Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 10
Vikublað 29.–31. júlí 201410 Fréttir Hættir vegna ráðHerrans S tefán Eiríksson, lögreglu- stjóri á höfuðborgarsvæðinu, hættir störfum vegna undir- liggjandi hótana og afskipta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra af störfum lög- reglunnar í tengslum við Lekamálið. Samkvæmt heimildum DV hefur ráð- herrann kallað Stefán á teppið. Hann boðaði lögreglustjórann í ráðuneytið og las honum pistilinn vegna rann- sóknar lögreglunnar á ráðherran- um, aðstoðarmönnum hans og öðru ráðuneytisfólki. Þar beitti ráðherr- ann þrýstingi til þess að hafa áhrif á rannsókn málsins. Einnig mun ráð- herrann hafi hringt í Stefán til að lýsa óánægju sinni með framgöngu lög- reglunnar sem hefur úrskurðað að að- stoðarmenn Hönnu Birnu, Gísli Freyr Valdórsson og Þórey Vilhjálmsdóttir, séu báðir með stöðu grunaðs manns. Afskipti ráðherrans eru af sama toga og þegar hann hafði samband við DV og lýsti reiði sinni vegna fréttaflutning af lekanum og vildi stöðva umfjöllun- ina. Lögreglan hefur skilað málinu af sér til ríkissaksóknara sem fer með forræði þess og tekur ákvörðun um hvort ákært verði í málinu. Ræddi við ríkissaksóknara Samstarfsmönnum Stefáns er mjög brugðið vegna þessa máls. Hann mun hafa rætt afskipti ráðherrans við nána samstarfsmenn. Þá mun hann hafa rætt það við ríkissaksóknara áður en hann ákvað að leita fyrir sér um starf annars staðar. DV hafði samband við Sigríði Frið- jónsdóttur ríkissaksóknara. „Ég tel ekki rétt að ríkissaksóknari ræði þetta málefni við fjölmiðla,“ segir hún. Sig- ríður hafnar því hins vegar ekki að Stefán hafi upplýst sig um þrýstinginn sem ráðherra beitti. Það vakti gríðarlega athygli þegar Stefán sótti um starf forstjóra Samgöngustofu og sviðsstjóra vel- ferðarsviðs í Reykjavík. Þá hafði hann komist að þeirri niðurstöðu að hon- um væri ekki sætt sem undirmaður Hönnu Birnu þar sem reiði hennar gæti bitnað á embættinu. DV hefur fjallað ítarlega um þetta mál allt frá því minnisblaði um einka- mál hælisleitandans Tony Omos var lekið úr ráðuneytinu til 365-miðla og Morgunblaðsins. Minnisblaðið fór frá ráðuneytinu í breyttri mynd þar sem átt hafði verið við það. Upplýst er að Gísl Freyr opnaði skjalið um það leyti sem fyrri lekinn átti sér stað. Óttaðist ráðherra Lögreglustjóri mun, samkvæmt heimildum DV, hafa fengið sig fullsadd- an af samskiptum sín- um við ráðherra og þeim þunga hug sem hann taldi sig finna frá Hönnu Birnu. Hann mun hafa metið stöð- una svo að ráðherrann gæti skaðað lögregluna og þess vegna ákvað hann að víkja. Stefán þykir vera einstaklega samviskusamur embættismað- ur. Hann tók við embætti árið 2006 en áður starfaði hann sem skrifstofustjóri í dómsmálaráðu- neytinu, for- vera innanrík- isráðuneytisins, sem Hanna Birna stýrir nú. Stefán hefur störf sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkur- borgar í byrjun september. Við starfi hans tek- ur Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrr- verandi lögreglustjóri á Suðurnesj- um. Sigríður var ráðin án þess að staðan væri auglýst. Hugsanlega mun Lekamálið koma til hennar kasta ef ríkissaksóknari krefst frekari rann- sóknar á því. Stefán Eiríksson vildi ekki tjá sig um ástæðu starfslokanna. „Ég tjái mig ekki um samskipti við ráðherra,“ segir Stefán í samtali við DV. Hanna Birna fékkst ekki til að út- skýra sína hlið á málinu, en DV hefur ítrekað óskað eftir viðtali við hana. Þá náðist hvorki í Jóhannes Tómasson upplýsingafulltrúa ráðuneytisins, né aðstoðarmenn Hönnu Birnu við vinnslu fréttarinnar. n n Hanna Birna kallaði Stefán á teppið vegna Lekamálsins n Ógnandi símtöl Atburðarásin í Lekamálinu 18. nóvember Evelyn Glory Joseph segir í samtali við DV að vísa eigi Tony Omos úr landi þrátt fyrir að þau eigi von á barni saman. 19. nóvember Boðað er til mótmæla fyrir utan innanríkisráðu­ neytið. Lögfræðingar innanríkisráðuneytisins útbúa minnisblað sem sent er Hönnu Birnu, að­ stoðarmönnum hennar og ráðuneytisstjóra. Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðarmaður ráð­ herra, opnar skjalið og vistar breytingar á því á svipuðum tíma og hann ræðir við blaðamann Fréttablaðsins. 20. nóvember Fréttablaðið birtir forsíðufrétt sem byggir á upplýsingum úr minnisblaðinu. Þá birta Vísir og mbl.is fréttir sem byggja að hluta til á falsupplýsingum sem innihalda ærumeiðandi aðdróttanir gagnvart Tony. Upplýst hefur verið að Gísli Freyr átti samtal við blaða­ mann Morgunblaðsins stuttu áður en frétt miðilsins birtist. 22. nóvember Innan­ ríkisráðuneytið sendir frá sér tilkynningu vegna málsins. Þar er fullyrt að ekkert bendi til þess að upplýsingunum hafi verið lekið innan úr ráðuneytinu. 3. desember Birgitta Jónsdóttir minnist á trúnaðar­ brest innanríkisráðu­ neytisins í óundirbún­ um fyrirspurnatíma. Hanna Birna segir að ekkert bendi til þess að gögnum hafi verið lekið úr ráðuneytinu. Þegar umræðunni lýkur ávítar ráðherr­ ann Birgittu fyrir að hafa spurt um málið. 10. desember Hanna Birna er kölluð fyrir stjórn­ skipunar­ og eftirlitsnefnd Alþingis. Þar segir hún nefndar­ mönnum að skjalið sé ekki úr innanríkisráðuneytinu. 18. desember Tony Omos er sendur fyrirvaralaust úr landi án vitneskju lögmanns. Starfsmaður Rauða krossins gagnrýnir Hönnu Birnu fyrir að bendla Rauða krossinn við lekann. 16. desember Katrín Jakobsdóttir spyr Hönnu Birnu um lekamálið í óundirbúnum fyrirspurnar­ tíma á Alþingi en áður hafði Hanna Birna reynt að koma í veg fyrir fyrirspurnina. Hanna Birna bætir Rauða krossinum við þær stofnanir sem hún segir mögulega hafa umrætt skjal undir höndum. 21. nóvember Lögmenn hælisleit­ endanna gagnrýna að viðkvæmar persónu­ upplýsingar hefðu ratað á síður fjölmiðla. Gísli Freyr útilokar ekki að óbreyttir starfsmenn hafi lekið skjalinu: „Einhverjir gætu verið að búa til einhverja punkta hjá sér.“ Síðar sama dag sendir hann frá sér tilkynningu þar sem hann dregur orð sín til baka og hafnar því að gögnum hafi verið lekið úr ráðuneytinu. 2013 Reynir Traustason Jón Bjarki Magnússon Jóhann Páll Jóhannsson Mikils metinn lögreglustjóri Áralangur lögregluferill tók skjótan enda n Stefán Eiríksson á að baki langan og farsælan feril innan lögreglunnar en þar áður starfaði hann í dóms­ og kirkjumálaráðuneytinu. Hann vann í sendiráði Íslands í Brussel frá 1999 til 2000 og var skipaður skrifstofustjóri dómsmála­ og löggæsluskrifstofu dóms­ og kirkjumálaráðuneytisins árið 2002. Hann var skipaður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu árið 2006 og hefur notið gríðarlegs trausts innan lögreglunnar. Á hans vakt þykir lögreglan hafa bætt mjög ímynd sína, enda er hún sú stofnun sem almenningur ber mest traust til samkvæmt mæling­ um ár eftir ár. Stefán var sæmdur fálkaorðunni um síðustu áramót fyrir frumkvæði og forystu á sviði löggæslu. Nú hefur hann kvatt þann starfsvettvang og snúið sér að velferðarsviði Reykjavíkurborgar. „Ég tel ekki rétt að ríkissaksóknari ræði þetta málefni við fjölmiðla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.