Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2013, Page 27
Vikublað 3.–5. desember 2013 Lífsstíll 27
Ósvikinn og barnslegur húmor
Davíð Gunnlaugsson og þingkonan Vigdís
Hauksdóttir hljóta nokkur stig álitsgjafa.
Í rökstuðningi skemur fram að bæði kitli
hláturstaugarnar, þótt stundum viti álits-
gjafar ekki hvort þeir eigi að hlæja eða gráta.„Sigmundur er alltaf fyndinn, þó hann
ætli oftast alls ekki að vera það. Hvort
sem litið er til talsmáta, umræðuefnis eða
skófatnaðar klikkar það ekki að Mundi kitlar
hláturstaugarnar.“„Þó hún Vigdís Hauksdóttir sé eflaust
ekki meðvituð um djókið sem vellur úr
henni þá er hún ein fyndnasta manneskja
landsins. Allt sem hún lætur út úr sér er grín.
Maður veit reyndar oftast ekki hvort maður
á að hlæja eða gráta.“ n
ingosig@dv.is,
kristjana@dv.is
Álitsgjafar:
n Kristín Ýr Bjarnadóttir
- rappari og knattspyrnukona
n Hersir Aron Ólafsson
- blaðamaður hjá Monitor
n Tómas Þór Þórðarson
- blaðamaður hjá Morgunblaðinu
og útvarpsmaður
n Sigurður Eggertsson
- menntaskólakennari og fyrr-
verandi handknattleiksmaður
n Rut Hermannsdóttir
– kvikmyndagerðarkona og
verslunareigandi
n Kidda Svarfdal
- nemi og blaðamaður
n Hildur Sverrisdóttir
- borgarfulltrúi og lögfræðingur
n Kristín Ýr Gunnarsdóttir
– blaðamaður og kvikmynda-
gerðarkona
Niðurstaða:
n Pétur Jóhann: 15 stig
n Jón Gnarr: 14 stig
n Ari Eldjárn: 9 stig
n Hugleikur Dagsson og Laddi: 7 stig
n Edda Björgvinsdóttir, Halldór
Högurður og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson: 5 stig
n Berglind Festival, Ilmur Kristjáns-
dóttir og Vigdís Hauksdóttir: 4 stig
Þessir voru nefndir líka:
n Steindi Jr.
n Helga Braga
n Dagur Gnarr Jónsson
n Arnmundur Backman
n Björn Bragi Jónsson
n Saga Garðarsdóttir
n Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
n Atli Fannar Bjarkason
n Andri Freyr
n Gestur Einar Jónasson
n Björk Eiðsdóttir
n Snorri Ásmundsson
n Konráð Jónsson
n Hjalti Pálmason
n Gunnar Björn Guðmundsson
Helga Braga„Fyndn-
asta
kona Evrópu!
Gyða Sól er
besti karakter
íslenskrar
grínsögu að mínu
mati.“„Það er bara nóg að horfa
á hana til að fara að
hlægja.“
Bergur Ebbi Benediktsson„Lögfræðingurinn
ágæti er klárlega
vanmetnasti húmoristi
landsins. Kraftmikil fram-
saga hans er einstök. Með
afbrigðum gáfaður maður
líka sem hjálpar til.“
Steindi Jr.„Gaurinn sem segir brandarana sem
maður segir sjálf-
ur í vinahópnum.
Frábær grínari
og hæfileika-
ríkur grínpenni
sem á eftir að
vera á skjáum
okkar um aldir
alda.“
Saga Garðarsdóttir„Fyndin og beitt
í sömu
mund. Getur ver-
ið mjög fyndin
án þess að
detta í ofleik
og ærslalæti.
Svo er hún
ennþá fyndnari í
eigin persónu.“
Andri Freyr „Og það magnaða með Andra Frey er
að hann nær alltaf að vera
fyndinn gjörsamlega
á brúninni en
fer aldrei yfir
brúnina.“„Andri
Freyr er
bara gleðigjafi
minn númer
eitt tvö og þrjú á
morgnana, þótt ég sé í
Ósló, New York eða í flugvél með interneti,
þá missi ég ekki af Virkum morgnum.“
Gestur Einar„Mun aldrei
gera
Tab-drykkju
að neinu
öðru en
nauðsyn-
legu eftir
stórleikinn
sem Goggi í
Stellu í orlofi, það
er fáránlegt að maður-
inn skuli ekki vera fremstur í flokki fyndna
liðsins í bíó og sjónvarpi á Íslandi í dag.“
Halldór Högurður „Er snillingur í að
setja í samhengi
ólíka hluti í íslensku
samfélagi til að varpa
kaldhæðnu ljósi á
það.“
Konráð Jónsson„Er fyndnasti lögmaður landsins.
Hlutir eins og límmiðaslagurinn við
bílaþvottastöðina eru óborganlegir og á
heimasíðunni hans má finna snilld eins og:
Svíi opnast. „Jag har alltid älskat andra
män.“ Svíi lokast.“
Bergsteinn Sigurðsson„Er meistari í greindarlegri mein-
hæðni.“
Lóa Hjálmtýsdóttir„Hún er bara fyndin, hún getur ekkert
að því gert, það er besikklí erfitt að
taka hana alvarlega stundum, af því hún
er svo viðbjóðslega fyndin.“
Dagur Kári Gnarr Jónsson„Hann er nýhættur kaþólsku
prestsnámi, er sonur fyndnasta
borgarstjóra í heimi og er í sambandi með
mesta ræðuskörungi Íslands. Auk þess býr
hann yfir gríðarlegum persónutöfrum og
er fyndinn algjörlega áreynslulaust. Þjóðin
mun sjá meira af þessum.“
Arnmundur Ernst Backman„Virkilega efnileg-
ur ungur leik-
ari sem kom fram
á sjónarsviðið
nýlega. Hann
sýnir stórleik
í Jeppa á Fjalli
og ætti að koma
jafnvel örgustu
fýlupúkum til þess
að skella upp úr.“
Björn Bragi Arnarson„Björn Bragi gleður hvar sem hann
kemur og stendur sig
með prýði í uppi-
standshóp Mið-
Íslands. Auk
þess er hann
ómótstæðilega
myndarlegur.“
Hjalti Pálmason„Frá þessum rólega og yfirvegaða
manni stendur óvænt buna af
vönduðu djóki allan daginn.“
Björk Eiðsdóttir „Ætti að
koma
á laggirnar
uppistandi.
Hún er uppfull
af stílfærðum
skemmtisögum.“
Atli Fannar
Bjarkason „ Drengur sem
gaman er að
fylgjast með
á facebook.
Statusar hans
gleðja og
kæta.“
Gunnar Björn Guðmundsson „Gunnar Björn
Guðmundsson,
(leikstjóri ára-
mótaskaupsins 2009-
2012) Getur breytt
leiðinlegustu sögum í
frábæra skemmtun.“
Fyndin þingkona
Vigdís Hauksdóttir þykir
ein fyndasta manneskja
landsins.
Á toppnum
Pétur Jóhann fékk flest stig
álitsgjafa. Hann heillar með
einlægni og barnslegum
húmor.
Bein útsending
frá TEDWOmen
Fimmtudaginn 5. desember
klukkan 18.30 mun TEDxReykja-
vík í samstarfi við Bíó Paradís
bjóða upp á beina útsendingu frá
TEDWomen-ráðstefnunni sem
haldin er í San Francisco. Þetta
er þriðja árið í röð sem TED-
Women-ráðstefnan er haldin og
er áherslan í ár á uppfinningar;
allt frá nýjustu tækniframförum
yfir í hvernig finna má nýjar leið-
ir til að uppræta fátækt. Meðal
fyrir lesara verða Sheryl Sand-
berg, COO hjá Facebook og höf-
undur bókarinnar Lean In.
TEDWomen er hluti af TED,
samtökum sem hafa það að
markmiði að færa saman helstu
hugsuði okkar tíma og breiða út
nýjar hugmyndir sem geta breytt
heiminum, enda er slagorð sam-
takanna „Ideas Worth Spreading“.
TEDx-ráðstefnur (x-ið stendur
fyrir sjálfstætt skipulagðar ráð-
stefnur) eru haldnar úti um allan
heim og verður hin íslenska
TEDxReykjavík haldin í þriðja
sinn í maí á næsta ári.
Vinsælasta
áfengi heims
Vinsælasta áfengi heims er ekki
vodka, viskí eða gin eins og
margir myndu giska á. Það er
suðurkóreskur göróttur drykkur,
sem kallast Soju.
Vinsældir drykkjarins eru
gífur legar í Kóreu og þar er andlit
hans kóreska súperstjarnan Psy,
sem segir drykkinn sinn besta
vin.
Nú hafa vinsældirnar breiðst
um allan heim, Soju er seldur í
80 löndum og er þrisvar sinnum
vinsælli en Smirnoff. Soju-skot
og soju-kokkteilar eru vinsælir á
börum í New York og London.