Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Blaðsíða 37
Helgarblað 9.–12. maí 2014 Fólk Viðtal 37 með þyngdina. Hún orti kvæði og gaf mér alltaf vísu á afmælisdaginn minn þegar ég var lítill. Hún elskaði að ganga á fjöll og tína steina sem við seldum svo saman í Austurstrætinu og í Kola- portinu. Þannig lærði ég fyrstu ensku orðin mín „stones for sale“. Og söng ég þá línu í sama tónfalli og blaðsölu- mennirnir, með appelsínugulu blaða- pokanna, gerðu alltaf í Austurstrætinu: „Dagblaðið Vísir“, og við hliðina var Stórval að selja málverkin sín. Afi starf- aði lengst af, að mig minnir, fyrir Eim- skip. Sá um þeirra útibú á Fáskrúðs- firði og tók á móti skipum. Þau bjuggu á Sunnuhvoli. Afi var mikill gestgjafi og mér skilst á mönnum að það hafi alltaf verið gott að koma við á Sunnuhvoli. Ég á þvílíkar minningar frá þessum tíma,“ segir hann og hlær. Vill ekki búa í Hollywood Strax eftir útskrift lék Þorvaldur í Svartur á leik. Ári seinna var hann með annan fótinn úti og fluttist frá New York til Los Angeles ásamt unnustu sinni. Þar kom parið sér fyrir í íbúð í austurhluta Hollywood Hills-hverfis- ins. Þorvaldur er þar með samning við umboðsskrifstofu. Honum hugnaðist Hollywood ekkert sérlega vel þótt hann fúlsi ekki við verkefnunum og eftir búsetuna segist hann fremur vilja búa hér heima og sækja verkefnin út þegar þau bjóðast. „Ég vil búa hér heima og geta far- ið út í hin og þessi verkefni. Hér eru ræturnar og hér líður mér best. Ég get alltaf átt kost á því að fara út og fá smá vasapeninga. Ég var með annan fótinn úti í Hollywood um ári eftir útskrift. Ég kynntist borginni og samfé- laginu og komst að því að andinn þar heillar mig ekki. Ég myndi aldrei vilja búa í Hollywood. Eins og alls staðar er alltaf gott fólk inn á milli. En Hollywood er ekki fyrir mig. Ég fann mig ekki þar eins og ég gerði í New York. Ég ber virðingu fyrir fólki sem á sér drauma og lætur reyna á þá. Það vilja allir skilja eitthvað eftir sig í lífinu. Sum- ir eru mjög vinnufókuseraðir. Verða að framleiða, ferðast, klífa Everest. En ég vil ekki gleyma mér. Ég vil ekki frægð frægðarinnar vegna. Það er mannlegt að vilja skilja eitthvað eftir sig, en vilji ég verða ódauðlegur þá verður það í lífi fjölskyldu minnar sem heldur áfram eftir minn dag. Það þýðir þó ekki að ég hafi ekki löngun til þess að þroskast og eflast í gegnum þau verkefni sem ég tek að mér í framtíðinni. Drifkraftur- inn er auðvitað enn til staðar. Ég skrifaði niður markmið mín tvítugur. Mér finnst ég búinn að upp- fylla einhverja barnslega drauma. Nú er kominn tími til að leyfa hlutum að gerjast, að leyfa sér að ákveða ekki allt fyrirfram. Ég var um daginn að hug- leiða framtíðina, hvar er ég núna, hvert stefni ég og allt þetta og fann að ég er á góðum stað. Ég er að fara að kenna næsta vetur. Hér heima. Mig hefur alltaf langað að prófa það. Það verð- ur mjög gaman að miðla og uppgötva hvort það sé eitthvað sem ég vil vinna við. Ég verð líka að leika í einhverjum bíómyndum. Svo langar mig í nám. Það væri gaman að læra eitthvað nýtt,“ segir hann og bætir við að það sé óráð- ið hvernig nám verði fyrir valinu: „Ég ætla að leyfa þessu öllu að þróast, það kemur bara í ljós.“ Fæðing dóttur mesta gleðin Hann hefur enda átt gjöfulan vetur á Íslandi og ytra. Fyrir utan vinnuna við Vonarstræti dvaldi hann í Belfast við tökur á kvikmyndinni Dracula Untold. Tökur á myndinni hófust daginn eftir fæðingu dóttur hans. Hann gat ekki sleppt ferðinni út og var lukkunnar pamfíll að hafa þó fengið að sjá dóttur sína koma í heiminn í ágústmánuði í fyrra. Í lok viðtalsins biður blaða- maður Þorvald nefnilega um að nefna mestu gleði lífs síns og þá eru það þessi merku tímamót sem koma strax upp í hugann. „Fæðing dóttur minnar,“ segir hann þá. Þorvaldur er ekkert hrifinn af því að ræða um sitt allra helgasta, fjöl- skylduna. Í hans huga er hún skjól sem hann þarf nauðsynlega að hafa út af fyrir sig. „Starf mitt felur í sér að ég þarf að gefa mikið af mér og standa oft berskjaldaður. Ég passa svolítið upp á það skjól sem ég á með fjölskyldunni. Kannski finnst sumum það auðvelt að gefa af sér. Mér finnst það ekki alltaf. Ég gef svo mikið af mér í vinnunni að stundum finnst mér ég eiga lítið eft- ir. Ég þarf að vanda mig við að rækta þetta litla sem stendur eftir, er það ekki?“ segir hann og brosir. Lærði af einhverfum Þá lék Þorvaldur einhverfa drenginn Kristófer í verkinu Furðulegt háttalag hunds um nótt og eyddi miklum tíma í undirbúningi með stuðningshópnum Út úr skelinni til að skilja betur heim einhverfra og undirbúa sig fyrir hlut- verkið. „Þau opnuðu sig fyrir mér og sögðu mér frá sinni upplifun af því að vera á einhverfurófi. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að hlýða á þau. Við erum öll með fyrir- framgefnar hugmyndir um hluti og fólk. Þarna hitti ég fyrir 16 mjög ólíka einstaklinga. Eftir að hafa fengið að kynnast þeim einbeitti ég mér að því að hugsa um drenginn sem sérstakan. Ég fór að hugsa meira innávið og huga að þeim skynáhrifum sem þau glíma við. Sem við glímum við í miklu minna mæli. Ég náði að tengja sjálfur við þessa eiginleika og það var lærdómsríkt, fór að skoða mínar eigin reglur og ramma. Við erum öll í boxum og sjáum hlutina á ákveðinn hátt. Án þess að hljóma tilgerðarlega, ég er svo ánægður með þessa sýningu að því leyti að mér finnst hún hafa vakið upp umræðu um einhverfu. Ég held að það sé eitt af hlutverkum listarinn- ar, að opna heima sem við þekkjum ekki. Leiklistin getur þannig stuðl- að að því að við skiljum betur annað fólk.“ Hann nefnir áhrifamikla uppá- komu frá ferlinu. „Við vorum með forsýningu og þangað kom hópur einhverfra og að- standendur. Söguhetjan mín spyr út í salinn í lok sýningar: Þýðir þetta að ég get („gert“) allt. „Já“, heyrðist svar- að hreinskilnislega utan úr sal. Leik- hópurinn var í tárum okkur þótti svo vænt um þessi viðbrögð.“ Reynslunni ríkari eftir samstarfið Samstarfið við Baldvin Zophoníasar- son, leikstjóra Vonarstrætis, er honum efst í huga um þessar mundir þegar hann hugleiðir um starfið síðasta vetur. „Hann er einn af þessum mönn- um sem getur ekki unnið án þess að vinna með hjartanu. Hann er ein- lægur og fær og er svo mikil mann- eskja. Hans mottó er: við gerum þetta saman, og þannig fær hann alla í lið með sér. Hann hefur komið að kvikmyndaforminu á svo margan hátt. Hann hefur klippt og framleitt, hann hefur verið í hlutverki aðstoðar- leikstjóra. Hann er ekki bara fastur í sínu, heldur skilur sjónarmið þeirra sem hann er að vinna með. Mér finnst ég reynslunni ríkari eftir samstarfið. Það er alltaf þakklátt að fá að vinna með svona hæfileikafólki.“ Kann vel við lífið Honum líður vel, er öruggur í eigin skinni og veit hvað hann vill. „Ég vil reyna að afla mér þess frelsis að hafa val. Val um að búa hér og starfa en fara stundum út og vinna. Það gengur vel hjá mér. Ég kann vel við lífið sem ég lifi,“ segir hann og hristir höfuðið þegar blaðamaður spyr hann hvort hann hafi alltaf haft allt á hreinu. „Nei, auðvitað ekki. Hver hefur alltaf allt á hreinu. Fyrir nokkrum árum var ég troðfullur af einhverju stöffi sem ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við. Það var rosalega óþægilegur tími. Mér fannst ég vera svo mikill vit- leysingur. Þetta var tími óttans og kvíð- ans. Sumir dvelja lengi á þessum stað en sumir ná að hreinsa út og halda áfram. Ég náði því, þó maður sé auð- vitað alltaf í einhverri innri glímu við sjálfan sig og þeirri baráttu lýkur ef- laust aldrei.“ Handþvær nærföt og sokka Blaðamaður biður að lokum Þorvald um að segja sér eitthvað óvænt. Eitt- hvað sem enginn veit um hann. Við- mælendur eiga gjarnan erfitt með að svara þessari spurningu en svörin eru alltaf jafn áhugaverð. Svo er einnig um Þorvald. „Ég handþvoði alltaf sömu nærföt og sokka einu sinni á dag vik- una fyrir frumsýningu, geri það reynd- ar ennþá.“ n „Ég skynjaði kulda og fannst allt vera innihaldslaust „Það kaupir sig enginn inn í Juilliard
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.