Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 29
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Lífsstíll 29
Baðfatatíska
stjarnanna
n Þetta er það heitasta á ströndinni í sumar
Þótt það hafi ekki verið tilefni til að klæðast bað-
fötum á suðvesturhorninu frá því árið 2012 þá hefur
blíðan verið mikil fyrir norðan og austan. En hverju
klæðast stjörnurnar þegar á að láta sólina leika við
kroppinn? Allt um það hér.
Kim
Kardashian
Raunveruleikastjarnan elskar
hvítt þegar kemur að baðföt-
um. Hér situr hún fyrir í sömu
baðfötum og hún klæddist í
brúðkaupsferðinni.
Serena
Williams
Tennisstjarnan brýtur
upp tískuna með
langerma sundbol.
Selena Gomez Söng- og
leikkonan setti þessa mynd nýlega á
Instagram. Það fylgir ekki sögunni hvar hún
var en hún virðist hafa skemmt sér vel.
Kourtney Kardashian Raun-
veruleikastjarnan slakar á í sumar ásamt dóttur sinni.
Kourtney heldur mikið upp á gyllta litinn og er þetta ekki
fyrsta settið af slíkum baðfötum sem hún klæðist.
Katy Perry Söngkonan er öll í „retro“-
stílnum. Líka á ströndinni.
Vanessa Hudgens
Leikkonan klæddist þessu PilyQ-bikiníi
á Maui. Þau hafa verið vinsæl í sumar
en Cameron Diaz klæddist einmitt einu
slíku í myndinni The Other Woman.
Kate Hudson Leikkonan var í
nokkuð hefðbundnum strandklæðnaði í fríi
sínu á spænsku eyjunni Ibiza. Hvítt, látlaust
bikiní, strandhattur og pils yfir skýluna. Það
sem vakti athygli var keðjan sem nær um háls
hennar, yfir brjóstkassa og aftur fyrir bak.
Jessica Alba
Leikkonan er þekkt fyrir fal-
legan vöxt og hefur aldrei verið
feimin þegar kemur að því að
klæðast baðfötum. Hér er hún
í glæsilegu bikiníi í fríí í Cancun.
Leikkonan stundar svokallað
PoleFitness eða súlufimi til að
halda sér í formi.
Courtney Cox Hér er önnur fimmtug og í frábæru
formi. Leikkonan er í hefðbundnu svörtu bikiníi en það er ekkert
hefðbundið við kroppinn.
Lea Michele Glee-stjarnan klæddist svo smáu grænu
bikiníi í fríinu á Ítalíu að það borgaði sig að taka bleika slæðu með fyrir
myndatöku.
Elle Macpherson
Fyrirsætan og leikkonan lítur alltaf
jafn vel út. Já, þessi dama er 50 ára en
lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri
en 30 ára.
Cameron Diaz
Leikkonan segist elska fer-
tugsaldurinn. Skyldi engan
undra enda er hún í besta
formi lífs síns. Leikkonan
klæðist hér Mikoh-bikiníi.