Fréttablaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 30. janúar 2015 | SKOÐUN | 15 Málið var ein stærsta ráðgáta breskrar kvikmyndasögu. Gat verið að í lok síðari heimsstyrj- aldarinnar hafi Alfred Hitch- cock leikstýrt heimildarmynd um hryllinginn sem átti sér stað í útrýmingarbúðum nasista? Gat verið að bresk stjórnvöld hafi bannað sýningu hennar? Ekkert spurðist til „týndu Hitchcock-myndarinnar“ í meira en þrjá áratugi. Við upphaf níunda áratugar síðustu aldar tóku hins vegar að birtast loðnar fyrirsagn- ir í blöðum: „Hryllingsmyndin sem Hitchcock hafði ekki taugar í að horfa á“; „Það sem Hitchcock sá, myndaði – og faldi“. Sidney Bernstein, stofnandi eins stærsta framleiðslufyrir- tækis sjónvarpsþátta í Bretlandi, hafði starfað hjá breska upplýs- ingamálaráðuneytinu á tímum styrjaldarinnar og stundað þar kvikmyndagerð. Áður en Bern- stein lést staðfesti hann tilvist myndarinnar. Hann greindi frá því að þeir Alfred Hitchcock hefðu unnið að henni í sameiningu en skyndilega hefði þeim verið gert að hætta. En hvers vegna? Beinagrindur með lífsmarki Þegar hermenn bandamanna héldu innreið sína inn á þýsk yfir- ráðasvæði í lok heimsstyrjaldar- innar blasti við þeim fordæmalaus hryllingur útrýmingarbúðanna. Kvikmyndadeild breska hers- ins var með í för þegar fangar búðanna í Bergen-Belsen voru frelsaðir 15. apríl 1945. Mynda- vélarnar fönguðu óhugnaðinn; 60.000 fangar, 13.000 lík sem lágu eins og hráviði um búðirnar. „Það var engin leið að sjá muninn á lif- andi og dauðum nema þegar ein- staka skjálfti lék um eða andvarp barst frá beinagrind sem var með lífsmarki en var of veikburða til að hreyfa sig,“ sagði Richard Dimble by, einn fyrstu blaðamann- anna sem mættu á svæðið. Sidney Bernstein hélt til búð- anna viku eftir að þær voru frels- aðar. Hann óskaði eftir því við bresk og bandarísk yfirvöld að fá að gera kvikmynd byggða á upp- tökum hermannanna. Myndin átti að vera víti til varnaðar. Sýna átti hana Þjóðverjum sem margir vissu ekki af hroðaverkum sem framin voru í nafni þeirra. Beiðn- in var samþykkt og var verkefnið skilgreint sem „aðkallandi“. Bern- stein fékk Hitchcock með sér í lið. Þann 4. ágúst 1945 barst Bern- stein bréf frá utanríkisráðuneyt- inu. Mynd félaganna þótti ekki lengur samrýmast þeirri hug- myndafræði sem lá til grund- vallar uppbyggingu í Þýskalandi. Ekki þótti við hæfi að gagnrýna, núa þeim ósigrinum um nasir. „Stefna okkar er sú að hvetja Þjóðverja áfram, örva þá og vekja þá af sinnuleysi sínu.“ Tekið var fyrir mynd Bernsteins og Hitch- cocks. Minningin um voðaverk Nú, sjötíu árum síðar, kemur „týnda Hitchcock-myndin“ fyrir almenningssjónir í fyrsta sinn. Sérfræðingar hjá Stríðssögu- safninu í London luku nýverið við myndina og studdust við áætl- anir Bernsteins og Hitchcocks við verkið. Voru brot úr myndinni frumsýnd víða um heim síðast- liðinn þriðjudag þegar þess var minnst að 70 ár eru liðin síðan hersveitir Rauða hersins frels- uðu fanga útrýmingarbúðanna í Auschwitz. Af sama tilefni komu saman um þrjú hundruð eftirlifendur Hel- fararinnar í Auschwitz. Ein af áhrifaríkari uppákomum minn- ingardagskrárinnar var ræða eins eftirlifandans, Romans Kent. Við verðum að læra þær lexíur sem sagan kennir okkur, var inntak orða Kents. Hann hvatti leiðtoga heimsins til þess að halda á lofti minningunni um þau voðaverk sem framin voru í Auschwitz. „Við sem eftir lifum viljum ekki að fortíð okkar verði að framtíð barnanna okkar.“ Sú pólitíska ákvörðun Breta og Bandaríkjamanna um að skrúfa fyrir mynd Bernsteins og Hitch- cocks þykir nú orka tvímælis. Það var ekki fyrr en bandaríski sjónvarpsmyndaflokkurinn Hel- förin var sýndur í Vestur-Þýska- landi árið 1979 sem margir Þjóð- verjar gerðu sér grein fyrir hve umfangsmikil illvirki Þriðja ríkis Hitlers voru. Gagnrýndu gagnrýnina Söguleg gleymska getur verið hættuleg. Minnug voðaverka for- tíðar notaði Angela Merkel, kansl- ari Þýskalands, áramótaávarp sitt fyrr í mánuðinum til að gagnrýna hægrisinnaðar hreyfingar sem mótmæla stefnu þýskra yfirvalda í málefnum innflytjenda. Hún sakaði þá sem stæðu fyrir slíkum fundum um fordóma, kulda og hatur. Hér á Íslandi hefur hins vegar kveðið nokkuð við annan tón. Í áramóta- og nýársávörpum töldu sumir helstu ráðamanna okkar við hæfi að gagnrýna gagnrýnina í þjóðfélaginu. Slíkur boðskapur er ekki fjarri afstöðu Breta og Bandaríkjamanna sem ákváðu að sannleikurinn um Helförina væri best gleymdur og grafinn er þeir stoppuðu kvikmynd Bernsteins og Hitchcocks um voðaverkin í útrýmingarbúðum nasista. En eins og Roman Kent brýndi fyrir umheiminum í vikunni er slíkt ávísun á að drungaleg fortíð verði framtíð barnanna okkar. Til að minnast fórnarlamba eins stórtækasta voðaverks mann- skepnunnar væri við hæfi að hunsa á þessum tímamótum óskir íslenskra leiðtoga og fara heldur að ráðum Romans Kent. Hann hvatti til að sett yrði ellefta boð- orðið og yrði það svo hljóðandi: „Þú skalt ekki vera aðgerðalaus sjónarvottur.“ Þeir sem ekki gagnrýna eru ekkert annað en aðgerðalausir sjónarvottar. Það sem Hitchcock sá, myndaði – og faldi Í DAG Sif Sigmarsdóttir rithöfundur Nú, sjötíu árum síðar, kemur „týnda Hitchcock-myndin“ fyrir al- menningssjónir í fyrsta sinn. Sérfræðingar hjá Stríðssögu- safninu í London luku nýverið við myndina og studdust við áætlanir Bernsteins og Hitchcocks við verkið. Tilboðin gilda 30. jan - 1. feb 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. Kræsingar & kostakjör GOÐI ÞORRABAKKI lítill 1.749 kr/pk NETTÓ LAMBATITTLINGAR súrir 1.347 kr/kg FJALLALAMB SVIÐ 494 kr/kg |-10%| 549 www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | VERKUÐ Á GAMLA MÁTANN NÓG TIL! Christiansen og gjaldmiðlamálin Danski hag- fræðingurinn Lars Christiansen er ekki ýkja þekktur í heimalandi sínu, en hér á Íslandi er hann eins og rokk- stjarna. Hann er það sem Danir kalla slagfærdig. Christiansen spáði fyrir um íslenska bankahrunið, álit hans birtist í íslenskum fjölmiðlum og þá urðu íslenskir banka- og stjórnmálamenn æfir yfir þess- ari fásinnu. Christiansen var á athyglis- verðum fundi í Reykjavík í gær og eins og endranær er hann óhræddur í greiningum sínum. Eitt er það sem maður staldrar við. Greinandinn segir að til álita komi fyrir Íslend- inga að taka upp gjaldmiðla Noregs eða Kanada, meðal annars vegna þess að íslenska hagkerfið sé líkara því sem þar er. Vandinn er samt sá að Norð- menn hafa engan áhuga á að leyfa Íslendingum að taka upp norska krónu– þeim finnst það fáránleg hugmynd– en Kanada- menn fara kurteislega undan í flæmingi þegar minnst er á að Íslendingar noti Kanadadollar. Bæði Noregur og Kanada eru olíuríki sem eiga hag sinn undir því að verð á olíu sé sem hæst. Nú hefur það lækkað og efnahagshorfur eru ekki jafn- góðar og áður. Fyrir Íslendinga er hins vegar best að olíuverð sé sem lægst. http://eyjan.pressan.is Egill Helgason AF NETINU 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E C -1 C 4 8 1 7 E C -1 B 0 C 1 7 E C -1 9 D 0 1 7 E C -1 8 9 4 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.