Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2013, Síða 8
Vikublað 3.–5. desember 20138 Fréttir
Teitur Atlason
ritstjorn@dv.is
S
tórhýsið Höfðatorg á horni
Borgartúns og Katrínartúns
er hæsta bygging
Reykjavíkur. Húsið er 20
hæða og í því eru fjórar lyftur
sem koma starfsmönnum í því hratt
og örugglega á áfangastað. Óhætt er
að segja að Höfðatorg sé ein glæsi-
legasta bygging landsins enda hafa
mörg stöndug fyrirtæki komið sér
fyrir í Höfðatorgi. Fyrirtæki á borð við
Samherja, Artica Finance og fjöldinn
allur af virðulegum lögmannstofum.
Opinberar stofnanir á borð við Fjár-
málaeftirlitið, Seðlabanka Íslands,
Reiknistofu bankanna eru í húsinu.
Reykjavíkurborg leigir stóran hluta
hússins undir stofnanir sínar. Þar
með talið Skipulags- og byggingar-
svið.
Bílum lagt úti um allt
Yfirbragð Höfðatorgs einkennist af
röð og reglu. En það á ekki við um
tveggja hæða bílakjallarann sem er
undir húsinu. Þar ríkir lögmál frum-
skógarins. Blaðamaður DV átti er-
indi í Höfðatorg í vikunni og fékk sér
göngutúr í bílakjallara flottustu skrif-
stofubyggingar í Reykjavík. Í stuttu
máli ríkir frumskógarlögmál þarna
niðri og ótrúlegt að sjá það sem fyrir
augu bar. Bílum er lagt á gangbrautir
og í stæði merkt fötluðum. Bílum er
líka lagt á sérstök svæði fyrir reiðhjól.
Mesta athygli vekur þó að bílum er
lagt í akveginum og skiptir þá engu
hvort um er að ræða meðfram beinni
braut eða beinlínis á horni þar sem
tvær akbrautir mætast. Bílum er líka
lagt á rampi sem tengir saman fyrstu
og aðra hæð bílakjallarans.
Breytist í bavíana
Blaðamaður hitti fyrir starfsmann í
húsinu sem var í reykpásu í kjallar-
anum og spurði hann út í stöðuna
í bílastæðamálum í húsinu. „Fólk
breytist í bavíana hérna niðri. Ég á
ekki bíl sjálfur og þekki ekki þessa
stemningu en fólk er að tala um þetta
í húsinu.“ Þetta ófremdarástand er
svolítið sérkennilegt því starfsmenn
byggingarfulltrúans í Reykjavík nota
þetta bílastæði en sú stofn-
un hefur einmitt að gera
með reglugerðir um bíla-
stæði, brunavarnir og fleira.
Rýmingarhætta
segir slökkviliðið
Ekki þarf að hafa mörg orð
um hættuna sem fylgir því
að bifreiðum sé lagt í ak-
veginum. DV sendi þessar
myndir til slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins til um-
sagnar. Ólafur R. Magnús-
son hjá forvarnarsviði
segir ástandið greinilega
vera alvarlegt en slökkviliðið geti
lítið aðhafst nema þegar lagt er fyrir
útgönguleiðir sem nota þarf ef rýma
þarf bygginguna. „Það er mjög alvar-
legt og ef slík staða kemur upp og við
myndum koma inn í svoleiðis stöðu
með afgerandi hætti.“ Ólafur segir
enn fremur að þessi bygging sé með
fullkomnu úðakerfi sem væri ekki
hannað eftir fjölda bílastæða, held-
ur með það í huga að fara í gang á
vissum svæðum. Bílakjallarinn í
Höfðatorgi er gríðarstór og á tveim-
ur hæðum. „Það er auðvitað mjög
einkennilegt að leggja bílum á ramp-
inum sem tengir hæðirnar saman
en við myndum aldrei senda björg-
unartæki þarna niður,“ segir Ólafur.
„Öðru máli gegnir um sjúkrabíla til
dæmis ef einhver fær hjartaáfall eða
slasast alvarlega.“ Ólafur bendir á
að byggingin sé í eigu einkaaðila og
þeir stýri ferðinni í þessu málum þótt
auðvitað gildi umferðarreglur þarna
eins og annars staðar. „Það er mjög
skrýtið að eigendur byggingarinnar
bregðist ekki við svona stöðubrotum.
Í bílastæðahúsinu í Hörpu eru háar
sektir við því að leggja ólöglega.“
Húsvörður langþreyttur
Albert Ómar Guðbrandsson, um-
sjónarmaður fasteigna við
Höfðatorg, þekkir ástandið
vel. „Það eru of margir bílar
að fara þarna inn og ef fólk
finnur ekki stæði þá leggur það
bara þar sem því dettur í hug.“ Al-
bert segir að hann hafi oft kvartað
yfir þessu og jafnvel látið draga bíla
í burtu. „Það er auðvitað ekkert
gaman að standa í svoleiðis því
við vinnum í sama húsinu. Ég er
settur í frekar erfiða stöðu. Ég skal
alveg viðurkenna það.“ Um það bil
1.500 manns vinna í húsunum við
Höfðatorg og bílastæðin eru um sex
hundruð en samkvæmt upphaf-
legum teikningum áttu húsin að
vera fleiri og bílastæðin tvö þúsund.
Albert segir að þegar hætt hafi verið
við upphaflegar teikningar hafi
grundvöllurinn fyrir þessu ástandi
verið mótaður.
Lausn í sjónmáli
„Það er ýmislegt sem telur inn í
þetta. Ég veit að eigendur og aðrir
eru allir af vilja gerðir að leysa þetta
en það er svolítið erfitt að breyta
bílastæðamenningu Íslendinga.
Þetta er spurning um tillitssemi okk-
ar við hvert annað. Það er eins og
vanti stundum upp á í þeim efnum,“
segir Albert. En sér hann einhverja
leið til að laga þetta ástand? „Það er
verið að vinna í þeim málum. Það
er verið að setja upp hlið sem lok-
ast þegar kjallarinn er fullur. Þá leys-
ist þetta sjálfkrafa en þangað til það
gerist er því miður mjög erfitt að
eiga við þetta. Fólk hlustar ekki.“ n
„Fólk breytist í
bavíana hérna niðri“
n Frumskógarlögmál í kjallara glæsibyggingar n Húsvörðurinn er langþreyttur
„
Fólk
hlustar
ekki
Höfðatorg Slétt og fellt á
yfirborðinu en kaós í kjallaranum.„Myndum
aldrei senda
björgunartæki
þarna niður.
m
y
n
d
iR
T
ei
Tu
R
A
TL
A
s
o
n