Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 21
Umræða 21Vikublað 1.–3. apríl 2014
Ég er aðallega hissa á fólki sem
finnst tónlistin mín leiðinleg
Ég er búinn að suða
svo mikið í þeim
Í lagi að ræna börnum
ef þú ert kona
Steinunn Eldflaug hlýtur mikið umtal – DV Gísli Marteinn Baldursson opnar kaffihús í Vesturbænum ásamt vinum sínum – DVBarnsfaðir Hjördísar Svan gefur lítið fyrir nýja sálfræðiskýrslu – DV.is
S
jaldan er góð vísa of oft
kveðin segir gamalt mál-
tæki og ég hef áður á þessum
vettvangi talað um stefnuyf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar og vís-
að til þeirra orða sem mér hugnast
einna best í henni. Þar kemur fram
að hún hyggist eyða þeirri pólitísku
óvissu sem hefur verið of áberandi
þáttur í íslensku þjóðlífi á undan-
förnum árum og hún muni leitast
við að virkja samtakamátt þjóðar-
innar og vinna gegn því sundur-
lyndi og tortryggni sem einkennt
hefur íslensk stjórnmál og umræðu
í samfélaginu um nokkurt skeið.
Því miður verð ég að segja, að nú
á því tæpa ári sem hún hefur setið
hefur henni ekki tekist þetta göf-
uga ætlunarverk sitt. Þvert á móti
virðast margar aðgerðir hennar
hafa leitt til enn frekari sundrungar
og pólitískrar óvissu. Nægir þar að
nefna tillögu utanríkisráðherra um
að draga beri umsókn Íslands um
aðild að ESB til baka.
Taktlaus aðgerð
Tillaga sú var taktlaus og afar
óheppileg. Tillagan setti ekki bara
þingið í uppnám heldur líka þjóð-
ina sem skundaði á Austurvöll og
mótmælti gjörningnum og ger-
ir enn, vel yfir 50 þúsund einstak-
lingar hafa krafist þess með undir-
skrift sinni að kosið verði um
áframhald viðræðnanna. Sem ekki
er skrítið í ljósi þeirra hástemmdu
yfirlýsinga og loforða sem gefin
voru af ráðherrum ríkisstjórnar-
innar í aðdraganda kosninga síð-
asta vor. Það lá reyndar fyrir að
báðir stjórnarflokkarnir töldu að
Íslandi væri betur borgið utan ESB
en innan þess og þá veltir maður
því fyrir sér hvers vegna þeir sögðu
það ekki beint út í kosningabarátt-
unni að þeir ætluðu sér að slíta við-
ræðunum innan árs. Það hefði ver-
ið fullkomlega eðlilegt og ekki síst
heiðarlegt gagnvart kjósendum. Sá
sem er heiðarlegur villir ekki á sér
heimildir og þykist ekki vera annar
en hann er og er tilbúinn að standa
og falla með baráttumálum sínum.
Stjórnarflokkarnir virtust greini-
lega ekki vera tilbúnir til þess enda
vissu þeir að ef þeir kæmu skýrt
fram í þessu máli þá hefðu þeir
ekki náð meirihluta á þinginu.
Velmegandi þjóð
Ýmis rök hafa verið færð fyrir því
að við höfum ekkert inn í Evrópu-
sambandið gera og þá þau helst
að við fengjum engar undanþágur
hvað varðar landbúnað og sjávar-
útveg. Ekki treysti ég mér til þess
að fullyrða um það fyrr en samn-
ingur liggur fyrir. Athyglisverð-
ust þóttu mér þó þau ummæli ut-
anríkisráðherrans að ESB væri er
í raun ekki í stakk búið til að taka
á móti velmegandi ríki eins og Ís-
landi og eiga samninga um aðild
á jafnræðisgrundvelli. Vissulega
erum við betur sett en margar aðr-
ar þjóðir en að velmegun okkar sé
slík að við höfum ekkert inn í ESB
að gera er annað mál. Ef velmegun
okkar er slík hvernig getur þá stað-
ið á því að velferðarsamfélag okk-
ar riðar til falls? Alls staðar í sam-
félaginu vantar fjármagn til þess að
halda úti fullnægjandi þjónustu, í
heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu,
samgöngukerfinu og svo í sjóði til
þess að styrkja nýsköpun og þró-
un nýrra atvinnutækifæra. Hvern-
ig getur staðið á því að svo velmeg-
andi ríki eins og Ísland þarf að eiga
það á hættu á nokkurra ára fresti
að hér skelli á kennaraverkföll með
tilheyrandi óþægindum fyrir nem-
endur, fjölskyldur þeirra og sam-
félagið allt? Hvernig getur staðið
á því að í svo velmegandi ríki geti
verkfall undirmanna á ferju haldið
fjögur þúsund manna byggðarlagi,
sem er ein mikilvægasta verstöð
landsins, í gíslingu og setji allt líf
íbúanna í fullkomna óvissu? Spyr
sá sem ekki veit.
Framtíðarhagsæld
Aðild að ESB þurfa allir flokkar að
skoða án fyrir fram gefinnar niður-
stöðu eða hleypidóma. Hugsan-
lega kæmust við að því að Ísland
og ESB ættu ekki samleið en þá
ákvörðun tökum við ekki nema eft-
ir skoðun og með rökum. Það er
siðferðileg og samfélagsleg skylda
stjórnmálamanna að skoða af fullri
ábyrgð allar leiðir sem hugsanlega
gætu fært Íslandi meiri velsæld í
framtíðinni. Aðild að ESB er val-
kostur sem þjóðin á að velja um
hvort hún vill eða ekki. n
Enn um ESB
Fögur fjallasýn Sólargeislarnir fara hlýnandi þessa dagana og eflaust hafa margir nýtt sér hæglætisveður á landinu um helgina.
Hér er horft af Skálafelli til suðurs yfir til Hellisheiðar og Bláfjalla. Mynd SiGTryGGur AriMyndin
„Vissulega erum
við betur sett
en margar aðrar þjóðir
en að velmegun okkar
sé slík að við höfum
ekkert inn í ESB að
gera er annað mál.
Páll Valur Björnsson
þingmaður Bjartrar framtíðar
Kjallari
1 Skallaði aldraða konu á Njálsgötu
Anna Guðjónsdóttir varð fyrir fólskulegri
árás á föstudag.
48.440 hafa lesið
2 Óborganleg viðbrögð drengs sem kemst að því
að hann er að fara að eignast
enn aðra systur
Hinn sex ára gamli Gunner Mertlich var
heldur betur ósáttur þegar foreldrar
hans tilkynntu honum að hann væri nú
að fara að eignast enn eina systurina.
31.742 hafa lesið
3 „Ég bara gafst upp, þetta var alltof mikið
fyrir mig“
Ásdís Guðný Pétursdóttir, sem keypti
Papillion-tíkina Perlu á bland.is fyrir
nokkru, hefur gefist upp við að berjast
fyrir því að halda hundinum.
29.548 hafa lesið
4 „Ég var búin að vera týnd í fjóra daga þegar það var
lýst eftir mér“
Týndu börnin svokölluðu sögðu sögur
sínar í helgarblaði DV.
24.292 hafa lesið
5 „Bjarni er búinn að vera“Björn Valur Gíslason, fyrrverandi
þingmaður, ræddi á bloggi sínu um
djúpan vanda Sjálfstæðisflokksins.
22.948 hafa lesið
6 Svarar ekki fyrir upp-sögnina: „Ég skulda þér
enga skýringu á því“
Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri
Félags eldri borgara í Reykjavík, var
látinn fara fyrir óljósar sakir.
20.511 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is