Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 40
Helgarblað 9.–12. maí 201440 Skrýtið Satan ríS í OklahOma n Djöfladýrkendur leggja lokahönd á styttu af skrattanum Í janúar tilkynntu talsmenn hofs satanista í Oklahoma að þeir hygðust reisa styttu af skrattan- um sjálfum fyrir utan þinghús fylkisins. Er nú verið að leggja lokahönd á styttuna eftir velheppn- aða söfnun á netinu. Þrátt fyrir fjölda hótana eru satanistar keikir og seg- ir talsmaður þeirra að komi til þess að styttan verði eyðilögð muni ný rísa. Málaferli trúleysingja gegn Oklahomafylki tefur fyrir uppsetn- ingu styttunnar. Guðinn með geitarhöfuð Raunar er styttan þó ekki af Satan, Lúsífer eða kölska, heldur seinni tíðar afbrigði hans sem ber nafnið Baphometh. Rekja má uppruna þess skratta til ofsókna gegn templurum á 14. öld. Voru templarar ásakaðir að dýrka Baphometh auk annarrar villutrúar. Svo virðist sem nafnið sem og ásýnd púkans eigi rót sína að rekja til fornheiðni í Austurlöndum nær. Það var svo á 19. öld sem nútíma djöfladýrkendur og dulfræðingar fór að dýrka Baphometh. Var það í kjöl- far þess að guðinn með geitarhöf- uðið fór að birtast á tarotspilum. Í dag er Baphometh tákn ýmissa hópa sem dýrka djöfulinn. Trúleysingjar höfða mál Forsaga málsins er umdeildur minn- isvarði sem sýnir boðorðin tíu sem komið var fyrir fyrir utan þinghús Oklahomafylkis árið 2012. Blöskraði það mörgum sem töldu um að skýrt brot væri að ræða á aðskilnaði ríkis og kirkju. Samtök trúleysingja eru á meðal þeirra sem höfðað hafa mál gegn fylkinu vegna minnisvarðans. Röksemdarfærsla embættismanna hefur verið á þá leið að þar sem minnisvarðinn með boðorðun- um sé kostaður af einkaaðila þá sé ekki um ræða brot á aðskilnaði ríkis og kirkju. Út frá þeim rökum hefur nokkur fjöldi trúar- og lífskoðun- arhópa óskað eftir að fá að koma fyrir minnisvarða um trú sína. Má þar nefna hindúa, trúleysingja og satanista. Vegna málaferla trúleys- ingja hefur uppsetning á styttunni af Baphometh verið frestað þangað til niðurstaða fæst í málið. Styttan sjálf er þó að verða tilbúin. Söfnuðu fé á netinu Töldu djöfladýrkendur að til að gera kölska góð skil væri nauðsynlegt að safna tuttugu þúsund dollurum, eða rúmlega tveimur milljónum króna á núverandi gengi. Var því farið í söfn- un á netsíðunni Indiegogo. Sú söfn- un gekk vonum fram og söfnuðust að lokum þrjátíu þúsund dollarar. Var í kjölfarið myndhöggvari, þjálf- aður í klassískri högglist, ráðinn til þess verks að móta skrattann. Hefur myndhöggvarinn nú lokið því verki og þarf einungis að steypa afrakstur- inn í brons. Sýnir styttan fyrrnefndan Baphometh í hásæti sínu ásamt börnum sem hann hefur leyft að koma til sín. Milli steins og sleggju Styttan hefur sett embættismenn Oklahomafylkis í nokkuð erfiða stöðu. Hafa satanistar ráðfært sig við lögfræðinga sem telja að verði stytt- unni hafnað sé það skýrt brot á jafn- ræðisreglum. Val embættismanna er því annaðhvort að leyfa styttuna og vekja reiði íbúa Oklahoma sem vel- flestir eru strangkristnir, eða að gefa ekki leyfi og lenda í málaferlum sem gætu kostað ríkið stórfé. „Með því að leyfa boðorðin tíu hafa þeir opn- að dyrnar fyrir alla. Þeir geta ekki mismunað einni lífsskoðun,“ segir Lucian Greaves, talsmaður satanista, í samtali við tímaritið Vice. Borist hótanir Greaves viðurkennir að satanistum hafi borist ótal hótanna vegna stytt- unnar. „Ég geri nú ekki ráð fyrir að þessir afturhaldsseggir geti eyðilagt bronsstyttu án þess að slasa sig stór- kostlega í leiðinni,“ segir Greaves. Samt sem áður hafa satanistar gert ýmsar varúðarráðstafanir. Styttan verður rækilega tryggð og telur Grea- ves að verði þessi stytta skemmd fá- ist fé fyrir tvær nýjar. Auk þessa ætla satanista að geyma mót styttunnar svo auðvelt verði að framleiða nýja. n hjalmar@dv.is „Ég geri nú ekki ráð fyrir að þessir aft- urhaldsseggir geti eyði- lagt bronsstyttu án þess að slasa sig stórkostlega í leiðinni. Uppruni skrattans Þetta tarotspil frá miðri 19. öld hafði mikil áhrif á ímynd almennings á djöflinum. Satanistar hófu að nota það sem tákn sitt rétt fyrir aldamót 19. og 20. aldar. Baphometh Kölski virðist vera barnavinur miðað við framsetningu satanista. Styttan er nærri tilbúin en aðeins á eftir að steypa hana í brons. Mynd Vice Fangelsaður fyrir inn- sláttarvillu Tyrkneski blaðamaðurinn Önd- er Ayta var á dögunum dæmdur í tíu mánaða fangelsisvist fyrir tíst. Honum er gefið að sök að hafa móðgað opinberan starfsmann, en mjög hörð meiðyrðalög eru í Tyrklandi. Blaðamaðurinn held- ur því staðfast fram að um hafi verið að ræða saklausa innslátt- arvillu. Tístið örlagaríka átti að fjalla um áform Receps Erdogan, forsætisráðherra landsins, um að loka einkaskólum. Hins vegar varð innsláttarvillan, eitt „k“ á röngum stað, í tístinu til þess að niðurstaðan varð „farðu til fjand- ans Erdogan“. Notendur kláms styrkja skógrækt Notendur klámsíðunnar Pornhub geta nú friðað samviskuna vitandi að nýju tré verði plantað fyrir hver hundrað áhorf á klámmyndbönd sem hýst eru á síðunni. Reyndar er það háð því að myndbandið sé í flokki sem nefnist „stór typpi“. Átakið hófst fyrir rúmlega viku og hafa nú þegar um fimmtán þús- und tré verið gróðursett. Síðan fær um milljarð gesti á mánuð svo ætla má talsvert skóglendi verði afrakstur átaksins. Gaf skít í skólastjórann Menntaskólanemandi í Maryland í Bandaríkjunum er í djúpum skít þessa dagana. Ástæðan er sú að hann var staðinn að því að senda saur til aðstoðarskólastjóra skól- ans með pósti. Málið þykir hið undarlegasta og er óhætt að segja að skólayfirvöld, fulltrúar pósts- ins og lögreglu hafi eytt dágóðum tíma í að rekja póstsendingarnar sem voru þrjár talsins. Það tókst að lokum og var unglingspiltur- inn handtekinn í vikunni. Hann játaði á sig glæpinn, en sagði lög- reglu að hann hefði notað hunda- og kúaskít til að gera aðstoðar- skólastjóranum lífið leitt. Búast má við því að piltinum verði gert að greiða sekt vegna málsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.