Fréttablaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 2
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Hvað er eitt ár milli kvenna? „Mér líður best á milli kvenna.“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, ritstjóri Kvennablaðsins, telur að 100 ára kosninga- rétti kvenna sé fagnað ári of snemma. SPURNING DAGSINS Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 67 0 77 Allt að 20.000 kr. bókunarafsláttur á mann.Síðasti dagur bókunarafslátts í dag! Bókaðu ferð og staðfestu inn an 5 daga. Sumar 2015 FJARÐABYGGÐ Bóndi á bænum Kirkjubóli í Norðfirði er afar ósáttur með það hvernig staðið var að smalamennsku í sunnanverðum Mjóafirði í nóvember í fyrra. Sjö kindur, af þeim átta sem átti að sækja, voru skotnar á færi. „Mér þykir mjög dapurt að fjallskilastjóri hafi farið af stað án þess að ræða við okkur,“ segir Ólafía Sigrún Einarsdóttir, bóndi á Kirkjubóli. Samkvæmt gangnaseðli Fjarða- byggðar stóð til að smala sunnan- verðan Mjóafjörð, frá Nípu að Súlu við Reyki, 18. október síðastliðinn. Myndi sveitarfélagið leggja til fimm menn en ábúendur á Kirkju- bóli einn. Þegar gangnadagur rann upp var veður slíkt að ekki þótti tækt að standa í fjárrekstri og það sama var uppi á teningnum daginn eftir. Var smalamennsku frestað um óákveðinn tíma. Þann 3. nóvember lagði Sig- urður Baldursson, fjallskilastjóri Fjarðabyggðar og bóndi á Sléttu í Reyðar firði, af stað í verkið við þriðja mann. Kindurnar, sumar hverjar útigengnar, hlupu í sjálf- heldu og mat hann þann kost væn- legastan að skjóta féð á færi. Einn lambhrútur náðist lifandi. „Hún telur sig hafa átt kindurn- ar en vegna aðstæðna þá var ekki hægt að markskoða hræin,“ segir Sigurður Baldursson fjallskila- stjóri. Kindurnar hafi hlaupið í björg og hann hafi aðeins átt þann kost að skjóta þær á færi. Þau hafi náð ómörkuðum lambhrút lifandi og getað markskoðað móður hans. Honum var skilað til Ólafíu. „Það lék aldrei neinn vafi á því hvaðan þessar kindur væru. Við áttum þær allar,“ segir Ólafía. Hún kveður hræ kinda hafa rekið á fjörur og að þau hafi borið henn- ar mark. Henni fróðari menn telji einnig að hvergi sé sjálfheldu að finna á svæðinu. Ólafía sendi bæjarráði Fjarða- byggðar bréf í lok nóvember og setti út á framkvæmd smala- mennskunnar. Hún fór þess á leit að ábúendum á Kirkjubóli yrði bætt tjónið. Bæjarráð svaraði bréfinu þann 12. janúar en í millitíðinni hafði verið leitað umsagnar Matvæla- stofnunar. Þar er gagnrýnt að svæðið hafi ekki verið smalað á tilskildum tíma og að það hafi ekki verið smalað undanfarin ár. Niður staðan er þó sú að úr því sem komið var hafi Sigurði verið nauð- ugur einn kostur að farga fénu. „Það sem mér sárnar mest er ekki tjónið heldur aðförin að kind- unum. Það er mín tilfinning að ekki hafi staðið til að ná þeim á lífi,“ segir Ólafía. johannoli@frettabladid.is Fjallkóngurinn skaut féð sem átti að smala Sjö kindur voru skotnar á færi í Mjóafirði í fyrra eftir að þær hlupu í björg. Bóndi í Norðfirði telur sig eiganda kindanna og segir framkvæmd verksins hafa verið ábótavant. Fjallskilastjóri segir aðstæður ekki hafa boðið upp á markskoðun. Það sem mér sárnar mest er ekki tjónið heldur aðförin að kindunum. Ólafía Sigrún Einarsdóttir, bóndi á Kirkjubóli FJALLKÓNGUR Sigurður Baldursson ásamt hluta hópsins í Mjóafirði. M YN D /ÞU RÍÐ U R LILLÝ SIG U RÐ ARD Ó TTIR KLYFJAHESTUR Eldur beið úti á meðan myndin var sýnd og fékk að gæða sér á örlitlu poppkorni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR MENNING Í gær var kvikmyndin Reimt á Kili sýnd í fyrsta skipti í Reykjavík. Á meðan á sýningu stóð var hesturinn Eldur fyrir utan Bíó Paradís. Honum var ekki hleypt inn þar sem hann gat skemmt gólfið. Sigurður Ingólfsson, leikstjóri myndarinnar, segir hana vera stutta, leikna heimildarmynd. Umfjöllunarefnið er för Reynistaðabræðra norður í land en líkt og alkunna er náðu þeir ekki alla leið. Myndin verður sýnd aftur á morgun, laugardaginn 31. janúar. - jóe Heimildarmynd um för Reynistaðabræðra í Bíói Paradís: Hesturinn fékk ekki að fara inn ATVINNULÍF Félag kvenna í atvinnu- lífinu afhenti í gær árlegar viður- kenningar. FKA-viðurkenninguna 2015 hlaut Guðbjörg Magnea Matthíasdótt- ir, einn aðaleigandi Ísfélags Vest- mannaeyja. Eiginmaður Guðbjarg- ar féll frá á árinu 2000. Tveimur mánuðum síðar brann nýtt frysti- hús Ísfélagsins. „Þetta var einn af fjölmennustu vinnustöðunum í Vestmannaeyj- um og ekki annað í boði en að taka við kyndlinum og reka fyrirtækið áfram,“ er haft eftir Guðbjörgu í til- kynningu frá FKA. Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut María Rúnarsdóttir, einn stofnenda Mint Solutions. „Þegar kom fram á unglingsár var hún staðráðin í að stofna sitt eigið fyrir- tæki bara um leið og henni dytti eitthvað „sniðugt“ í hug,“ segir um Maríu í tilkynningunni. Árið 2010 Félag kvenna í atvinnulífinu veitti þremur konum viðurkenningar í gær: Heiðraðar fyrir árangur í starfi HEIÐRAÐAR Guðbjörg Matth- íasdóttir, Guðný Guðjónsdóttir og María Rúnars- dóttir tóku við viðurkenningum sínum í Hörpu. MYND/FKA stofnaði hún ásamt Ívari Helga- syni, eiginmanni sínum, og Gauta Reynis syni fyrirtækið Mint Sol- utions og hófust þau handa um þróun lyfjagreinis. „Við ætlum okkur að sigra heiminn, einn bita í einu,“ segir María. Þakkarviðurkenninguna hlaut síðan Guðný Guðjónsdóttir, eigandi Mokkakaffis. „Það er ekki bara Félag kvenna í atvinnulífinu sem stendur í þakkarskuld við Guð- nýju Guðjónsdóttur. Nafn hennar og fyrirtæki er samofið íslenskri menningu; á sér öruggan stað í hjarta listamanna landsins sem og listunnenda, sælkera, stúdenta og hvers kyns spekúlanta,“ segir FKA um Maríu, sem stofnaði Mokka- kaffi fyrir 57 árum ásamt Guð- mundi Baldvinssyni, eiginmanni sínum. - gar REYKJAVÍK Reykjavíkurborg og Ríkisútvarpið hafa náð samkomu- lagi um að borgin leigi hluta af húsnæði RÚV að Efstaleiti 1. Það sem um ræðir er hluti af anddyrishæðinni auk tveggja hæða þar fyrir ofan. Húsnæðið mun koma til með að hýsa þjón- ustumiðstöð Laugardals og Háa- leitis sem hefur verið í Síðumúla. Leigusamningurinn er til 15 ára með mögulegri framlengingu til fimm ára. Leigan nemur 4.900.000 krónum á mánuði. Fermetrafjöld- inn er tæplega 1.900 í sérrýmum auk 700 í sameiginlegum. - jóe Borgin fær hluta Efstaleitis 1: Reykjavík leigir í Útvarpshúsinu VIÐSKIPTI 43 starfsmönnum Lands- bankans var sagt upp störfum í gær. Þrjátíu þeirra störfuðu í höfuð stöðvum bankans í Austur- stræti og að auki fengu allir starfs- menn útibúsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar uppsagnarbréf. „Þetta eru ömurlegar fréttir ofan á allt það sem á hefur gengið undanfarin fjögur ár,“ segir Frið- bert Traustason, framkvæmda- stjóri Samtaka starfsmanna fjár- málafyrirtækja (SSF). Hann segir að síðan í hruninu hafi fjármála- fyrirtæki fækkað starfsfólki um þriðjung eða um ríflega 2.000 manns. Kristján Kristjánsson, upplýs- ingafulltrúi Landsbankans, segir að uppsagnirnar nái til flestra sviða. Aukin áhersla á rafræna afgreiðslu leiði til fækkunar og hagræðingar á sviðum sem áður þörfnuðust starfsfólks. Uppsagn- irnar í flugstöðinni séu síðan var- úðarráðstöfun þar sem óvíst sé hvort starfsemi bankans haldi áfram þar. „Ég hélt að mesta umrótið væri búið eftir hrunið en svo fær maður fréttir á borð við þetta reiðars- lag,“ segir Friðbert. „Það er varla hægt að halda kerfinu gangandi ef fyrir tækin taka upp á því að halda áfram að fækka fólki.“ Hann segir að uppsagnirnar komi auðvitað langverst við þá sem verða fyrir þeim. Nokkrir hafi haft samband við SSF í dag og Friðbert gerir ráð fyrir því að þeim sem það geri muni fjölga á næstu dögum. - jóe Uppsagnirnar ná til flestra sviða. Framkvæmdastjóri SSF stóð í þeirri trú að það versta væri yfirstaðið: Landsbankinn segir 43 starfsmönnum upp DÓMSMÁL Saksóknari fer fram á allt að þriggja ára fangelsi yfir Hannesi Smárasyni, fyrrverandi stjórnarformanni og forstjóra FL Group, vegna fjárdráttar. Hannesi er gefið að sök að hafa millifært tæplega þrjá milljarða króna af reikningi FL Group hjá Kaupþingi í Lúxemborg yfir á reikning Fons hjá sama banka. Brotið á að hafa átt sér stað fyrir um áratug og setti verjandi Hannesar út á hve langan tíma rekstur málsins hefur tekið. Dómur ætti að liggja fyrir innan fjögurra vikna. - skh, jóe Hannes Smárason fyrir rétti: Saksóknari vill þriggja ára dóm LANDSBANKINN Flestir starfsmann- anna störfuðu í höfuðstöðvum bankans í Austurstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 E C -1 C 4 8 1 7 E C -1 B 0 C 1 7 E C -1 9 D 0 1 7 E C -1 8 9 4 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 6 4 s _ 2 9 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.