Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Síða 27
Vikublað 29. apríl–1. maí 2014 Lífsstíll 27 É g ætlaði sko fyrst að vera tísku- bloggari en sá fljótt að ég hafði ekki beint fjármunina, né smekkinn kannski heldur, til þess,“ segir Guðrún Veiga Guðmundsdóttir sem hefur vak- ið athygli fyrir hispurslausar blogg- færslur á síðunni sinni: gveiga85. blogspot.com. Þar bloggar hún um allt milli himins og jarðar. Hún er ófeimin við að gera grín að sjálfri sér eða deila með lesendum furðu- legum mataruppskriftum sínum þar sem hún blandar oft og tíðum saman ólíklegum matartegundum. Öðruvísi gúmmelaði Guðrún Veiga byrjaði að blogga í nóvember 2012. „Þetta byrjaði bara við skrifborðið heima á Reyðarfirði,“ segir hún. Þá var hún í fjarnámi frá Háskóla Íslands en er nú flutt í bæ- inn, nánar tiltekið í Breiðholt, en hún er að skrifa meistararitgerð sína í mannfræði. Á vefsíðunni deilir hún oft undar- legum mataruppskriftum með flott- um myndum sem hún tekur sjálf. Meðal þess sem finna má á síðunni er uppskrift af súkkulaðihúðuðu Bugles með hnetusmjörsfyllingu, súkkulaðihúðuðu epli með hnet- usmjörsfyllingu og M&M-skrauti á, karamelluhúðað Twix-popp og súkkulaðihúðuð Ritz-kexsamloka með hnetusmjöri svo eitthvað sé nefnt. „Þetta byrjaði með því að vin- kona mín sendi mér einhverja Oreo- poppuppskrift sem hún var viss um að væri akkúrat fyrir mig. Síðan þá hef ég prófað þær nokkrar,“ segir hún kankvís. Áhyggjufullir lesendur Lesendur hafa líka lýst yfir áhyggjum sínum vegna tilraunastarfsemi Guð- rúnar Veigu í eldhúsinu. „Fólk hefur miklar áhyggjur af mataræði mínu og ég hef verið spurð hvort ég borði bara úr niðursuðudósum og hvort ég viti ekki að popp sé ekki matur. Síðan hef ég fengið mikinn tölvupóst frá fólki sem spyr hvort ég borði bara nammi og engan mat,“ segir hún hlæjandi. Guðrún bloggar þó ekki bara um undarlega matarsiði sína. Vin- sælasta færslan er til að mynda um það þegar Guðrún skrifaði um raun- ir sínar við að reyna komast inn í bíl sinn fyrir utan Nettó í Mjódd. Eftir að hafa hamast dágóða stund með hóp áhorfenda að fylgjast með til- þrifunum hringdi hún í bróður sinn sem kom henni til bjargar. Þegar hann var nýkomin á svæðið kom hins vegar í ljós að hún hafði reynt að opna rangan bíl. „Já, þessi færsla sló í gegn,“ segir Guðrún og viðurkennir að hún sé óhrædd við að gera grín að sjálfri sér. Margir lesendur Sífellt bætist við fjölda lesenda á síð- unni hennar Guðrúnar. „Fyrst voru svona 70–80 og allt upp í 200 þegar mest var að skoða síðuna daglega. Núna eru þetta 3–5 þúsund á dag og hefur farið upp í 10 þúsund,“ seg- ir Guðrún Veiga sem einnig skrifar pistla fyrir Akureyri Vikublað. Hér má sjá nokkrar af uppskrift- um Guðrúnar Veigu. n viktoria@dv.is Ætlaði að verða tískubloggari n Guðrún Veiga bloggar um allt milli himins og jarðar n Öðruvísi góðgæti og gúmmelaði Súkkulaðihúðað Bugles Aðferð: Hnet- usmjör sett í lítinn plastpoka sem er klippt gat á og sprautað inn í Bugles. Súkkulaði brætt og Bugles dýft ofan í. Twix-húðað popp Karamelluhúðað Twix-popp að hætti Guðrúnar Veigu: Einn poki Stjörnupopp, 1 bolli smjör, 2 bollar púð- ursykur, 1/2 bolli síróp, 1/2 tsk. matarsódi, 1 tsk. vanilludropar, 3 stykki Twix. M&M-súkkulaðihúðað og hnetu- smjörfyllt epli Aðferð: Miðjan fjarlægð úr eplinu. Hnetusmjöri sprautað inn. Trépinna stungið inn í eplið. Súkkulaði brætt og M&M mulið niður og eplinu velt upp úr. Súkkulaðiðhúðuð Ritz-kexsamloka Hnetusmjör sett á milli Ritz-kex. Súkkulaði brætt og samlokan böðuð upp úr því. Kælt inni í ísskáp í hálftíma. Guðrún Veiga Byrjaði að blogga heima á Reyðarfirði og ætlaði fyrst að verða tískubloggari. Nú skrifar hún um allt milli himins og jarðar og hefur vakið mikla athygli fyrir opinskáar færslur þar sem hún gerir óspart grín að sjálfri sér. N ú er það appelsínugult. Sam- kvæmt erlendum tískuspek- ingum er þessi glaðlegi og skemmtilegi litur nefnilega aðaltískuliturinn í sumar. Litur- inn var áberandi á tískupöllunum þegar sumartískan 2014 var kynnt og nú má víða sjá appelsínugular flíkur í sumarlínum verslana. Litur- inn er þó ekki bara vinsæll í fatatísk- unni heldur líka í snyrtivörum. Var- ir margra kvenna munu líklega verða málaðar appelsínugular í sumar því að flestir stærstu snyrtivörufram- leiðendur hafa sent frá sér varaliti í appelsínugulu og líka augnskugga, naglalakk og kinnaliti. Það verður því líka vinsælt að hafa neglurnar málaðar appelsínugular og eflaust munu einhverjar þær allra djörfustu skarta appelsínugulum kinnalit eða augnskugga. Það er þó um að gera að skarta ekki öllu í einu, appelsínugulum föt- um og förðun, því það gæti verið að- eins of mikið. n Tískulitur sumarsins Appelsínugult skal það vera

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.