Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 34
Helgarblað 9.–12. maí 201434 Fólk Viðtal
H
araldur Gíslason lagði ung
ur fyrir sig tónlistina og náði
langt á stuttum tíma. Þegar
hann ætlaði svo að safna
sér fyrir heimsfrægðinni,
sótti hann um vinnu á leikskóla þar
sem mamma hans vann og ílengd
ist þar. Í hruninu vildi Halli, eins og
hann er alltaf kallaður, láta til sín
taka og berjast fyrir réttindum og
kjörum leikskólakennara sem hann
taldi vera fótum troðin. Á laugar
dagskvöldið stendur hann svo á
sviði í Kaupmannahöfn sem fulltrúi
Íslands í Eurovision.
Botnleðjuævintýrið
Haraldur var uppátækjasamur að
eigin sögn, orkumikill og mikill grall
ari. Þeir Halli og Heiðar Örn Krist
jánsson stofnuðu hljómsveitina
Botnleðju þrátt fyrir að hafa litla sem
enga kunnáttu á hljóðfæri þegar þeir
voru ungir menn í menntaskóla.
Haraldur og Heiðar kynntust í Flens
borgarskólanum í Hafnarfirði. Þeir
nýttu frímínútur skólans vel í bílskúr
foreldra Halla og kenndu sjálfum sér
að verða tónlistarmenn. Þar lærðu
þeir saman að spila á hljóðfærin og
semja tónlistina. Þeir voru því sann
kallað bílskúrsband. Auk Heiðars
og Haraldar var Ragnar Steinsson
á bassa í sveitinni, en Halli spilaði
á trommur og Heiðar á gítar. „Við
æfðum og æfðum og smám saman
fór að heyrast tónlist úr skúrnum
en ekki einhver óhljóð,“ sagði Halli í
viðtali við DV árið 2011.
Unnu Músíktilraunir
Það var svo árið 1995 sem Botnleðja
vann Músíktilraunir og hlutirnir fóru
að gerast. Aðeins tveimur árum síð
ar var hljómsveitin farin að ferðast
um Bretland með bresku hljóm
sveitinni Blur sem þá var heims
fræg. Forsprakki Blur var einmitt Ís
landsvinurinn Damon Albarn sem
var tíður gestur hér á landi á þess
um tíma. Eftir ferðalagið með Blur
ferðaðist sveitin um heiminn með
mörgum hljómsveitum og gerði
það gott. Í viðtali við DV árið 2011
gerði Halli upp ævintýrið og sagði
það hafa verið mikið. Þeir gerðu
það afar gott. „Þetta var stórkostleg
reynsla og mikið ævintýri en okkur
fannst þetta allt saman svo eðlilegt.“
Hann sagðist vera virkilega stoltur
af afrekum þeirra Botnleðjufélaga.
Þeir skemmtu sér á ferðalögunum
en vönduðu sig og voru varkárir að
missa sig ekki í rokkstjörnulíferninu
svokallaða. „En það var ekkert vesen
á okkur og við höfðum mikinn metn
að. Enda nærðu ekki árangri í neinu
ef þú ert á hvolfi,“ sagði Halli og benti
á að þeir hefðu haft hemil á sér og
gætt þess að fara til dæmis aldrei
drukknir á svið.
Afþakkaði Coldplay
Í kringum síðustu aldamót var Har
aldi boðið að verða trommuleikari
bresku hljómsveitarinnar Coldplay.
Botnleðja var þá enn í fullu fjöri, en
frægðarsól Coldplay var nýtekin að
rísa. Í dag er Coldplay, sem kunnugt
er, ein frægasta hljómsveit heims.
Halli afþakkaði boðið eftir um
hugsun en segist ekki sjá eftir neinu
í dag. Sagan var rifjuð upp og endur
sögð í fyrra fyrir auglýsingu hjá sím
anum sem vakti mikla athygli. Í aug
lýsingunni var skoðað hvað hefði
gerst ef Halli hefði orðið trommari
sveitarinnar og lagið Þið eruð frábær,
eitt frægasta lag Botnleðju, endurút
sett í anda Coldplay.
„Þetta er auðvitað sönn saga úr
mínu lífi og ég er gríðarlega sáttur
við þá ákvörðun sem ég tók á sín
um tíma. Ég hefði ekki viljað vera í
þessari hljómsveit og er mjög sáttur
við lífið. Fyrsta platan þeirra var
ágæt en það sem hefur fylgt í kjöl
farið hefur ekki verið minn tebolli.
Þeir sendu mér bréf og buðu mér að
spila með sér á tónleikaferðalagi. Ég
fékk demó frá þeim sem mér hreif
mig alls ekki þannig að ég sagði nei.
Ég sé ekki eftir því,“ sagði Halli í við
tali við Vísi í fyrra en auglýsing vakti
mikla lukku.
Ætlaði að safna sér pening
Það eru að verða fimmtán ár síð
an Halli ákvað að sækja um vinnu
á leikskóla og safna sér aurum fyrir
frægðinni. Hann talaði við móður
sína sem vann á leikskólanum
Hörðuvöllum í Hafnarfirði og bað
hana um að aðstoða sig. Hún sagði
honum að sækja um og þar störfuðu
þau saman um hríð. Halli heillaðist
af starfinu, en segir það hafa verið
frekar vonlaust að ætla að safna sér
peningum með því að starfa á leik
skóla. Eftir hrun vildi hann láta í sér
heyra og sóttist eftir því að verða for
maður Félags leikskólakennara. „Ég
fékk svo sannarlega nóg og reiddist,“
sagði Halli. Hann leiddi kennara
í gegnum harða kjarabaráttu árið
2011 og nú stefnir í annan harðan
slag – eftir Eurovision.
Bræðurnir bralla saman
Þegar Haraldur var í Kennaraháskól
anum, með Heiðari, vildu þeir gera
skapandi og skemmtilegt lokaver
kefni. Árið 2009 sendu þeir Heiðar
frá sér plötuna Pollapönk sem sló
rækilega í gegn meðal barna og full
orðinna. Sveitina skipuðu þeir tveir,
en til liðs við þá komu Arnar Gísla
son, Addi bróðir Halla, og Guðni
Finnsson. Textar sveitarinnar vöktu
mikla athygli og þar léku þeir sér með
samfélagsrýni. Árið 2014 dró svo aft
ur til tíðinda þegar sveitin ákvað að
reyna fyrir sér í Eurovision og tók
þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Þetta var raunar ekki í fyrsta sinn en
áður hafði Botnleðja reynt hið sama
með laginu Eurovísa árið 2003. Þeir
lutu lægra haldi fyrir Birgittu Hauk
dal í keppninni það árið en hún fór
og keppti fyrir Íslands hönd í Riga og
hafnaði í áttunda sæti.
Unnu hjarta þjóðarinnar
Pollapönk söng sig nú inn í hjörtu
landsmanna, kom sá og sigraði í
Söngvakeppninni, sem kunnugt
er. Þeir keppa svo til úrslita í Euro
vison í Kaupmannahöfn á laugar
dag eftir að hafa fengið brautar
gengi í undankeppninni síðastliðinn
þriðjudag. Þetta kom flatt upp á
marga enda hafði sveitinni ekki
verið spáð góðu gengi, en svo virð
ist sem sjarmi og gleði sem fylgir
sveitinni hafi náð að tengja vel
við aðrar Evrópuþjóðir svo ekki sé
minnst á fallegan boðskap þeirra. n
astasigrun@dv.is
Úr bílskúr í baráttu
Botnleðju en mig vantaði
smá vasapeninga fyrir
flugfarinu út,“ segir hann
og brosir út í annað. „Ég
ætlaði að stoppa stutt en
heillaðist af starfinu. Mér
gekk vel og það átti vel
við mig. Þegar foreldr
ar, sem mér fannst þá
þegar ég var nýskriðinn
yfir tvítugt, ævaforn
gamal menni, voru far
in að leita að kennslu
ráðum hjá dreng sem
ári áður hafði haft þá
einu ábyrgð að vakna
fyrir hádegi, þá fann ég að mig lang
aði að standa mig og standa undir
ábyrgðinni. Ég fór svo að hafa áhuga
á fræðilegum hluta starfsins líka og
það endaði með því að ég komst inn
í kennaraháskólann 2003 og útskrif
aðist þaðan 2006.“
Vildi taka slaginn sjálfur
Þá hafði hann þó engin áform um að
fara á fullt í kjarabaráttu leikskóla
kennara. „Ég ætlaði mér aldrei að feta
þá braut. Ég útskrifaðist 2006 og var
alveg sáttur við mitt á þeim tíma sem
ég hóf störf. Svo skellur á hrun. Fyrir
það höfðu launakjör leikskólakennara
batnað og við vorum komin á svipað
an stað og grunnskólakennarar. Svo
kom hrunið og þá festumst við inni
með kjarasamning okkar í svokölluð
um stöðugleikasáttmála. Og í bónus
fengum við á mínum leikskóla upp
sögn á 10 tíma yfirvinnu sem við höfð
um alltaf fengið í formi neysluhlés.
Það var dálítið högg því ég gat alveg
sætt við mig að kjarabaráttan tæki
tíma en ég gat ekki sætt mig við það
að lækka í launum sem varð raunin
þarna. Það fór verulega í mig. Ég fór
að rífa kjaft og svona. Þannig einhvern
veginn byrjaði ég að taka þátt í félags
málum. Ég hafði aldrei gert þetta áður,
ég var aldrei í nemendaráði í skóla eða
neitt svoleiðis. Ég var ekki þessi týpa.
En ég vildi samt bera ábyrgðina sjálf
ur. Ég vildi ekki geta kennt neinum um
nema sjálfum mér og þess vegna tók
ég þennan slag,“ segir hann ákveðinn
og augljóst að málefnið er honum
mikilvægt.
Munu ekki gefa tommu eftir
„Ég fór í þetta af hugsjón til þess að
leggja mín lóð á vogarskálarnar og ég
er enn þá þar. Bráðum tekur við næsta
L
eiðir okkar Halla hafa oft leg
ið saman í gegnum tíðina.
Hann var auðvitað stjarna í
Hafnarfirði þegar við vorum
litlir en hann lék aðalhlutverkið í
Emil í Kattholti, sem var sýnt fyrir
fullu húsi mjög lengi og hver ein
asti krakki á StórHafnarfjarðar
svæðinu sá,“ segir Gunnar Axel Ax
elsson, oddviti Samfylkingarinnar
í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi. „Síð
ar vorum hluti af hópi sem setti á
stofn unglingadeild í leikhúsinu og
þar sló hann m.a. í gegn í hlutverki
guðs almáttugs. Man ekki til þess
að hafa séð guð leikinn á jafn sann
færandi hátt, hvorki fyrr né síðar,“
segir Gunnar Axel sem bendir á að
Halli er „nett ofvirkur,“ en segir það
vera hans helsta styrkleika.
„Hann vílar það ekkert fyrir sér
að demba sér út í hlutina, hvort
sem það er að skella sér upp á
svið og leika eða syngja eða setj
ast við samningaborðið í baráttu
fyrir bættum kjörum leikskóla
kennara,“ segir hann.
Gunnar Axel segist hafa hvatt
hann til forystu þegar Halli tók
slaginn sem formaður Félags leik
skólakennara.
„Ég vissi að hann myndi gera
góða hluti þar og það hefur hann
að mínu mati svo sannarlega
gert. Og ég er auðvitað hrika
lega stoltur af þeim félögum og
því sem þeir eru að gera núna, að
nota þetta stóra svið til að koma
á framfæri þeim skilaboðum að
það sé ekkert tiltökumál að vera
ekki eins og fjöldinn. Það er Halli,“
segir hann.
astasigrun@dv.is
Ofvirknin er styrkur
Gunnar Axel studdi Harald í formanninn
„Ég er
„fighter“
og beit á jaxlinn
Haraldur fór úr tónlistinni í leikskólakennslu og þaðan yfir í kjarabaráttu
barátta. Það eru lausir kjarasamn
ingar núna. Það þarf að stíga stór skref
í kjarabaráttu leikskólakennara til þess
að þeir standi til jafns við aðra sér
fræðinga. Þessir kjarasamningar verða
erfiðir og flóknir en við munum ekki
gefa tommu eftir. Það er rosalega mik
ilvægt að nú verði stigið stórt skref til
þess að við sem samfélag gerum eitt
hvað í þessu. Það vantar gríðarlega
marga leikskólakennara og það geng
ur ekki. Þegar ég kem úr þessu hérna,
sama hvernig það endar. þá fer ég í
þetta af fullri hörku,“ segir hann harð
ákveðinn.
Viss um að þeir vinni ekki
Jafnvel þótt þið vinnið Eurovision?
„Sérstaklega ef ég vinn Eurovision.
Ég mun ekki vinna Eurovision, það er
ljóst. Ísland er ekki að fara á hausinn
vegna okkar. Ég er bara raunsær,“ segir
hann og virkar mjög sannfærður.
Hópurinn er farinn að bíða eftir Halla
sem er sá eini Pollapönkaranna sem á
eftir að hafa fataskipti fyrir partíið sem
þau eru á leið í. Matrósaföt í Pollapönk
slitunum verða fyrir valinu í kvöld. Halli
þarf að drífa sig upp á herbergi til þess
að geta skipt í sinn einkennislit, rauðan
matrósabúning. Áður en hann hleypur
af stað segist hann viss um að þeir vinni
ekki keppnina en það muni ekki hindra
þá í að gera sitt allra besta.
„Hugsanlega verðum við líka mjög
neðarlega en það skiptir engu máli, við
erum að fara halda gott partí á laugar
daginn. Það er eina það sem skiptir
máli. Við erum með.“ n
Litríkir Bakraddasöngvararnir gerðu sér lítið fyrir og sungu Hamraborgin mín fyrir gesti og gangandi sem kættust við uppátækið.
Byrjuðu í skúrnum Eftir sigur
í Músíktilraunum fór frægðarsól
Botnleðju að rísa.