Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Side 15
Sport 15Miðvikudagur 9. október 2013
í góðri leikæfingu
n Níu af ellefu leikmönnum byrjunarliðsmenn í sínum félagsliðum
N
íu leikmenn sem voru í byrj-
unarliði íslenska lands-
liðsins gegn Albaníu í
byrjun september eru fasta-
menn í liðum sinna félags-
liða. Aðeins Eiður Smári Guðjohn-
sen hefur ekki verið í byrjunarliði
síns liðs frá síðasta landsleik, auk
þess sem Birkir Bjarnason hefur ekki
spilað heilan leik fyrir sitt nýja lið,
Sampdoria á Ítalíu.
Ísland mætir Kýpur í afar mikil-
vægum leik á Laugardalsvelli á föstu-
daginn. Á þriðjudag leikur liðið svo
við Noreg í leik sem gæti ráðið úr-
slitum um það hvort liðið hafnar í
öðru sæti riðilsins í undakeppni HM
í Brasilíu og tryggir sér þannig sæti í
umspili við annað lið um þátttöku-
rétt.
Varnarlínan í góðri leikæfingu
Þeir leikmenn sem voru í byrjun-
arliði Lars Lagerbäck í síðasta leik
ættu flestir að vera í toppformi. DV
hefur tekið saman hvernig byrjun-
arliðsleikmönnunum hefur geng-
ið á þeim mánuði sem liðinn er frá
leiknum við Albaníu. Markvörður-
inn Hannes Halldórsson og þeir leik-
menn sem skipa varnarlínuna hafa
allir spilað mikið á þessum mánuði
og ættu að vera í fyrsta flokks leikæf-
ingu. Ragnar Sigurðsson fékk rautt
spjald í fyrsta leiknum eftir Al-
baníuleikinn, með FC København,
og kom þess vegna ekki í sögu í
tveimur næstu leikjum liðsins. Hann
hefur þó spilað tvo heila leiki síðan.
Bikir Már Sævarsson, Kári Árnason
og Ari Freyr Skúlason hafa allir spil-
að mikið með sínum liðum undan-
farinn mánuð.
Birkir að koma sér fyrir
Svipaða sögu er að segja af miðjunni,
ef Birkir Bjarnason er frátalinn, en
hann er að koma sér fyrir hjá nýju
liði á Ítalíu. Birkir hefur byrjað tvo
leiki en verið skipt út af í hálfleik í
þeim báðum. Lars Lagerbäck lands-
liðsþjálfari sagði á blaðamannafundi
á föstudag að hann hefði ekki áhyggj-
ur af Birki. Veikindi hefðu verið að
plaga hann í byrjun en að hann væri
Hvað segja strákarnir um leikina framundan?
Við vitum að við töpuðum fyrir Kýpur úti og það verður ekkert auðvelt
að mæta þeim.
Þetta er kannski staða
sem við höfum ekki verið
í áður. Við settum þessa
pressu á okkur sjálfir með því
að komast í þessa stöðu og við
ætlum ekkert að gefa það eftir.
Áður fyrr vorum við að fylla völlinn með
þessum stjörnum sem voru að koma hingað að
spila, eins og Christiano Ronaldo og fleirum.
Núna er völlurinn fullur vegna þeirrar stöðu
sem við höfum komið okkur í. Það er bara flott
og maður finnur fyrir stuðningi Íslendinga. Það
eru allir spenntir, bæði áhorfendur og við. Við
hlökkum til að takast á við þetta.“
Aron Einar Gunnarsson – miðjumaður og fyrirliði
Mér líst mjög vel á þetta. Við töpuðum
auðvitað fyrir þeim
úti og stefnum á að
gera betur en það.
Ég geri engar kröf-
ur. Ég held að þjálfarinn sé
bara eins og allir aðrir þjálfarar; velur bara
sitt besta lið. Það á að vera erfitt fyrir hann
að velja liðið. Það eru margir leikmenn að
standa sig vel, svo þetta er hans hausverkur.“
Alfreð Finnbogason – sóknarmaður
Ef fyrri leikurinn hefur einhver áhrif þá eru það bara góð áhrif. Við ætlum að sýna að sá leikur var algjör mistök.
Þessi leikur er mikilvægari núna en sá
næsti. Ef við vinnum
þennan leik þá
höldum við
öðru sætinu.
Þannig að við
erum bara fók-
useraðir á þenn-
an leik núna. Flest-
ir okkar eru búnir að
vera í þessu það lengi að
þeir hugsa ekki um marga leiki fram í tím-
ann. Ég er mjög bjartsýnn.“
Ragnar Sigurðsson – varnarmaður
Það er frábært að vera kominn í lands-liðið. Ég er búinn að horfa á alla leikina og fékk smjörþefinn af þessu í æfingar-
leiknum gegn Rússum á sínum tíma. Það er
gaman að fá kallið núna, þá veit maður að
maður er að gera eitt-
hvað rétt. Því að spila
fyrir landsliðið fylgir
ákveðið stolt, sem
mér finnst mjög
mikilvægt. Ég býst
ekki endilega við að
spila en er fyrst og
fremst ánægður með að
vera kominn í hópinn.
Mér líst vel á þessi verkefni sem
framundan eru. Þetta er mikilvægur tími.
Það þýðir ekkert að vanmeta Kýpur þó úr-
slitin hafi verið góð undanfarið.
Ef við gerum það sem þjálfarinn leggur
upp með þá held ég að við náum í þrjú stig á
föstudaginn.
Guðlaugur Victor Pálsson – miðjumaður
n DV ræddi við landsliðsmenn í Fífunni
Hannes Halldórsson
n Hannes hefur varið mark Íslands alla
undankeppnina. Hann ætti að vera í fínni
leikæfingu því hann hefur spilað fjóra leiki
frá 10. september. Gengið hefur verið upp
og ofan. Hannes hélt hreinu í Ólafsvík, fékk
á sig eitt mark gegn Fylki, þrjú mörk gegn
Breiðablik og loks eitt mark gegn Fram í
lokaumferð Pepsi-deildarinnar.
Birkir Már Sævarsson
n Birkir Már hefur verið fastamaður í liði
sínu Brann í efstu deild í Noregi. Liðinu
hefur þó gengið afleitlega undanfarið og
aðeins unnið tvo af síðustu tólf leikjum.
Liðið tapaði síðast um helgina 1–0 fyrir
Haugesund. Birkir hefur spilað fjóra leiki
(tvo tapleiki og tvo jafnteflisleiki) frá síð-
asta landsleik og er því í fínni leikæfingu.
Kári Árnason
n Kári er lykilmaður í liði sínu Rotherham
United í þriðju efstu deild í Englandi. Liðið
er í sjötta sæti deildarinnar og hefur unnið
þrjá af síðustu fimm leikjum. Í þeim hafa
Kári og félagar fengið á sig fjögur mörk.
Kári hefur spilað alla leikina nema einn á
tímabilinu og er því í fínni leikæfingu.
Ragnar Sigurðsson
n Ragnari og félögum í FC København hefur
ekki gengið sem skyldi í sumar og haust.
Liðið er með 13 stig úr ellefu leikjum og er
um miðja deild, sem þykir ekki merkilegt á
þeim bænum. Ragnar spilar í vörninni með
reynsluboltanum Olof Mellberg. Hann var
rekinn af velli í fyrsta leiknum eftir síðasta
landsleikjahlé (á 78. mínútu) og var ekki með
í næstu tveimur leikjum. Hann spilaði hins
vegar í 2–1 sigri á SönderjyskE um helgina
sem og í meistaradeildinni gegn Real Madrid
á dögunum. Ragnar hefur því leikið tvo heila
leiki, næstum þrjá, frá síðasta landsleik.
Ari Freyr Skúlason
n Ari Freyr gekk í raðir OB í Danmörku í lok
júlí og hefur verið fastamaður í byrjun-
arliðinu undanfarið. Liðið vann góðan sigur
á Esbjerg í síðustu umferð en gengið hefur
verið upp og ofan. Liðið er í sjötta sæti af
tólf liðum í dönsku Superligunni. Ari er í
fínni leikæfingu.
Jóhann Berg Guðmundsson
n Jóhann hefur staðið sig vel á tímabilinu
og komið við sögu í öllum leikjum liðs síns,
AZ Alkmaar í Hollandi. Liðið hefur átt fína
spretti og er um miðja deild og er einnig í
baráttu í Evrópudeildinni. Af þessum sex
leikjum sem AZ hefur spilað frá síðasta
landsleik Íslands hefur Aron hafið leik í
tveimur. Í öllum hinum hefur hann komið
inn á sem varamaður, yfirleitt á 70. mínútu
eða þar um bil. Hann skoraði eina mark liðs
síns í 2–1 tapi um helgina.
Aron Einar Gunnarsson
n Aron Einar er fastamaður í byrjunarliði
Cardiff í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur
spilað fjóra heila leiki frá síðasta landsleik
og er því væntanlega í toppformi. Cardiff
hefur tapað fyrir Newcastle og naumlega
fyrir Tottenham en unnið Fulham og gert
jafntefli við Hull City.
Gylfi Þór Sigurðsson
n Gylfi hefur verið frábær á tímabilinu fyrir
lið sitt í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði
bæði mörk Tottenham í fyrsta leiknum eftir
síðasta landsleik og svo eina mark síns liðs
í jafntefli gegn Chelsea. Gylfi Þór er fasta-
maður í byrjunarliðinu í deildinni en hefur
verið hvíldur í Evrópuleikjum gegn lakari
liðum. Gylfi Þór, sem spilað hefur fjóra heila
leiki frá síðasta landsleik, ætti að vera í
toppformi og fullur sjálfstrausts.
Birkir Bjarnason
n Birkir skipti um félag og gekk í raðir
Sampdoria í byrjun september. Síðan þá
hefur hann spilað tvo heila hálfleiki og auk
þess að hafa komið inn á sem varamaður
í þriðja leiknum. Um helgina spilaði hann
ekkert gegn AC Milan. Lagerbäck sagði fyrir
helgi að hann hefði engar áhyggjur af Birki.
Veikindi hefðu sett strik í reikninginn hjá
honum.
Kolbeinn Sigþórsson
n Ajax hefur spilað sjö leiki frá síðasta
landsleikjahléi. Kolbeinn hefur spilað síð-
ustu fimm leiki og skorað í einum þeirra, tvö
mörk. Óhætt er að segja að Kolbeinn hafi
glímt við sterka andstæðinga á þessum
mánuði því hann hefur mætt Barcelona,
PSV og AC Milan. Gegn Barcelona misnot-
aði hann vítaspyrnu. Kolbeinn ætti að vera
í toppformi.
Eiður Smári Guðjohnsen
n Þessi reynslumikli knattspyrnumaður
hefur verið úti í kuldanum hjá Club Brugge
í haust. Hann hefur aðeins komið við sögu
í einum leik af þeim fimm sem liðið hefur
spilað frá síðasta landsleikjahléi. Í þeim leik
spilaði Eiður Smári 13 mínútur. Hann er ekki
í leikformi en hefur sannað í landsleikjun-
um í undankeppninni að hann getur spilað
vel þrátt fyrir það.
Byrjunarliðið frá því í síðasta leik
orðinn góður.
Eini veiki hlekkurinn úr byrjun-
arliði síðasta leiks, þegar horft er til
spilatíma byrjunarliðsmanna, er Eið-
ur Smári Guðjohnsen. Hann hefur
bara komið við sögu sem varamaður
í einum leik fyrir Club Brugge, jafnvel
þó liðið hafi nýlega skipt um þjálfara.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig
byrjunarliðsmönnum Íslands frá því
úr síðasta leik hefur reitt af á þeim
mánuði sem liðinn er frá sigrinum
góða gegn Albaníu.
Ekki er víst að Lars, sem hefur
loksins úr öllum sínum leikmönn-
um að moða, velji sama byrjunarlið
og síðast. Leikmenn sem eru líkleg-
ir til að koma inn í liðið eru helst Al-
freð Finnbogason og jafnvel Rúrik
Gíslason, sem Lars hefur haft mikið
dálæti á frá því hann tók við liðinu.
Alfreð hefur farið á kostum í hol-
lensku deildinni og er þar marka-
hæstur. Rúrik hefur verið í byrjun-
arliði København í síðustu leikjum
og meðal annars att kappi við Real
Madrid. Hann ætti því að vera klár í
slaginn. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Skorar gegn Chelsea Gylfi Þór Sigurðsson
hefur verið sjóðheitur undanfarið með liði sínu.
Byrjunarliðsmenn