Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2014, Side 52
Helgarblað 9.–12. maí 201452
Það er aldrei að vita hverju Pilou
tekur upp á. Mögulega fylgir
hann fordæmi Dolphs Lund-
gren, sem var kynnir 2010 í inn-
anlandskeppninni í Svíþjóð. Þar
söng hann lag eftir Elvis Presley
og gerði karateæfingar um leið.
„Plís“ Pilou. En hér að neðan er
listi yfir eftirminnilega kynna í
Eurovision og efst er uppáhald
margra, Anke Engelke.
Anke stal senunni
Anke Engelke
2011, Dusseldorf, Þýskaland
n Í maímánuði 2011 var Anke
Engelke kynnir í Eurovision sem
haldin var í Dusseldorf í Þýska-
landi. Henni til aðstoðar voru
Stefan Raab og Judith Rakers. Fáir
muna eftir þeim, en allir muna
eftir Anke sem geystist um sviðið,
hávær og skemmtileg. Hún stal
aftur senunni þegar hún kynnti
stig frá Þýskalandi í Eurovision-
keppni ári seinna, þeirri sem
haldin var í Baku, Aserbaídsj-
an í skugga mannréttindabrota.
Áður en hún gaf stig frá þýsku
dómnefndinni tjáði hún sig um
mannréttindamál í landinu og
sagði: Í kvöld gat enginn kosið
fyrir eigið land. En það er gott að
geta kosið. Og það er gott að eiga
val. Gangi ykkur vel á vegferð
ykkar Aserbaídsjan. Evrópa fylgist
með ykkur.“ Anke var sú eina sem
minntist á mannréttindabrot
þetta kvöld og fékk ýmist lof fyrir
eða botnlausar skammir.
Súpermódel til bjargar
Vodianova og Andrey Malahov/
Alsou og Ivan Urgant
2009, Moskva, Rússland: Natalia
n Aumingja súpermódelið
Natalia Vodianova, stolt Rússa,
er ávallt dregið fram við hvers
lags tækifæri. Líklega hvort sem
henni líkar betur eða verr. Hvort
sem það eru Ólympíuleikar eða
Eurovision, þá er súpermódelið
mætt til bjargar.
Krútt-Finnar
Jaana Pelkonen og Mikko
Leppilampi
2007 Helsinki, Finland
n Þessu finnska tvíeyki tókst að
segja brandara án þess að áhorf-
endur heima í stofu langaði til
að kýla í gegnum sjónvarpsskjá-
inn. Auk þess eru finnsku nöfnin
skemmtileg framburðar út af fyrir
sig. Einstakt atvik í Eurovision-
sögunni frá upphafi.
Eftirminni-
legir kynnar
Krútt-Finnar og súpermódel
Borgen-stjarna gerir
allt vitlaust í Eurovision
P
ilou Asbæk, alvarlegi leikar-
inn sem helst er þekktur fyr-
ir hlutverk sitt í stjórnmála-
dramaþáttunum Borgen,
er kynnir á hinni léttgeggj-
uðu og poppuðu Eurovision-hátíð.
Margir hafa orðið til að velta vöng-
um yfir þessu vali stjórnenda há-
tíðarinnar og í viðtölum er hann
gjarnan spurður: Hvað er alvarleg-
ur og hæfur leikari eins og þú að
gera í Eurovision? Pilou svarar því
oftast til að hann myndi aldrei vilja
sleppa góðu partíi og hefur þegar
sýnt að hann getur vel hrist af sér
noir-drungann og haldið uppi góðu
Eurovision-stuði.
Að vera kynnir í Eurovision-
söngvakeppninni er líklega nokkurs
konar sirkuslist. Svo virðist sem
karlkynnirinn verði ávallt að dást
óhemju mikið að kvenkynninum.
Gamaldags daður á sviðinu, tíma-
skekkja sem virðist ætla að vera
lífseig í Eurovision ár eftir ár. Útlits-
dýrkunin er auðvitað í toppi, þetta
kvöld og kynnarnir taka þátt í dans-
inum. Skyldu leikhæfileikar Pilou
duga honum í þann dans?
Með Pilou á sviðinu verða Lise
Rønne and Nikolaj Koppel, öllu
vanari léttpoppaðri dægurmenn-
ingu en Pilou. Lise hefur verið
kynnir í danska X Factor og Niko-
laj dómari í Denmark's Got Talent. Í
þessum hópi virðist Borgen-stjarn-
an utangarðs.
Það er kannski ágætt að Pilou
hefur fengið að kynnast heimi
spunarefsins í Borgen, því einhvern
veginn verður hann að halda and-
liti.
Ekki þekktur fyrir léttmeti
Pilou er enda ekki þekktur fyrir létt-
meti af nokkru tagi; hinn harm-
ræni Kasper Juul sem glímir við af-
leiðingar kynferðisofbeldis í æsku,
aukahlutverkið í The Killing sem
maður sem brennur til dauða í
hjólastól og hlutverkið í The Borgi-
as sem veikgeðja launmorðingi.
Svo virðist sem hann eigi tölu-
vert auðveldara með að tengja við
skuggahliðar lífsins en þær sem eru
lýstar upp með glimmeri og diskó-
ljósum. Getgátur eru uppi um að
ákvörðunin um að hafa Pilou með í
kynnahópnum sé meðvituð. Danir
vilji minna á sínar dekkri og alvar-
legu hliðar. Noir-kvikmyndaiðnað-
inn sem blómstrar sem aldrei fyrr.
Var að gera númer 2 á kló-
settinu
Pilou sagði frá því í viðtali við
breska dagblaðið The Guardian að
hann hefði játað boði um að kynna
á hátíðinni meðan hann sat á kló-
settinu. „Ég var að gera númer tvö,“
bætti hann við í viðtalinu og sagði
klósettið hina bestu skrifstofu. „Þar
gerast töfrarnir.“
Auðvitað er Pilou ekki Kasper
Juul en söguhetjan er svo eftir-
minnileg að aðdáendur Pilou eiga
erfitt með að skilja þá að. Upp-
diktuðu persónuna og hann sjálf-
an. „Hann er svartsýnn rasshaus,
þannig er það nú bara,“ segir Pilou
og bætir við að Eurovision sé í al-
gjörri andstöðu við slíka afstöðu til
lífsins.
Elskum að hata Eurovision
Í viðtalinu er hann einnig spurður
hvort hann hafi verið Eurovision-
aðdáandi áður en hann ákvað að
vera kynnir. „Ég verð það,“ svar-
aði Pilou eftir ansi góðan um-
hugsunartíma. „Ég er heiðarlegur,
ég hata þessa andskotans leikara
sem ljúga og þykjast vera klárari
en þeir eru – „Ég er svo djúpur“ –
veistu hvað, þú ert það ekki. Þú ert
að þykjast vera einhver annar af því
þú ræður ekki við að vera þú sjálfur.
Ég horfði á Eurovision og mér lík-
aði sjóið. Mér líka vindvélar og allt
glimmerklabbið, það er Eurovision.
Við elskum að hata þetta.“
Má ekki klæðast regnbogum
Pilou ræðir einnig í viðtalinu um-
deild sjónarmið um Eurovision. „En
mér er ekki leyfilegt að vera póli-
tískur. Vegna þess að Austur-Evrópa
er svo stór hluti af Eurovision. Þeir
verða bara andskotans að slaka á,“
segir hann.
Þá er hann spurður hvort
Eurovision sé ekki pólitískur við-
burður. „Ég spurði hvort ég mætti
klæðast regnbogum. Nei. Við meg-
um ekki vera pólitísk. Þetta snýst
um tónlist, ekki stjórnmál. En tón-
list og stjórnmál, það er ekki hægt
að aðskilja þetta tvennt. Ekki í mín-
um huga. Danmörk, Noregur, Sví-
þjóð, Ísland og Finnland gefa til
dæmis alltaf hvert öðru mörg stig í
Eurovision. Ef það er ekki pólitík, þá
veit ég ekki hvað hún er.“ n
n „Við elskum að hata þetta“ n Segir Kasper Juul svartsýnan rasshaus„Ég var að gera
númer tvö
Rasshausinn Kasper Juul „Hann er svartsýnn rasshaus, þannig er það nú bara,“ segir Pilou og
bætir við að Eurovision sé í algjörri andstöðu við slíka afstöðu til lífsins. Mynd MIKE KoLLoffEL
Þetta eru kynnarnir í ár
Nikolaj Koppel, Lise Rønne og
Pilou Asbæk. Mynd LIndA JohAnsEn/AP
Ætlar ekki að reyna að vera fyndinn
H
raðfréttamaðurinn Benedikt
Valsson verður stigakynnir fyr-
ir hönd Íslands í Eurovision.
Benedikt kveðst afar spenntur
fyrir því að fá að ávarpa áhorfendur
um alla Evrópu en hann á alveg eft-
ir að velja sér fatnað fyrir kvöldið. „Ég
fattaði það í gær, þegar einhver spurði
mig út í það, að ég þarf nú að vera í ein-
hverju. Ég var ekkert búinn að pæla í
því. Ég hlýt að finna einhverja lausn á
því og þarf að gefa mér smá tíma í það
því ég er á kafi í prófum,“ segir Bene-
dikt sem er á lokasprettinum í stjórn-
mála -og fjölmiðlafræði við Háskóla
Íslands.
„Ýmsar sleggjur hafa tekist á við
þetta djobb,“ segir hann og seg-
ist þakklátur fyrir að vera treyst fyrir
þessari ábyrgð og gantast með það að
eiga möguleikann á að skoða gamlar
upptökur af Ragnhildi Steinunni Jóns-
dóttur, til að sjá hvernig á að nýta þess-
ar 20 sekúndur á skjánum. „Við vorum
að gera að gamni okkar um daginn að
hún væri nú ákveðin fyrirmynd.“
Hann segist ekki ætla reyna að
vera fyndinn. „Fólk er oft að reyna
að vera fyndið og það tekst aldrei. Ég
reyni af fremsta megni að verða þjóð-
inni til sóma. Ég ætla að koma þessu
vel til skila svo Eurovision-vinir mín-
ir verði stoltir af mér. Þetta er töluvert
skemmtilegra nú þegar strákarnir eru
komnir áfram. n kristjana@dv.is
Vill vera þjóðinni til sóma
Benedikt Valsson segir Ragnhildi
Steinunni ákveðna fyrirmynd og ætl-
ar að reyna að vera þjóðinni til sóma.
Benedikt Valsson er á kafi í prófum og kynnir stig í Eurovision
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is