Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 23
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Fréttir Stjórnmál 23 R íkisskattstjóri lauk nýverið útreikningum á álagningu opinberra gjalda á einstak­ linga en álagningin sem reiknuð er út á þessu ári miðast við tekjur til 31. desember 2013. Samkvæmt áætluðum tölum sem ríkisskattstjóri veitti DV skil­ ar sérstakur auðlegðarskattur 6,16 milljörðum króna til þjóðarbúsins í ár og viðbótarauðlegðarskattur á hlutabréfaeign 5 milljörðum. Til samanburðar skilaði auðlegðar­ skattur 5,6 milljörðum króna til þjóðarbúsins árið 2013 og viðbótar­ auðlegðarskattur á hlutabréfaeign 3,5 milljörðum. Þannig skilar auð­ legðarskattur alls um 11 milljörð­ um króna til ríkissjóðs í ár og skil­ aði hann um 9 milljörðum í fyrra. Auðlegðarskattur er lagður á hreina eign gjaldanda. Um er að ræða verð­ mæti heildareignar að frádregnum heildarskuldum gjaldanda. Auðlegðarskatturinn er til kom­ inn vegna tímabundins ákvæðis sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar­ dóttur kom á árið 2010 vegna mikils halla á ríkissjóði eftir hrun. Ákvæð­ ið átti að renna út eftir fjögur ár. Nú í ár var því síðasta skiptið sem ríkis­ skattstjóri reiknar sérstakan auð­ legðarskatt inn í opinber gjöld. Ef ákvæðið verður ekki framlengt, verður ekki greiddur auðlegðar­ skattur á næsta ári fyrir árið 2014. Bjarni framlengir ekki Bjarni Benediktsson fjármálaráð­ herra tjáði fréttastofu RÚV í ágúst í fyrra að tímabundin álagning auð­ legðarskatts yrði ekki framlengd. Samkvæmt því verður enginn auð­ legðarskattur greiddur fyrir árið 2014 á næsta ári. Segja mætti að ríkis sjóður verði þannig af tugi milljarða króna vegna ákvörðun­ ar ríkisstjórnarinnar um að fram­ lengja ekki auðlegðarskatt. Bjarni Benediktsson sagði við fréttastofu RÚV í fyrra að með­ al ástæðna fyrir því að ekki ætti að framlengja ákvæði um auðlegðar­ skatt væru þær að hann teldi það hugsanlegt að auðlegðarskatturinn bryti í bága við stjórnarskrána. Síð­ an þá hefur Hæstiréttur hins vegar úrskurðað að álagning auðlegðar­ skatts bryti ekki gegn stjórnarskrá. Það varð ljóst í apríl á þessu ári. Ríkis stjórnin hyggst þrátt fyrir það ekki framlengja ákvæði um auð­ legðarskatt, enda sé afnám hans, eða það að hann renni út, liður í skattalækkunum ríkisstjórnarinnar samkvæmt Bjarna Benediktssyni. Frosti segir þörfina litla Frosti Sigurjónsson, formaður efna­ hags­ og viðskiptanefndar, segir í samtali við DV að líklega verði ekki ekki þörf á því að framlengja ákvæði um auðlegðarskatt, þrátt fyrir að hann skili ríkissjóði um tugi milljarði króna. Ákvæðið hafi verið tímabundið frá upphafi. „Það var stefna fyrri ríkisstjórnar að afnema skattinn, eða að hann væri tímabundinn. Núverandi fjár­ málaráðherra hefur gefið í skyn að hann hyggist ekki framlengja hann. Ég hef ekki heyrt neinn tala fyrir því að það eigi að framlengja hann og ég á því ekki von á að það verði gert,“ segir Frosti. Hann telur að missir af auðlegðarskatti verði sennilega ekki mikið fall fyrir ríkissjóð, enda standi hann ágætlega. „Það er útlit fyrir að rekstur ríkis­ sjóðs verði hallalaus og það er ágætt útlit þar, það er ekki sérstök ástæða til að viðhalda þeim skattahækkun­ um sem urðu hér eftir hrun, heldur frekar fara að vinda ofan að þeim,“ segir Frosti. Steingrímur vill framlengingu „Ég er algjörlega á því að það ætti að framlengja auðlegðar­, eða ríkra manna­skatt í einhverri mynd. Í ríkisfjármálaáætlun til meðallangs tíma þá var gert ráð fyrir þessari tekjuöflun eða einhverri annarri í staðinn ef hún hyrfi út. Þess vegna mun muna um það hjá ríkissjóði á næsta ári ef það vantar 10 eða 11 milljarða í kassann 2015, vegna þess að auðlegðarskatturinn verð­ ur horfinn og ekkert annað lagt á í staðinn. Þetta er áhyggjuefni, hvað þeir eru andvaralausir varðandi ríkisfjármálin til lengri tíma,“ segir Steingrímur J. Sigfússon í samtali við DV, en hann var fjármálaráð­ herra þegar auðlegðarskatturinn var settur á. „Ef ekki ríkasta fólk á Íslandi á að leggja þetta af mörkum áfram í einhver ár, á meðan við erum að ná okkur betur upp úr þessu, hverjir þá? Hvar á þá að leggja þessa skatta í staðinn? Auðvitað munar ríkið um svona gríðarlega stóra tölu. Ég tel það alveg fráleitt að láta þenn­ an skattstofn hverfa með öllu,“ segir Steingrímur. „Þarf ríkasta fólkið á Íslandi á 11 milljarða skattalækkun að halda?“ Aðspurður út ummæli formanns efnahags­ og viðskiptanefndar varðandi það að ríkissjóður myndi standa ágætlega þrátt fyrir missi auðlegðarskattsins segir Stein­ grímur þetta ekki svo einfalt. „ Ríkissjóður stendur fyrst og fremst þetta vel vegna þess að við sem ríkis stjórn á fyrra kjörtímabili lögð­ um traustan grunn að tekjuöflun ríkisins. Núverandi ríkisstjórn er að uppskera árangurinn af því, að við treystum tekjugrunn ríkisins, en þessi ríkisstjórn er byrjuð að veikja hann,“ segir Steingrímur en með því á hann ekki einungis við auð­ legðarskattinn, heldur einnig lækk­ un tekjuskatts og veiðigjalds. „Staðan gæti verið ennþá betri ef Salka Margrét Sigurðardóttir salka@dv.is Hversu hár er auðlegðarskattur fyrir árið 2013 og 2014? n Af auðlegðarskattstofni einstaklings að 75.000.000 kr. og samanlögðum auðlegðar- skattstofni hjóna að 100.000.000 kr. greiðist enginn skattur. n Af auðlegðarskattstofni yfir 75.000.000 kr. að 150.000.000 kr. hjá einstaklingi og yfir 100.000.000 kr. að 200.000.000 kr. af samanlögðum auðlegðarskattstofni hjóna greiðast 1,5%. n Af því sem umfram er 150.000.000 kr. hjá einstaklingi og 200.000.000 kr. af saman- lögðum auðlegðarskattstofni hjóna greiðast 2%. **Skv. heimasíðu ríkisskattstjóra. Hversu margir greiða árið 2014? n 8.123 gjaldendur greiða annaðhvort auðlegðarskatt eða viðbótarauðlegðar- skatt eða báða skattana árið 2014. n 4.057 gjaldendur eru bæði með auð- legðarskatt og viðbótarauðlegðarskatt. n 2.477 gjaldendur eru bara með auð- legðarskatt. n 1.589 gjaldendur eru bara með viðbótarauðlegðarskatt. Dæmi um þingmenn sem greiða auð- legðarskatt 2014 n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - 7.821.250 kr. n Pétur H. Blöndal - 541.648 kr. n Bjarni Benediktsson - 328.125 kr. n Jón Gunnarsson - 96.319 kr. n Frosti Sigurjónsson - 83.653 kr. „Ekki sérstök ástæða til að viðhalda þeim skatta- hækkunum sem urðu hér eftir hrunSíðustu dagar auðlegðarskattsins n Ákvæðið skilar 11 milljörðum á þessu ári n „Þetta kristallar muninn á hægri og vinstri stjórn“ menn héldu tekjunum inni og not­ uðu þær til að byrja að borga nið­ ur skuldir og bæta í það sem mest þörf er á að gera betur, í velferðar­ málunum og víðar,“ segir Stein­ grímur. „Stóra spurningin er bara þessi, þarf ríkasta fólkið á Íslandi á 11 milljarða skattalækkun að halda? Er það forgangsverkefni? Það segir þessi ríkisstjórn og ég er ósammála því,“ segir hann. „Þetta kristallar muninn á hægri og vinstri stjórn. Við reyndum að leggja byrðarnar á þá sem voru helst aflögufærir en núverandi ríkisstjórn byrjar á því að létta sköttum af ríku­ stu 3.000–4.000 fjölskyldunum á Ís­ landi. Pólitík verður ekki skýrari en það,“ segir hann að lokum. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.