Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Qupperneq 50
Helgarblað 9.–12. maí 201450 Sport
Ögurstund í Evrópu
n Spennan í stærstu deildum Evrópu er í algleymingi n Hörð barátta á toppi og botni
K
eppni í stærstu deildum
Evrópu fer senn að ljúka
en í flestum þeirra eru
tvær umferðir eftir. Lín-
ur eru því farnar að skýr-
ast í titilbaráttunni, Evrópu-
baráttunni og í fallbaráttunni.
DV fer hér yfir stöðu mála í
ensku, þýsku, spænsku, frönsku
og ítölsku deildinni. Í þremur
þessara deilda hafa meistarar
þegar verið krýndir; PSG í Frakk-
landi, Juventus á Ítalíu og Bayern
München í Þýskalandi. Spennan
í hinum deildunum er í algleym-
ingi. n
Ítalska úrvalsdeildin:
Þrjú ár í röð
Tvö félög hafa skarað fram úr á Ítalíu
í vetur: Juventus og Roma. Juventus
tryggði sér titilinn um liðna helgi og er
með 96 stig í toppsætinu. Roma hefur
fyrir löngu tryggt sér 2. sætið þar sem
liðið er með 85 stig. Napoli fer í forkeppni
Meistaradeildarinnar á meðan Fiorentina
og Inter fara að líkindum í forkeppni
Evrópudeildarinnar.
Baráttan á botninum er gríðarlega
hörð: Livorno og Catania eru í tveimur
neðstu sætunum og þurfa að vinna helst
báða sína
leiki til að eiga
möguleika á að
bjarga sér. Sassuolo, Bologna og Chievo
eru einnig í harðri fallbaráttu.
Leikmaður tímabilsins:
Paul Pogba hefur leikið óaðfinnanlega
á miðjunni hjá Juventus í vetur, skorað
sjö mörk og lagt upp sjö. Carlos Tevez og
Giorgio Chiellini komu einnig til greina í
valinu.
Franska úrvalsdeildin:
Meistari
Zlatan
Zlatan Ibrahimovic og félagar hans í PSG
urðu Frakklandsmeistarar á miðvikudag
þrátt fyrir tap gegn Rennes á heimavelli.
Þó að tvær umferðir séu eftir getur Monaco,
sem er í 2. sæti, ekki náð PSG að stigum.
Enn bætist því í medalíusafn Svíans
Zlatans Ibrahimovic sem verður alltaf
landsmeistari með þeim liðum
sem hann spilar með. Lille
getur um helgina tryggt sér 3.
sætið og þar með sæti í um-
spili fyrir Meistaradeildina
og Saint-Etienne sömuleiðis
það fjórða sem tryggir sæti í
Evrópudeildinni.
Ajaccio er löngu fallið
og sömu sögu má segja af
Valenciennes. Sochaux, Evian,
Guingamp, Nice og Montpellier geta
einnig fallið þó þau tvö síðastnefndu séu
nokkuð örugg með sæti sitt.
Leikmaður tímabilsins:
Zlatan Ibrahimovic er langmarkahæsti
leikmaður deildarinnar með 25 mörk úr
30 leikjum. Næsti maður þar á eftir hefur
skorað 16 mörk. Þá hefur Svíinn lagt upp 11
mörk, einu marki minna en James Rodriguez
hjá Monaco.
Spænska úrvalsdeildin:
Atletico í
lykilstöðu
Það hefur ekki gerst oft á undanförnum
árum að spenna sé í titilbaráttunni á
lokasprettinum á Spáni. Það hefur heldur
ekki gerst oft að Barcelona eða Real Ma-
drid séu ekki með málin í sínum höndum.
Atletico Madrid er á toppnum með 88
stig og verður meistari með því að vinna
þá tvo leiki sem liðið á eftir. Barcelona er í
öðru sæti með 85 stig og Real Madrid í því
þriðja með 84 stig. Bæði lið eiga tvo leiki
eftir. Um helgina mætir Atletico Malaga
á heimavelli en heimsækir svo Barcelona
í lokaumferðinni í leik sem gæti orðið
úrslitaleikur í deildinni.
Öll þessi lið hafa tryggt sér þátttöku-
rétt í Meistaradeildinni að ári en auk þess
hefur Athletic Bilbao tryggt sér sæti í
forkeppninni. Sevilla og Real Sociedad
fara að öllum líkindum í Evrópudeildina.
Botnbaráttan er ekki síður spennandi en
toppbaráttan. Real Betis er löngu fallið
en sex lið berjast um að halda sæti sínu
í deildinni. Þau eru Valladolid, Osasuna,
Getafe, Almeria, Granada og Elche.
Valladolid og Osasuna eru í verstri stöðu.
Leikmaður tímabilsins:
Lionel Messi verður að sætta sig
við það að Cristiano Ronaldo hefur
einfaldlega verið öflugri í vetur. Í 30
leikjum hefur hann skorað 31 mark og
auk þess lagt upp níu. Ronaldo er bestur
í heiminum í dag.
Þýska Bundesligan:
Barist um meistaradeildarsæti
Bayern München hefur haft fádæma
yfirburði á tímabilinu. Liðið hefur fyrir
löngu tryggt sér titilinn enda unnið 28
af 33 leikjum í deildinni. Einni umferð er
ólokið og fer hún fram um helgina. Bor-
ussia Dortmund hefur tryggt sér annað
sæti, og sæti í Meistaradeild Evrópu.
Schalke stendur vel að vígi og nægir
jafntefli gegn Nürnberg í lokaumferðinni
til að tryggja sér Meistaradeildarsæti
en Nürnberg er í þeirri stöðu að geta
nappað umspilssæti af Hamburger, á
botni deildarinnar. Á þeim liðum munar
aðeins einu stigi svo líklegt er að leik-
menn Nürnberg leggi allt í sölurnar gegn
Schalke. Hamburger mætir hins vegar
Mainz, sem hefur að engu að keppa.
Bayer Leverkusen er sem stendur í fjórða
sæti, og kæmist í forkeppni Meistara-
deildarinnar ef sú yrði niðurstaðan.
Leverkusen mætir Werder Bremen í
lokaumferðinni og getur náð Schalke
að stigum. Wolfsburg og Borussia
Mönchengladbach, sem hafa tryggt
sér sæti í Evrópudeildinni geta, með
hagstæðum úrslitum, náð Leverkusen
að stigum. Baráttan um Evrópusætin er
því afar hörð.
Á botninum er líka hart barist.
Hamburger, Nürnberg eða
Braunschweig verða í þremur neðstu
sætunum en eitt þeirra gæti bjargað sér
frá falli með því að vinna umspil gegn
liði í deild fyrir neðan, líklega Greuther
Furth. Hamburger stendur best að vígi
en hin liðin tvö geta með hagstæðum
úrslitum sett þá stöðu í uppnám.
Leikmaður tímabilsins:
Franck Ribéry hjá Bayern München hefur
verið frábær eftir að hann sneri til baka
úr meiðslum, og átt þátt í 20 mörkum í
18 leikjum. Miðjumaðurinn Marco Reus
hlýtur hins vegar
titilinn, að
mati DV, en
hann hefur
skorað
16 mörk
og lagt
upp 13 fyrir
Dortmund,
og verið þeirra
besti maður í vetur.
Enska úrvalsdeildin:
Úrslitin ráðast í lokaumferðinni
Spennan á toppnum í ensku deildinni hefur
verið næsta óbærileg. Eftir dæmalaust
klúður Liverpool á móti Crystal Palace,
sem vann upp þriggja marka forystu á 11
mínútum, nægir Manchester City jafntefli
í lokaleiknum til að tryggja sér titilinn. City
tekur á móti West Ham í lokaumferðinni.
West Ham er sýnd veiði en ekki gefin. Liðið
vann til dæmis Tottenham á dögunum. Á
sama tíma heimsækir Newcastle Anfield en
liðið hefur verið heillum horfið að undan-
förnu. Svo gæti farið að úrslit deildarinnar
réðust í uppbótatíma, eins og gerðist vorið
2012, þegar City stal titlinum af United,
með marki á fimmtu mínútu í uppbótatíma
gegn QPR.
Liverpool og City eiga trygg sæti í Meistara-
deildinni. Chelsea hefur einnig þegar tryggt
sér sæti, auk þess sem Arsenal er komið í
forkeppni Meistaradeildarinnar. Of mikill
markamunur er á liðunum svo þau geti haft
sætaskipti. Everton fer í Evrópudeildina.
Enginn spenna þar á ferð.
Á botni deildarinnar eru úrslitin einnig ráðin.
Cardiff, Fulham og Norwich falla um deild
en Sunderland, West Brom og Hull sleppa
með skrekkinn.
Það verða því aðeins tveir spennandi
leikir um helgina; Liverpool – Newcastle og
Manchester City – West Ham.
Leikmaður tímabilsins:
Enginn kemst með tærnar þar sem
Luis Suarez, framherji Liverpool,
hefur hælana. 31 mark og 12
stoðsendingar liggja eftir Suarez á
tímabilinu, sem er fáheyrður árangur.
Baldur Guðmundsson
Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is/ einar@dv.is
Spenna á Englandi
City nægir jafntefli í
lokaleiknum.
Yfirburðir Enginn
stenst Suarez snúning
Sókndjarfur
Marco Reus
Sá besti
Ronaldo
er bestur í
heimi um
þessar
mundir.
Bestur á
Ítalíu
Paul Pogba
Meistarar á Ítalíu
Juventus er búið að sitja á
toppi deildarinnar nær allt
keppnistímabilið.
Þeir bestu PSG er
franskur meistari.
Vinnur Atletico?
Það væri saga til næsta bæjar ef
hvorki Real Madrid né Barcelona
ynni titilinn á Spáni.
Langbestir
Engin spenna
hefur ríkt um
það í Þýskalandi,
hvaða lið verður
meistari. Bayern er
langbesta liðið.