Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Side 3
Fréttir 3Miðvikudagur 9. október 2013
Starfsmenn endurgreiði laun
n VR fer í hart við Bauhaus en fær ekki lista yfir starfsmenn
F
jölmargir núverandi og fyrrver-
andi starfsmenn Bauhaus hafa
á síðustu vikum fengið kröfu
frá fyrirtækinu um endur-
greiðslu á ofgreiddum launum
en um er að ræða launagreiðslur frá
því í apríl, maí, júní og júlí árið 2012,
eða fyrir rúmu ári. Nokkrir starfs-
mannanna leituðu til stéttarfélags
síns, VR, til að fá úr því skorið hvort
fyrirtækið ætti endurkröfu á þá. Þetta
kemur fram í frétt á vef VR, en þar
er bent á að samkvæmt meginreglu
vinnuréttar beri vinnuveitandi ábyrgð
á greiðslu launa. Það er því ekki hægt
að krefja launþega um endurgreiðslu,
nema að um augljósa villu sé að ræða
við launaútreikning sem hægt er að
leiðrétta strax og varðar verulegar
fjárhæðir.
„Þessi regla, sem hefur verið stað-
fest með dómum, byggir á því megin-
sjónarmiði að laun séu ætluð til fram-
færslu starfsmanns og hann megi
ætla að þær greiðslur sem inntar eru
af hendi séu honum til ráðstöfunar.
Laun móttekin í góðri trú eru því al-
mennt ekki endurkræf,“ segir í til-
kynningu VR.
Þar er það einnig tekið skýrt fram
að afstaða VR sé sú að þessi megin-
regla eigi við hvað þessi mál varðar og
eru mistök við útreikning launanna
því alfarið á ábyrgð Bauhaus.
Að auki hefur VR krafist þess skrif-
lega að Bauhaus falli frá kröfum um
endurgreiðslu launa.
Fyrirtækið hefur hafnað því og lík-
legt verður að telja að útkljá verði í
málum þessum fyrir dómstólum.
Bauhaus hefur að auki neitað að
afhenda VR lista yfir starfsmenn sem
eru félagsmenn í VR og fengu að mati
Bauhaus ofgreidd laun.
VR vildi upplýsa viðkomandi fé-
lagsmenn um stöðuna og benda þeim
á réttindi þeirra að sögn.
„VR vill hvetja starfsmenn Bauhaus
sem hafa fengið kröfu um endur-
greiðslu vegna ofgreiddra launa eða
orðið varir við að dregið hafi verið af
launum þeirra til þess að hafa sam-
band við kjarasvið félagsins,“ segir í
tilkynningu. n astasigrun@dv.is
Halldór og Guðni
skrifuðu undir
n Viðskiptin með höfuðstöðvar Framsóknarflokksins árið 2003
H
alldór Ásgrímsson og
Guðni Ágústsson, sem þá
voru formaður og varafor-
maður Framsóknarflokks-
ins, skrifuðu undir fyrir
hönd flokksins í viðskiptum með
hús á Hverfisgötu 33 í Reykjavík árið
2003. Húsið hýsir skrifstofur Fram-
sóknarflokksins í dag. Undirskriftir
þeirra voru vegna skilmálabreytinga
á lánum sem hvíldu á fasteigninni
sem Ólafur Ólafsson í Samskip-
um hafði afsalað sér til flokksins í
desember 2002. Seljandi hússins
var eignarhaldsfélagið Ker sem var
í eigu Ólafs að stóru leyti og var
móður félag olíufélagsins Esso.
Tæpum mánuði síðar
Tæpum mánuði eftir að eignarhalds-
félag Ólafs afsalaði sér húsinu til
Framsóknarflokksins keypti Ólaf-
ur Búnaðarbankann, ásamt öðrum
fjárfestum, í gegnum S-hópinn. Einn
af kaupendum bankans með Ólafi
var Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
ráðherra Framsóknarflokksins og
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar. Líkt og margoft hefur kom-
ið fram bendir flest til þess að aðilar
tengdir Framsóknarflokknum hafi
fengið að kaupa Búnaðarbankann
gegn því að aðilar tengdir Sjálfstæð-
isflokknum, Björgólfsfeðgar, fengju
að kaupa Landsbanka Íslands.
Þá liggur fyrir að Ólafur
Ólafsson og Halldór Ás-
grímsson höfðu átt í bein-
um símasamskiptum
nokkrum mánuð-
um áður vegna
sölunnar á hlut
Landsbankans í
VÍS, líkt og greint
var frá í umfjöll-
un um einkavæð-
ingu bankanna í
Fréttablaðinu árið
2005. Í því símtali reyndi Ólafur að
koma hlutum þannig við að Halldór
beitti sér fyrir því að Landsbankinn
myndi selja um helming hlutafjár í
VÍS til áðurnefnds S-hóps.
Greitt með yfirtöku skulda
Kaupverðið var greitt með
yfirtöku skulda við Landsbanka Ís-
lands upp á 45 milljónir króna þó
svo að fasteignamat þess hafi verið
talsvert hærra. Þetta kemur fram í
afsali hússins frá 19. desember 2002
sem DV hefur undir höndum.
Í afsalinu var kaupverð hússins
ekki tekið fram en ljóst er að það
var allavega greitt með umræddri
yfirtöku skulda að hluta til. Engum
kaupsamningi var þinglýst vegna
viðskiptanna: Aðeins afsali.
Halldór og Guðni skrifa undir
Ker hafði hafði áður verið skuldar-
inn og greiddi afborganir af lánun-
um en Framsóknarflokkurinn tók
skuldabréfin yfir þegar
flokkurinn eign-
aðist húsið.
Halldór Ás-
grímsson
og Guðni
Ágústsson,
æðstu ráða-
menn flokks-
ins á þessum
tíma, skrif-
uðu undir
skilmála-
breytingu
vegna
lánanna
sem
hvíldu á
húsinu í ágúst 2003, rúmu hálfu ári
eftir sölu íslenska ríkisins á Bún-
aðarbankanum til Ólafs Ólafsson-
ar. Þeir sem stýrðu sölu bankans til
þessara aðila voru meðal annars
fulltrúar ráðherra Framsóknar-
flokksins í ríkisstjórn sem sátu í
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu.
Aðspurður um kaup Fram-
sóknarflokksins á húsinu og undir-
ritun sína á skilamálabreytinguna
segir Guðni Ágústsson að hann viti
ekkert um málið. „Ég veit ekkert um
þetta.“
Yfirtók skuldina
mánuðum eftir kaupin
Þá stytti Framsóknarflokkurinn
í lánunum og ákvað að breyta
fjölda afborgana í sextán í stað nítján.
Svo virðist einnig, út frá skilmála-
breytingunni, að Framsóknarflokk-
urinn hafi ekki formlega yfir tekið
skyldur skuldarans, Kers, sem var
einn af kaupendum Búnaðarbank-
ans, fyrr en meira en átta mánuðum
eftir að afsalinu vegna viðskiptanna
með húsið var þinglýst. Fram-
sóknarflokkurinn hefur því, laga-
lega séð, ekki verið ábyrgur fyrir því
að greiða af húsinu fyrr en eftir að
búið var að skrifa undir umrædda
skilmálabreytingu. Afborganir af
húsinu átti að greiða einu sinni
á ári, í mars, og er ekki hægt að
draga aðra ályktun af skilmála-
breytingunni en að Ker hafi
verið ábyrgt fyrir afborguninni
af húsinu í mars þetta ár, jafn-
vel þó að húsið hefði orðið þing-
lýst eign Framsóknarflokksins í
desember 2002. Tveimur mánuð-
um áður en gjalddaginn var á lán-
inu keypti Ker Búnaðarbank-
ann af íslenska ríkinu ásamt
öðrum fjárfestum. n
„Ég veit
ekkert
um þetta
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skrifuðu undir
Guðni Ágústsson
og Halldór
Ásgrímsson
skrifuðu
undir skil-
málabreytingu
vegna lána
sem hvíldu
á húsinu við
Hverfisgötu
sem Fram-
sóknarflokk-
urinn eignaðist
í lok árs 2002.
Seljandinn var
eignarhalds-
félag Ólafs
Ólafssonar.
Snjórinn
hverfur á
fimmtudag
Það snjóaði á Suðvestur- og Vest-
urlandi á þriðjudag og vöknuðu
borgarbúar til dæmis upp við
talsvert fannfergi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands má búast við
því að allur snjór verði á bak og
burt á fimmtudag, en dregið hafði
talsvert úr honum seinnipart
þriðjudags. Á miðvikudag á að
vera að mestu þurrt.
DV óskaði eftir því að lesend-
ur sendu inn myndir af vetrar-
dýrðinni á netfangið ritstjorn@
dv.is. Fjölmargir tóku við sér og
afraksturinn má sjá á DV.is.
Meðfylgjandi mynd tók
Hrannar Harðarson áhugaljós-
myndari.
Regína til
Arion banka
Regína Bjarnadóttir hefur verið
ráðin sem forstöðumaður grein-
ingardeildar Arion banka. Regína
hefur undanfarin sex ár starfað
sem hagfræðingur á hagfræðisviði
Seðlabankans einkum við grein-
ingu á greiðslujöfnuði og erlendri
skuldastöðu þjóðarbúsins. Árin
2005–2007 starfaði Regína sem
verkefnastjóri hjá Þróunarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna (UNDP)
í Georgetown í
Gvæana. Frá
2001–2005 starf-
aði Regína hjá
CRU Ana-
lysis og CRU
Strategies í
Lundúnum á
Englandi sem
hagfræðiráðgjafi
á álsviði og síðar
sem hagfræði-
sérfræðingur
í orkumál-
um.
Vildi endurgreitt
eftir dópkaup
Lögreglan á Suðurnesjum stöðv-
aði fíkniefnaviðskipti sem voru
í gangi á salerni veitingastaðar í
umdæminu um síðastliðna helgi.
Þegar lögreglumenn bar að voru
tveir menn þar fyrir og hélt annar
þeirra á glærum poka. Í tilkynn-
ingu lögreglunnar segir að sá er
hélt á pokanum hafi tekið sprett
að salerni staðarins er hann sá
lögregluna. Líklega vildi hann losa
sig við fíkniefnin.
Hinn maðurinn kvaðst hafa
verið að kaupa „stöff“ af poka-
manninum. Þeir heimiluðu báðir
leit á sér og fannst ekkert saknæmt
á þeim fyrrnefnda, en hass á þeim
síðarnefnda. Meðan lögreglu-
menn voru við störf á vettvangi
margbað kaupandinn þá um að
láta sig hafa fimm þúsund krón-
ur sem hann hefði verið búinn að
greiða pokamanninum fyrir „stöff-
ið“ þegar lögregla setti viðskipt-
in í uppnám. Peningurinn var á
endanum haldlagður og fíkni-
efnasalinn handtekinn.
Vilja endurgreiðslu
VR telur ábyrgðina liggja
hjá fyrirtækinu, ekki
starfsmönnum.