Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 23
Helgarblað 9.–12. maí 2014 Fréttir 23 Fjölskyldumiðuð þjónusta - ávinningur og áskoranir Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem áhuga hafa á þjónustu fyrir fötluð börn. Fjölskyldan er þungamiðjan í lífi allra barna. Samvinna foreldra og fagfólks er nauðsynleg til að hámarksárangur náist við íhlutun barna með sérþarfir. Fjallað verður um fjölskyldumiðaða þjónustu í víðu samhengi, hugmyndafræðin útskýrð og vel heppnuð þjónustuúrræði sem byggjast á fjölskyldumiðaðri nálgun kynnt. Fyrir hádegi báða dagana verða fyrirlestrar en eftir hádegi skiptist ráðstefnan í málstofur, fyrri daginn um hagnýtar aðferðir og seinni daginn um rannsóknir og áhugaverð verkefni. Dagskrá og skráning á www.greining.is Verð: Fagaðili: 20.500.- Aðstandandi: 12.500.- Skráningu lýkur 10. maí H 2 h ö n n u n Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins Hilton Reykjavík Nordica 15. og 16. maí klukkan 09:00-16:00 Vorráðstefna XXIX Ráðuneytið lét rógburðinn standa Tony og Evelyn óttast yfirvöld Lekamálið hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Evelyn Glory Joseph og Tony Omos. Nefndu drenginn Tyrese. É g veit ekki hvað skal segja, allt er svo ruglingslegt,“ segir hælis leitandinn Evelyn Glory Joseph, í samtali við DV. Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra sagði í óundirbún- um fyrirspurnatíma á Alþingi í vik- unni að hún væri þeirrar skoðunar að lekamálið snerist miklu frekar um hana sjálfa en fórnarlömbin í málinu. Þá stillti hún sjálfri sér upp sem fórnarlambi þegar hún sagði að lekamálið væri ljótur pólitískur leikur og af orðum hennar mátti skilja að sá leikur beindist gegn henni. Hún færði engin frekari rök fyrir því hvernig lögregla, ríkissak- sóknari, fjölmiðlar og aðrir sem hafa fjallað um málið væru þátttak- endur í þessu samsæri. Þrír aðilar hafa kært ráðherr- ann og starfsmenn innanríkis- ráðuneytisins til lögreglu og rík- issaksóknara, íslensk stúlka sem nafngreind er í minnisblaði inn- anríkisráðuneytisins, sem og hæl- isleitendurnir Evelyn Glory Joseph og Tony Omos. Lögreglan hefur komist að þeirri niðurstöðu að við- kvæmar persónuupplýsingar, svo sem um ástamál þeirra, sem röt- uðu í hendur fjölmiðla hafi komið úr innanríkisráðuneytinu. Þá tel- ur lögreglan að tilgangurinn með lekanum hafi verið sá að sverta mannorð Tony Omos. DV náði tali af tveimur fórnar lambanna, þeim Evelyn og Tony, en undanfarnir mánuðir hafa tekið mikið á þau. Þau eiga erfitt með að treysta ís- lenskum yfirvöldum. Evelyn í áfalli Evelyn er óttaslegin og á erfitt með að skilja stöðu sína gagnvart ís- lenskum yfirvöldum. Hún heldur þessa dagana til í Reykjanesbæ en ólíkt Tony er hælisumsókn hennar ennþá til skoðunar hjá innanríkis- ráðuneytinu. Eins og gefur að skilja varð hún fyrir miklu áfalli þegar málið kom fyrst upp. Hún skýrði frá því í samtali við DV, að kvöldi dags þann 18. nóvember, að Tony væri faðir ófædds barns hennar en þrátt fyrir það ætti að vísa honum úr landi. „Ég er búin að segja þeim að hann sé faðir barnsins míns en enginn virðist hafa áhuga á því að hlusta,“ sagði Evelyn. Tveimur dögum síðar var Evelyn á leiðinni í útvarpsviðtal vegna málsins í þættinum Harmageddon á X-inu 977. Stuttu áður en við- talið hófst var henni sagt frá frétt- um dagsins sem voru á þá leið að hún væri fórnarlamb mansals og að Tony væri að beita hana þrýstingi um að segja hann föður barns- ins. Þetta fékk mikið á Evelyn sem ákvað samt sem áður að út- skýra sína hlið málsins. Þar sagðist Evelyn ekki hafa veitt neina heim- ild til þess að persónuleg mál henn- ar væru gerð opinber í fjölmiðlum. Þá þvertók hún fyrir að Tony beitti hana þrýstingi. „Ég vil bara frá frið“ Síðar átti eftir að koma í ljós að þarna var um upplýsingafölsun að ræða sem virðist hafa haft þann eina tilgang að sverta mann- orð Tony. „Ég er ekki að reyna að vernda hann. Það er enginn að kúga mig,“ sagði Evelyn en fáir tóku hana trúanlega enda margir á því að hún væri sannanlega beitt þrýstingi til þess að hlífa Tony. Þá var Evelyn spurð hvort fjölmiðlar hefðu haft samband við hana vegna málsins og sagði hún svo ekki vera. Síðar átti málið eftir að fá mikla athygli í fjölmiðlum, sérstaklega þegar ráðherra innanríkismála var kærður til lögreglu og ekki síð- ur þegar sakamálarannsókn hófst. Evelyn hefur lítið viljað blanda sér í umræðuna hingað til sem verður að teljast skiljanlegt í ljósi þess að hún er upp á náð ráðuneytisins kom- in með hælisumsókn sína. „Ég vil bara fá frið til þess að sjá um barnið mitt,“ segir hún núna í samtali við DV en hún eignaðist dreng þann 3. febrúar síðastliðinn. Aðspurð hvort drengurinn hafi verið nefndur seg- ir Evelyn á ögn léttari nótum: „Já, hann heitir Tyrese.“ Hún hefur síð- ustu mánuði fengið mikinn stuðn- ing frá samfélagi hælisleitenda, þar á meðal frá systur Tony. Þreyttur á Ítalíu „Ég hafði engan stað til þess að vera á lengur,“ segir Tony í samtali við DV en hann hélt til hjá vini sínum í Basel í Sviss þar til í síðasta mánuði þegar hann færði sig yfir landa- mærin og til Mílanó á Ítalíu. Þar fékk hann inni hjá öðrum kunn- ingja úr nígeríska samfélaginu. Hann þorir varla út fyrir hússins dyr af ótta við ítölsku lögregluna, enda mögulegt að hann verði sendur aft- ur til Nígeríu ef þeir finna hann. „Ég er ekki að gera neitt,“ segir Tony og heldur áfram: „Ég sit bara heima, spila leiki og geri ekkert.“ Tony er ólöglegur í Evrópu og því upp á góðviljaða vini og kunningja kominn. „Ég átti ekki einu sinni fyrir rútuferðinni yfir landamær- in og þurfti að fá lán hjá vini mín- um fyrir henni. En ég var orðinn svo þreyttur og þurfti að finna mér einhvern nýjan samastað.“ Tony var sendur úr landi í desember eftir að hann hafði farið huldu höfði hér á landi í þrjár vikur. „Það er í raun- inni búið að rústa mannorði mínu. Ég skil ekki hvernig ráðuneytið gat gert mér þetta, ég skil ekki Ísland,“ sagði Tony í samtali við DV áður en hann gaf sig fram við lögreglu. Hann var sendur til Sviss, hélt lengi vel til á lestarstöð í borginni Basel, eða þangað til honum tókst að komast í samband við gamlan vin í borginni. Tony aftur til Íslands? DV hefur heimildir fyrir því að yfir- gnæfandi líkur séu á því að úr- skurður innanríkisráðuneytisins í máli Tony verði felldur úr gildi. Í ljósi þess að lögreglan telur lek- ann kominn úr innanríkisráðu- neytinu og að tilgangur hans hafi verið að sverta mannorð Tony fæst ekki betur séð en að hann hafi fulla ástæðu til þess að efast um Óttaslegin Evelyn Glory Joseph og Tony Omos eru bæði óttaslegin hvað framtíðina varð- ar. Þau eiga erfitt með að treysta íslenskum stjórnvöldum eftir það sem á undan er gengið. Mynd SiGTryGGur Ari „Ég vil bara fá frið til þess að sjá um barnið mitt óhlutdrægni ráðuneytisins í mál- inu. Með hliðsjón af stjórnsýslulög- um er ekki ólíklegt að úrskurðinum verði snúið en það myndi þýða að taka þyrfti hælisumsókn hans fyrir á nýjan leik hér á landi. Því gæti vel farið svo að íslensk yfirvöld þyrftu að sækja Tony til Evrópu. „Það væri frábært, þá gæti ég loks- ins fengið að hitta son minn,“ segir Tony sem missti af fæðingu drengs- ins enda þá þegar búið að senda hann úr landi. DV hefur heimildir fyrir því að lögreglan á Suðurnesj- um hafi nýlega framkvæmt viða mikil DNA-próf í tengslum við mál sem embættið hefur til umfjöllunar vegna Tony. Heimildir blaðsins herma að DNA-prófin hafi snúist um það að sannreyna hvort Tony hefði sagt ís- lenskum yfirvöldum satt og rétt frá, meðal annars þegar hann greindi frá því að hann ætti móðurbróður hér á landi. Að því er DV kemst næst stað- festu prófin framburð Tony í öllum meginatriðum. Engar upplýsingar fengust frá lögreglunni á Suðurnesj- um varðandi málið. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.