Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 26
Vikublað 29.–31. júlí 201426 Lífsstíll Siggi Hlö Bylgjan „Ég hélt að maðurinn væri svona 25 ára þegar ég heyrði fyrst í honum. Ótrú- lega björt og hress rödd. Maður skilur konurnar sem hringja úr sumarbústaðn- um.“ Hulda G. Geirsdóttir Rás 2 „Gjörsamlega frábær rödd, ótrúlega þægileg og góð að hlusta á.“ Ívar Guðmundsson Bylgjan „Ívar Guðmundsson er einhvern veginn fæddur í þetta.“ Gerður G. Bjarklind Rás 1 „Útvarpsdrottningin Gerður G. Bjarklind trónir án efa á toppnum.“ Þórður Helgi Þórðar- son (Doddi litli) Rás 2 „Doddi litli hefur einstaklega þokka- fulla rödd og segir fimlega íþróttafréttir.“ Heiðar Austmann FM 957 „Heiðar Austmann heldur manni ungum, ekki bara með fagurri rödd, heldur gömlum og gildum hnakkafrösum.“ Frosti Logason X-ið 977 „Fær mann alltaf til að leggja vel við hlustir með sinni valdamiklu rödd.“ Hanna G. Sigurðardóttir Rás 1 „Hanna G. Sigurðardóttir er bæði róandi og vekj- andi, gerir allt áhugavert sem hún fjallar um.“ Leifur Hauksson Rás 1 „Hefur sérstaka gáfu til að vera framúrskarandi áhugasamur og upplífgandi, sama hversu mikið dauð- yfli hann talar við.“ Margrét Blöndal Rás 2 „Kvenkyns Gestur Einar. Eins og hún hafi alltaf verið þarna. Maður býst alltaf við því að eitthvað klúðrist en er þó nokkuð viss um að það gerist ekki. Samt ekki. Gerir sakleysislega útvarps- þætti að spennutryllum.“ Helgi Pétursson Rás 1 „Gaurinn sem lætur manni finnast Þessi voru einnig nefnd „Með hina fullkomnu, klassísku útvarpsrödd“ n Sigurlaug Margrét hefur bestu útvarpsröddina n Rás 1 með flestar tilnefningar Í dagsins önn eru fáar aðstæður þar sem ekki er viðeigandi að leyfa útvarpinu að óma. DV leit- aði til álitsgjafa hvaðanæva að úr þjóðlífinu og athugaði hver hefði bestu útvarpsrödd útvarps- stöðva á Íslandi. Sá útvarpsmað- ur sem þeir álitsgjafar kunnu hvað best að meta er Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, gjarnan kölluð Silla. Rödd hennar hefur lengi fengið að hljóma í eyrum Íslendinga en hún er í dag með þáttinn Segðu mér á Rás 1. Hún hefur ekki langt að sækja hæfileikana, en faðir hennar var út- varpsmaðurinn Jónas Jónasson, sem starfaði lengi á Rás 1. Raunar fékk Rás 1 flestar tilnefningar álits- gjafa, og mætti segja að útvarps- stöðin sé sigurvegari á öllum víg- stöðvum úttektarinnar. n salka@dv.is 1 Sigurlaug M. Jónasdóttir Rás 1 n „Sigurlaug þykir mér ansi skemmtileg. Mjög þægileg rödd og róandi.“ n „Sigurlaug Margrét Jónasdóttir hefur undurmjúka og fallega rödd, og er lagið að draga fram merkingu textans hverju sinni.“ n „Sigurlaug Margrét Jónasdóttir sem er með þáttinn Segðu mér á Rás 1 er með hina fullkomnu, klassísku útvarpsrödd.“ n „Hún er mjög skýrmælt og það er gott að hlusta á hana. Hún er með góða rödd. Hún er með þannig rödd að maður fer að hlusta.“ 2-3 Ólafur Páll Gunnarsson Rás 2 n „Án vafa besti útvarpsmaður lands- ins. Með yfirburðaþekkingu á við- fangsefninu og kann að koma því til skila til hlustenda líkt og þeir séu á pari við hann sjálfan. Væri góður í jafningja- fræðslu. n „Oh Óli þægilega rödd, kemur með alls konar fróðleik um tónlist og alls konar á milli laga.“ n „Hrikalega fróður og skemmtilegur útvarpsmaður sem virðist hafa óþrjót- andi áhuga á tónlist.“ 2-3 Þorgeir Ástvaldsson Bylgjan n „Mér finnst Þorgeir Ástvaldsson alltaf hafa mjög góða og hljómþýða rödd. Þegar ég var 15 ára sjóveikur sjómaður í örfáa daga á trillu sem gerði út frá Patreksfirði 1981 þá hljómaði allan liðlangan daginn í segulbandinu „ljósin á ströndum skína skær“ sem Þorgeir söng. Jafnvel þótt minningin af sjóferðunum væri ekki sérstök þá bætti hljóm- fögur rödd kappans líðanina verulega og síðan þá hefur rödd hans verið mér kær.“ n „Hans rödd er líka frábær. Svona fullkomin, róandi og um leið mjög þenkjandi rödd sem tekst ítrekað að róa æstan mannskapinn, sem hringir inn til að ræða þjóðfélags- málin, niður.“ n „Útvarpsrödd sem hefur fylgt þjóðinni í mörg ár. Alltaf skemmtilegur og þægilegur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.