Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2014, Page 36
36 Fólk Vikublað 1.–3. apríl 2014
Skotinn á leið
í jarðarför
Bandaríski rapparinn Benzino
slapp með skrekkinn eftir að
skotið var á hann þar sem hann
var á leið í jarðarför móður
sinnar um helgina. Benzino,
sem heitir réttu nafni Raymond
Scott, sat í kyrrstæðum bíl
þegar frændi hans, Gai Scott,
lagði við hliðina á honum og
skaut á rapparann. Rapparinn
var hæfður í handlegg og fékk
skeinu á bakið en slapp annars
við alvarleg meiðsli. Yfirvöld
segja ástæðuna fyrir árásinni
vera vaxandi erjur innan fjöl-
skyldunnar.
Púað á
Justin Bieber
Vandræðagemsinn og popp-
arinn Justin Bieber virð-
ist hafa fallið í ónáð margra
í heimalandi sínu ef marka
má viðbrögð áhorfenda á af-
hendingarhátíð Juno-verð-
launanna sem veitt voru um
helgina. Bieber vann til verð-
launa í flokknum Fan Choice
Awards en þegar úrslitin voru
tilkynnt mátti heyra áhorfend-
ur púa og hvæsa hátt. Bieber
er þó ekki óvanur þessum við-
brögðum því svipað atvik gerð-
ist í fyrra þegar hann vann til
Billboard-verðlauna.
Ástfangnar
upp fyrir haus
Cara og Michelle njóta lífsins saman
T
urtildúfurnar Cara Deleg-
vigne og Michelle Rodriguez
njóta lífsins saman ástfangn-
ar upp fyrir haus. Þær eru ný-
komnar heim úr rómantísku
fríi í Mexíkó þar sem þær nutu ljúfa
lífsins í sólinni. Það náðust myndir af
þeim að baða sig í sjónum þar sem
Cara var ber að ofan í sjónum. Tölu-
verður aldursmunur er á þeim en
Cara er 21 árs en Michelle 35 ára.
Gengur mjög vel
Ljósmyndarar náðu myndum af
þeim þegar þær sneru til baka úr frí-
inu. Þær gátu ekki sleppt höndunum
og kysstust eins og ástfangnir ung-
lingar. Þær hafa verið saman síðan í
byrjun þessa árs en í viðtali í febrú-
ar tjáði Michelle sig í fyrsta skipti um
sambandið. „Þetta gengur mjög vel
hjá okkur. Hún er svo svöl. Þegar við
byrjuðum að hanga saman hugsaði
ég með mér hversu frábær hún væri
og við skemmtum okkur frábærlega
saman. Hún er erfið samt. Það myndi
enginn vilja lenda í slag við hana.“
Tjáði sig um kynhneigð sína
Í viðtali fyrir sex mánuðum síðan við
Entertainment Weekly tjáði Michelle
sig um kynhneigð sína þar sem hún
sagðist vera tvíkynhneigð. Hún hefði
verið með bæði konum og körlum
og væri of forvitin til þess að binda
sig við annað kynið. Þær Cara virð-
ast alla vega hafa fundið ást í hvor
annarri en Cara hefur aldrei tjáð sig
sérstaklega um sína kynhneigð.
Vakti athygli á Austur
Cara er líkt og kunnugt er ein heitasta
ofurfyrirsæta heims í dag. Hún vakti
mikla athygli hérlendis á dögunum
þegar hún heimsótti landið með fjöl-
skyldu sinni. Auk þess að fara út á
land kíkti hún út á lífið, meðal annars
á Austur þar sem hún vakti mikla
athygli kvenkyns gesta staðarins sem
biðu í röðum eftir að fá mynd af sér
með henni. Michelle er leikkona sem
er þekktust fyrir hlutverk sitt í Fast
and the furious-myndunum. n
Sætar Cara
og Michelle
nýkomnar úr
fríinu.
Í sjónum
Stöllurnar voru
duglegar að
instagramma
myndir í fríinu.
Í sleik Þær eru
óhræddar við að
sýna ást sína á
almannafæri.
Í sjónum Cara
skellti sér í kaf og
Michelle tók mynd.
Ber að ofan Cara
vildi greinilega koma í
veg fyrir að fá bikinífar
og skellti sér því ber að
ofan í sjóinn.
Segist vera faðir Blanket
Fyrrverandi lífvörður Jacksons leitar réttar síns
M
ark Fiddes, fyrrverandi líf-
vörður poppkóngsins Mich-
ael Jackson, hefur ákveðið
að leita réttar síns til að
sanna að hann sé kynfaðir yngsta
barns Jacksons, Blanket.
Lífvörðurinn fyrrverandi, sem er
32 ára, tilkynnti breskum fjölmiðlum
það að hann væri á leið til Los Ang-
eles til þess að krefjast umgengnis-
réttar fyrir hann og Blanket, sem er
10 ára og heitir fullu nafni Prince
Michael Jackson II.
„Ég mun útvega DNA-sýni og
biðja formlega um það að fá að um-
gangast Blanket. Michael er faðir
þeirra og ég vil ekki breyta því en ég
vil fá þessi börn aftur í líf mitt,“ sagði
Fiddes í viðtali við Daily Mail. „Ég
held að Blanket sé sonur minn en
ég verð að fá sönnun fyrir því,“ seg-
ir Fiddes.
Fiddes, sem er bardagalistamað-
ur, segist hafa látið Jackson fá sæði
sitt eftir að Michael hafði sagt hon-
um að hann langaði í barn sem væri
„íþróttamannslegt“.
Hver móðir Blanket er hef-
ur alltaf verið á huldu en Jackson
hélt því staðfastlega fram á sínum
tíma að hann hefði notast við stað-
göngumóður en að hann væri faðir-
inn.
Fiddes segir að móðir Jacksons
hafi reynt eftir fremsta megni að
halda honum frá börnunum og seg-
ir að hún standi í vegi fyrir sann-
leikanum. „Hún heldur að ég sé á
höttunum eftir peningum, en sann-
leikurinn skiptir mig mestu máli.
Móðir mín er að deyja úr krabba-
meini. Ég vil mest af öllu að hún fái
að hitta Blanket.“ n
Jackson Fiddes var lífvörður Jacksons til
margra ára.
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong