Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Qupperneq 11
Vikublað 29. apríl–1. maí 2014 Fréttir 11
við Laugalæk - sími 553 3755
Sendum landsmönnum
öllum baráttukveðjur!
E
kkert bólar á tillögum frá
nefnd um endurskoðun
laga um erlenda fjár-
festingu, en nefndin átti
að skila áfangaskýrslu til
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, inn-
anríkisráðherra, í janúar síðast-
liðnum. Upphaflega átti að skila
henni í lok apríl, en skilum síðan
flýtt til janúar. Eigendur jarðar-
innar Grímsstaða á Fjöllum hafa
því þurft að bíða lengi eftir niður-
stöðu nefndarinnar, sem var ekki
síst sett á laggirnar vegna um-
ræðu um fjárfestingar Huangs
Nubo á jörðinni. Sveitarfélögin
sem jörðin er í hafa áform um að
kaupa jörðina, á þeim forsendum
að hægt verði að leigja hluta henn-
ar til Nubos. Aðeins er um að
ræða lítinn hluta jarðarinnar, en
meirihluta hennar verður breytt í
fólkvang og jafnvel eru uppi hug-
myndir um að hann verði hluti af
Vatnajökulsþjóðgarði. Samkvæmt
heimildum DV eru landeigendur
orðnir langeygir eftir niðurstöð-
unni, enda vilji þeir selja landið og
þessi möguleiki sá eini sem virðist
raunhæfur. Töf nefndarinnar hefur
því valdið nokkrum titringi meðal
landeigenda. Litlar upplýsingar er
að fá frá ráðuneytinu aðrar en þær
að verkefnið sé á lokastigi.
Flókið ferli
„Nubo bíður alltaf eftir niður-
stöðu, af eða á. Við bíðum rólegir
eftir þessari endurskoðun, okkur
var tjáð í upphafi að hún gæti
komið í lok apríl, hún er ekki kom-
in enn svo við bíðum,“ segir Hall-
dór Jónsson, talsmaður Huangs
Nubo. Hann hefur engar skýringar
fengið á töfunum sem orðið hafa.
„Við fengum þær upplýsingar frá
ráðuneytinu að ferlið hefði ver-
ið flóknara en gert hafði verið ráð
fyrir. Ég kom þeim skilaboðum
áfram til Nubos og hann tók þeim
skilaboðum með stóískri ró. Okkar
væntingar standa til þess að svo
fari, að niðurstaðan liggi fyrir í lok
mánaðar. Ég hef hins vegar engar
upplýsingar um starf nefndarinn-
ar, hún hefur ekki óskað eftir nein-
um upplýsingum frá okkur,“ segir
Halldór.
Nubo hefur haldið sambandi
við Norðurþing og sveitarfélög-
in á Norðurlandi eystra. „Þar
hafa menn áhyggjur af drættin-
um sem orðið hefur því það stytt-
ist í sveitarstjórnarkosningar.
Óháð þeim, þá eru menn að leita
að tækifærum til að byggja upp at-
vinnutækifæri og ég er sannfærður
um að þessi fjárfesting yrði mjög
góð fyrir Norðausturland og Ísland
í heild sinni,“ segir Halldór.
Allt í biðstöðu
„Þetta hefur eitthvað dregist og
hvað okkur varðar verður staðan
tekin í málinu þegar niðurstaðan
liggur fyrir. Við höfum ekki fengið
neinar útskýringar á því af hverju
þessar tafir hafa orðið, en þetta er
ákveðin forsenda í þessum áætl-
uðu kaupum okkar á jörðinni,“
segir bæjarstjórinn á Húsavík, en
Norðurþing er eitt þeirra sveitarfé-
laga sem áætlar að kaupa jörðina.
Hann segir það ekki útilokað að
leigja landið til Íslendinga. „Ef ein-
hverjir eru með hugmyndir og hafa
burði til að framkvæma þær, þá
erum við að sjálfsögðu opnir fyrir
því. Hingað til hefur þó enginn
haft samband við okkur. Það er allt
í biðstöðu á meðan niðurstaðan
liggur ekki fyrir,“ segir Bergur.
Áhersla lögð á að ljúka vinnunni
Huang Nubo og sveitarfélögin
eru því í startholunum, tilbúin
að fara af stað verði niðurstaða
nefndarinnar jákvæð og lögum
breytt. „Við leggjum mikla áherslu
á að þessi vinna hefjist strax og
henni ljúki sem fyrst. Við ætlumst
til þess að skýrslu og tillögum verði
skilað eigi síður en í janúar,“ sagði
Hanna Birna við Viðskiptablaðið í
nóvember. Nefndin hafði því að-
eins tæplega þrjá mánuði til að
skila niðurstöðum, í stað sex, en
nú er ljóst að sá tími var óraun-
hæfur. n
Óútskýrð töf á niðurstöðum nefndar um erlenda fjárfestingu veldur titringi
Hanna Birna „Við leggjum mikla áherslu á að þessi vinna hefjist strax og henni ljúki sem
fyrst,“ sagði Hanna Birna í nóvember síðastliðnum. Nefndin átti að ljúka störfum í janúar, en
hefur engu skilað frá sér enn. Mynd dV eHF / Sigtryggur Ari
rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Huang nubo „Nubo bíður
alltaf eftir niðurstöðu, af eða
á. Við bíðum rólegir eftir
þessari endurskoðun,“ segir
Halldór Jónsson, talsmaður
Huangs Nubo.„Menn
hafa áhyggjur
af dráttinum sem
orðið hefur
Langeygir eftir
niðurstöðum
Krefst hálfrar
milljónar
Á mánudag fór fram aðalmeð-
ferð í meiðyrðamáli Önnu Krist-
ínar Pálsdóttur, fréttamanns RÚV,
gegn Páli Vilhjálmssyni, blaða-
manni og bloggara, í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Málið snýst um þýðingu Önnu
Kristínar á orðum forseta leiðtoga-
ráðs ESB, Hermans van Rompuy.
Í hádegisfréttum þann 16. júlí
var enska hugtakið „accession
process“, sem hann notaði, þýtt
sem aðildarviðræður. Þetta gagn-
rýndi Páll í bloggfærslunni og sagði
rétta þýðingu vera aðildarferli og
sagði að með orðavalinu væri ver-
ið að falsa ummæli, blekkja og fela
staðreyndir viljandi og að yfirlögðu
ráði. Í kjölfarið kærði Anna Krístín
hann fyrir meiðyrði. Anna hefur
krafist þess að ummæli sem Páll lét
falla í bloggfærslu í júlí í fyrra verði
dæmd ómerk og hann greiði hálfa
milljón króna í miskabætur.
Íbúi kom upp
um þjófa
Innbrotsþjófar sem brutust inn
í húsnæði á Suðurnesjum um
helgina voru ekki lengi í Para-
dís, frekar en títt er um þá sem
stunda slíkt athæfi. Þeir brutu-
st inn í verkstæði og stálu nýjum
dekkjum, ásamt felgum, undan
jeppa, að verðmæti um 500 þús-
und króna. Tjakki og topplykla-
setti höfðu þeir stolið úr nærliggj-
andi húsnæði. Að auki höfðu þeir
á brott með sér tvö málverk úr
húsnæði listmálara, við hlið verk-
stæðisins. Þýfið földu þeir í göml-
um dæluskúr.
Í tilkynningu frá lögreglunni
á Suðurnesjum kemur fram að
athugull íbúi sem rakst á dekk-
in og málverkin á sunnudag, hafi
verið þess fullviss að þarna væri
ekki allt með felldu. Hann gerði
því lögreglunni viðvart og kom
hún mununum í réttar hendur.
Haldið sofandi
Ökumanni bifhjóls, sem var
fluttur alvarlega slasaður á
Landspítalann í Fossvogi að-
faranótt sunnudags, er haldið
sofandi í öndunarvél. Líðan
mannsins er stöðug.
Maðurinn var á ferð í
Kömbunum um klukkan þrjú
á aðfaranótt sunnudags. Hann
er talinn hafa misst stjórn á
hjólinu með þeim afleiðingum
að hann lenti utan vegar.