Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2014, Side 33
Menning Sjónvarp 33Vikublað 11.–13. febrúar 2014 Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Þriðjudagur 29. apríl 16.30 Ástareldur (Sturm der Liebe) Þýsk þáttaröð um ástir og afbrýði eigenda og starfsfólks á Hótel Fürsten- hof í Bæjaralandi. 17.20 Músahús Mikka (12:26) 17.43 Violetta e (5:26) Disneyþáttaröð um hina hæfileikaríku Violettu, sem snýr aftur til heimalands síns, Buenos Aires eftir að hafa búið um tíma í Evrópu. Aðalhlutverk: Diego Ramos, Martina Stoessel og Jorge Blanco. e. 18.25 Táknmálsfréttir 18.35 Melissa og Joey 19.00 Fréttir 19.25 Veðurfréttir 19.30 Íþróttir 19.40 Kastljós 20.10 Leiðin á HM í Brasilíu (10:16) Í þættinum er farið yfir lið allra þátttökuþjóð- anna á HM, styrkleika þeirra og veikleika og helstu stjörnur kynntar til leiks. Við kynnumst gestgjöfun- um, skoðum borgirnar og leikvangana sem keppt er á. 20.40 Castle 8,4 (17:23) Banda- rísk þáttaröð. Höfundur sakamálasagna er fenginn til að hjálpa lögreglunni þegar morðingi hermir eftir atburðum í bókum hans. Meðal leikenda eru Nathan Fillion, Stana Katic, Molly C. Quinn og Seamus Dever. 21.25 Nýsköpun - Íslensk vísindi III 888 (3:8) Ný íslensk þáttaröð fyrir alla fjölskylduna um vísindi og fræði í umsjón Ara Trausta Guðmundssonar og Valdi- mars Leifssonar. 22.00 Tíufréttir 22.15 Veðurfréttir 22.20 Úr launsátri (2:6) (Hit and Miss) Spennuþrungnir og átakanlegir þættir í fram- leiðslu Pauls Abbotts, um kaldrifjaðan leigumorðingja sem lendir í óvæntri aðstöðu þegar vinkona hennar deyr. Aðalhlutverk: Jonas Armstrong, Chloë Sevigny og Karla Crome. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 23.05 Spilaborg 9,0 e (11:13) (House of Cards II) Bandarísk þáttaröð um klækjastjórnmál og pólitískan refskap þar sem einskis er svifist í baráttunni um völdin. Meðal leikenda eru Kevin Spacey, Michael Gill, Robin Wright og Sakina Jaffrey. Atriði í þáttunum er ekki við hæfi ungra barna. 00.00 Kastljós 00.25 Fréttir 00.35 Dagskrárlok Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 ÍNN 07:00 Dominos deildin 12:20 Spænski boltinn 2013-14 14:00 Dominos deildin 15:30 Meistaradeild Evrópu 16:00 NBA úrslitakeppnin (San Antonio - Dallas) 18:00 Meistaradeildin 18:30 Meistaradeild Evrópu 20:45 Meistaradeildin - meistaramörk 21:15 Spænsku mörkin 21:45 Meistaradeild Evrópu 23:25 Meistaradeildin 23:55 Spænski boltinn 2013-14 (Villarreal - Barcelona) 13:10 Premier League 2013/14 (Fulham - Hull) 14:50 Premier League 2013/14 (Sunderland - Cardiff) 16:30 Messan 17:50 Premier League World 18:20 Premier League 2013/14 (Man. Utd. - Norwich) 20:00 Ensku mörkin - úrvals- deildin (36:40) 20:55 Destination Brazil 21:25 Ensku mörkin 21:55 Premier League 2013/14 (Crystal Palace - Man. City) 23:35 Premier League 2013/14 20:00 Hrafnaþing 21:00 Stjórnarráðið Ella Hirst og Willum við stjórnvölinn 21:30 Skuggaráðuneytið Katrín Jak,Katrín Júl,Heiða Kristín og Birgitta. 17:45 Strákarnir 18:10 Friends (18:24) 18:35 Seinfeld (22:22) 19:00 Modern Family 19:25 Two and a Half Men (8:19) 19:50 Kalli Berndsen - Í nýju ljósi (9:10) 20:15 Veggfóður (3:7) 21:00 Twenty Four (12:24) 21:40 Anna Pihl (7:10) 22:25 Lærkevej (5:10) 23:10 Chuck (4:13) 23:50 The Fixer (6:6) 00:35 Kalli Berndsen - Í nýju ljósi (9:10) 01:00 Veggfóður (3:7) 01:40 Anna Pihl (7:10) 02:25 Lærkevej (5:10) 11:10 The Extra Man 12:55 The Best Exotic Mari- gold Hotel 14:55 Airheads 16:30 The Extra Man 18:20 The Best Exotic Mari- gold Hotel 20:25 Airheads 22:00 The Eagle 23:55 Battle Los Angeles 01:50 Black Dynamite 03:15 The Eagle 14:55 Simpsons (20:22) 15:15 Friends (18:24) 15:40 Glee (15:22) 16:25 Hart of Dixie (15:22) 17:10 Pretty Little Liars (20:25) 17:55 Junior Masterchef Australia (17:22) 18:35 Baby Daddy (6:16) 19:00 Grand Designs (1:12) 19:45 Hart Of Dixie (11:22) 20:25 Pretty Little Liars (10:25) 21:05 Þriðjudagskvöld með Frikka Dór 21:35 Nikita (11:22) 22:15 Southland (6:10) 23:00 Revolution (9:22) 23:40 Arrow (19:24) 00:25 Tomorrow People (10:22) 01:05 Grand Designs (1:12) 01:50 Hart Of Dixie (11:22) 02:30 Pretty Little Liars (10:25) 06:00 Pepsi MAX tónlist 08:00 Cheers (25:26) 08:25 Dr. Phil 09:05 Pepsi MAX tónlist 16:00 Titanic - Blood & Steel (11:12) 16:50 Got to Dance (17:20) 17:15 Got to Dance (18:20) 17:40 Got to Dance (19:20) 18:05 Dr. Phil 18:45 Top Chef (5:15) 19:30 Cheers (26:26) 19:55 The Millers (16:22) 20:20 Design Star (2:9) Það er komið að sjöundu þáttaröðinni af þessari bráðskemmtilegu raun- veruleikaseríu þar sem tólf efnilegir hönnuðir fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Kynnir þáttanna er sigurvegarinn í fyrstu þáttaröðinni, David Brom- stad, og honum til halds og trausts eru dómararnir Vern Yip og Genevieve Gorder. 21:10 The Good Wife (12:22) 22:00 Elementary 8,0 (17:24) Sherlock Holmes og Dr. Watson leysa flókin sakamál í New York borg nútímans. Síðustu þáttaröð lauk með því að unnusta Sherlocks, Irine Adler var engin önnur en Moriarty prófessor. Manni sem grun- aður er um að hafa myrt konu sína fyrir mörgum árum berst bréf þar sem krafist er lausnargjalds fyrir eiginkonuna og Sherlock og Watson rannsaka málið. 22:50 The Tonight Show 23:40 Royal Pains 7,0 (2:16) Þetta er fjórða þáttaröðin um Hank Lawson sem starfar sem einkalæknir ríka og fræga fólksins í Hamptons Frændi Jill kemur sér í vandræði í skákbúðum og Hank grunar að dulinn sjúkdómur liggi að baki hegðun hans. Evan hittir unga konu sem tæmst hef- ur mikill arfur og Divya þarf að taka erfiða ákvörðun. 00:30 Scandal (14:22) 01:20 Elementary (17:24) 02:10 The Tonight Show 03:00 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 07:01 Waybuloo 07:20 Scooby-Doo! 07:40 Ozzy & Drix 08:05 Malcolm In The Middle (6:22) 08:30 Extreme Makeover: Home Edition (6:26) 09:15 Bold and the Beautiful 09:35 Doctors (148:175) 10:15 The Wonder Years (6:24) 10:40 The Middle (23:24) 11:05 Flipping Out (5:11) 11:50 The Kennedys (3:8) 12:35 Nágrannar 13:00 The X-Factor US (14:26) 13:50 Covert Affairs (5:16) 14:35 In Treatment (22:28) 15:05 Sjáðu 15:35 Ozzy & Drix 16:00 Scooby-Doo! 16:25 Mike & Molly (20:24) 16:45 How I Met Your Mother (23:24) 17:10 Bold and the Beautiful 17:32 Nágrannar 17:57 Simpson -fjölskyldan (16:22) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:47 Íþróttir 18:54 Ísland í dag 19:11 Veður 19:20 New Girl 7,9 (21:25) Önnur þáttaröðin af þessum frábæru gamanþáttum sem fjalla um Jess og þrjá skemmtilega en ólíka sambýlismenn hennar. 19:45 Surviving Jack (3:8) Glæ- ný gamansería um mann á miðjum aldri sem hefur aldrei gefið sér mikinn tíma til að sinna fjölskyldunni. Núna er eiginkona hans á leið í háskólanám og hann tekur að sér að vera heima og sjá um uppeldi ungling- anna á heimilinu. 20:10 Á fullu gazi 20:35 The Big Bang Theory (21:24) 20:55 The Mentalist (18:22) 21:40 The Smoke 6,9 (4:8) Vönduð bresk þáttaröð frá framleiðendum Broa- dchurch. Aðalsöguhetjurnar eru slökkviliðsmenn og konur í London sem treysta hvort öðru fyrir lífi sínu á hverjum degi. 22:25 Rake (13:13) 23:10 Daily Show: Global Edition 23:35 Grey's Anatomy (20:24) 00:20 Rita (7:8) 01:05 Believe (5:13) 01:50 Crossing Lines (5:10) 02:35 Burn Notice (13:18) 03:20 Fringe (5:22) 04:00 Outlander 05:50 Fréttir og Ísland í dag Útundan Leikstjórn: Tinna Hrafnsdóttir Leikarar: Arnmundur Ernst Backman Benedikt Karl Gröndal Björn Stefáns- son Elma Lísa Gunnarsdóttir Magnús Guðmundsson María Heba Þorkelsdóttir Svandís Dóra Einarsdóttir Sýnt í Tjarnarbíói Hlín Agnarsdóttir ritstjorn@dv.is Dómur Meðfæddur sadismi mannsins Myndin er byggð á sönnum atburðum F yrir áratug gerði Mel Gibson mynd þar sem því var lýst í smáatriðum hvernig Kristur var hýddur, fláður og hengd- ur á kross. Jesú í meðförum Melsins var varla manneskja heldur fyrst og fremst fórnarlamb, hafði ekki sjálf- stæðan vilja en varð að deyja til að blíðka guð. Tore Tanzt er nokkurs konar nú- tímaútgáfa af píslarsögunni. Tore hefur lítinn tilgang í lífinu en tilheyr- ir trúarhópi sem nefnist Jesus Freaks. Honum tekst að lagfæra bíl með bæn- um sínum og er í kjölfarið ættleiddur af bílstjóranum Benno, sem einnig vegnar illa en finnur tilgang í því að pína greyið Tore. Pyntingarnar eru einhverjar þær ofsalegustu sem hafa sést frá síðustu dögum frelsarans, en hafa það fram yfir Melinn að þar ná þær hápunkti með hýðingunum svo krossfestingin missir marks, en píslarganga Tore stigmagnast fram á síðustu mínútu. Og til hvers er þetta síðan allt saman? Það er von að þú spyrjir. Hvers vegna leitar Tore greyið aftur til mannsins sem kvelur hann og sem tekur því sem merki um að hann eigi að kvelja hann meira? Er það vegna þess að hann hyggst sýna fram á að hægt er að sigrast á hrottaskapnum með fyrirgefningunni? Og er það þá ætlun höfundar að sýna fram á að einmitt þetta er ekki hægt? Og hvers vegna hefur Benno svona gaman af ofbeldi? Er það leið manns sem ekkert hefur tekist hjá til að finna fyrir valdi? Eða er það meðfædd- ur sadismi mannskepnunnar? Að minnsta kosti virðist það svo að vinir og nágrannar hafa fljótlega gaman af að taka þátt í því að nærast á veikleika hinna veiku. Síðasti hluti myndarinnar nefn- ist von, og maður getur velt því fyrir sér hvort myndin sé ein allsherjar gagnrýni á trúna á hið góða í vond- um heimi, eða hvort hún sé einmitt þeirri trú til stuðnings. Í það minnsta ku myndin byggð á sönnum atburð- um, sem gerir hana enn óþægilegri áhorfs en ella. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Dómur Tore Tanzt Leikstjórn og handrit: Katrin Gebbe Aðalhlutverk: Julius Feldmeier og Sascha Alexander Gersak 110 mínútur Felst hamingjan í óléttunni? L eikhópurinn Háaloftið, und- ir stjórn Tinnu Hrafnsdóttur, frumsýndi á dögunum leik- ritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn. Engar upp- lýsingar er að hafa um höfundinn í einfaldri leikskrá verksins og ekki heldur um þýðandann sem reyndist þó vera leikstjórinn sjálfur. Þetta er tiltölulega hefðbundið verk sem fjallar um vanda þriggja para á fertugsaldri sem öll þrá að eignast barn en hefur ekki tekist hingað til. Í þessu verki er fylgst með þremur gagnkynhneigðum pörum sem öll eiga það sameiginlegt að vilja fjölga sér, mynda fjölskyldu, verða eins og hinir. Þau vilja ekki verða „útundan“ – að eignast ekki barn er að fara á mis við vissa lífs- hamingju eða hvað? Leikritið tekur þó ekki bein- línis á viðvarandi barnleysi sem er í sjálfu sér annað og verðugt viðfangsefni fyrir höfunda leik- hússins, heldur miklu heldur á tímabundinni ófrjósemi ungra hjóna sem eygja þó möguleika á að bæta úr henni með tilheyrandi hormónameðferðum og aðstoð sérfræðinga. Ekki er spurt hvort lífshamingj- an sé fólgin í börnunum, hvort öll sambönd elskenda þurfa að enda með barneignum til að ná full- komnun og þroska, hvort barn- leysi geti verið sjálfvalið eða hvern- ig það er að lifa áratugum saman í barnlausu hjónabandi sem hefur verið hlutskipti margra. Höfund- urinn fjallar meira um álagið sem ófrjósemin hefur á sambandið og samlífið, dauða kynlífs og hjóna- bands, geðsveiflur og þung- lyndi sem jafnvel getur leitt til sjálfseyðingar og dauða. Leikrit Alison Farina McGlynn er ósköp venjulegt í sniðum, byggir mest á raunsæislegum samtöl- um persónanna sem eru ágæt- lega mótaðar en koma lítið á óvart. Tinna hefur gert tilraun til stað- færslu sem ekki alltaf gengur upp í samhengi verksins en samtöl- in renna lipur og áreynslulaus í gegnum leikarana, eru oft hnyttin og skemmtileg, enda ekki vanþörf á að hafa kímnigáfuna í lagi þegar fjallað er um jafn viðkvæmt efni. Þau voru grátbrosleg atriðin sem sýndu hvernig kynlífið getur snúist upp í áþján í samlífinu (Svandís Dóra Einarsdóttir og Benedikt Karl Gröndal) og hvernig karlmönnum líður þegar þeir þurfa að tappa af sér á frjósemisdeildinni (Magn- ús Guðmundsson og Arnmund- ur Ernst Backman). Leikhópurinn á hrós skilið fyrir virðinguna sem hann sýnir efninu og ekki síst fyrir einlægan leik og skilning á tilfinn- ingarótinu og óhamingjunni sem fylgir ófrjóseminni, hvernig ör- vænting breytist í gleði þegar það loksins tekst að verða barnshaf- andi (María Heba Þorkelsdóttir). Á engan er hallað þótt einn leik- ari sé tekinn út úr hópnum fyrir frammistöðu sem kom á óvart. Birni Stefánssyni tókst að skapa óvenju andstyggilegan og harð- brjósta eiginmann af yfirstétt sem kúgar konu sína án miskunnar sem Elma Lísa Gunnarsdóttir gerði sömuleiðis góð skil. Uppsetning Tinnu Hrafns- dóttur á Útundan lætur lítið yfir sér í heildinni, sviðsetningin er einföld, enda ekki um flókið sviðs- verk að ræða og öll áhersla lögð á að miðla tilfinningum persón- anna sem glíma við persónulegan vanda sinn. Þó skorti oftar hreinni línur í uppsetningunni, einkum varðandi innkomu á leiksviðið og skiptingar milli atriða og hlut- verka, sem kemur til af reynslu- leysi leikstjóra og helst til sviplítilli sviðsumgjörð. Efnið kallaði ekki endilega á frumlegar sviðslausnir, það hefði þó ekki sakað að ganga lengra í þeim efnum en til þess hefur leikhópinn kannski bæði skort tíma og fjármagn. Hér reyndi því meira á leikar- ana sem komu mikilvægum skila- boðum til áhorfenda um sárs- aukann sem fylgir ófrjósemi og barnleysi, því að verða útundan í hópnum. Mikilvægt og tímabært efni sem hægt er að nálgast úr ýms- um áttum og er hvergi nærri tæmt. Reyndar hefði verið athyglisvert og róttækara að sjá íslenskt verk um sama efni. En það er líklega fram- tíðarmúsík. n Einföld sviðsetning Uppsetning Tinnu á Útundan lætur lítið yfir sér. Nútíma píslarsaga Tore er fórnarlamb trúarhópsins Jesus Freaks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.