Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Qupperneq 16
16 Lífsstíll 9. október 2013 Miðvikudagur
Vasahnífur í hulstrinu
n Tekur tæknina skrefinu lengra
Þ
að er hægt að gera nánast
allt með snjallsíma sínum
en hver hefur ekki óskað
þess að síminn væri gædd-
ur enn meiri tæknibrellum. Nú
er komið á markaðinn iPhone-
hulstur, In1 Case, sem tekur tækn-
ina skrefinu lengra og ætti því að
kæta tæknisjúka.
Þetta þunna hulstur sem pass-
ar fyrir iPhone 5 er komið í versl-
anir en það inniheldur verkfæri
sem hægt er að nota í daglegu lífi.
Hulstrið minnir þannig á gamla
góða vasahnífinn eða Swiss Army
Knife með sínum mörgu tólum og
verkfærum. Þau eru þó ekki í sömu
hlutföllum og eru í vasahnífnum og
eru staðsett þannig að þau koma út
um sérstök hólf á baki hulstursins.
Verkfærin eru ágætlega gagnleg
en í hulstrinu má finna tvær
tegundir skrúfjárna, lítil skæri og
tvo penna, annan svartan og hinn
bláan. Einnig eru ónauðsynlegri
verkfæri eins og tannstönglar og
naglaþjöl. Það er hins vegar enginn
hnífur en ef litið er á björtu hliðarn-
ar hvað það varðar þá kemst eig-
andinn með þetta hulstur í gegnum
öryggishlið á flugvöllum.
Hulstur þetta kostar um það
bil 55 dollara á netinu og fæst í
nokkrum litum. Eins er hægt að
fá það glært en þannig sjást öll
skemmtilegu verkfærin. n
gunnhildur@dv.is
Í
byrjun ársins fékk Cody Wil-
son, 25 ára gamall háskólanemi
í Bandaríkjunum, þá hugmynd
að kaupa sér prentara. Það
væri varla í frásögur færandi,
enda seljast prentarar í tugþús-
undatali hvern einasta dag ársins,
nema fyrir þá staðreynd að tveim-
ur mánuðum síðar var Wilson
orðinn þekktur um heim allan.
Prentarinn var tiltölulega einfald-
ur 900 þúsund króna þrívíddar-
prentari og Wilson notaði tækið til
að smíða skammbyssu sem raun-
verulega var hægt að skjóta með.
Prentari næsta æðið
Flestir muna eflaust eftir frétt-
um af smíði Wilson enda komst
uppátæki hans í heimsfréttirn-
ar og var sennilega fyrsta skipt-
ið sem fólk sem ekki lifir og hrær-
ist í tækniheimi fékk vitneskju um
hvað hægt er að gera með þrí-
víddarprentara og það þegar slík-
ir prentarar eru glænýir á mark-
aði. Í kjölfarið kom upp tvenns
konar umræða; hvað þessi magn-
aða tækni gæti breytt lífi margra
og hitt að tæknin myndi gagnast
misindismönnum afar vel og það
bæri að varast.
Tæknin ekki stöðvuð
En eins og sagan segir okkur verða
tækniframfarir ekki stöðvaðar
heldur þvert á móti. Á því hálfa
ári eða svo sem liðið er frá byssu-
smíði Wilson hafa orðið verulegar
framfarir í gerð þrívíddarprentara
og vestanhafs gera menn sér vonir
um að á þessu ári aukist sala í slík-
um prenturum um tæp 50 prósent.
Í því tilliti er vert að hafa í huga
að þó hægt sé að kaupa afar ein-
falda þrívíddarprentara nú, niður í
hundruð þúsund króna, þá er verð
á öflugri tækjunum margar millj-
ónir króna. Tæknin á enn eftir að
ryðja sér til rúms að ráði en þegar
eru vísindamenn við Harvard að
kanna kosti þess að framleiða fjór-
víddarprentara sem svo eru kall-
aðir. Slíkir prentarar gætu í fram-
tíðinni prentað hluti sem taka
breytingum með tíð og tíma.
Sprenging framundan
Í síðustu viku tilkynnti Geim-
vísindastofnun Bandaríkjanna,
NASA, að um borð í næstu geim-
ferju sem send yrði út í geim yrði
þrívíddarprentari ef ske kynni að
geimfarana „vantaði“ eitthvað. Í
sömu viku tilkynntu tveir fram-
leiðendur slíkra tækja að á mark-
aðinn væri að koma næsta kynslóð
þrívíddarprentara fyrir heimili og
smærri fyrirtæki. Þeir verða full-
komnari en verið hefur, minni að
umfangi og léttari svo þá verður
hægt að taka með sér ef svo ber
undir en þrívíddarprentarar þykja
of þungir og klunnalegir til að það
sé fýsilegt í dag. Og verðið hríð-
fellur því báðir aðilar, Lumifold og
Makerbot, hyggjast framleiða tæki
sem seljast á undir þúsund dollur-
um stykkið eða um 120 þúsund
krónur íslenskar.
Jólagjöfin 2015?
Gangi það eftir er stutt þangað til
það verður á allra færi að kaupa
þrívíddarprentara. Fræðingar
segja margir víst að næsta sölu-
sprengja í raftækjum verði á þrí-
víddarprenturum enda ólíkt
mörgum öðrum raftækjum eru
notin sem hafa má af slíkum tækj-
um mun meiri en venjan er. Með
réttum teikningum er bókstaflega
hægt að prenta nánast alla hluti
sem fólk kærir sig um eða þarf á
að halda. Þeir hugmyndaríkari
geta sjálfir hannað nánast hvað
sem er og prentað út til athugun-
ar. Möguleikarnir eru óþrjótandi
að sögn þeirra sem til þekkja og
aðeins takmarkaðir af stærð hvers
prentara fyrir sig. Nógu öflugur
þrívíddarprentari gæti í dag auð-
veldlega ráðið við að framleiða
heilt einbýlishús í einingaformi
svo dæmi sé tekið. En líklega mun
fólk byrja á einhverju einfaldara;
eins og nýjum garðstólum í sum-
arhúsið. n
Næsta sprengja í
þrívíddarprenturum
n Öflugir þrívíddarprentarar fyrir heimili á markað fljótlega
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Skúlptúrar Brjóstmyndir af borgarstjór-
um Reykjavíkur í stofuna? Ekki vandamálið.
Lampar í miklu
úrvali Allt hann-
að og framleitt í
þrívíddarprentur-
um af belgísku
fyrirtæki með
tækni sem hver og
einn kemst í.
Karlar bölva,
konur tala
um verslun
Karlar bölva og konur tala um
verslun. Gróflega þannig er tal
fólks á vef Facebook samkvæmt
ítarlegustu rannsókn sem gerð
hefur verið á umræðuefnum á
þeim vef en mikill munur mælist
þar milli kynja á umræðuefnum
sem fá fólk til að deila og tjá sig.
Rannsóknin sú er birt í heild sinni
í tímaritinu Popular Science og
segja skýrsluhöfundar niður-
stöðurnar vekja spurningar um
hjarðhegðun fólks. Það sýnir sig
nefnilega að við erum öll meira og
minna að tala um sömu hlutina
með sömu formerkjum. Karlmenn
fárast yfir mörgu sín á milli með-
an aðalumræðuefni kvenfólks er
verslun af hvaða tagi sem er.
Explorer-vafrinn
á uppleið
Tugmiljarða króna tilraunir
Microsoft til að endurvekja vin-
sældir netvafra síns, Internet Ex-
plorer, virðast skila árangri því
eftir margra ára kreppu er vafrinn
sá loks að ná sér á strik að nýju.
Ráðgjafarfyrirtækið Net Appli-
cations sem mælir nákvæmlega
vafranotkun á veraldarvefnum
á heimsvísu skýrði frá því um
helgina að í fyrsta skipti í langan
tíma hefði notkun á Explorer-
vafranum aukist en allar gerðir
þess vafra eru notaðar í tæplega
58 prósentum tilfella af hálfu
tölvunotenda. Það er langtum
hærra hlutfall en aðrir geta stát-
að af. Meira að segja hinn vinsæli
vafri Google Chrome, mælist að-
eins með 12,8 prósent og þar rétt
á eftir hinn þekkti Firefox-vafri
með 11,6 prósenta hlutdeild.
In1-hulstur Í
hulstrinu má finna
ýmis verkfæri og tól.
Límmiði passar
gagnamagns-
notkun
Ef þú ert í hópi þeirra sem ferð-
ast mikið þá veistu hvað það get-
ur verið erfitt að láta símann virka
um allan heim án þess að fara á
hausinn við það. Nýtt tæki hefur
verið sett á markaðinn sem getur
hjálpað þér við það. KnowRoam-
ing er límmiði sem vinnur með
iOS eða Android. Það eina sem
þú þarft að gera er að setja hann
framan á SIM-kortið þitt og hann
sér um afganginn, svo sem að loka
fyrir gagnaflutning. Meðfylgjandi
smáforrit gerir þér kleift að fylgj-
ast með notkun þinni og þannig
koma í veg fyrir að fá himinháa
reikninga þegar heim er komið.