Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Page 18
Helgarblað 9.–12. maí 201418 Fréttir
S
amræmd próf hafa verið
umdeild um árabil. Helstu
gagnrýnendur þeirra segja
þau stýra of miklu í skóla-
starfi, þau séu úreltir mæli-
kvarðar á námsgetu og ýti ekki und-
ir sjálfstæða eða skapandi hugsun.
Á Íslandi eru nemendur nú próf-
aðir í fjórða bekk og sjöunda bekk
í íslensku og stærðfræði, en í tí-
unda bekk í stærðfræði, íslensku
og ensku. Í gögnum sem DV hefur
undir höndum hefur öllum skól-
um landsins, sem hafa fleiri en tólf
nemendur í árgangi, verið raðað
upp í tölulega röð eftir árangri.
Þetta eru skólarnir
Hafa ber í huga að einkunnir
nemenda á samræmdu prófun-
um endurspegla fyrst og fremst
frammistöðu nemenda í tilteknu
prófi, en þau gefa vísbendingar um
ástand nemendahópsins og stöðu
skólans í þessum fögum.
Tölurnar sem eru hér til hliðar
eru frá Námsmatsstofnun Reykja-
víkur. Skólunum hefur verið gef-
in einkunn frá 0–60 og er þrjátíu
því meðaltalið. Það þykir afburða-
gott ef meðaleinkunn skóla er upp
á 38,6. Eins og sjá má á tölunum er
sjaldgæft að skólar fari yfir 40, en
það gerist þó. Til dæmis má nefna
að árangur nemenda í fjórða bekk
í Ártúnsskóla í Reykjavík og Myllu-
bakkaskóla í Reykjanesbæ í stærð-
fræði. Báðir skólarnir fá yfir 42 í
meðaltali.
Oftast efstir
Skólar á höfuðborgarsvæðinu, í
Reykjavík og Reykjanesbæ skipa sér
oftast í efstu sætin, en smærri skól-
ar, þá sérstaklega á landsbyggð-
inni, eru oftar í neðstu sætunum.
Sem dæmi má nefna að grunnskól-
ar í Kópavogi skipa sér í sjö sæti af
fyrstu þrjátíu þegar kemur að sam-
ræmdu prófi í sjöunda bekk í ís-
lensku.
Þó eru dæmi þess að skól-
ar skipi sér reglulega ofarlega á
listana, nema kannski í öðru próf-
inu í einum árgangi. Þar má sem
dæmi nefna Grunnskóla Þorláks-
hafnar, sem iðulega á sæti í efstu tíu
sætunum, nema hjá tíunda bekk í
ensku þar sem skólinn er í sæti 73.
Í neðstu sætum listanna er algengt
að meðaltal skólanna sé í kring um
16–18, sem er ansi langt frá árangri
þeirra skóla sem standa sig best.
Grunnskólinn skiptir máli
DV hefur rætt við sérfræðinga sem
þekkja vel til íslenska menntakerf-
isins. Þeir benda á að félagsleg
staða barna og foreldra þeirra hef-
ur mikið að segja um frammistöðu
barna í grunnskóla. Þeir taka einnig
fram að sá grunnur sem börn taka
með sér úr grunnskóla hafi mik-
il áhrif á framhaldsnám, enda eigi
börn sem ekki hafa náð tökum á
lestri eða íslensku erfitt með að fóta
sig í áframhaldandi námi.
Í niðurstöðum rannsóknar sem
Kristjana Stella Blöndal, lektor í fé-
lags- og mannvísindadeild, vann
ásamt Jóni Torfa Jónassyni, fyrr-
verandi forseta menntavísinda-
sviðs Háskóla Íslands, kemur fram
að samræmd próf í íslensku sem
þá voru haldin við lok grunnskóla,
hafi gefið betri vísbendingar um
líklega námsframvindu heldur en
úr hvaða framhaldsskóla nemend-
ur komu. Það er að segja, að nem-
endur sem sýndu góðan árangur á
samræmdum prófum voru líklegri
til að sýna fram á góðan árangur í
áframhaldandi námi, hvort sem
það er framhaldsskóli eða háskóli.
Árangur í grunnskóla getur því haft
mikið að segja varðandi áfram-
haldandi námsframvindu – en seg-
ir auðvitað ekki alla söguna. Rann-
sókn Kristjönu Stellu og Jóns Torfa
er frá árinu 2005 og var unnin úr
gögnum um fólk sem fæddist árið
1975. Sýna niðurstöður könnunar-
innar einnig að ef tekinn er sá hóp-
ur nemenda sem fékk einkunnir á
bilinu 7,1–8,0 í samræmdu prófi í
íslensku þá ræðst það ekki af þeim
framhaldsskóla sem þeir voru í
hvernig þeim gengur í háskóla,
heldur byggir á miklu leyti á niður-
stöðum úr grunnskóla. Velgengni
þeirra byggir einnig mikið á náms-
getunni og því hvernig nemandi
leggur sig fram. n
Skólarnir Sem
Standa Sig beSt
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
landsins bestu skólar
Á næstunni mun DV rýna í þessar tölur og verða þær greindar frekar.
Við byrjum á góða árangrinum og hér til hliðar má sjá hvaða skólar
standa sig best á samræmdu prófunum í hverjum árgangi fyrir sig.
4. bekkur íslenska
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Myllubakkaskóli Reykjanesbær Suðurnes 39,40
Árstúnsskóli Reykjavík Reykjavík 38,10
Gr. Vestmannaeyja Vestmannaeyjar Suðurland 38,10
Snælandsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 37,30
Ísaksskóli Reykjavík Reykjavík 37,10
Vogaskóli Reykjavík Reykjavík 36,20
Melaskóli Reykjavík Reykjavík 35,90
Sjálandsskóli Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 35,60
BSK Hjallabraut Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 35,40
BSK Vífilsstöðum Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 34,80
4. bekkur stærðfræði
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Árstúnsskóli Reykjavík Reykjavík 42,50
Myllubakkaskóli Reykjanesbær Suðurnes 42,20
BSK Hjallabraut Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 39,10
BSK Vífilsstöðum Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 38,70
Grundarskóli Akranes Vesturland 37,60
Smáraskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 37,50
Snælandsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 37,30
Heiðarskóli Reykjanesbær Suðurnes 37,00
Kársnesskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 36,70
Ísaksskóli Reykjavík Reykjavík 36,50
7. bekkur íslenska
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Tindaskóli Hvalfjarðarsveit Vesturland 40,70
Melaskóli Reykjavík Reykjavík 37,90
Gr. Borgarfjarðar Borgarnes Vesturland 35,80
Grandaskóli Reykjavík Reykjavík 35,70
Gr. í Þorlákshöfn Ölfus Suðurland 35,60
Árstúnsskóli Reykjavík Reykjavík 35,30
Varmahlíðarskóli Varmahlíð Norðurland vestra 35,20
Austurbæjarskóli Reykjavík Reykjavík 35,00
Fossvogsskóli Reykjavík Reykjavík 34,80
Breiðagerðisskóli Reykjavík Reykjavík 34,40
7. bekkur stærðfræði
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Gr. í Þorlákshöfn Ölfus Suðurland 38,60
Hrafnagilsskóli Akureyri Norðurland eystra 38,10
Myllubakkaskóli Reykjanesbær Suðurnes 38,00
Grundarskóli Akranesi Vesturland 37,50
Melaskóli Reykjavík Reykjavík 36,90
Ártúnsskóli Reykjavík Reykjavík 36,60
Hörðuvallaskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 35,90
Grandaskóli Reykjavík Reykjavík 35,40
Njarðvíkurskóli Reykjanesbær Suðurnes 35,40
Gr. Seltjarnarnesi Seltjararnes Höfuðborgarsvæðið 35,20
10. bekkur íslenska
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Vogaskóli Reykjavík Reykjavík 37,30
Kópavogsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 36,60
Gr. Bláskógarbyggðar Suðurland Höfuðborgarsvæðið 36,20
Gr. Seltjarnarnesi Seltjararnes Höfuðborgarsvæðið 36,10
Gr. í Þorlákshöfn Ölfus Suðurland 36,00
Hlíðaskóli Reykjavík Reykjavík 35,90
Setbergsskóli Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 35,30
Egilsstaðaskóli Fljótsdalshérað Austurland 35,10
Snælandsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 34,50
Vatnsendaskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 34,40
10. bekkur stærðfræði
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Gr. Seltjarnarnesi Seltjararnes Höfuðborgarsvæðið 37,40
Gr. Bláskógarbyggðar Bláskógarbyggð Suðurland 36,50
Vatnsendaskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 36,30
Kópavogsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 35,50
Setbergsskóli Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 34,70
Gr. í Þorlákshöfn Ölfus Suðurland 34,70
Háteigsskóli Reykjavík Reykjavík 34,60
Snælandsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 34,40
Hagaskóli Reykjavík Reykjavík 34,20
Vogaskóli Reykjavík Reykjavík 33,90
10. bekkur enska
Nafn skóla Sveitarfélag Landsvæði Meðaltal
Gr. Bláskógarbyggðar Bláskógarbyggð Suðurland 38,60
Tjarnarskóli Reykjavík Reykjavík 36,00
Vatnsendaskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 36,00
Hagaskóli Reykjavík Reykjavík 35,50
Vogaskóli Reykjavík Reykjavík 35,30
Kópavogsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 35,00
Snælandsskóli Kópavogur Höfuðborgarsvæðið 34,50
Setbergsskóli Hafnarfjörður Höfuðborgarsvæðið 34,40
Gr. Seltjarnarnesi Seltjararnes Höfuðborgarsvæðið 34,10
Háaleitisskóli RVK Reykjavík Reykjavík 33,90
n Svona standa grunnskólar landsins sig á samræmdu prófunum