir
sem hafa sótt aurana og geyma þá, og
eins þeir sem hafa keypt aura og hafa
trú á því að gengið muni aftur hækka.
Fallið er hins vegar gífurlegt og erfitt
að spá fyrir um hvað gerist. Geng-
ið hefur sveiflast mjög og jafnvel stór
rafmynt á borð við Bitcoin hefur ekki
haldið stöðugu gengi til lengri tíma
litið.
Hvetja til að selja á hærra verði
Á Facebook eru nú að minnsta kosti
tveir hópar, annar opinn en hinn lok-
aður. Í þeim opna, sem heitir „Aur-
oracoin Kaupa/Selja Vörur“, er hægt
að sýsla fyrir aurana sína og kaupa
alls konar hluti. Talstöðvar fyrir ung-
börn, sjónvarpsþáttaraðir, tölvuleikir
og jafnvel flugmiðar hafa verið til sölu
á síðunni. Langalgengast er þó að
fólk sé að bjóða aurana sína til sölu
gegn krónum, svo algengt að stjórn-
andi hópsins hefur fest skilaboð efst
til notenda síðunnar. Þar er fólk hvatt
til að selja aurana sína á hærra verði
en markaðsverði, til þess að styrkja
gengi rafmyntarinnar.
Í kjölfarið var annar hópur stofn-
aður, sem er lokaður og heitir
„Technical Auroracoin/pælingar“. Á
þeirri síðu er mikið talað um „mine“
og hvernig best sé að standa í slíku.
Greinilegt er af umræðunni að þar
fer hópur af tölvunarfræðingum eða
áhugamönnum um tölvunarfræði
sem er vel að sér í þessum heimi.
Áhugasamir um „mine“ geta farið
þar inn og aflað sér upplýsinga um
hvernig best sé að standa að því, en
það er þó ekki á færi hvers sem er. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Rífandi gangur
á húsnæðis-
markaði
Verð á íbúðarhúsnæði hef-
ur hækkað hratt undanfarna
mánuði og er nú svo komið að
tólf mánaða raunhækkun hefur
ekki mælst meiri síðan fyrir hrun,
eða í ársbyrjun 2008. Þetta kom
fram í pistli sem birtur var á vef
Greiningar Íslandsbanka.
Nemur hækkunin á landinu
öllu um 9,7 prósentum yfir síð-
ustu tólf mánuði, en vísað er í
gögn sem Hagstofan birti í síð-
ustu viku. Að raunvirði hefur
húsnæðisverð hækkað um 7,6
prósent.
Aukinn kaupmáttur
„Raunverðshækkun íbúðarhús-
næðis undanfarið á sér, að því
er virðist, nokkrar skýringar.
Að hluta má rekja hækkunina
til aukins kaupmáttar launa og
bætts atvinnuástands. Kaup-
máttur launa hefur aukist um
2,5% á síðustu tólf mánuðum og
heildarvinnustundir voru 2,6%
fleiri í hagkerfinu á fyrstu tveim-
ur mánuðum þessa árs en á sama
tíma í fyrra. En hækkunin er um-
fram það sem þetta tvennt skýrir.
Til viðbótar kemur fólksfjölgun,
vöxtur í ferðaþjónustu og verð-
hækkun á verðbréfamörkuðum,
svo eitthvað sé nefnt. Einnig er
hugsanlegt að væntingar vegna
skuldaaðgerða ríkisstjórnarinnar
skýri þessa hröðu hækkun íbúða-
verðs að einhverju marki,“ segir á
vef Greiningar.
Meiri velta
Þá er þess getið að samhliða
hækkandi íbúðaverði hafi veltan
á íbúðamarkaði verið að færast í
aukana. Fjöldi þinglýstra kaup-
samninga með íbúðarhúsnæði
var þannig 8,8 prósentum meiri
í febrúar síðastliðnum en í sama
mánuði í fyrra. Veltan á íbúða-
markaði var hins vegar 17,2 pró-
sentum meiri. Þá er vísað í stór-
kaupavísitölu Capacent Gallup
sem birt var í síðustu viku. Sam-
kvæmt henni hafa líkur aukist á
því að íslenskir neytendur munu
ráðast í íbúðakaup á næstu sex
mánuðum. Sú undirvísitala stór-
kaupavísitölunnar sem mælir
þetta mælist nú 8,9 stig, sem er
hæsta gildi hennar í sex ár. Þessi
vísitala hefur lægst farið niður í
3,2 stig, sem var í árslok 2011, en
frá upphafi mælinga hefur hún
að meðaltali mælst 9,7 stig.
„Það að
vinna í
gegnum eina
blokk er erfitt
Talsmaður Auroracoin
Jóhann Eiríksson er tals-
maður Auroracoin. Hann
viðurkennir að erfitt sé að
útskýra hvernig Auroracoin
virkar á einfaldan hátt.