Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 18
Vikublað 1.–3. apríl 201418 Fréttir Erlent
Kóngar í ríKi sínu
n Mennirnir sem stjórna efnahag ríkja sinna n Ivanishvili er voldugastur í Georgíu
N
ærri öll ríki heims eiga að
minnsta kosti einn millj
arðamæring. Í sumum ríkj
um eru þessir milljarða
mæringar svo ríkir að það
slagar upp í þjóðarframleiðslu við
komandi ríkis á einu ári.
Dæmi um þetta er Georgíumað
urinn Bidzina Ivanishvili, en auðæfi
hans nema 32 prósentum af þjóðar
framleiðslu Georgíu á ári. Annað
dæmi eru bræðurnir Najib og Taha
Mikati frá Líbanon, en samanlagð
ar eignir þeirra nema 14 prósentum
af þjóðarframleiðslu Líbanon á ári.
Annað dæmi um stóran fisk í lítilli
tjörn er Kýpverjinn Suat Gunsel.
Þótt hann sé ekki á meðal ríkustu
manna heims nema auðæfi hans
137 milljörðum króna. Þetta jafn
gildir sex prósentum af þjóðarfram
leiðslu Kýpur á ári.
Forbes tók á dögunum saman
lista yfir voldugustu milljarðamær
ingana með tilliti til hlutfalls af
þjóðarframleiðslu þeirra ríkja sem
þeir búa í. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
1 Bidzina Ivanishvili
Land: Georgía
Eignir sem hlutfall af þjóðarframleiðslu: 32%
Auður: 593 milljarðar króna Græddi á: Fjárfestingum
n Ivanishvili, sonur fátækra námuverkamanna, fæddist árið 1956 í smá
bænum Chorvila sem þá tilheyrði Sovétríkjunum. Þegar hann komst á þrí
tugsaldurinn flutti hann frá bænum og stofnaði fyrirtæki sem seldi tölvur.
Gróðann af því notaði hann til að opna banka og sópa til sín eignum sem
áður tilheyrðu miðstýrðu kerfi Sovétríkjanna. Árið 2003 flutti hann aftur
til Georgíu og varð forsætisráðherra Georgíu níu árum síðar. Hann lét af
embætti ári síðar en þrátt fyrir það er flokkur hans enn við völd í Georgíu.
2 Najib og
Taha Mikati
Land: Líbanon
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 14% (6,9% hvor)
Auður: 700 milljarðar króna
(350 milljarðar hvor)
Græddu á: Fjarskiptaiðnaði
n Najib Mikati varð forsætisráð
herra Líbanon árið 2011 þegar hann
tók við af öðrum milljarðamæringi,
Saad Hariri. Najib og bróðir hans,
Taha, stofnuðu símafyrirtæki, sem
einblíndi á gervihnattasíma, á
áttunda áratug liðinnar aldar, þegar
stríðsástand var í Líbanon. Á þeim
tíma voru hefðbundnar símalínur
oft bilaðar og góð ráð dýr. Þeir opn
uðu sams konar fyrirtæki í Sýrlandi
og í ríkjum Afríku áður en þeir seldu
fjarskiptaveldi sitt árið 2006 fyrir 630
milljarða króna.
3 Aliko Dangote
Land: Nígería
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 9%
Auður: 2.850 milljarðar króna
Græddi á: Sementi, sykri og hveiti
n Dangote er fyrsti Afríkubúinn
til að komast á lista yfir 25 ríkustu
jarðarbúana. Dangote ræður lögum
og lofum í nígerískum iðnaði og er
fyrirtæki hans, Dangote Cement,
eitt allra stærsta fyrirtæki Nígeríu.
Þá er hann eigandi næststærstu
verksmiðju heims á sviði sykur
hreinsunar. Í þessum mánuði
tilkynnti Dangote að hann hygðist
láta 137 milljarða króna renna í
góðgerðasjóð sem hann er með á
sínum snærum, Dangote Found
ation, en sjóðurinn vinnur náið með
yfirvöldum í Nígeríu við að útrýma
fátækt í landinu.
4 Rinat
Akhmetov
Land: Úkraína
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 7%
Auður: 1.426 milljarðar króna
Græddi á: Stáli, kolum
n Akhmetov hefur verið áberandi
í þjóðmálaumræðunni í Úkraínu á
undanförnum árum, en lítið hefur
þó farið fyrir honum í því krísu
ástandi sem ríkt hefur í landinu.
Akhmetov var bandamaður Viktors
Yanukovich, fyrrverandi forseta,
áður en kastaðist í kekki þeirra á
milli á síðasta ári. Akhmetov er eig
andi knattspyrnuliðsins Shakthar
Donetsk en auk þess á hann yfir
100 fyrirtæki í stál og kolaiðnaði í
Úkraínu.
5 Carlos Slim
Helú og fjölskylda
Land: Mexíkó
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 6%
Auður: 8.215 milljarðar króna
Græddi á: Fjarskiptafyrirtækjum
n Carlos Slim Helu er annar ríkasti
maður veraldar, á eftir sjálfum
Bill Gates, sem náði honum í
maí á þessu ári. Auðæfi Helu
fjölskyldunnar má rekja til gríðar
legra umsvifa hennar á fjarskipta
markaði í SuðurAmeríku. América
Móvil er mexíkóskt símafyrirtæki
en fjölskyldan á einnig ýmiss konar
iðnfyrirtæki, fjárfestinga og fjár
málafyrirtæki. Hann á fasteignafyrir
tæki og hlut í New York Times, svo
nokkuð sé nefnt. Í fyrra bætti hann
nokkrum íþróttaliðum í safn sitt.
6 Stefan Persson
Land: Svíþjóð
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 6%
Auður: 3.925 milljarðar króna
Græddi á: H&M-fatakeðjunni
n Persson er maðurinn á bak við
fatakeðjuna sem allar mæður elska,
H&M. Persson verður ríkari með
hverju árinu sem líður enda fer
virði hlutabréfa í keðjunni sífellt
hækkandi. Samhliða auknum auð
æfum hefur Persson sankað að sér
eignum utan Svíþjóðar. Á síðasta ári
keypti hann til dæmis 3.500 hektara
landsvæði í sveitum Englands.
7 Petr Kellner
Land: Tékkland
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 6%
Auður: 1.255 milljarðar króna.
Græddi á: Bankastarfsemi og tryggingum
n Petr Kellner byggði veldi sitt upp
hægt en örugglega. Hann byrjaði með
nokkurs konar heildsölufyrirtæki
fyrir skrifstofur. Út á þann rekstur tók
hann lán og stofnaði fjárfestingarsjóð.
Því næst keypti hann ráðandi hlut í
tryggingafélagi, hlut sem hann seldi
síðar fyrir háar fjárhæðir til ítalska
tryggingarisans Generali. Í dag á
hann tvær stórar eignir. Hann á lána
fyritækið Home Credit, sem metið er
á 456 milljarða króna og í fyrra keypti
hann svo spænska fjarskiptarisann
Telefónica's Czec. Sú eign er metin á
365 milljarða króna.
8 Suat Gunsel
Land: Kýpur
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 6%
Auður: 137 milljarðar króna.
Græddi á: Fasteignaviðskiptum og
háskóla
n Gunsel á stærsta háskólann í
norðurhluta Kýpur; Yakindogu.
Hann hefur einnig fjárfest í bönk
um, spítölum og olíufyrirtækjum,
svo eitthvað sé nefnt. Hann er
reyndar ekki ríkasti Kýpverjinn.
Þrír þeir ríkustu eru búsettir á
Bretlandseyjum og geyma megnið
af fjármagni sínu á aflandseyjum.
9 Binod
Chaudhary
Land: Nepal
Eignir sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu: 6%
Auður: 126 milljarðar
Græddi á: Hótel- og bankarekstri
n Chaudhary er eini maðurinn
í Nepal sem á meira en millj
arð Bandaríkjadala. Hann stýrir
Nabilbankanum og á hótelkeðju
sem teygir anga sína víðs vegar
um Asíu; er meðal annars að reisa
hótel í Úganda, Rúanda og Búrúndí.
Chaudhary gekk aldrei í skóla en
byggði þess í stað smám saman upp
fjölskyldufyrirtæki og gerði það að
stóru alþjóðlegu fyrirtæki.