Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 29.–31. júlí 201438 Fólk „Við erum mjög náin“ Chris Martin tjáir sig um skilnaðinn E nski tónlistarmaðurinn Chris Martin ræddi um skilnað sinn og bandarísku leikkonunnar Gwyneth Paltrow í útvarps- þættinum Valentine in the Morn- ing á dögunum. Martin og Paltrow höfðu verið gift í ein ellefu ár þegar þau tilkynntu í mars síðastliðnum að þau hefðu slitið samvistir. Síð- an þá hafa hjónin fyrrverandi sést ósjaldan saman ásamt börnum sín- um, þeim Apple og Moses, og virð- ist vinskapur Martins og Paltrow því enn til staðar. „Sannleikurinn er sá að mér lík- ar ekkert sérlega að tala um þessa hluti. En það sem við sögðum öll- um í byrjun ársins er satt. Við erum mjög náin, við erum ekki saman,“ sagði Chris í viðtalinu. „Það er mik- il ást. Svo það er enginn skandall er ég hræddur um. Ég vildi að ég gæti gefið ykkur skandal.“ Í apríl sagði Martin í viðtali að hans persónulegu vandamál hafi átt þátt í því að samband hans og Paltrow slitnaði. „Ef þú getur ekki opnað sjálfan þig þá kanntu ekki að meta undrið að innanverðu,“ sagði hann þá. „Svo þú getur verið með einhverjum mjög yndislegum en vegna þinna eigin vandamála getur þú ekki fagnað því á réttan hátt.“ n ritstjorn@dv.is Meðan allt lék í lyndi Chris og Gwyneth voru gift í ellefu ár og eiga saman tvö börn, átta og tíu ára. Polanski verðlaunaður Forsvarsmenn Locarno-kvik- myndahátíðarinnar hyggjast verðlauna pólska leikstjórann Roman Polanski fyrir framlag sitt til kvikmyndalistar. Verðlaun- in verða afhent á hátíðinni, sem fram fer helgina 14. til 16. ágúst næstkomandi. Ásamt því að veita viðurkenningunni viðtöku mun Polanski halda fyrirlestur um sýn sína á kvikmyndagerð og veita ungum og upprennandi leikstjór- um góð ráð. Þá mun hann kynna nýjustu mynd sína, Venus in Fur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Polanski hlýtur verðlaun fyrir störf sín en hann vann sem kunn- ugt er Óskarsverðlaunin fyrir kvikmyndina The Pianist. Harington og Leslie saman á ný? Game of Thrones-stjörnurnar Kit Harington og Rose Leslie sáust saman á LAX-flugvellinum í Los Angeles á dögunum. Að sögn sjónarvotta fór vel á með parinu fyrrverandi og kyndir það undir orðróm þess efnis að þau hafi tekið saman á ný. Líkt og frægt er orðið eiga persónur Harington og Leslie í Game of Thrones í ást- arsambandi og fór svo að leik- ararnir byrjuðu saman árið 2012. Upp úr sambandinu slitnaði þó ári síðar en undanfarið hefur sá orðrómur verið á kreiki að Kit og Rose séu byrjuð saman aftur. Til að mynda voru þau nánast límd saman á Comic Con sem fram fór í San Diego fyrir skemmstu og eftir að hafa flogið saman í vik- unni eru margir þess fullvissir að fiskisagan um parið fyrrverandi sé sönn. Hundafár í Hollywood Það er löngu vitað að hundurinn er besti vinur mannsins og á það að sjálfsögðu einnig við um fræga fólkið. Fjölmargar stjörnur eru nefnilega hundaeigendur og sjást iðulega úti að ganga með fjórfætta vini sína. DV tók saman nokkra heims- fræga hundaeigendur. Klæðir hundinn sinn upp Ástralski leikarinn Hugh Jackman á tvo hunda; þá JJ og Dali. Sá síðarnefndi er franskur bolabítur sem bættist við fjölskyldu Jackmans árið 2010 og fara þeir félagar oft saman í göngutúra. Það sem hefur þó vakið einna helst athygli er hve gjarn Jackman er á að klæða hundana sína upp, sér í lagi ef illa viðrar, og þá ekki ósjaldan í stíl við sjálfan sig. Tekur þá hvert sem er Bandaríska leikkonan Sandra Bullock er mikill hundaunnandi og hefur tekið að sér þrjá hunda með líkamlega fötlun; þá Poppy, Ruby og BeBe. Poppy er þrífættur, Ruby tvífættur og BeBe eineygður en alla hundana fékk leikkonan í dýraathvarfi í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum. Hundana þrjá tekur Bullock oft út að ganga og ekki nóg með það, heldur einnig á kvikmyndasett. Raunar segist leikkonan taka hundana með sér hvert sem hún fer og að vel komi til greina að hún taki að sér fleiri hunda sem eigi við einhvers konar fötlun að stríða. „Allir hundar sem skortir eitthvað eru velkomnir í okkar hús,“ sagði leikkonan góðhjartaða eitt sinn í viðtali. Ein stór fjölskylda Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum er mikill hundaunnandi og ver miklum tíma með hundunum sínum þremur, þeim Max, Freddy og Simba, og talar ósjaldan um þá í viðtölum. „Það er algjörlega bráðfyndið þegar Max og Freddy prumpa,“ sagði fyrirsætan í viðtali við tímaritið People á dögunum. „Þá stökkva þeir upp vegna þess að hávaðinn hræðir þá.“ Klum segist elska að eiga hunda. „Ég elska þegar við erum í sund- lauginni í garðinum um helgar og, óhjákvæmilega, dýfa Max og Freddy sér beint út í vatnið. Simba er örlítið varkár- ari þegar kemur að sundlaugarpartíun- um okkar, svo hann bíður á brúninni og þykist vera lífvörður … Við erum ein stór, hamingjusöm fjölskylda.“ Alltaf á Instagram Bandaríska leikkonan Amanda Seyfried elskar hundinn sinn meira en nokkuð annað. Um er að ræða ástralskan fjárhund að nafni Finn sem fylgir leikkonunni hvert fótmál, en auk þess að taka Finn iðulega með sér á almannafæri er Seyfried dugleg að deila myndum af þeim félögum saman á myndasíðunni Instagram. Andlit Topshop Það má með sanni segja að Cara Delevigne sé ein vinsælasta fyrir- sæta heims í dag. Þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs þá hefur hún náð mjög langt í tískuheiminum og keppast hönnuðir um að láta hana klæðast fötum þeirra. Cara er nú nýtt andlit tískuvörurisans Topshop fyrir nýjustu auglýsinga- herferð hans fyrir haust/vetrar- línu merkisins. Þetta er í fyrsta skipti sem ein fyrirsæta er andlit heillar herferðar hjá breskri tísku- vöruverslun. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Cara auglýsir fyrir merkið en í fyrsta skipti sem hún gerir það ein. Ástin í lífi Goslings Hjartaknúsarinn Ryan Gosling sést ósjaldan með sínum besta vini; hundinum George, og er meira að segja til heil vefsíða tileinkuð myndum af þeim félögum. George er tólf ára blendingur sem vakti mikla athygli er hann fylgdi eiganda sínum í spjallþátt Jimmys Fallon og skartaði þar hanakambi. Raunar tekur Gosling hundinn gjarnan með sér í viðtöl og talar ósjaldan um hann. „George er stóra ástin í lífinu mínu,“ sagði Gosling eitt sinn í viðtali. „Venjulega tek ég hann með hvert sem er. Ég er með sérstaka pappíra svo hann geti ferðast með mér hvert sem ég fer.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.