Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Side 10
10 Fréttir 9. október 2013 Miðvikudagur
Særingarathöfn endaði með ósköpum
n „Þegar hann er andsetinn heldur þú særingarathöfn“
F
rönsk táningsstúlka sem ætt-
ingjar og vinir töldu að væri
andsetin sætti viku langri
særingarathöfn og var nær
dauða en lífi þegar henni var bjarg-
að. Þrír karlmenn og ein kona hafa
verið ákærð fyrir frelsissviptingu og
pyntingar. Einn mannanna er fyrr-
verandi kærasti stúlkunnar, Eric
Deron.
Þau eru sögð hafa haldið henni í
blokkaríbúð í Grigny-hverfinu í Par-
ís. Fólkið mun meðal annars hafa
hengt stúlkuna upp á kross og látið
hana hanga í sjö daga. Þau töldu sig
vera að hjálpa stúlkunni við að losa
sig við illa anda. Stúlkan var ítrek-
að beitt frekara ofbeldi og það eina
sem hún fékk að borða voru litlir
skammtar af matarolíu og vatni.
Það er kærasti hennar sem er
talinn vera forsprakki hópsins.
Hann mun hafa talið móður sinni
og tveimur öðrum mönnum trú um
að konan væri andsetin og þyrfti á
aðstoð þeirra að halda. Sannan-
ir fólust einna helst í því að stúlk-
an væri uppstökk, skapvond og ætti
það til að ráðast á Deron og garga á
hann.
Hann kvaðst hafa gert þetta í
góðri trú – þetta hefði verið það eina
sem gæti bjargað stúlkunni.
Deron og stúlkan voru afar
ástfangin. Þau voru bæði mjög trú-
uð og deildi hópurinn allur ster-
kri trúartengingu. Þau segjast sak-
laus, enda hafi stúlkan samþykkt
særingarathöfnina. „Í þeirra huga
var hún andsetin, ekki veik. Þess
vegna hringdu þau ekki á lækni,“
segir verjandi ákærðu. „Þú hringir
á lækni þegar einhver er veikur, en
þegar hann er andsetinn heldur þú
særingarathöfn.“ n
astasigrun@dv.is
Móðir Baby P
sleppt úr haldi
Skilorðsnefnd í Bretlandi hefur
fallist á beiðni Tracey Conn-
elly um reynslulausn. Tracey er
móðir Baby P, drengs sem lést
árið 2007 í kjölfar mikilla bar-
smíða af hálfu kærasta Tracey.
Hún var dæmd í ótímabundið
fangelsi árið 2009 og var gert að
afplána að minnsta kosti fimm
ár bak við lás og slá. Var hún
sakfelld fyrir að hafa látið of-
beldið viðgangast og að koma
barni sínu ekki til bjargar. Að
sögn breska ríkisútvarpsins,
BBC, verður henni að öllum lík-
indum sleppt úr fangelsi á allra
næstu dögum.
Sakaðir um að
þjálfa barnunga
hermenn
Yfirvöld í Afríkuríkinu Rúanda
neita því staðfastlega að her-
inn þar í landi þjálfi börn til
hernaðar fyrir uppreisnarmenn
í Kongó. „Þessi fullyrðing á ekki
við nein rök að styðjast og er al-
gjörlega fáránleg,“ segir Louise
Mushikiwabo, utanríkisráð-
herra Rúanda, í samtali við BBC.
Bandarísk yfirvöld hættu fyrir
skemmstu að veita yfirvöldum í
Rúanda hernaðaraðstoð, vegna
tengsla yfirvalda þar í landi við
uppreisnarsamtökin M23 í Kongó
og hefur verið fullyrt að börn frá
Kongó séu þjálfuð í Rúanda eða
af hermönnum frá Rúanda.
Skelfingu lostin
Stúlkan var vannærð
og illa haldin eftir
vikulangar pyntingar.
Bóluefni
við malaríu
Breski lyfjarisinn GlaxoSmith-
Kline hefur sótt um markaðs-
leyfi fyrir bóluefni gegn malaríu
– það fyrsta sinnar tegund-
ar. Prófanir á lyfinu hafa gefið
góða raun og vonast forsvars-
menn breska lyfjafyrirtækisins
til að það geti komið á markað
árið 2015. Malaría er smitsjúk-
dómur sem einkum herjar á
fólk í hitabeltislöndum eins og
í Afríku. Sjúkdómurinn berst
á milli manna einkum með
moskítóflugum. Hundruð þús-
unda láta lífið á hverju ári af
völdum sjúkdómsins.
Flughræddur
drengur dáleiddur
n 12 ára drengur var fastur í útlöndum n Þróaði með sér ofsahræðslu
B
reskur 12 ára táningur, sem
var fastur í Abú Dabí vegna
ofsafenginnar flughræðslu,
lenti á Bretlandseyjum á
mánudag. Drengurinn var að
lokum dáleiddur um borð í flugvél til
að hann gæti flogið á milli landanna.
Joe Thompson flutti með fjöl-
skyldu sinni til Abú Dabí í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum
árið 2009, þegar faðir hans fékk vinnu
sem gæðastjóri á sjúkrahúsi þar. Lífið
lék við fjölskylduna, ef svo má segja,
þar til í mars í fyrra. Þá fór Joe að þróa
með sér alvarlega hræðslu við að
ferðast. Þegar samningur föður hans
við sjúkrahúsið rann út, núna í júní,
var flughræðslan orðin slík að Joe gat
ekki flogið heim með fjölskyldunni.
Faðir hans, Tony, varð eftir hjá hon-
um og reyndi vikum og mánuðum
saman að fá drenginn til þess að tak-
ast á við vanda sinn og fljúga heim.
Pantaði flug fjórum sinnum
Í fjögur skipti pantaði Tony flugmiða
fyrir son sinn en þegar á hólminn var
komið bugaðist drengurinn, brotn-
aði saman og upplifði ofsahræðslu.
En Tony dó ekki ráðalaus. Hann
reyndi til að mynda að semja við
yfir völd um að fá að koma drengn-
um um borð í flutningaskip. Yfirvöld
voru ekki á því og tönnluðust á því
að drengurinn þyrfti að hafa vega-
bréfsáritun til þess sem ekki væri
hægt að útvega honum.
Fjölskyldan segir í samtali við
Daily Mail að hún hafi þurft að eyða
um 40 þúsund pundum, tæplega
átta milljónum króna, í flugmiða
og hinar ýmsu meðferðir hjá lækn-
um og sálfræðingum til að reyna
að koma drengnum heim. En allt
kom fyrir ekki. Síðasta ráðið sem
Tony greip til var að setja sig í sam-
band við Russel Hemmings, þekkt-
an dáleiðanda.
„Ótrúlega ánægður“
Honum tókst, núna rúmlega hálfu
öðru ári eftir að Joe hóf að þróa með
sér þessa hræðslu, að sannfæra
drenginn um að stíga um borð í flug-
vél. Þegar vélin var nýfarin í loftið
fékk Joe fyrirvaralaust hræðslu kast
og allt virtist ætla að fara á versta
veg – enn eina ferðina. Þá greip dá-
valdurinn inn í og flugferðin varð
allt að því ánægjuleg, eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd.
Fjölskyldan er auðvitað alsæl
með að drengurinn, sem hefur misst
af heilu ári í skóla, sé kominn heim
á nýjan leik. „Ég er ótrúlega ánægð-
ur að vera kominn. Ég trúi því varla
hvað það er kalt hérna,“ hefur Daily
Mail eftir Joe þegar hann lenti á He-
athrow-flugvellinum. „Nú langar
mig að komast heim og knúsa hund-
inn minn. Ég hef ekki séð hann í tvö
ár.“ Hann bætti við að hann væri
ótrúlega þakklátur foreldrum sín-
um fyrir þolinmæðina og dávaldin-
um fyrir hans framlag. „Ég get ekki
beðið eftir því að komast heim og
halda áfram með líf mitt.“
„Hræðslan er mjög svæsin“
Kostnaðurinn við þetta litla ævintýri
hefur gengið nærri fjölskyldunni
fjárhagslega og undir það síðasta
þurftu þeir feðgar að leita á náð-
ir kunningja hvað húsnæði áhrærði
– enda eru átta milljónir ekki eitt-
hvað sem venjuleg fjölskylda hristir
fram úr erminni. Tony er alsæll með
að ferðin sé loksins afstaðin. „Það
komu erfiðar stundir í aðdraganda
flugsins en með hjálp Russel tókst
okkur að koma honum um borð í
vélina. Eftir flugtak varð hann mjög
hræddur, fyrirvaralaust, og þetta leit
ekki vel út. Hræðslan er mjög svæs-
in,“ er haft eftir föðurnum. n
Í aðdraganda hrunsins
Drengurinn hefur í hálft annað
ár glímt við óstjórnlega hræðslu
við að fljúga og ferðast.
Dáleiddur Eftir að dávaldurinn greip inn í
var ferðin hin ánægjulegasta – eða svo til.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Nú langar mig
að komast
heim og knúsa
hundinn minn