Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 22
Vikublað 29.–31. júlí 201422 Umræða
Umsjón: Henry Þór BaldurssonLaunaskrið
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
„Slíta stjórnmála-
sambandi strax
og hætta að
versla vörur frá Ísrael.“
Arnar Sigurðsson tjáir sig um hvað
Ísland geti gert vegna átakanna á Gaza.
11
N
ú rennur senn upp verslun-
armannahelgin og vænta
má að umferð aukist á veg-
um landsins en margir nýta
helgina til að fara um landið,
sækja útihátíðir nú eða bara til að
njóta lífsins í sumarbústað í faðmi
fjölskyldu og vina. Umferð um versl-
unarmannahelgi hefur þó á síðustu
árum dreifst nokkuð þar sem margir
velja að leggja fyrr af stað og koma
fyrr heim meðan öðrum finnst betra
að nýta síðari hluta helgarinnar.
Þetta gerir það að verkum að
umferðarþungi dreifist nokkuð yfir
helgina en þó er alltaf gott að hafa
þolinmæði og tillitssemi með í för.
Til að mynda er mikilvægt að öku-
menn haldi jöfnum hraða, fari
hvorki of hægt né of hratt og forðist
óþarfa framúrakstur.
Hins vegar geta skapast aðstæður
þar sem réttlætanlegt er að fara fram
úr en þá verður að gæta fyllstu var-
úðar. Heil óbrotin lína á miðjum vegi
eru til merkis um að framúrakstur er
bannaður. Áður en tekið er fram úr
þarf að ganga úr skugga um að ekkert
ökutæki sé að koma á móti, hvorki
bíll, mótorhjól né hjólreiðamaður.
Einnig er mikilvægt að athuga hvort
einhver annar sé byrjaður að taka
fram úr. Ef ætlunin er að gefa öku-
manni, sem er fyrir aftan ökutækið,
merki um að óhætt sé að fara fram
úr þá er gefið stefnuljós til hægri, í
áttina að vegbrúninni. Ef það er hins
vegar ekki óhætt þá er gefið stefnu-
ljós til vinstri þ.e. í átt að miðlínu
vegarins.
Bílbelti bjarga mannslífum
Það hefur margoft sýnt sig að
einstaklingur sem ekki er spenntur
í bílbelti er mun líklegri til að slas-
ast alvarlega og jafnvel látast lendi
hann í slysi. Á hverju ári verða
banaslys sem rekja má til bílbelta-
leysis. Miðað við slysatölur undan-
farinna ára má ætla að nokkur hluti
þeirra sem létust í umferðinni í bif-
reiðum hefði komist nánast ör-
ugglega lífs af með því að nota ör-
yggisbelti. Í mörgum tilfellum var
verið að fara stuttar vegalengdir og
hraðinn oft á tíðum ekki mikill. Árið
2005 var t.d. ökumaður í lífshættu
eftir árekstur sem hann lenti í á 50
kílómetra hraða en hann var ekki
í öryggisbelti. Þá létust tvær stúlk-
ur, fæddar 1997 og 1998, um versl-
unarmannahelgina í fyrra en þær
voru í bíl sem valt á Suðurlandsvegi,
skammt austan við Meðallandsveg.
Stúlkurnar köstuðust út úr bílnum
en hvorug þeirra var í bílbelti. Rann-
sóknarnefnd samgönguslysa hefur
nýlokið við skýrslu um þetta tiltekna
slys en í skýrslu nefndarinnar seg-
ir m.a. að hraðakstur og vanhöld
á bílbeltanotkun séu tvær algeng-
ustu orsakir banaslysa í umferðinni.
Nefndin ítrekar enn fremur fyrri
ábendingar sínar um að ökumenn
og farþegar noti alltaf bílbelti, hvort
sem setið er í fram- eða aftursæti.
Stórhættuleg myndavél
Þá geta litlir og léttir hlutir, eins og
t.d. fartölvur eða myndavélar, einnig
skapað mikla hættu sé ekki geng-
ið tryggilega frá þeim í bíl. Högg-
þunginn getur orðið margföld þyngd
hlutarins við árekstur eða í bílveltu.
Fyrirstaðan getur verið höfuð öku-
mannsins sem vitanlega þolir ekki
höggið. Það er nánast undantekn-
ingarlaust hægt að koma í veg fyrir
þessi slys með því einfaldlega að
setja allt sem er lauslegt í farangurs-
geymslu, festa það eða skorða þannig
að ekki sé hætta á að það kastist til við
árekstur. Gæludýr er hægt að festa
með sérstökum öryggisbeltum eða
búrum sem fá má í gæludýraversl-
unum og til eru sérstakar yfirbreiðsl-
ur og grindur til að tryggja farangur í
opnum farangursgeymslum.
Áfengi og akstur
Mörg alvarleg umferðarslys má
rekja til áfengisneyslu. Það er ekki
öllum ljóst hve mikil hætta stafar af
ölvunarakstri en á hverju ári slasast
að meðaltali 60 manns sökum
ölvunaraksturs – þar af slasast 12
alvarlega eða láta lífið. Nú í að-
draganda verslunarmannahelgar-
innar er því vert minna ökumenn á
að akstur og áfengi fer aldrei saman.
Algengt er að daginn eftir neyslu
áfengis telji menn sig fullfæra um
að stjórna ökutæki en við mælingu
á áfengismagni kemur annað í ljós
enda tekur það langan tíma fyrir
áfengi að brotna niður í líkamanum. Í
sumum tilfellum getur borgað sig að
bíða í allt að 18 klukkustundum eða
lengur áður en sest er undir stýri eftir
áfengisneyslu. Auk þess er mikilvægt
að sýna umhyggju sína með því að
koma í veg fyrir að aðrir setjist undir
stýri eftir neyslu áfengis. Magn skiptir
ekki máli í því sambandi.
Að lokum vill Samgöngustofa
minna á að öll berum við ábyrgð í
umferðinni. Hvert slys er einu slysi of
mikið og það er sameiginlegt mark-
mið okkar að gera allt sem í okkar
valdi stendur til að koma í veg fyrir
þau. Sýnum gott fordæmi, njótum
helgarinnar og komum heil heim! n
„Það er ekki
öllum ljóst hve
mikil hætta stafar af
ölvunarakstri en á hverju
ári slasast að meðaltali
60 manns sökum
ölvunaraksturs.
Verður þú „spenntur“ um
verslunarmannahelgina?
Bílslys Umferðaróhapp þarf ekki
að eiga sér stað á miklum hraða til
að mikil hætta skapist.
Þóra Magnea Magnúsdóttir
fræðslustjóri Samgöngustofu
Kjallari
„Ég mun aldrei,
ALDREI, nokkru
sinni fyrirgefa
þeim sem brutu gegn mér né
gefa þeim annan séns.“
Teresa Dröfn Freysdóttir
Njarðvík er ósammála Hildi
Lilliendahl sem álítur að allir
eigi rétt á öðrum séns, jafnvel
þeir sem nauðgi.
13
„Mér finnst hún
gera sig að fífli.“
Sigurvin Kristjónsson var ekki
ánægður með Mörtu Maríu,
sem setti sig í gervi ógæfukonu
fyrir Smartland.
20
„Þessi drengur
byrjaði að vinna
í Bónus á kæli og
var að raða vörum þar upp,
hann vann sig einfaldlega
upp og á að fá að njóta þess
núna, enga öfund þetta er
flottur strákur og drengur
góður.“
Guðbrandi Jónatanssyni
finnst 4,5 milljónir sem
Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss hefur í
mánaðarlaun árið 2013 samkvæmt
tekjublaði DV, ekki of mikill peningur.
15
„Vinsældir
mínar sem
skemmtikrafts
[hafa] aukist eftir að
hommastríðið byrjaði fyrir
einu ári og er hommastríðið
nú orðið sex sinnum
lengra en hjá Jörundi
hundadagakonungi.“
Gylfi Ægisson er ósammála blaðamanni
sem segir vinsældir hans hafa minnkað í
kjölfar sjálfskipaðrar baráttu hans gegn
gleðigöngunni, Gay Pride.
28