Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Side 22
D
avid Beckham bætist á
dögunum í langa röð þeirra
sem heiðra hugrekki korn-
ungu baráttustúlkunnar
Malölu Yousafzai.
Beckham færði Malölu verðlaun
dagblaðsins the Daily Mirror fyrir hug-
rekki sem hún hefur sýnt eftir að tali-
banar reyndu að ráða hana af dögum í
október á síðasta ári.
David sagði Malölu hafa haft áhrif
á milljónir manna. „Það eru forréttindi
að fá að afhenda þér þessi verðlaun,“
sagði David við Malölu og hneigði sig
fyrir henni.
Í brennidepli
Malala er í brennidepli í Bretlandi
þessa dagana en sjálfsævisaga hennar
er nýkomin út þar í landi. Þar lýsir hún
ógnarstjórn íslamista.
Malala var færð til Bretlands eftir
drápstilraunina til aðhlynningar og
þar hefur hún dvalið síðan og stund-
að nám.
Nýlega var tilkynnt að hún komi
til greina sem handhafi Nóbelsverð-
launanna. Fái hún verðlaunin síðar
í vikunni verður það fyrir kjarkmikla
mannréttindabaráttu gegn harðstjórn
íslamista. Sjálf hefur hún sagt að frið-
arverðlaunin yrðu mikill stuðningur
við baráttuna fyrir því að tryggja öll-
um börnum, stúlkum sem drengjum,
menntun
Malölu hafa borist ófáar hótanirn-
ar frá talibönum eftir að hún komst til
heilsu og sverja þeir að drepa hana fyrir
að gagnrýna íslam. Nú í vikunni barst
henni enn ein morðhótunin frá þeim
og reyna þeir árangurslaust að þagga
niður í þessari kraftmiklu stúlku og
segjast munu nota hvert tækifæri sem
þeir fá til þess að taka hana af lífi.
Saga af hugrekki
Þrátt fyrir þetta gefst hún ekki upp og
hefur aldrei gert. Saga hennar er saga
af hugrekki. Malala varð heimsþekkt
þegar hún hélt úti dagbók á netinu.
Í henni gagnrýndi hún talibana sem
tekið höfðu völdin í heimabæ hennar
í Swat-dalnum í Norðvestur-Pakistan.
Talibanar bönnuðu stúlkum að ganga
í skóla en Malala barðist gegn því og
heimurinn fylgdist með. Hún var skotin
í höfuðið þegar hún steig út úr skólabíl
og skaddaðist alvarlega á höfði. Hún
hefur náð sér að mestu eftir umfangs-
miklar aðgerðir á höfði. n
22 Fólk 9. október 2013 Miðvikudagur
Philip Chevron látinn
Í
rski gítarleikarinn Philip
Chevron, úr hljómsveitinni
The Pogues, lést síðastliðinn
þriðjudag aðeins 56 ára að
aldri. Philip hafði glímt við þrálátt
krabbamein í hnakka og höfði frá
árinu 2007 samkvæmt tilkynningu
frá hljómsveitinni The Pogues á
heimasíðu þeirra.
Eftir að hafa gengist undir
meðferð var Chevron búinn að ná
talsverðum bata og aðeins ári síð-
ar hélt hann í tónleikaferðalag um
Bandaríkin og náði síðar fullum
bata árið 2009. Mörgum var því
brugðið við að heyra að krabba-
meinið hafði skotið aftur rótum
í maí á þessu ári og var ljóst frá
upphafi að meinið myndi draga
Chevron til dauða.
Hann lét þann þunga dóm þó
ekki aftra sér frá ástríðu sinni og
kom síðast fram opinberlega á
Olympia Theatre í Dyflinni á Ír-
landi í ágúst síðastliðnum. Tón-
leikarnir voru óhefðbundnir að því
leytinu til að þeir voru honum sjálf-
um til heiðurs þar sem hann vissi
að hann ætti stutt eftir. Fjölmargir
þekktir írskir tónlistarmenn tóku
þátt með því að fara með gömul lög
Chevron, meðal annars frá árum
pönksins en Chevron á heiðurinn
af því að hafa stofnað fyrstu pönk-
hljómsveitina á Írlandi sem hét
The Radiators From Space. Ch-
evron varð síðar meðlimur hljóm-
sveitarinnar The Pogues eftir að
fyrsta plata þeirra, Red Roses for
Me, kom út. n
svala@dv.is
n Vinsæl í Bretlandi n Tilnefnd til Nóbelsverðlauna n Góð fyrirmynd
n Hélt eigin minningartónleika fyrr á árinu
Umdeildir friðar
verðlaunahafar
1 Yasser Arafat Hlaut friðar-verðlaun Nóbels ásamt þáverandi
utanríkisráðherra Ísraels Shimon Peres og
forsætisráðherra Yitzhak Rabin fyrir starf
í þágu friðar í Mið-Austurlöndum en þeir
undirrituðu Óslóarsáttmálann á sínum
tíma. Kare Kristiansen, norskur fulltrúi í
tilnefningarnefnd friðarverðlaunanna,
sagði af sér í mótmælaskyni þar sem
hann kallaði Arafat hryðjuverkamann.
2 Wangari Maathai
Fékk verðlaunin árið
2004 vegna eflingu á
sjálfbærni, lýðræði og
friði í heimalandi sínu,
Kenía. Gleðin varði þó
stutt þar sem Wangari var sökuð um að
hafa haldið því fram að HIV og eyðni væri
sprottin úr tilraunastofum vestrænna
vísindamanna til að stemma stigu við
mannsfjölda í Afríku. Hún neitaði þó að
hafa viðhaft þessi ummæli en staðfesti
þó að hún teldi veiruna ekki koma upp-
haflega frá apadýrum.
3 Al Gore Fyrrverandi forseta-frambjóðandi Bandaríkjanna lagði
sitt af mörkum í að vekja athygli á hlýnun
jarðar. Hann vann friðar-
verðlaunin á hápunkti
góðærisins árið
2007 en síðar hefur
verið umdeilt hvort
afrekið eigi heima
innan þess ramma
sem almennt er talið að
friðarverðlaunin lúti.
4 Henry Kissinger Fyrrverandi ritari utanríkisráðuneytisins
vann verðlaunin 1973 eftir að hafa ritað
undir friðarsáttmála í París gegn Norður-
Víetnam. Stríðinu lauk
hins vegar ekki fyrr en
tveimur árum seinna
eða árið 1975 og telja
margir að Kissinger
hafi tekið forskot á
sæluna með því að taka
á móti friðarverðlaununum á sínum tíma.
5 Barack Obama Ófáir hafa gagnrýnt stríðsréttlætingar
Obama Bandaríkjaforseta
eftir að hann veitti frið-
arverðlaunum Nóbels
viðtöku árið 2009.
Rökstuðningurinn
fyrir afhendingunni
var að Obama hugðist
beita sér fyrir heftingu á
útbreiðslu kjarnorkuvopna í heiminum.
Heiðruð fyrir hugrekki
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is 10 góðar ástæður
fyrir því að Malala er góð fyrirmynd
1 Hún er sterk „Þeir héldu að byssukúla myndi þagga niður
í mér, en þeim mistókst,“ sagði hún.
„Ekkert breyttist, nema þetta: ótti og líf
án vonar dó. Í staðinn fæddist styrkur,
von og hugrekki.“
2 Hún fyrirgefur „Ég hata ekki einu sinni talibanann sem skaut
mig. Jafnvel þótt það væri byssa í hendi
minni og hann stæði fyrir framan mig,
ég myndi ekki skjóta hann. Þetta er
samkenndin sem Múhammeð spámaður
miskunnar, Jesús og Búdda kenndu mér,“
sagði hún.
3 Hún er auðmjúk „Munið eitt: Dagur Malölu er ekki minn. Í dag
er dagur allra kvenna, stúlkna og stráka
sem hafa brýnt rödd sína í þágu mann-
réttinda,“ sagði hún.
4 Hún talar fyrir þá minnstu „Ég tala ekki fyrir mig sjálfa, hefur
fyrir þá sem hafa ekki rödd.“
5 Hún er ákveðin „Við munum halda áfram ferðalagi okkar á
áfangastað friðar og menntunar. Enginn
getur stöðvað okkur.“
6 Hún hefur aukið meðvitund „Mæður og kennarar um
heim allan segja börnum og nemendum
frá Malölu,“ sagði Angelina Jolie og sagði
hana hvetja börn og foreldra til að taka
þátt í baráttunni fyrir menntun stúlkna
um allan heim.
7 Hún er ógn„Talibanastjórnin hefur sagt Malölu
vera alvarlega ógn. Þeir hafa rétt fyrir sér,“
sagði Hillary Clinton.
8 Hún hefur veitt öðrum innblástur „Barátta hennar
fyrir réttindum allra barna til menntunar
hefur veitt öðru baráttufólki styrk,“ sagði
Sarah Brown, eiginkona Gordons Brown.
9 Hún er tákn vonar og hugrekkis „Malala er táknmynd
hugrekkis og vonar í augum milljóna
barna um allan heim, sérstaklega ungra
stúlkna sem njóta ekki mannréttinda og
virðingar,“ sagði Ban Ki-Moon.
10 Hún breytir „Að koma öllum stúlkum og drengjum í skóla fyrir
2015 er raunhæft markmið. Það er aðeins
óraunhæft ef fólk segir það óraunhæft.
Malala segir að það sé hægt, þá trúa því
allir,“ sagði Gordon Brown, fyrrverandi
forsætisráðherra Breta.
Hugrekki David
heiðrar Malölu en
nýverið var gefin
út ævisaga hennar
í Bretlandi.
Fyrirmynd Það eru
óteljandi ástæður fyrir
því að Malala er góð
fyrirmynd. Í þessari
grein eru taldar upp 10.
topp 5
Philip Chevron
Greindist með ban-
vænt krabbamein í
hnakka og höfði í maí á
þessu ári.
Skrautlegur
á Balí
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, var litríkur á
dögunum á Efnhagsráðstefnu
Asíu-Kyrrahafssambandsins
(APEC) á Bali á mánudag. John
klæddist fjólublárri „endek“-
skyrtu sem var saumuð sam-
kvæmt balískri hefð og hreint út
sagt virtist hann hafa farið langt
út fyrir þægindarammann af svip-
brigðum hans að dæma.