Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Síða 15
Helgarblað 9.–12. maí 2014 Fréttir 15
KapítalistaKirKja Belforts
J
ordan Belfort er 51 árs og
kannski er best að lýsa hon-
um einfaldlega sem „athafna-
manni“, en hann var dæmdur
fyrir umsvifamikil fjársvik árið
1999 og fékk fjögurra ára fang-
elsi, eftir að hafa veitt bandarísku
alríkis lögreglunni upplýsingar um
vini sína og samstarfsfélaga. Var
hann einnig dæmdur til að greiða
fórnarlömbum sínum 110,4 millj-
ónir dala, en af þeim hafði hann
greitt rúmlega ellefu milljónir í
október síðastliðnum. Af þeim
höfðu tíu milljónir fengist með
beinni eignaupptöku.
Belfort starfaði á Wall Street á
níunda og tíunda áratugnum og
stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Stratt-
on Oakmont, sem sýslaði með
svokölluð „penníbréf“ (e. Penny
stocks), bréf sem fengust fyrir lágar
fjárhæðir og voru lítils virði, og það
réttilega. Fyrirtækin sem Belfort
seldi bréf í voru í flestum tilfellum
afar slæmir fjárfestingarkostir en
hann tók ógnarháa söluþóknun
fyrir að sýsla með þau.
Eftir að Belfort losnaði úr fang-
elsi skrifaði hann tvær bækur þar
sem hann lýsti endurminningum
sínum. Hefur hann reglulega
haldið hvatningarfyrirlestra og
sölunámskeið síðan þá.
„Fégráðugur brjálæðingur“
Líkt og kunnugt er leikstýrði Martin
Scorsese kvikmyndinni The Wolf of
Wall Street, sem út kom í fyrra, en
myndin er byggð á endurminning-
um Belforts. Leonardo DiCaprio
fer með aðalhlutverkið í myndinni,
en Belfort er í kvikmyndinni nánast
samfellt á eiturlyfjum, hefði réttilega
átt að vera kærður allnokkrum sinn-
um fyrir kynferðislega áreitni og er
sannkallaður drullusokkur.
Kvikmyndin er ansi nærri því sem
fullyrt er í endurminningum Belforts
en hann gekkst við því á ráðstefn-
unni að hafa verið „fégráðugur brjál-
æðingur“ á þessum tíma, en kveðst
hafa snúið við blaðinu, hann hafi
verið edrú í 17 ár og einblíni nú á
siðlegt líferni.
Kvikmyndin góð auglýsing
Belfort virðist ekki skammast sín
sérstaklega fyrir kvikmyndina. Þvert
á móti vitnaði hann nokkrum sinn-
um orðrétt í myndina og sýndi tvö
myndbrot úr henni. Það er kannski
ekki einkennilegt. Belfort sagði í
Háskólabíói að hann muni þéna 50
milljónir dala á þessu ári af hvatn-
ingarfyrirlestrum sínum. Það er
margfalt meira en hann hefur þén-
að á fyrirlestrum sínum allar götur
frá því að hann losnaði úr fangelsi.
Kvikmyndin hefur því verið góð
auglýsing.
Belfort segir að téðar 50 millj-
ónir muni allar renna til fórn-
arlamba hans. Bætir hann þó
við: „En ég er ekki hálfviti, því
eins og þið getið ímyndað ykkur
þá mun ég þéna töluvert meira
en það á þessu ári. Ég græði nú
meira en nokkru sinni fyrr.“
„Besti sölumaður í heimi“
Á þessu ári koma svo út raun-
veruleikaþættir sem heita „The
Greatest Salesman in the World“,
eða „Besti sölumaður í heimi“.
Þar munu tólf keppendur
keppa um að vera krýnd-
ur heimsins besti sölu-
maður af Belfort, sem
mun vera læri-
meistari þeirra.
Belfort hvatti ráð-
stefnugesti til að
horfa á þættina,
og minnti þá
á að þótt að í
salnum væru
eflaust margir
góðir sölu-
menn, væri
enginn jafn
góður og
hann.
Hver er Jordan Belfort?
„Fégráðugur brjálæðingur“ og „besti sölumaðurinn í heimi“
„Ég er ekki
fégráðugur
brjálæðingur, en
ég er góður í að
græða pening.
Fóru saman í þyrluferð
Jón Gunnar Geirdal, stofnandi markaðsfyrir
tækisins Ysland, flutti Belfort inn og varði
með honum tíma fyrir ráðstefnuna. Þeir fóru
í þyrluflug þar sem Belfort fékk meira að
segja að fljúga. „Ég var svolítið stressaður,
eins og þeir sem hafa séð myndina ættu að
skilja,“ sagði Jón Gunnar, og uppskar hlátur
áhorfenda.
Er hann kynnti Belfort lýsti hann honum
sem hreinskilnum og kvaðst hafa fengið
að heyra sögurnar sem voru „of krassandi“
fyrir myndina og bækurnar. „Hann er mjög
opinn og hreinskilinn,“ sagði Jón Gunnar og bætti við að undanfarnar vikur hafi verið „mjög
lærdómsríkar“, meðal annars í ljósi gagnrýni sem hann hefur fengið á netinu fyrir að flytja
inn dæmdan fjársvikara til að kenna fólki sölutækni og peppa það upp.
Jón Gunnar og Belfort gerðu ýmislegt skemmtilegt og skeggræddu mál
Kann vel við athyglina
Belfort kann vel við athyglina
að eigin sögn og óttast í raun að
vera ekki miðpunktur hennar.
Mynd SiGtryGGur Ari