Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 6
Vikublað 29.–31. júlí 20146 Fréttir Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 Segir ráðningu ópólitíska Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, vísar ásökunum Gunnars Axels Axels­ sonar, oddvita Samfylkingar­ innar þar í bæ, á bug í samtali við Gaflara á mánudag. Gunn­ ar Axel hefur haldið því fram að ráðning nýs bæjarstjóra hafi ver­ ið pólitísk en ekki fagleg. „Full­ trúi minnihlutans tók fullan þátt í öllum undirbúningi ráðn­ ingarferilsins, m.a. í viðtölum við umsækjendur og gerði engar athugasemdir við feril málsins. Og er því leitt að hann kjósi að láta að því liggja að ekki hafi ver­ ið staðið faglega að verki þegar lokaákvörðun var tekin,“ sagði Rósa í samtali við Gaflara. Þýfið var upp í skuld Lögreglunni í Vestmannaeyjum var tilkynnt um innbrot að morgni síðastliðins miðviku­ dags. Brotist hafði verið inn í íbúð og þaðan stolið fartölvu og lyf­ jum. „Grunur beindist fljótlega að ákveðnum aðila og við húsleit hjá þessum aðila síðdegis daginn eftir fannst tölvan. Viðkomandi kvaðst hins vegar ekki hafa stolið tölvunni heldur hafi hann fengið hana upp í skuld hjá ónefndum manni. Eigandinn var mjög þakk­ látur lögreglu fyrir að hafa endur­ heimt tölvuna,“ segir í tilkynn­ ingu lögreglu vegna málsins. Deilur vegna húss Ólafs í Garðastræti n Ólafur í Samskipum keypti húsið í fyrra n Stækkar og selur íbúðirnar F asteignafélag í eigu Ólafs Ólafssonar í Samskipum á húsið að Garðastræti 21 sem deilur standa nú um vegna hækkunar hússins. Félag Ólafs heitir Festir ehf. og er eigandi nokkurra annarra fasteigna sem tengjast Ólafi. Stærstu eignir félags­ ins eru Suðurlandsbraut 18, sem hýsir skrifstofur nokkurra fyrirtækja í dag, og Krókháls 11 þar sem bif­ reiðaumboðið Askja er til húsa sem og eignir í Kjalarvogi sem tengjast rekstri Samskipa. Fasteignir félagsins voru áður í eigu eignarhaldsfélagsins Festingar ehf. Húsið er ekki í beinni persónulegri eigu Ólafs heldur í eigu félagsins SMT Partners BV í Hollandi, líkt og önn­ ur fyrirtæki sem Ólafur tengist meðal annars Samskip, í gegnum Festi ehf. og eignarhaldsfélagið G­21 ehf. Eignin stækkuð og íbúðir seldar Deilur standa nú yfir vegna hækk­ unar á húsinu í Garðastræti um eina hæð, úr tveimur og upp í þrjár. Fram­ kvæmdir við húsið hófust fyrr í júlí. Einn íbúi við Garðastræti, Páll Rafn­ ar Þorsteinsson, sagði til dæmis við Morgunblaðið í síðustu viku að fram­ kvæmdin hefði ekki verið kynnt fyrir íbúum áður en byggingarleyfið var veitt. Framkvæmdirnar voru hins vegar kynntar á vef Reykjavíkurborgar þann 23. desember í fyrra og var gef­ inn frestur til að gera athugasemdir við þær til 7. febrúar á þessu ári. Til­ kynningin fór hins vegar framhjá íbú­ unum að sögn Páls Rafnars. Páll Rafnar sagði að stækkun hússins myndi rýra verðgildi fast­ eignar sem hann ætti við götuna. „Bygg ing in sem þarna er að rísa kem ur til með að skyggja á út sýnið; ég held að þetta muni rýra verðmæti eign ar sem ég er til tölu lega ný bú inn að kaupa og þannig er þetta per­ sónu lega óþolandi.“ Til stendur að hækka húsið um eina hæð og gera íbúðir í því sem síðan á að selja. Húsið var byggt árið 1927 og stóð þá til að það yrði þrjár hæðir og var veitt byggingarleyfi fyrir þremur hæðum. Einungis tvær hæð­ ir voru hins vegar byggðar. Með fram­ kvæmdunum mun húsið stækka úr 170 fermetrum og upp í ríflega 367 fermetra. Keypt af lífeyrissjóði Festir ehf. keypti húsið í Garðastræti af Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins á 49 milljónir í apríl í fyrra. Þá voru einungis tvær íbúðir í því, önnur á fyrstu hæð en hin á annarri. Nú bæt­ ast við 200 fermetrar á þriðju hæð­ inni og eykst verðmæti hússins því til muna. Festir ehf. seldi húsið svo á 57,5 milljónir til dótturfélags síns, G­21 ehf., í byrjun þessa mánaðar. Samkvæmt ársreikningi Festis fyrir árið 2012 átti félagið ríflega 2,2 milljarða króna eignir í lok þess árs. Félagið skuldaði þá ríflega 1,8 millj­ arða króna. Eignamikill en bíður dóms Ólafur Ólafsson fjárfestir er ennþá eignamikill þrátt fyrir að hafa tapað verulegum eignum í hruninu árið 2008 og eftir það, meðal annars stór­ um hlut í Kaupþingi og um þriðj­ ungshlut í útgerðarfélaginu HB Granda. Ólafur á ennþá skipafélagið Samskip og hluti í ýmsum öðrum fyr­ irtækjum, auk áðurnefnds fasteigna­ félags sem er mjög burðugt. Þrátt fyrir eignirnar bíður Ólafur hins vegar endanlegs dóms í Al Thani­málinu svokallaða en Hæsti­ réttur Íslands á eftir að taka málið fyr­ ir. Í desember í fyrra var hann dæmd­ ur í óskilorðsbundið fangelsi í þrjú ár og sex mánuði fyrir aðild sína að mál­ inu sem snýst um markaðsmisnotk­ un með hlutabréf í Kaupþingi fyrir hrunið 2008. n Bættu við þremur milljörðum Fyrirtæki Heiðars Más og lífeyrissjóðanna sem keypti í HS Veitum F yrirtækið sem fjárfestirinn Heiðar Már Guðjónsson fer fyr­ ir sem keypti ríflega þriðjungs­ hlut í HS Veitum af sveitarfélög­ um á Reykjanesi í febrúar hækkaði hlutafé sitt um rúmlega 3,1 millj­ arð í maí síðastliðnum. Þetta kemur fram í skjali um hlutafjáraukninguna sem aðgengilegt er hjá embætti rík­ isskattstjóra. Heiðar Már er einn af eigendum félagsins, sem nú heitir HSV eignarhaldsfélags slhf., ásamt Tryggingamiðstöðinni og nokkrum lífeyrissjóðum. Kaupin vöktu tals­ verða athygli fyrr á árinu og þá sér­ staklega samstarf Heiðars Más og lífeyrissjóðanna en fjárfestir­ inn er fyrrverandi starfsmaður fjár­ festingarfélag Björgólfs Thors Björg­ ólfssonar, Novator. DV hefur meðal annars greint frá tillögum hans um að fyrirtæki Björgólfs Thors ættu að taka stórfellda stöðutöku gegn ís­ lensku krónunni á árunum fyrir hrunið 2008. Þeir aðilar sem seldu bréfin voru nokkur sveitarfélög á Suðurnesjum og Orkuveita Reykja­ víkur. Í fréttum kom fram að fyrir­ tæki Heiðars Más hefði það að mark­ miði að fjárfesta í fyrirtækjum sem starfa í „grunnþjónustu“ samfélags­ ins og að „hagnast á slíkum kaupum“. Samkeppniseftirlitið taldi ekki þörf á að aðhafast neitt út af fjárfestingu fé­ lagsins í HS Veitum og var gengið frá hlutafjáraukningunni í kjölfarið. n ingi@dv.is Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Deilur um húsið Deilur hafa komið upp vegna stækkunar hússins í Garðastræti um eina hæð. MYND HORDUR SVEINSSON Keypt á 49 milljónir Félag Ólafs Ólafssonar keypti húsið í Garða- stræti á 49 milljónir í fyrra. Verðgildi hússins eykst verulega við stækkunina enda 200 fermetrum bætt við. MYND SIGTRYGGUR ARI „Þannig er þetta per sónu lega óþolandi Hlutafé aukið um þrjá milljarða Hlutafé fyrirtæk- is Heiðars Más Guðjónsssonar og lífeyrissjóðanna var aukið um rúmlega þrjá milljarða króna fyrr á árinu. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.