Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Síða 30
Vikublað 1.–3. apríl 201430 Sport
8 Antonio ConteStarf: Stjóri Juventus
Aldur: 44 ára
Helstu afrek: Ítalskur meistari 2012 og 2013
n Antonio Conte hefur náð frábærum ár-
angri með Juventus og rifið félagið upp eftir
mögur ár. Liðið siglir nú hraðbyri að sínum
þriðja titli í röð í ítölsku deildinni. Conte er
fyrrverandi fyrirliði Juventus og af mörgum
talinn í hópi efnilegustu knattspyrnustjóra
heims. Fátt bendir til þess að hann sé á för-
um frá Ítalíumeisturunum, en ef freistandi
tilboð kemur frá Englandi skyldi enginn
útiloka það.
Kostir: Skipulagður og taktískur stjóri
sem er lunkinn við að ná í ódýra en góða
leikmenn.
Gallar: Líður best á Ítalíu þar sem hann
hefur alla tíð verið, bæði sem leikmaður og
stjóri.
7 Rudi GarciaStarf: Stjóri Roma
Aldur: 50 ára
Helstu afrek: Frakklands- og
bikarmeistari 2011
n Rudi Garcia hefur gjörbylt stórveldinu frá
höfuðborg Ítalíu, Roma. Liðið hefur aðeins
tapað tveimur af 30 leikjum í A-deildinni
og situr í 2. sæti deildarinnar þegar lítið er
eftir af tímabilinu. Auk þess er liðið með
eina bestu vörn Evrópu, en í 30 leikjum
hefur Roma fengið á sig 15 mörk. Ekkert lið
í stærstu deildum Evrópu hefur fengið á sig
færri mörk, ekki einu sinni Bayern Munchen.
Kostir: Hefur náð árangri þar sem hann hef-
ur verið. Gerði Lille að tvöföldum meistara í
Frakklandi 2011.
Gallar: Vill láta lið sitt sitja aftarlega og
beita hröðum skyndisóknum. Ekki endilega
skemmtilegasti fótboltinn, en árangursríkur.
6 Carlo AncelottiStarf: Stjóri Real Madrid
Aldur: 54 ára
Helstu afrek: Sex deildartitlar á Englandi,
Ítalíu og í Frakklandi
n Þótt það sé langsótt að Carlo Ancelotti
taki við af David Moyes strax í sumar er það
ekki útilokað að hann verði á lausu í vor.
Krafan hjá Real Madrid er að titlar komi í hús
á hverju einasta tímabili. Ef Ancelotti tekst
það ekki og missir af Spánarmeistaratitlinum
eða vinnur ekki Meistaradeildina gæti hann
fengið að taka pokann sinn. Ancelotti, rétt
eins og Capello og van Gaal, hefur unnið titla
með öllum þeim liðum sem hann hefur stýrt.
Kostir: Nýtur mikillar virðingar, skipulagður
og vinnur titla.
Gallar: Ef, og aðeins ef, hann vinnur ekki
titla með Real Madrid, hvernig vinnur hann
þá titla með Manchester United?
5 Mauricio Pochettino
Starf: Stjóri Southampton
Aldur: 42 ára
Helstu afrek: Stjóri mánaðarins á Englandi
í október 2013
n Eins og sést hér að ofan hefur Pochettino
ekki unnið neitt sem stjóri, ekki frekar en David
Moyes. Pochettino er hálfgerður grænjaxl í
heimi knattspyrnustjórnunar, en hefur engu
að síður náð eftirtektarverðum árangri með
Southampton í vetur. Liðið leikur fallegan
fótbolta og pressar andstæðinginn ofarlega
á vellinum. Framan af vetri var Southampton
með eina bestu vörn ensku deildarinnar þó að-
eins hafi gefið á bátinn þar undanfarnar vikur.
Liðið er í 8. sæti deildarinnar sem stendur.
Kostir: Ungur og skipulagður stjóri sem veit
hvernig á að spila fótbolta.
Gallar: Reynslulítill stjóri sem hefur ekki
unnið neitt.
4 Fabio CapelloStarf: Landsliðsþjálfari Rússa
Aldur: 67 ára
Helstu afrek: Sjö deildartitlar á Ítalíu og
Spáni. Vann Meistaradeildina með Milan
1993.
n Rétt eins og Louis van Gaal er Capello
stjóri af gamla skólanum og hokinn af
reynslu. Frá 2008 hefur Capello einungis
stýrt landsliðum, fyrst því enska og svo því
rússneska þar sem hann hefur náð flottum
árangri. Capello er orðinn 67 ára og yrði því
aðeins skammtímalausn hjá United. Hann
myndi ná að koma stöðugleika á liðið og
búa það vel undir komu annars stjóra sem
yrði hugsaður til framtíðar.
Kostir: Agaður og hefur unnið titla með
öllum félagsliðum sem hann hefur stýrt.
Gallar: Náði ekki því besta út úr enska
landsliðinu. Gæti hann það með ensku
félagsliði í vandræðum?
3 Diego SimeoneStarf: Stjóri Atletico Madrid
Aldur: 43 ára
Helstu afrek: Bikarmeistari á Spáni 2013,
sigur í Evrópudeild 2012
n Diego Simeone er stjóri spútnikliðs Evrópu
á þessari leiktíð, Atletico Madrid. Rétt eins
og Klopp hefur Simeone gert frábæra hluti
með lið sitt þrátt fyrir að hafa yfir takmörk-
uðum fjármunum að ráða. Lið hans er í
harðri baráttu um Spánarmeistaratitilinn og
hefur ekki gefið stórliðunum Real Madrid og
Barcelona neitt eftir í vetur. Þá er liðið komið
í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Kostir: Mjög taktískur og einn sá
skipulagðasti í bransanum.
Gallar: Talar litla ensku og hefur ekki alltaf
náð árangri sem stjóri. Til að mynda féll
River Plate í Argentínu árið 2008 undir hans
stjórn en Simeone lét af störfum þegar sex
umferðir voru eftir.
2 Jürgen KloppStarf: Stjóri Borussia Dortmund
Aldur: 46 ára
Helstu afrek: Þýskalandsmeistari
2011 og 2012
n Klopp er sá stjóri sem flestir stuðnings-
menn United vilja að taki við. Klopp hefur
gert frábæra hluti með Dortmund og lyft
félaginu aftur á hæsta stall þrátt fyrir
takmörkuð fjárráð. Klopp hefur það orð á
sér að geta náð því besta út úr öllum sínum
mönnum, rétt eins og Sir Alex Ferguson var
þekktur fyrir. Þó að Klopp hafi gefið það til
kynna að hann vilji vera áfram hjá Dortmund,
eins og nýr samningur hans við félagið til
2018 ber með sér, skyldi enginn útiloka að
hann rói á önnur mið að tímabili loknu.
Kostir: Spilar frábæran sóknarleik og nær
því besta út úr liði sínu.
Gallar: Tiltölulega reynslulítill á stóra sviðinu
og hefur aðeins reynslu frá Þýskalandi.
1 Louis van GaalStarf: Landsliðsþjálfari Hollands
Aldur: 62 ára
Helstu afrek: 7 deildartitlar í Hollandi,
Þýskalandi og á Spáni, Meistaradeildin
með Ajax 1995.
n Louis van Gaal hættir með landslið
Hollands eftir HM í sumar og hefur látið
hafa eftir sér að næsta starf hans verði á
Englandi. Ljóst er að van Gaal á ekki mörg ár
eftir í boltanum enda kominn á sjötugs-
aldurinn. Hann gæti reynst fullkominn
kandídat fyrir Manchester United í 3–4 ár
enda hefur hann náð árangri og unnið titla
með öllum þeim félagsliðum sem hann hef-
ur stýrt, síðast með Bayern München þegar
liðið varð Þýskalandsmeistari 2010.
Kostir: Reynslumikill stjóri sem nýtur
ómældrar virðingar.
Gallar: Kominn á sjötugsaldur og yrði
væntanlega ekki framtíðarmaður.
10 Ryan GiggsStarf: Leikmaður og þjálfari hjá
Manchester United
Aldur: 40 ára
Helstu afrek: Ógrynni titla sem leikmaður
n Það er eitthvað rómantískt við þá
tilhugsun að leikjahæsti leikmaður Manche-
ster United frá upphafi taki við starfi
knattspyrnustjóra félagsins og leiði það á
beinu brautina. Það er ljóst að Ryan Giggs
ætlar að leggja fyrir sig þjálfun í framtíðinni
og er hann nú þegar kominn í þjálfarateymi
United. Giggs býr yfir ótrúlegri reynslu en
spurningin er einungis sú hvort hann sé
tilbúinn fyrir svo stórt verkefni.
Kostir: Þekkir félagið eins og fingurna á sér,
nýtur mikillar virðingar hjá leikmönnum og
stuðningsmönnum.
Gallar: Hefur enga reynslu af starfi
knattspyrnustjóra.
9 Frank de BoerStarf: Stjóri Ajax
Aldur: 43 ára
Helstu afrek: Hollandsmeistari 2011, 2012
og 2013
n Þrátt fyrir að vera ungur er Frank de
Boer hokinn af reynslu. Hann hefur stýrt
Ajax frá árinu 2010 og alltaf gert liðið að
Hollandsmeistara. Þá var hann aðstoðar-
stjóri hollenska landsliðsins sem vann silfur
á HM í Suður-Afríku. Það er í raun aðeins
tímaspursmál hvenær de Boer yfirgefur
Ajax fyrir stærri klúbb.
Kostir: Nýtur mikillar virðingar í
knattspyrnuheiminum, vill gefa ungum
strákum tækifæri og spilar skemmtilegan
sóknarbolta.
Gallar: Það er ekki það sama að stýra Ajax
og Manchester United.
Erfið staða
David Moyes er í
erfiðri stöðu og
þegar er farið að
ræða um eftir-
mann hans.
10 stjórar
sem gætu
leyst Moyes
af hólmi
D
avid Moyes er undir mikl-
um þrýstingi hjá Manchest-
er United og vill meirihluti
stuðningsmanna losna við
hann. Sir Bobby Charlton, goðsögn
í augum stuðningsmanna United,
lét nýlega hafa eftir sér að Moyes
ætti að fá meiri tíma þrátt fyrir afleitt
gengi á þessari leiktíð. Ljóst er að
þolinmæði stjórnarmanna United
er ekki endalaus og gæti vel farið
svo að nýr maður verði í brúnni á
næstu leiktíð. DV hefur tekið saman
nöfn tíu stjóra sem gætu tekið við
í sumar og metur kosti þeirra og
galla. n einar@dv.is
n Pressan á stjóra United eykst dag frá degi